Frá því að ég stundaði nám í Noregi á áttunda áratugi síðustu aldar hef ég haft sérstaka unun af að lesa norsk nútímaljóð og þýða þau yfir á íslensku. Þessu hef ég haldið áfram til þessa dags sjálfum mér til ánægju enda nýt ég sjálfra ljóðanna. Í þesssri fyrri bók eru ljóð eftir norsk nútímaskáld sem eru látin.

Heikki Gröhn (1878 - 1949)
Þess vegna
Hvers vegna stóð ekki lengur
hjónaband þeirra Míu Farrow
og Franks Sinatra?
Var það vegna
29 ára aldursmunar þeirra?
Eða var það
viðurkennt samband hennar
við enska leikarann
Lawrence Harvey
sem olli skilnaðinum?
Frank Sinatra hefur sjálfur sagt:
„Það er erfitt
að eiga saman við mig að sælda.“
Samanlagt hafa hjónin
verið lengur aðskilin
en saman
sjá opnu.
Arvid Torger Lie (f. 1938 - 2020)
Boðið upp í dans
Ég hef horft lengi á þig
þú veist það
þú sýnir mér fallegan líkama þinn
barmur þinn veifar til mín
og segir flýttu þér hingað!
læri þín brosa hlýlega
ég sagði ég vil sjá mjaðmir þínar dansa
þú biður mig að kyssa þig
ég segi þú sért falleg
þig er ég lengi búinn að þrá
segir þú
þú ert með falleg augu segi ég
þú hefur fallega rödd segir þú
ég segi lengi hefur mig dreymt um
að strjúka hár þitt með höndunum
þú segir ekkert en brosir
komdu segi ég
við hittumst
ég bauð þér upp í dans.
Nú göngum við í þungum snjó
Trumburnar eru horfnar
og gítararnir
gleðin –
Nú göngum við í þungum snjó
án þess að heyrist
í járnsólunum
Nú göngum við
undir týrunni frá ljósastaurunum
og við sjáum lítinn hund
elta okkur
í nokkurri fjarlægð
með trýnið við jörðu.
Snævetur
Vesölu kveinandi börn
liggið þið enn og króknið?
Sérðu ekki að dýnurnar
eru of litlar
tærnar standa út fyrir?
Jæja þá hér læt ég ykkur fá
stóra mjúka dúnlétta dýnu
en þá megið þið ekki kvarta meira
heldur brosa og vera öll glöð
Ástarþakkir kæri
þú ert voldugur vetur.
Arnold Eidslott (1926-2018)
Málverkið
Og faðir minn steig út úr málverkinu
og hann lagði þyngd ára sinna á herðar mér
og bernska hans og æskuár lágu á mér
og hann lagði elli sína á herðar mér og ég hrópaði
og faðir minn steig upp í svartan tekkrammann
og hann starði athugandi á mig litla stund
og hann lagði þyngd þessa lífs á herðar mér
og aldrei framar verður neitt eins og það var.
Rolf Sagen (1940-2017)
Á eftir
Á eftir förum við út á göturnar
við erum mörg hundruð
en við getum ekki tekið allt með okkur
ég reyni að fá hugmynd að ljóði
til að túlka aðeins þetta
ljóð hafa alltaf rétt fyrir sér
ljóð geta sagt hvað sé rangt
sé það svolítið blóð
svolítið dautt
og svolítið hold sem rotnar
er það rangt
að drepa fólk er rangt
að drepa tíu manns er rangt
en að drepa tíu þúsund?
Það er hægt að yrkja um einn
mann sem deyr
það er hægt að yrkja um tíu
manns sem deyja
en að yrkja um tíu þúsund
manns sem deyja?
Sé rangt að drepa
tíu þúsund börn
hvað þá um
að drepa eitt barn?
Ég hef fengið hugmynd að
tíu þúsund ljóðum
hver getur hjálpað mér að skrifa?
þau eiga að fjalla um dautt
blóð og hold sem rotnar í sólinni
Þau eiga að segja hvað sé rétt og hvað sé rangt.
Í dag
Í dag
en alltof veikum höndum
náði ég til þín
Og þú varst föl
af rykinu.
Til gamals manns
Hvað veist þú um líf
gamli maður
þú sem hefur lifað svo lengi?
Hvað veist þú um ást
gamli maður
þú sem hefur elskað svo lengi?
Vertu ekki að horfa á mig
gamli maður
þú sem hefur séð svo margt
Og hvað veist þú
um hljómföll blóðsins
þú sem hefur talið þau svo mörg?
