Hjartað spyr vindinn spyr daginn

 

Norsk nútímaljóð II (Höfundar á lífi)


Frá því að ég stundaði nám í Noregi á áttunda áratugi síðustu aldar hef ég haft sérstaka unun af að lesa norsk nútímaljóð og þýða þau yfir á íslensku. Þessu hef ég haldið áfram til þessa dags sjálfum mér til ánægju enda nýt ég sjálfra ljóðanna. Í þessari síðari bók eru ljóð eftir norsk nútímaskáld sem eru á lífi.

Hjartað spyr vindinn spyr daginn


Cecilie Löveid (f. 1951)

Mamma


Hún situr í strætisvagninum

eftir að hafa keypt

lifandi fisk og graslauk

nú ætlar hún heim

til kartaflnanna og

bráðnandi smjörs.

 

Stein Grönli (f. 1947)

Fyrirsögninni


yfir símsendu NTB-ljósmyndinni af Pat Nixon 59 ára

þar sem hún fóðrar grísina hans Hsú Tíng-Fú 63 ára

í alþýðuhéraði við borgarmúra Pekíng

breytum við í

Traust undirstaða úr eigin heimilishaldi.

 

Smáljóð

Nóttin er afblómuð

morgunninn er þroskaður

ég get uppskorið tvær fölgular

sítrónur í augnkrókunum.


Ef til vill huggun

Ég

hvíli kinn

mína

á

bullsveittum

líkama

magadansmeyjar

 

Og

veit að annað

Tyrkland

en Istanbúl

er ekki til ...

 

Jan Bojer (Vindheim) (f. 1945)

Stjórnleysingjasálmur 1967


Með lifandi hár eins og flagg í vindinum

erum við dimmrauð (blóðhlaupin & bólgin)

í tilfinningalegri ást okkar til mannanna

skynfæri okkar eru knúin áfram af hassi

undir heitu ljósi heilaskurðlæknisins

para sig við tækjakraft bræðra okkar

sem heita bob dylan

sem heita allen ginsberg

sem heita john paul ringo og georg johannessen

& önnur nöfn í öðrum löndum

sem syngja svartar messur okkar

(um miðnætti & á öðrum tímum)

sem slá svart hljómfall okkar

            á bensínfat

            á rafmagnsheila

            á mjaðmir

 

(svartir eins og vélmennirnir

            eins og vagnkarlar

            eins og bolsévíkkar

            eins og við sjálfir)

 

Ef við tökum við óskapnaði fjöldans

er það í gegnum guðhræddan óheiðarleika klæða okkar

eins og ópíumdropar gröfum við okkur

inn í það mannlega

til að þurrka út allt sem mikilvægt er

áður en við sjálf verðum þurrkuð

út.

 

Björn Christensen (f. 1945)

Vitundarvakning


Þegar við fórum inn til

            að finna

                        alla þræðina

                                   kynntumst

                                               við vefarastofunni

                                                           og fannst við

                                                                       ekki lengur

                                                                                   geta verið neitt 

                                                                                    gólfteppi.


 

Björn Christensen (f. 1945)

Mengun


Daginn

sem ég varð

úrgangur

skildi ég

að þú varst

hálf

af því að þú vildir ekki vita

af mér.

 

Gef oss í dag vort daglegt brauð

Myllusteininn

má nota

            til svo margs

 

Sumir

mala korn

en aðrir

hafa hann

            um hálsinn.

 

Eðlileg viðbrögð


Malbikinu

fannst sér

sýndur heiður

þegar tréð hallaði sér

ástúðlega yfir það

en vindurinn

hló hljóðlega í blöðunum.

 

Nauðgun


Kvöld eitt

sá ég

í sólarlaginu

kvenský

sem glóandi glennti út fætur sína

yfir kirkjuturninum

sem gerði ekkert

nema standa þarna

og fróa sér.

 

Já, það færðu að sjá

Hef verið

of lengi á sama stað

svo að nú er ég farinn

 

Bíð þess

að eitthvað gerist

sé að allir eru

hérna

og bíða

 

Ef til vill hefur það

gerst

meðan ég var

            fjarri ...


Kjersti Ericson (f. 1944)

Fangelsi er ekki staður fyrir fólk


Í Portúgal var maður

hann barðist í þágu verkafólksins

þegar hann var látinn laus eftir 16 ár

sagði hann:

ég sé ekki eftir því

því að málstaður minn var réttur

en meðan tíminn líður

verður hár ástvinarins

algjörlega grátt

manstu að liturinn var annar áður?

eftir 16 ár

er ekkert lengur eins og það var

margir vinir eru látnir

og það er gróið yfir götuslóðana

 

Svartur maður í Jóhannesarborg

hélt hann væri manneskja

þegar dómurinn um 12 ár var kveðinn upp

hrópaði konan hans:

Eiginmaður minn, ég er hreykin af þér!

en meðan tíminn líður

verður hár ástvinarins

algjörlega grátt

manstu að liturinn var annar áður?

eftir 12 ár

er ekkert lengur eins og það var

margir vinir eru látnir

og það er gróið yfir götuslóðana

 

Maður í Austur-Þýskalandi

og kona í Vestur-Þýskalandi

sátu í fangelsi fyrir styrjöldina miklu

í styrjöldinni miklu

eftir styrjöldina miklu

Maður í Paragvæ

var ekki pyntaður alveg til dauða

þau kvarta ekki enn

yfir heiðarleika sínum og hugrekkinu

en meðan tíminn líður

verður hár ástvinarins

algjörlega grátt

manstu að liturinn var annar áður?

eftir myrk ár

er ekkert lengur eins og það var

margir vinir eru látnir

og það er gróið yfir götuslóðana.

  

Olaug Rekdal (f. 1939)

Aðrar áttir


Við erum tvö börn sem sitja hvort í sínu horni sandkassans og byggjum sandkastala hvort fyrir sig og við horfum hvort á annað í laumi og langar til að leika okkur saman en við erum of feimin til að láta það í ljós. Og við þorum ekki heldur að trúa því fyllilega að það sé

satt.

 

Við erum tvö þögul börn í sandkassanum með hvort sinn sandkastala. Ég brenn af löngun til að leika við þig en get ekki sýnt þér það öðruvísi en að sitja hér og fara ekki til að leika við aðra. Hví ert þú þarna ennþá?

 

Þú leikur að bílunum þínum eins og til að sýna mér hvað þú átt. Þú byggir turn á kastalann þinn eins og til að sýna mér hvað þú getur. Þegar þú snýrð bakinu öðru hvoru að mér er það nóg til að sýna mér að þú kærir þig ekkert um stelpur. En þegar þú snýrð þér að mér aftur er það til að gá hvort ég sé þarna enn. Því að þegar þú sérð það tekur þú stórt hlass á bílinn þinn.


Ég sit hér og sting blómum og kvistum niður í sandinn. Ég rækta akur kringum kastalann minn til að sýna þér hvað ég get. Því að þú ert fallegasti og flínkasti strákur sem ég hef séð og ég vil alltaf vera með þér. Ef þú kemur hingað skaltu fá að sjá hvað ég faldi í kastalanum mínum. Það er leyndarmál sem ég ein veit og sem þú einn færð að vita.

 

En það er óvíst hvort þú sérð það nokkurn tíma. Það er óvíst hvort við getum nokkurn tíma leikið okkur saman.

 

Því að á milli okkar standa tveir fullorðnir. Við höfum tvo fullorðna til að tala fyrir okkur. Tvær kynverur. Þær geta talað. Þess vegna erum við þögul. Þær geta hlegið. Þess vegna sitjum við hvort í sínu horni. Þær eru opinskáar. Þess vegna erum við feimin.

 

Milli okkar standa maður og kona. Þau hafa gleymt okkur og skilja ekki hvort annað. Allt er þeim erfitt því öllu hafa þau breytt í orð og kyn. Þau eiga hugtök um gott og vont og eru ekki saklaus lengur.

 

Þau berjast hvort við annað því að þau þrá nærveruna. En þau eru hlekkjuð í orð og allt fer forgörðum.

 

Það kemur fyrir að þau standa þannig að við sjáum ekki hvort annað. Þá verð ég hrædd og ríf niður sandkastalann minn því að þá held ég þú hættir kannski og farir burt. Ég er ekki viss um að þú þorir að treysta á mig. En þegar þau loksins víkja til hliðar ertu þarna enn. Þá sé ég að þú hefur líka eyðilagt þinn. Þá ljóma ég upp af vissunni og kastalinn minn rís á ný. Þegar þú sérð mig byrjar þú líka að byggja aftur. Við vitum það sama og viljum það sama!

 

En það er óvíst hvort við fáum nokkurn tíma að leika okkur saman. Það er óvíst hvort þau fullorðnu taka nokkurn tíma eftir okkur.

 

Viðv. baráttunni fyrir tilverunni


Ég er fullorðin manneskja

með grundvallarþörf fyrir

ást

vináttu

tilbreytingu í tilverunni

athygli

öryggi

 

Það er ákaflega sársaukafullt

þess vegna dreymir mig

dagdrauma

einangrun

eftirsjá

 

Til að fá mátt til að lifa

og hreyfa mig í þessum heimi

og ljúka einhverju áður en ég dey

ef svo skyldi fara að ég verði aldrei

ánægð.

 

Á almennum fundi


Herra fundarstjóri

 

Ég er ekki vön því

að tala á fundum

ég er ein þeirra sem aldrei biðja um orðið

því að mér tekst aldrei

að tala eins og þið

 

En mér finnst eindregið að það sé skylda mín

sem þegns í lýðræðisþjóðfélagi

að mitt álit komi líka fram

 

Ég vil þá segja að skoðun síðasta ræðumanns

stríðir á móti einhverju í mér

og ég lýsi því yfir að ég er mjög ósammála honum

  

Án þess

að ég geti sagt

hvers vegna

eða bent á annan möguleika

 

Ég ætla að fá að skýra frá því þegar mér finnst

að álit mitt sé komið fram.


Baste Gröhn (f. 1938)

usaburtfrávíetnam

 

                                                   USA

                                            BURTFRÁV

                                             ÍETNAMUSA

                                            BURTFRÁVÍ

                                            ETNAMUS

                                              ABURTFRÁ

                                                   VÍETNAM

                                                      USABURTFR

                                                      ÁVÍETNAMUS

                                                 ABURTFRÁVÍETN

                                                  AMUSABURTF

                                                   RÁVÍETNAMUSABU

                                                             RTFRÁVÍETNAMUS

                                                        ABURTFRÁVÍETNAM

                                                             USABURTFRÁVÍET

                                                             NAMUSABURTFRÁVÍ

                                                             ETNAMUSABURTFRÁV

                                                             ÍETNAMUSABURTFRÁV

                                                        ÍETNAMUSABURTFR

                                                        ÁVÍETNAMUSABURTF

                                                           RÁVÍETNAMUSABURT

                                                           FRÁVÍETNAMUSABUR

                                                           TFRÁVÍETNAMUSABU

                                                           RTFRÁVÍETNAMUSABU

                                                           RTFRÁVÍETNAMUSABU

                                                             RTFRÁVÍETNAMUSA

                                                             BURTFRÁVÍETNAMUS

                                                          ABURTFRÁVÍETNAM

                                                  USABURTFRÁVÍETNAMUS

                                         ABURTFRÁVÍETNAMUSABURTF

                                   RÁVÍETNAMUSABURTFRÁVÍETNAM

                                   USABURTFRÁVÍETNAMUSABURTF

                           RÁVÍETNAMUSABURTFRÁVÍETNAMUSAB


 

Björn Nilsen (f. 1934)

Við skulum leika okkur


Taktu við gerviblómunum mínum

og fjölrituðu ástarjátningunni

– lýsingarorðin í henni eru gerð af sérfræðingum –

taktu við sykurhúðuðu hjarta mínu

og segðu já

 

Svo getum við farið

og látið segulband vígja okkur

til eilífrar tryggðar

í verkamannablokkunum

 

Farðu í bestu fötin þín

og settu upp nýjasta brosið

við skulum þykjast vera

                                  fólk.

 

Ola Jonsmoen (f. 1932)

Dagurinn, vindurinn og hjartað


Barnið segir:

ég á lífið

gef mér ljósið

 

Hjartað spyr vindinn spyr daginn

 

Dagurinn svarar:

ég á ljósið

gef mér lífið

 

Barnið segir:

ég á augu

sýn mér veröldina

 

Hjartað spyr vindinn

 

Vindurinn svarar:

ég á veröldina

gef mér augu

 

Barnið segir:

ég á ást

kenn mér að elska

 

Hjarta hjarta mitt!

 

Hjartað svarar:

barn hér er ég

þú skalt verða stór.

 

Peter Rövde Holm (f. 1931)

Bonnie og Clyde


Bonnie og Clyde

geystust inn í heim flóttans

og drápu hvert ráð hvert skot

hver bíll sem var stolið, hvert

handtak um vélbyssuna

lukti þau inni í tálsömum

tilfinningum þess að beita umheiminn valdi

þau voru stöðugt á flótta losnuðu aldrei

við ofsækjendur sína leituðu aldrei

skorts síns á meðvitund um sig sjálf.