Brátt er líf þitt stór þögn
þú gamli maður
segðu mér heldur frá því.
Vesaas í Club 7
Þeir safnast um hann
ókunnugur maður
Dansinn hefur þokast inn á við
nú smeygir hann svörtum hesti sínum
langt inn í líkamina
blindur og minnislaus
Þögn leggst
mjúkt við þessa fætur
Síðan lyftir hann stafnum
til steinhöggs.
Stein Mehren (1935-2017)
Ég held höfði þínu
Ég held höfði þínu
í höndum mér eins og þú heldur á
hjarta mínu með veiklyndi þínu
eins og allt heldur og er haldið
af einhverju öðru en sjálfu sér
eins og hafið lyftir steini
til strandarinnar – eins og tréð
heldur þroskuðum ávöxtum haustsins eins og
hnettinum er lyft upp í gegnum hnattrúmið
þannig heldur eitthvað á okkur báðum
og lyftir okkur þangað sem vandamálið heldur
á vandamálinu í hendi sér.
Liv Holtskog (1934-2014)
Ef einhver –
En hvað á ég að gera
við hjartað í mér
sem titrandi bað
um eitthvað
til að hlýja sér við
og sem lengi
hefur beðið?
Sem hefur hrópað á líf
í eyðimörk úr steini
hefur opinberað sig
ef einhver
kynni að sjá.
Varmahlíð
Ég held það hafi verið
þegar ég sat
á svarta hestinum
og reið yfir svart hraunið
sem þú varðst mín var
í fyrsta skipti
regnið hafði fallið
í þéttum dropum
og vætt hár mitt
hettan sem ég hafði
slegið um höfuð mitt
hafði losnað
á reiðinni
og stóð út eins og regnhlíf
þú
sast brúnhærður og dökkur
á ungu hryssunni þinni
þegar
ég kastaði hárinu
aftur á hnakka
til að tala við þig
sá ég
að þú varst bara augu.
Ég fann
að það þyrmdi yfir mig
allt í einu var ég orðin
þung eins og hesturinn
sem ég sat á
þorði ekki lengur að sjá
spretti bara úr spori
og fór að harða stökki
yfir grýtt hraunið.
Kjell Gabrielsen (1928-2008)
Græni hesturinn (Ljóðrænt ævintýri)
Ég bý í borg
í blokk úr malbiki
með svölum hátt uppi
og hef útsýni yfir
lítinn grænan hest
með blá augu
og ljósrautt tagl
hann er ekki stærri
en örlítill seppi
hann brokkar milli tindanna
og bítur snjó
langt fjarri
þegar nóttin
er full af stjörnum
tekur hann undir sig stökk
út í himingeiminn
og étur stjörnu
við ný og nið
sem við ekki sjáum
Nótt eina
bað ég hann
að sækja unnustu mína
hana sem rænt var
af jötnum og tröllum
og situr nú
í berginu bláa
Hann leit á mig
með undarlegum svip
og sagði:
ég get vísað þér veginn
ef þú þorir –
svo þutum við af stað
við hentumst yfir fjöll
yfir skóga og vötn
brátt vorum við komnir
á leiðarenda
í hendinni hélt ég
á dularfullum steini
sem var glóandi heitur
og breyttist í eld
þegar við stóðum
við andyri bergsins.
Á móti okkur
ruddust jötnar og tröll
ég þeytti steini mínum
og hann varð að báli
sem hræddi þá burt
ég fann ástmey mína
og setti hring
gerðan úr hugrekki
á fingur hennar
þá þorði hún með mér
Við vorum ekki langt komin
þegar við heyrðum
niðinn
í jötnum og tröllum
og öllum
undirheimaverum
ég tók upp litla öskju
og opnaði hana
þá byrjaði að snjóa
ég vonaðist til
að hylja slóð okkar
en það var eins og benda
af fjallstórum úlfum
á eftir okkur
ég smurði áburði
í hár unnustu minnar
og í næturkulinu
spruttu fram neistar
og tendruðu ljós
sem var bjart
eins og sólaruppkoman
Skyndilega
varð allt svo undarlega hljótt
við heyrðum ekki
drunurnar
lengur
fyrir birtunni
verða allar undirheimaverur
að flýja
Við komumst til baka
með græna hestinn okkar
sem elskar stjörnur.
Kjell Gabrielsen (1928-2008)
Ævintýrið um nornina og rósina
Einu sinni var rós. Í rósinni var örlítil spiladós. Og þegar fyrstu geislar sólarinnar gældu við rósina lauk hún upp blöðum sínum og spiladósin hóf leik sinn. Allir gátu heyrt það. En enginn í öllum heiminum gat fundið rósina.