 

Bonnie og Clyde

þindarlaust þutu þau um Missouri

Kansas Oklahoma hið stórbrotna landslag

hreinskilninnar flæðandi ljós yfir verknuðum

lifðu aðeins reikult blaktandi skugga

óróleikans inn í sig ... Þannig var

líf þeirra sérkennileg blanda sakleysis

og spillingar guðlaus fyrirlitning

mótmæli gegn öllu orsökunum þrýst

út í myrkrið burt úr augsýn

samsömun staðfesting. Og í snöggri

örvita þörf til að endurreisa allt koma í veg

fyrir að það sem var orðið gerðist

brutu þau sér leið til frelsis án þess

að vita hvað frelsi er: Að láta það sem

við ekki fáum ráðið yfir fullnægja

okkur þannig að við að síðustu

greinum ekki líf vort frá heiminum ...


 

Peter Röwde Holm (f. 1931)

Hús Söru Pardee Winchester


Árið 1928 lést öldruð frú í San José í Kaliforníu. Það var Sara Pardee Winchester sem 40 árum áður varð ekkja eftir W. W. Winchester, son vopnaframleiðandans. Ekkjan óttaðist að þeir menn sem drepnir höfðu verið með vopnunum sem fjölskylda hennar hafði framleitt myndu ganga aftur til að hefna sín á henni. Hún leitaði til manns sem var skyggn án þess að fá nokkurn veru­legan frið á sálinni. Hann sagði að eina leiðin til að halda draugunum burtu væri sú að koma af stað risavöxnum byggingarframkvæmdum þar sem hún sjálf ætti heima. Þetta byggingarstarf yrði að standa yfir meðan hún lifði.


Sara Pardee Winchester

bjó nærri 40 ár í húsi sem aldrei

var fullgert en óx í allar áttir

umhverfis hana sem sífellt meiri bráðabirgða-

árangur skipulagsleysis hugvitssamra

húsagerðarmanna. Herbergi eftir herbergi, húshluti

eftir húshluta, bogagöng, rangalar teygðust

fram og aftur um ógnandi viðbyggingar.

Í þrjátíu og átta ár gat hún á hverju kvöldi slökkt

ljósið í fullvissu þess að einhvers staðar

í húsinu var einhver að negla og saga. Og af því að

hún reyndi aldrei að gleyma sjálfri sér út af

umheiminum en sökkti sér sífellt dýpra inn í

ótta sinn við að loka veröldina úti

frá sjálfri sér varð hún smám saman, hægt

og óbætanlega ófær um að skynja

sitt eigið líf. Dag og nótt, hverja stund

sólarhringsins var einhvers staðar í húsinu

einhver að negla og saga. Samtals voru

um það bil fimmtíu arnar innréttaðir og fjörutíu stigar

þar af enduðu sumir uppi undir þakinu

eða mitt í loftinu. Og af hinum tvö þúsund dyrum

voru sumar falldyr eða dyr sem leiddu inn í

dimma króka. Svalir svignuðu í

innilokuðustu herbergjunum. Ósvikið draugahús!

Út um um það bil tíu þúsund glugga hafði hún útsýni

yfir það sem sást af umheimi

sem hún vissi ekkert um og sem hún þess vegna

óttaðist sífellt meðan húsið teygði skipan sína

yfir svæði sem að endingu tók yfir þrjátíu ekrur

Sara Pardee Winchester

fór aldrei út úr hinu afskræmda húsi sínu og

húsið túlkaði ótta hennar við allt

sem hún flúði með því að lykja sig

innan fleiri og fleiri veggja

stiga, ganga sem áttu að rugla

alla sem hún hélt að væru að leita hennar

til að ógna lífi hennar. Og af ótta við

að einhver ógnaði lífi sínu

gekk hún sjálf lifandi inn í þann dauða

sem fólginn er í því að lifa stöðugt án þess

að forma óróleika sinn með öðru en múrveggjum

um líf sitt. Því meira sem hún reyndi

að losa sig við óróleikann, þeim mun öflugar og

gegndarlausar lukti hann greip sinni um

hana: Pipur mannvera sem hinir þrjátíu

þjónar og næstum jafnmörgu byggingar-

verkamenn af og til sáu bregða

fyrir. Í þrjátíu og átta ár

voru það aðeins þrjár persónur sem hún reglulega

sá: Einkaritarann sinn, frænku sína og

kínverska þjóninn sinn – þann sem daglega

færði henni matinn á gulldiskum fjölskyldunnar

 

Sara Pardee Winchester varð 85 ára

og dó eðlilegum dauðdaga, eftir að hafa lifað

mjög óeðlilegu lífi. Og allt húsið

hlustaði þá, nærri eins og lifandi vera,

enginn nagli var rekinn, enginn planki

var sagaður, aðeins vindurinn suðaði gleymsku

og ró yfir hús Söru Pardee Winchester.


Peter Röwde Holm (f. 1931)

Nóttin svartur hestur


Nóttin svartur hestur

kemur til að drekka

síðustu dropa ljóssins

 

hagarnir slokkna

skógar leggjast saman

undir gráum vindi

 

nóttin svartur hestur

lyftir höfði sínu:

 

Stjörnuband

tindrar um enni.

 

Melkior Pedersen – alias Willy Melkior Dahl (f. 1927)

Áþreifanlegt


L

J

Ó

Ð

 

Notkunarreglur:  Rífið þessa síðu úr og límið hana á pappa eða karton, til dæmis kápuna á þessari bók. Þegar límið er orðið þurrt eru bókstafirnir fjórir klipptir út með skærum! Þegar allir fjórir stafirnir hafa verið klipptir út getið þið raðað þeim í þá röð sem þið viljið og fengið út skemmtileg orð eins og JÓÐL, LÓÐJ og svo framvegis.


Jón Eiríkur á leiðinni út úr herberginu sad and dazy


é

ge

rný

búin

naðs

krifalj

óðumsjá

lfanmigse

mmér finnst

mjöggottogn

úerégáfullriferð

útúrherbergin

util að pissaþa

ðfinnstmérmjö

ggott

aðge

raþegaré

gerekkiaðskrifa

ljóð  það segir

bzzz


Nýeinfalt


Ég kann ekki við

stúlkuna á auglýsingamyndinni

fyrir tannkremið

 

Hún er svo hress

og fersk

og brosandi

og hrein

 

En hún lagðist með ljósmyndaranum

tíu mínútum áður en myndin var tekin

á meðan auglýsingastjórinn

káfaði á brjóstum hennar

 

Ljósmyndarinn

hefur sagt mér það

sjálfur

 

Samt

vona ég

að tannkremið

eyði gulunni.