Nema nornin. Hún þoldi ekkert sem var fagurt og satt. Hún var að hálfu ugla. Að hálfu köttur. Með auga sem var svartara en nóttin. Og hendur eins og kóngulær.
Hún spann vef sinn um rósina með höndum sínum og faldi hana síðan inni í myrkasta sorta auga síns. Þaðan komst ekkert hljóð. Þangað gat enginn séð.
Það var aðeins máninn sem hafði orðið vitni að þessu á braut sinni um jörðu. Hann gat ekkert sagt því að máninn er mállaus. Hann grét af sorg og tungltárið féll til jarðar sem tær kristall.
Einhver fann það og í spegilmynd þess sá hann hvað gerst hafði.
Og hann sá meira: Rósin með örlitlu spiladósina var í hjarta.
Hvað get ég gert? hugsaði hann. Getur nokkur hjálpað mér? Vindurinn hvíslaði í grasi, trjám og blómum.
Um leið vissi hann hvað honum bar að gera.
Kæru vinir mínir, sagði hann, gefið það fegursta sem þið eigið. Ég skal þá líka gefa mitt.
Fallegasta tréð gaf sín fegurstu lauf. Hafið gaf sín bestu maurildi sem lýsa um nótt. Skeljarnar gáfu sínar ljúfustu perlur. Og margir, margir aðrir færðu fram gjafir sínar.
Loks gaf hann sjálfur hið allra dýrmætasta: Hjarta sitt. Hann lagði þetta allt í skrín og beið nornarinnar. Því að hann vissi að hún þoldi ekkert sem var fagurt.
Það leið ekki á löngu uns hún kom. Skógurinn skalf, grös og blóm grétu. Jafnvel dagsbirtan óttaðist og faldi sig í grábláum bjarma. Og nornin – það hlökkuðu í henni formælingarnar þegar hún leit skrínið.
Hún beygði sig og opnaði skrínið og ætlaði að spinna um það vef með kóngulóarkrumlum sínum. Þegar hún snerti laufin og perlurnar, bráðnuðu fingur hennar. Hún ætlaði að galdra alla hlutina út í svörtustu myrkur með auga sínu. En þá svifu maurildin inn í auga hennar svo að það slokknaði. Hún sem var að hálfu ugla og að hálfu köttur varð máttvana gagnvart hjartanu sem var í skríninu. Allir töfrar leystust og rósin gat leikið á ný. En nú var til einn maður sem vissi hvar hún var.
Sem hann gekk yfir akra og engi stóðu blómin og grösin og hneigðu sig og beygðu í golunni. Það var eins og þau vildu vísa honum til vegar.
Nornin í græna enginu
Einu sinni var norn. Hún var ung og fögur. Á hverju kvöldi gekk hún út að engi einu grænu. Þegar myrkrið féll yfir rann hún saman við það og hvarf. Enginn vissi hvað af henni varð.
Veiðimaður einn með riffil um öxl átti leið þar framhjá. Hann sá þegar nornin hvarf. Hann beið komu morguns. Þá sá hann að hún varð aftur að mannveru.
Hann skildi eftir vopn sitt og fór til uglu nokkurrar og bað hana að ljá sér auga. Hún gerði það. Síðan fór hann til dádýrs eins og spurði: Get ég fengið lánuð eyru þín? Hann fékk þau einnig.
Í kveldhúminu beið hann í skógarjaðrinum. Þegar myrkrið féll yfir sá hann nornina breyta sér, hún varð minni og minni, að síðustu varð hún að svartri kónguló. Hún spann kóngulóarvef sinn í grasinu. Hann heyrði að hún veiddi og eitraði með broddi sínum hvern hlátur sem orðið hafði til um daginn og lifði í grasinu – allt sem kærleikur hafði skapað. Öllu þessu breytti hún í sársauka og grát.
Daginn eftir fór veiðimaðurinn til járnsmiðs og lét smíða sér flautu úr besta stáli byssu sinnar. Um kvöldið beið hann á ný í skógarjaðrinum.
Þegar morgnaði og nornin varð aftur að mannveru lék hann á flautuna. Hann lék svo hugljúft að tár runnu niður vanga hennar.
Tárin urðu að rósum. Rósirnar urðu að eldi í hjörtum þeirra sem brenndi upp nornarhaminn.