Ritvélarljóð

 

¨  !  „  #  $  %  &  /  (  )  =  ö  _

°  1  2  3  4  5  6  7  8  9  0  ö  -

Q  W  E  R  T  Y  U  I  O  P  Р ?

  A  S  D  F  G  H  J  K  L  Æ  ´  *

      Z  X  C  V  B  N  M  ;  :  Þ

 

Per Erik Solem (f. 1945)

Barn


berjast                                                           tapa

                        stríð                barn

hata                                                               sigra

                        stríð                barn

                                                                       finna

                                               barn

hata

                        stríð

                                                                       skapa

skjóta                                     barn

                                                                       skjóta

                                               barn

sleppa                                                            skjóta

                                   fullorðnir

 

Gunnar Johannesen (f. 1951)

Kynslóð


1.

Ég sem fæddist þegar atvinnuleysið var 33 prósent

geng til allra starfa minna

með tvo þriðju afls míns til að ekki virðist

sem ég sé á réttri hillu í lífinu

 

2.

Áður en Hitler hafði myrt hundrað Gyðinga

kunni ég að telja upp að fimmtíu og sextíu

Hraðar en Frankó lagði undir sig Madrid

lagði ég undir mig lestrarlistina (Við fengum

lexíu um viðskipti Nerós og þeirra kristnu daginn

sem Lorca var skotinn á vígvellinum ásamt með

fimm þúsund sekum og saklausum.

Samt lásum við áfram)

 

Tveimur árum síðar sá ég þrjú ósvikin lík:

gamla konu og tvö grænklædd börn

í húsi án veggja innan um reyk án elds

en brennuvargarnir voru þá nefndir brunaverðir

stríðið var nefnt stríð

ég lærði að lesa blöð

ég taldi upp að sex milljónum

og upp að hundrað þúsundum og upp að núlli

 

Svo þegar friðurinn kom fann ég skammbyssu

tók hana upp í sögutímanum var

rekinn úr skólanum og kom aldrei aftur

ég varð ástfanginn í fyrsta skipti

það var rétt eftir Hírósíma og

við blístruðum amerískt lag

til að undirstrika einlægni okkar

 

3.

Fyrstu samfarir mínar

urðu í Kóreustríðinu

ég elskaði hana

hún elskaði mig

og við lágum á dagblöðum

 

Svo fremi ekki verði stríð

svo fremi ekki verði friður

með afvopnun og vonleysi

lofuðum við hvort öðru:

 

Við ætluðum að segja okkur úr heiminum

en fundum ekkert eyðublað

 

4.

Síðan man ég

ekkert ógleymanlegt

með fyrirframgreiuðslum og afborgunum

sigra ég árin

 

Nú er ég bráðum jafn gamall

og Jesús þegar hann dó

bón mín til tilviljunarinnar

er að vera hlíft við samkrossinum


Heikki Grøhn (f. 1949)

Þess vegna


Hvers vegna stóð ekki lengur

hjónaband þeirra Miu Farrow

og Frank Sinatra?

 

var það vegna

29 ára aldursmunar þeirra?

 

Eða var það

viðurkennt samband hennar

við enska leikarann

Lawrence Harvey

sem olli skilnaðinum?

 

Frank Sinatra hefur sjálfur sagt:

„Það er erfitt

að eiga saman við mig að sælda“

 

Samanlagt hafa hjónin

verið lengur aðskilin

en saman

            sjá opnu


Lars Saabye Chistensen (f. 1953)

Kvöld í íbúðinni minni


Ég bíð þess að sofna

Heimurinn er án mín

samt heldur hann áfram

Dyrnar eru opnar til hálfs

Ljósið úr stofunni

myndar mjóa brú yfir gólfið

Ég hlusta á niðinn í rörunum

vatnslyfta um hæðirnar

Ég hlusta á síðasta strætisvagninn

sem stansar við sjúkrahúsið

þar sem hinir látnu tala: það er hættulaust

Síðan er dyrunum lokað

Þögnin og myrkrið fara yfir brúna

sem ekki er lengur til

og leggjast við hlið mér

mig dreymir um skýjaklúfa

mig dreymir um hraðbrautarstjóra

mig dreymir um mjólkina sem rennur úr ísskápnum

og bláu tígrana sem drekka hverja nótt

úr hvítu stöðuvatnigólfdúksins

 

Ævisaga I


Þegar Valdimar fyrsti fæddist

var hann strax orðinn stór eftir aldri

með fullar hendur

Hann lærði snemma að fara seint að sofa

Opnaði fyrsta bankareikninginn

áður en hann lærði að telja

og var skráður í kauphöllina þegar hann varð tíu ára

Kertin á kökunni urðu fljótlega hundrað

Valdimar fyrsti sagði að lágstéttin gæti líka orðið efst

Maður þyrfti bara að vita hvað tröppur ætti að nota

Eldhúströppurnar væru með jafnmörg þrep og rauði

                                                                       dregillinn

Í viðtölum greindi hann skýrt á milli vinnu og frítíma

Hann vildi gjarnan tala um einkalífið

en aldrei um peninga

Litið var á hann sem miskunnarlaust heiðarlegan

en vissi alltaf hvenær hann laug

Stríðinu kom hann raunar vel út úr

Hann féll tvisvar, einu sinni á hvora hlið

Valdimar fyrsti var maður friðarins

Hann gaf óvininum heiðursmerki sín og sagði:

Festið þær á bakið svo að vitum hvar þið eruð

Hann kvæntist innan samfélags hersins

Hún var silfurrefur með ótal vasa

Þeim leið vel saman hvoru á sinni hæð

Kreppuna tók hann hins vegar persónulega

og sendi auð sinn úr landi

Hann var í alþjóðlegur innst inni

og stóð aldrei með húfuna í hendi,

aðeins þegar hann bað heilbigðisráðherrann um

verkjastillandi lán

Sumar eitt var hann gripinn fyrir innherjaverslun

Hvar í fjáranum ætti maður annars að versla?

sagði Valdimar fyrsti

hann varð að eyða vetrinum í næstu skattaparadís

og kom sólbrenndur til baka fullur af ódýru vinnuafli

Nú gat hann líka rekið eiginkonuna

 

Þegar Valdimar fyrsti fékk loks á grafarbakkanum

pláss í leikskólanum sem opinn var um nætur

viðurkenndi hann í trúnaðarsamtali

við skammtímaráðnar konurnar þar

að gæti hann lifað upp á nýtt

gæti hann virkilega lifað upp á nýtt

hefði hann aldrei fæðst

 

Hringdans


Í gær var bærinn fullur

af óléttum konum sem stóðu

svo þétt saman að ég komst varla framhjá

á götuhornum og brautarpöllum

í lystigörðum og rúllustigum

varð ég að smeygja mér á milli

brjálaðra hnatta

Og alls staðar þar sem ég settist

var ég vinsamlega beðinn að standa upp

Það var ekki lengur pláss

fyrir slæpingja með öfugan sólarhring

sem helst vildi komast heim

áður en hann missti vatnið

 

Í dag er bærinn fullur

af kjaftasjúkum mæðrum

þær sitja alls staðar og breiða úr sér

án þess að skammast sín

Í bakaríum og kaffishúsum

er hvergi laust sæti

og enginn stendur upp

fyrir blindfullum næturgelti

sem leitar sér að

síðasta hvíldarstað

En á morgun hvílir bærinn

aftur tómur, aðeins tómir

barnavagnar um allar götur í rigningunni

og vindurinn sem hristir ryðguð

grindverk, tónlist minnislista

og svartmálaðra minninga

Það er sorgarsöngur hinna horfnu

næturvarða, það er eitthvað á seyði

Það er eitthvað sem vantar

í barnlausan bæinn:

Hlátur, konur og

líf kynslóðanna


Dýrtíð


Það er bara þessi gamla veðlánasjoppa

sem fólks á meðal

kallast himinn

þar sem sálirnar liggja á rykugum skýjum

og hjörtun hanga til þerris út við

sjóndeildarhring eins og rauð laufblöð

í síðustu minningu ræningjans

Það er brunalykt af þeim, krakkar

Líkamir eru þegar fínmalaðir

og stráðir yfir stóra kökuna

eins og jarðefnaeldsneyti

Það er allt á fullu

Brátt sér til enda

Englarnir eru prangarar, í verkalýðsfélaginu

Verslunar- og Sólarlagsmanna

Það er ekki lengur neitt líf eftir dauðann

Aðeins skuldir


Staðgengillinn


Hann vaknar

við að einhver grætur

Hann getur ekki sofið

þegar einhver grætur

Hann lítur í kringum sig

Hver grætur svo sárt í dimmunni?

hver heldur fyrir mér vöku?

Enginn svarar, enginn svarar

Hann heyrir ekkert nema grát

Hann getur ekki sofið þegar einhver grætur

Síðan finnur hann tárin falla

eins og steina hjá andlitinu

Það er skriða sorgarinnar

Það er andlit hans

Margar skriður falla

Hann heitir Sveinn

Það er engin huggun að það sé hann sem grætur

og heldur vöku fyrir öðrum í dimmunni

Í nótt er hann þar sem hann vill síst vera:

með sjálfum sér.


Neyðarnúmer


Hún hefur ekkert sofið í nótt

það voru svo margar raddir í maganum

Þær sögðu það sama  á öllum tungumálum:

hungur, hungur, hungur

Þær töluðu til augnanna

þær töluðu til fingranna

þær töluðu til tannanna

og hún fékk vatn í munninn

Þær vildu ræða við hana

þær vildu hafa hana út af fyrir sig

Nú gengur hún án afláts

milli rúms og ísskáps

Hún setur steikina undir sæng

Hún sefur í kuldanum

Hún hefur ekki borðað síðan í fyrra

Vasaspegillinn er gamall matseðill

Tungan er þyngsta húsgagn líkamans

Hún skiptir á rúminu

Hún opnar og lokar, lokar og opnar

ísskápinn eins og hann væri biblía

Birtan fellur niður á gólfdúkinn

og frýs í snöru um frætur henni

Brátt getur hún ekki losað sig

Hún bíður eftir að máninn þíði

Raddirnar halda áfram að tala

Þær segja það sama á öllum tungumálum

hungur, hungur, hungur

Þær vilja ræða við hana

Hún heitir Karólína

Dagatalið hefur stoppað á nóvember

Hringið í næsta úrsmið

ef klæðskerinn er ekki laus í nótt


Svart-hvít greining


Nú get ég ekki greint

á milli veruleika og draums

eins og ég hafi nokkurn tíma

getað það

Ég hef verið íbúi í

mjúkum mörkum þeirra

síðan ég var níu ára

og fékk að líta himininn að innan

nótt eina þegar þakið opnaðist

í herberginu þar sem ég svaf

og ég leit um öxl og sáþangað

sem andlát mitt byrjaði hægt

 

En þú, nemandi minn, spyrð

hvort nú á tímum

sé einhver munur

á draumi og veruleika

 

Ég svara: afstaða draumsins

til veruleikans er eins og

afstaða skuggans til hlutarins

 

Þú þarft bara að finna vængfestuna

Huggun mín er hvað sem öllu líður þessi:

Hvort ég sef eða vaki

er heimilisfangið hið sama.

Lars Saabye Chistensen (f. 1953)

Skilaboð á ísskápnum

Ég fór mína leið

Ég ætlaði þangað

Það var ekkert mál

Ég gaf mig bara

frá degi til dags

Ég sagði: breytingin gleður

og skipti um skó

Ég fór mína leið

og sneri baki við

Ég leit ekki um öxl

ég stóð á mínu

En ég stóð ekki of lengi

ég vildi heldur fara mína leið

en að standa kyrr á götunni

Guð sat á grindverkinu

sorgmæddur og þögull

og horfði á garðyrkjumann sinn

Ótryggur þjónn

enn einn ótryggur þjónn

í garði mannveranna

Enn einn gleyminn  garðyrkjumaður

sem leyfði illgresinu að gróa

Síðan hélt ég mína leið

Ég komst alla leið

Það var ekkert mál

ég gaf mig bara

Allt sem ég tók með mér

hef ég kastað fyrir róða

Ef tækifæri gefst

skal ég senda nokkrar línur.