Álfurinn
Einu sinni var álfur sem lá sofandi. Hann var ekki stærri en þumalfingur. Hann hrökk upp af svefni. Það var svalur andvari í lofti. Umhverfis hann stóðu trén, grasið og blómin og voru hrygg. Fuglarnir sungu ekki. Sólin hafði falið sig á bak við ský. Hvað hefur gerst? hugsaði hann því að hann hafði sofið mjög lengi.
Norðanvindurinn fór hjá. Getur þú sagt mér hvað hefur gerst? hrópaði álfurinn. Það get ég, svaraði norðanvindurinn. Það hefur geisað styrjöld. Tvær mannverur sem elskuðu hvor aðra urðu að skiljast að. Hann kom ekki aftur. Ég veit það eitt að hann reikar um í stórum skógi. Ógnir hafa ruglað hann og glapið og hann drepur allt sem á vegi hans verður.
Nú er hún að leita hans og hún hefur villst. Norðanvindurinn strauk nokkur snjókorn af vanga sér.
Getur ekki einhver hjálpað þeim? spurði álfurinn. Ég býst ekki við því, svaraði norðanvindurinn. Litli álfurinn sat og braut heilann. Ég ætla að hjálpa þeim, sagði hann, og ég ætla að spyrja Guð almáttugan sjálfan. Viltu hjálpa mér áleiðis? Það skal ég gera, svaraði norðanvindurinn.
Hann þaut af stað með norðanvindinum í gegnum hinn kaldasta kulda. Síðan fór hann með sunnanvindinum um hina hlýjustu hlýju. Með vestanvindinum ferðaðist hann um hið myrkasta myrkur og með austanvindinum fór hann að sólaruppkomunni. Um leið var hann kominn til Himnaríkis.
Þar hitti hann Heilagan Pétur. Getur þú hjálpað mér? spurði álfurinn og skýrði frá málavöxtum. Pétur hugsaði sig um en svaraði síðan: Veistu að mennirnir kæra sig orðið svo ósköp lítið um okkur. Þeir hafa nóg með sjálfa sig. Samt vil ég reyna að hjálpa þeim. Sjáðu nú til, sagði hann, taktu þetta fræ, og svo sagði hann álfinum hvað hann ætti að gera. Álfurinn flýtti sér þá aftur sömu leið og hann hafði komið.
Álfurinn leitaði hennar lengi áður en hann fann hana. Það var nótt og hún lá sofandi undir tré. Hann sveif niður að hlið hennar. Varlega lyfti hann öðru augnaloki hennar og stakk fræinu inn í augnakrókinn. Að morgni vissi hún hvert hún átti að fara. Það var löng leið en loks kom hún að skóginum stóra sem stóð þar þungbúinn og svartur. Þar sá hún hann. Hún varð svo glöð að hún ætlaði að hlaupa til hans. En hann þekkti hana ekki aftur. Hann reiddi öxi sína til höggs og ætlaði að höggva hana. Þá féll tár af hvörmum hennar. Í tárinu var fræið. Um leið og það nam við jörðu spratt þar upp blóm. Það varpaði af sér fagurri og skærri birtu. Felmtraður skildi hann hvað hann hafði nærri gert. Öxin féll til jarðar. Hið illa hafði misst völdin.
Nýtt vor freyddi um skóginn. Birtan hélt innreið sína. Trén, grösin og blómin teygðu krónur sínar og bikara í átt til himins. Og himinninn sjálfur geislaði í allri sinni dýrð.
Kjell Gabrielsen (1928-2008)
Lúðurnefur kóngur
Einu sinni var kóngur. Hann var stór og feitur með sítt hár og skegg. Alltaf var hann glaður og ánægður. Kóngurinn var vel liðinn því að hann var réttlátur og stjórnaði af mildi.
Kóngurinn var með langt nef. Allir í kóngsættinni höfðu haft slíkt nef. Það var eins og lúður í laginu og það undarlega var að hann gat leikið á það. Á hverjum morgni fór kóngurinn út á hallarsvalirnar og lék á nefið. Fólkið gladdist þegar kóngurinn lék. Fuglarnir á hallarþakinu hlustuðu. Jafnvel trén, blómin og grösin teygðu krónur sínar og bikara og hlýddu á. Öllum þótti hann leika svo hugljúft.
Dag einn kom maður akandi í gamlaford til borgarinnar. Hann var þjófur.