Armbandsúr Guðs


Sá sem hefur lítinn tíma

ætti að gróðursetja tré

 

Síðan ætti hann að setjast úti í sólinni

og bíða skuggans

af krónu trésins

 

Svo ætti hann að skrifa nafn sitt

í trjábörkinn

og vita: þessi skógur

mun einnig gleyma þér


Broddgaltarsól


Gul blöðin

skekkt í loftinu í stórri kistu haustsins

læst með regnræmum

og svart malbikið glampar

eins og kol og út úr runnanum

hinum megin

kemur broddgöltur á fullri ferð

og niður brekkuna frá Rauða krossinum

kemur síðasti leigubíll ársins

með mállausa óperusöngvarann í baksætinu

og allar tómu flöskurnar hans

eru eins og hljómsveit í farangursrýminu

og við stöndum við gluggann, öll fjölskyldan,

við veifum

og sjáum vinstra framhjólið hæfa dýrið

og heyrum slímugt hljóðið

af sprengdu kjöti

og pabbi fær brodd í augað

og mamma fær brodd í ennið

og systir mín fær brodd í nefið

og ég fæ brodd í munninn

 

og mállausi óperusöngvarinn syngur

mállausi óperusöngvarinn syngur nú

og síðan gekk hann leiðina

niður eftir

til himinsins þar sem alltaf skín

broddgaltarsól.


Ævintýri


Mjallhvít er farin heim til sín

hún vill svo gjarnan sættast við systur sínar

þær eiga ekki fegurð hennar

en þær eru í betra skapi

 

Þær segja frá öllu sem þær fundu

hún segir frá öllu sem hún týndi

enginn veit lengur hver öfundar hvern

 

Mjallhvít er oft einmana

hún segist helst

vilja vera ein

Þá heldur hún sér vel

það segir spegillinn líka

en hún er ekki alltaf sammála

Hún stendur oft hjá honum

og greiðir sér þar til augun glampa

 

Þegar systur hennar syngja í aftursætinu

kann hún ekki viðlagið

Bílstjórinn fer fruntalega í beygjurnar

stundum lifir hún það af ein

 

Af og til hugsar hún um dvergana

sem sóttu um hæli sem pólitískir flóttamenn

í þessu landi

sem lyftist hátt úr haf

og himinninn er nærri


Torf


Torfið þegir

torfið bíður

torfið geymir minningsr okksr

í svartholum sínum

 

Kuldinn stendur lengur hér

en sólin

vindurinn ber með sér þungan farangur

það er von á myrkari dögum

 

Torfið er daumarnir

sem eiga að þola dagsljósið

 

þegar við ristum það af

og berum það út úr nóttinni

 

Torfið hangir til þerris

á síðustu hesju sumarsins

 

Torfið er frásögnin sem brennur

á vörum vetrarins


Langlínusamtal


Félagi minn

stendur í símaklefanum í Skillebekk

haustið 1965

og hringir í númer sem enn er ekki til

og notar öll vikulaunin sín og það sem eftir er af lífi sínu

til að ná sambandi

og eftir 49 ár fær hann loks svar

Hongkong segi ég

hvað viltu með það?

Leita að úrum og jakkafötum

Finnurðu eitthvað?

Þær ganga of hratt og eru of þröngar

Hvenær kemurðu heim

þú hefðir átt að hringja fyrr?

Nei, þú hefðir átt að svara

segir félagi minn

sem stendur í símaklefanum

í Skillebekk haustið 1965.


Heimalærdómur I


Þegar ég var barn

fann ég kvöld eitt í maí

í götunni þar sem ég átti heima

milli fjarðarins, rakarans og úrsmiðanna

fyrir vindi sem minnti á mjólk

Ég var umlukinn

og ég vissi að þetta var dauðinn

Þetta var dauðinn sem birtist

hljóðlátur og mjúkur, eins og eitthvað gott

eins og eitthvað sem mig hafði dreymr

Ég er hér, ég er alltaf hér

en það var enginn draumur, það var enginn

það var bara dauðinn sem birtist

og sáði fræinu

sem nú er orðið að garðinum mínum

 

Ó, ef það gæti orðið þannig

vindur úr mjólk

sem felldi mig


Litafræði


Sagt er

að grænn litur sé róandi

því skaltu óttast grænt

 

Það er undir grænum ljósum

dómssalarins

sem þú verður dæmd

 

Það er yfir grænum dúk

prófborðsins

sem þú fellur

 

Það er dýpst í skóginum

innst í gulli og grænum skógum

sem þú mætir

banamanni þínum: skugga þínum

og þú villist

þú gengur í hring

um sjálfa þig

 

Það er á gangbrautunum

sem flestir eru

jarðsungnir

 

Þú skalt því óttast grænt

forðast gult

og hvíla í rauðu


Siðvenja


Eins lengi

og ég get munað

hef ég verið

gleyminn

 

Ég er hnakkinn í speglinum

og frakkinn í rúminu

ég er landabréfið

sem mér tekst ekki að brjóta saman

 

Ég hef notað

minningar annarra

um mig

 

til að halda stílnum

til að halda jafnvægi

til að halda út

 

eins og sá halti

sem styður sig við hækjuna

 

Ég man ekki enn hver ég var

eða hver ég er

ég veit bara hvað

ég vil verða

áður en ég fell:

einhver annar

sem getur fengið að láni

minningar mínar

 

Háskólahverfið


Ungu konurnar, ungu

karlarnir, eða einfaldlega

strákarnir og stelpurnar, ég sé  þau

milli deilda, milli félagsvísinda-

og heimpekideildar, milli einingafjölda

augnabliksins og samtölu misserisins

Ég öfunda þau

eins og ég öfunda þau

sem sitja í hring í síðsumarssólinni

á grasblettinum með öl, framtíð og einnotagrill

á meðan ég fylgist með

fyrirlestri haustsins.


Svefnvana börn


Það eru dráttarvélar næturinnar

það eru steinarnir í skorningunum

það er plógurinn sem glampar á

það er allt sem heldur mér vakandi

 

Það eru hljóðfærin í andyrinu                                                                                                                             

það er söngurinn í fatahenginu

það er gráturinn milli ljósastauranna

það er allt sem heldur mér vakandi

 

Það eru hestarnir á ganginum

það eru arkirnar í ofninum

það er máninn í skúffunni

það er allt sem heldur mér vakandi

 

Hver nennir að plægja þessa mold, pabbi?

Hver nennir að skrifa í þessu myrkri, pabbi?

Hver nennir að syngja í þessari þögn, pabbi?

 

Þeir sömu og plægja

Þeir sömu og skrifa

þeir sömu og syngja.

 

Jan Erik Vold (1939)

Ljóðið um sporvagnsteinana


Datt í hug að yrkja ljóð

um sporvagnsteina

Eitt sinn byrjaði ég á einu: Bærinn er bundinn

í sporvagnsteinaneti sínu

         komst ekki lengra

Farið út og skoðið sporvagnsteinana, þeir binda ekki

bæinn fastan, þeir liggja niðurfelldir í götunni

með brúarsteinum föstum beggja vegna, farið út

og skoðið bæinn, hann er ekki bundinn, það

er ekki hægt að binda bæi. Nei sporvagnsteinar

eru til að setja fimmeyringa á þá

sporvagninn fór hátíðlega

á brúnum myntunum upp Therese-götu,

við stóðum í portunum, tilbúnir til sð stinga af

ef sporvagninn stansaði, vagnstjórinn út! Fastklemmdir

fimmeyringar, jafnstórir og ensk

penný (sem voru 8 ½ eyris virði, gjarnan

skakkklemmdir, enginn elgur

á fimmeyringunum, heldur gamli góði Há sjöundi

Sporvagnsteinar og hjólreiðar! eitt sinn

datt ég á hausinn fyrir framan kennarann

það var í beygjunni við Sporvagnsgötu

fyrir utan snyrtivörubúðina og leikfangsverslunina

þar, maður var ekki öruggur

nema með blöðrudekk (ég var með hálfblöðrudekk).

Og vorið kemur, síðasti snjórinn

siglir eftir teinunum þýstir brúnu vatni á undan sér

með flottum bylgjurákum í. Síðan bláir menn

sem hreinmoka teinana svo að sólin

geti skinið á þá án þess að fá sand í munninn

þegar farið er upp brekkuna að Adamsstofu

þar sem leirinn liggur blautur

og brátt vex gras

á milli teinana.


Uplift blues


Þú sekkur, þú vilt komast að því

hvort það borgar sig að lifa, ég veit

svo lítið um þitt líf, sálfur hef ég

svo sem sokkið einu sinni eða tvisvar

og risið upp aftur, sleppt takinu að lokum

og risið upp aftur, opnað

þessar dyr og gengið

inn í nýtt herbergi – þar sem ég bý núna

eru tveir gluggar. einn í suður og annar í vestur, sá minni

móti suðri (hátt uppi á veggnum) sleppir

að vori sólarglætu inn

á gólfið í litla heimilinu mínu

sá stærri mót vestri sleppir breiðum sólargeisla

síðdegis inn yfir gólfplankana . Þegar ég sekk

til botns og get  aftur

lyft mér upp (enginn fær að lyfta mér upp)

gerist það að ég vakna og sé

       já um leið - árdegissólina, síðdegissólina

eins og hjálparhendur teygja sig inn

gegnum gluggana mína og niður

á gólfið þar  sem þær

takast í hendur og lyfta herberginu

upp!

Funny

 

Hugsa sér að ég sé fæddur

- hve fráleitt  það er

að ég skuli hafa fæðst, ég

fæddist í Ósló 18. október 1939

eftir Krist, á Vorfrúar-sjúkrahúsinu, ég

fæddist sem strákur, 4100 grömm

að þyngd, heilbrigður og hress, fæddist

um miðjan október (reyndar

á miðvikudegi), sem sé hlýt ég að hafa komið undir

í janúar, að það var ég sem fæddist

ég sem kom undir þá, sáðfruman mín

sem fann leiðina og var fyrst (eða sú sem

eggfruman, eggfruman mín, vildi helst, ef hún

fékk að ráða, það eru hreinustu ólíkindi

eða svo, að verið væri að leggja grunninn að mér

og engum öðrum en mér þar og þá

hver gæti gert ráð fyrir því í janúar 39? væri ég

Jan Erik Vold algjörlega mállaus kominn af stað

við að safna saman bókstöfunum mínum og frumuskiptast gegnum morula og bastula yfir í

froskdýr sem spyrnti sér sí gegnum völundarhús magans, sjúgandi allt að sér, til þess að verða  svo

tilbúinn til að þrýsta mér út sem mannveru

Hef ég annars sagt frá því að við vorum tekin

með keisaraskurði, systir mín og ég í febrúar 44 og október 39, í sólarklæðum er breitt tvöfalt ör niður eftir maga mömmunnar, það var vegna þröngs

grindarbotns hennar, af því stafar fagurt höfuð okkar

(svo er sagt) – að þessi tölfræðilegi nánast

ómöguleiki, möguleikarnir minna en einn á móti

milljarði, hafi komist af og orðið raunveruleiki:

ÞAÐ VARÐ ÉG – þetta hugsa ég þegar það virðist

ekkert létt að hafa fæðst, ég rétti úr mér og

hugsa upphátt:

SORRÝ BRÆÐUR, ÞETTA VARÐ AÐ MÉR

ÉG VERÐ AÐ REYNA AÐ GERA MITT BESTA


Sæl, Sidsel!


Ég kom við hjá þér

eftir baðið til að færa þér

koss því að ég var svo

nýrakaður en þú

varst ekki heima svo að ég gaf Karli

koss í staðinn

Og eina krónu

fyrir að fara í bað

- Jan Erik.


Stúlkan sem vildi kona til mín


Ég er bannsettur smámunaseggur

þessvegna var ég fúll þegar ég sá

hana skrifa komna, síðan

konna þegar hún átti við

að hún ætlaði að koma

til mín, þetta sagði ég henni

heimskinginn ég, það særði hana

skildist mér síðar

og hún vildi ekki oftar

koma til mín

Þá var það ég

sem vildi koma til hennar og

hún kom til mín. Nú konnum við

saman. Komdu

komdu!


Stúlka tvö


Ég elska þig svona, sagði stúlka 1

ég stóð á gólfinu

með stóran liminn

út í herbergið, aðeins á ská

upp til vinstri. Hefurðu séð?

sagði stúlka 2, með eistu mín

í lófanum, þau líkjast

hjarta


Kúrdar eru landlaus þjóðBúa í Írak. Írak drepur Kúrda


Þegar Teimour var tíu ára, komu hermennirnir. Allir

fullorðnir karlar voru afklæddir og ekið burt

Ekið var með konur og börn í vörubílum

til landamæranna að Saudi-Arabíu

 

og stillt upp við tilbúnar fjöldagrafir. „Þegar fyrsta kúlan hæfði mig, hljóp ég til hermanns, greip

í hönd hans og sárbað um miskunn.“ Hinir

 

hermennirnir öskruðu að hann ætti að kasta mér niður

í gröfina. Hann grét þegar hann gerði það.“ Og hermaðurinn skaut aftur, án þess að drepa.“ Teimour

þóttist vera dauður. Á meðan skriðdrekunum var ekið

 

áfram af hermönnunum, tókst þessum tíu ára strák að flýja til bedúínahóps sem hugsaði um hann og græddi

sár hans. Teimour er Kúrdi. Teimour er þrettán ára.


Grundvallardulspeki kapítalismans


Grundvallardulspeki kapítalismans:

hvernig ein króna, með því að liggja kyrr,

 

um stund, fæðir ef sér tíeyring

við hlið sér – til dæmis: Þú leggur

 

eins og í auglýsingunni

20.000 krónur inn á hávaxtareikning

 

í einn af stóru bönkunum: Eftir sex ár

geturðu farið í bankann og fengið greiddar

 

35.532 kr. Spurningin er: Frá hverjum eru

15.532 norsku krónurnar teknar?


The blues ain´t nothin´ but a good man feeling bad


Það síðasta sem Maó formaður

sagði við Edgar Snow: „Í rauninni

 

var ég aðeins einmana maður

sem fór um heiminn

 

með götótta regnhlíf.“ Og við

Chiang Ching, þriðju eiginkonu

 

sína: „Þú veist að ég er gamall

maður. Heilsa mín versnar sífellt. Samt

 

ergir þú mig með allskonar

smotteríi. Hvers vegna sýnir þú mér enga

 

samúð?“ Og við Sjú En-læ, félagann

sem hopaði hvergi við Teng Jing-tsjá

 

meðan gangan langa stóð yfir:

„Ég öfunda þig af konunni þinni.“


„Noregur er minni en nokkur veit“


Noregur sem ekki er

til

er til

fjórða hvert ár sem þátttakandi

 

í Ólympíuleikum

Bandaríkin sem eru alltaf til, biðja Noreg

að taka ekki þátt í leikunum

í Moskvu, þeim fyrstu síðan í Berlín 1936

 

þar sem Noregur hefur unnið sér inn

þátttökurétt í lokaumferðinni

í fótbolta: „Félagi

Brésnev, here we come,“ eins og Björge

 

Lillelien öskraði

í rauðu, hvítu og bláu, frá meginlandinu. Og

Noregur gerir eins og Washington

segir – quod erat demonstrandum: Þessi þjóð

 

sem ekki er til, er ekki heldur til

fjórða hvert ár

nema sem ósýnileg stjarna

í Stars and Stripes


Haika 1988


Noregur fer í

röðina. Ólympíuleikarnir

fara fram í Lillehammer.

 

Við vinina


Dálítilli

eyðimerkur

göngu

hefur

 

enginn

heldur

vont

af, þvert á móti. sagði

 

úlfaldinn. Það eflir

sand

til

finninguna.

 

Steinninn. vatnið


Eins og

vatn. Eins og steinn. Eins og

steinn

undir

 

vatni – það er ekki vilji steinsins

að slípast

og verða

ávalur undir

 

vatni en hann

slípast

og verður ávalur

undir vatni, steinninn.


Ljóðið minnir á heiminn


Sá sem verður skotinn

fær bindi

fyrir

augun. Til að hann

 

sjái

ekki

böðulinn? Nei

-Til að

 

böðullinn

sjái

hann

ekki.


Hvernig hárið hvítnar


Þannig

íhugum

við. Þannig brjótum við

heilann. Þannig

 

juðumst

við áfram

og hugsum nokkra sentimerra

til. Þannig breytast

 

klukkustundir

okkar í

áratug. Þannig verður hárið

hvítt.


Vetrarsöngur


Þannig kemstu

í

hitann

minn. Ég gef þér allan minn

 

hita. Því miður fylgir

líka

dálítill

kuldi með. Ef þú

 

vilt

fá hann. Ég

er

bæði kaldur og heitur.

 

Jon Fosse (f. 1959)

Sofið kæru


Lítið hvítt hús

vegur sem gömlu konurnar koma eftir

ein og ein

tvær og tvær

hér ganga þær og halda á veskjum sínum

 

og síðan heyrist söngur

 

og síðan skraf

 

og síðan dreifist kaffilyktin um líkama þeirra

 

dráttarvél ekur framhjá á veginum

 

fjörður

leggur birtu sína inn um litla glugga

hvíta hússins

 

bæn heyrist

 

og annar söngur

 

og síðan dimmir hljótt og fjörðurinn leggst yfir landið

og gömlu konurnar ganga heim á leið

í litlum hópum Og síðan stendur hún amma mín

 

þar á hlaðinu

hún segist verða að láta peningana úr útdrættinum

í skrínið sitt

í þessum skáp

 

á eftir verðum við að fara í flórinn

og kindurnar þurfa fóðrið sitt

og ég ætla að hjálpa henni

að taka súrhey úr turninum

 

þið, mín kæru

og vertu góður, Guð.


Barnið útskýrir


Ekkert er til

margt er til

Til eru hús

og til eru bílar

Og ég er til

En ég er ekki til

Ég er til og ekki til

Ég er hér

og ég er líka hér

en þú getur líka sagt

að ég sé ekki hér.

Þannig er það

Ég var ekki hér

Ég er hér

og samt

er ég ekki hér

En ég er hvergi annars staðar

heldur

Því það er enginn staður

Þetta er staður

Það eru staðir alls staðar.

Það er fólk alls staðar

og fólkið er

og það er ekki

Aiveg eins og ég.

Þetta er mín útskýring

Þannig hugsa ég

 

Og svo hugsa ég

að

þegar ég er

og þegar ég er ekki hér

þá er ég hér

og þá er ég ekki hér

Og ég hef ekki verið hér svo lengi

Og þar

þar sem ég var áður

þar var ég ekki

en ég var þar líka

á einhvern hátt

eins og er núna

bæði er og er ekki

hér sem ég er núna.

Það er skýring mín

Það eru til staðir sem ekki eru til

þá

það hlýtur að vera

en slíkir staðir eru ekki staðir

Þetta er bara eitthvað sem maður segir

Þetta

staðir

því eitthvað verður maður þó að segja

Og maður getur ekki sagt

eitthvað sem er hvergi til

ekki að það sé einhvers staðar

ég á við

já

Þannig er það

en það hefur ekkert með það að vera

að gera

Það er skýring mín

og það er það

einmitt það sem ekki er

og er samt

það er það mikilvæga

og það getur líkst bláum himni

eða litlum

skó í sólinni

sem liggur þarna aleinn

hjá gömlum trébekk

til dæmis

eða það getur líkst

tveimur stórum stígvélum

þarna í regninu

eða það getur líkst þessari beygju

gagnvart steininum þarna

Eða augum þínum

og á hár þitt

Á þann hátt sem þú þarna

einmitt þarna

hreyfir hönd þína

þú hreyfir aðeins hönd þína

en einmitt þarna

gerðir þú ekki aðeins  þar

þú gerðir nokkuð allt annað

Og skórinn þarna

eins og hann hallar sér að trébekknum

hann er ekki bara skór

sem hallast upp að trébekk

ekki einmitt eins og hann liggur

og eins og ljósið

rignir á hann

Það er skýring mín         

unsplash