Kóngurinn átti hund sem honum þótti vænt um. Kvöld eitt lokkaði þjófurinn hann með kjötbita út í skóginn. Þegar hundurinn át kjötið sofnaði hann því að þjófurinn hafði sett í það svefnmeðal. Hann batt saman fætur hans og vafði bandi um skolt hans og setti hann síðan inn í bíl. Sömu nótt sagaði hann súlurnar undir hallarsvölunum næstum í sundur. Það var með naumindum að svalirnar hryndu ekki. Þegar kóngurinn steig út á þær um morguninn hrundi allt til jarðar.
Þjófurinn batt meðvitundarlausan kónginn, setti hann inn í bílinn og ók á brott. Allt hafði gengið svo hratt fyrir sig að enginn hafði getað stöðvað þá. Þegar þjófurinn hafði ekið langa stund fann hann sér fylgsni. Þar skrifaði hann miða sem hann festi í hálsband hundsins. Hann leysti bandið sem var reyrt um fætur hans. Síðan sagði hann honum að hlaupa eins hratt og hann gæti til borgarinnar, annars færi illa fyrir kónginum. Hundurinn hljóp þá af stað.
Í borginn var mikið uppnám. Þegnarnir voru svo óhamingjusamir yfir að vera búnir að missa kónginn sinn. Hvað var til bragðs að taka?
Hirðstjórinn las skilaboðin sem hundurinn hafði komið með og gjörði fólkinu kunnugt að vildi það fá kónginn sinn aftur yrði það að leggja fram lausnargjaldið fyrir hann.
Það þurfti enga þjóðaratkvæðagreiðslu. Dagblöðin og vikublöðin sem nýkomin voru út höfðu séð um að skapa hið rétta hugarfar meðal þjóðarinnar:
Fólkið vildi fá kónginn sinn aftur. Peningarnir voru settir í stóran poka. Hundurinn tók hann í kjaftinn og hljóp af stað með hann um nóttina eins og þjófurinn hafði sagt fyrir um. Hundurinn rataði án minnsta erfiðis. Þegar hann var kominn alla leið þreif þjófurinn pokann, leysti bandið af fótum kóngsins og sparkaði honum út úr bílnum.
Þjófurinn hló með sjálfum sér þegar hann ók á brott. Hann hugsaði um allt það sem hann ætlaði að fá sér fyrir peningana. Síðla að kvöldi næsta dags stansaði hann við stórt tré og lagðist til svefns undir því. En það sem hann vissi ekki var að trén, blómin, grösin og fuglarnir vissu allt.
Tunglið og stjörnurnar lýstu skært.
Í fyrstu morgunskímunni meðan þjófurinn var í fasta svefni, lutu greinar trésins varlega niður, leystu bandið af pokanum og fleygðu peningunum upp í loftið.
Þá tóku fuglarnir við, gripu þá með nefjunum og flugu burt.
Það var búið að gera við svalirnar og sama morgun þegar kóngurinn kom út á þær til að leika á nefið sitt tók að rigna gulli úr skýjunum. Það varð mikið uppnám en í þetta sinn vegna þess að allir fengu peningana sína aftur.
Og kóngurinn lék betur en nokkru sinni áður á langa nefið sitt.
Tartaramóðirin
Ég var barn. Ókunnur maður sagði mér sögu.
Hún var um móður og dóttur hennar. Bros móðurinnar voru ekki sem sólskin, tár hennar voru ekki sem perlur.
Þær voru af flökkuættum og gengu betlandi milli húsa.
Kvöld eitt er þær völdu sér áningarstað veiktist dóttirin. Sótthitinn herjaði á líkamann. Brátt skyldi hún deyja.
Móðirin vakti yfir beði hennar. Hún vildi allt til vinna að bjarga dóttur sinni.
Stjarna lýsti upp himinhvolfið. Stjörnuhrap, og móðirin óskaði dóttur sinni lífs. Stjarnan féll niður rétt við fætur hennar. Móðirin lyfti henni upp og stjarnan hvíslaði:
Þú verður að vera fljótari en dauðinn. Flýttu þér af stað til garðs lífs og dauða. Þar skaltu tína blóm af tré lífsins og snæða ávöxt af tré dauðans.
Þegar hún var komin alla leið gerði hún það sem stjarnan hafði sagt henni. Hún tíndi blóm af tré lífsins og snæddi ávöxt af tré dauðans.
Um leið stóð hún við hlið dóttur sinnar. Rétt áður en dauðinn ætlaði að leggja kalda hönd sína á hjarta hennar gat móðirin stráð blómum sínum yfir hana.
Nú gat dauðinn ekki náð til dótturinnar. Dóttirin tilheyrði nú lífinu en móðirin dauðanum. En tár móðurinnar voru sem perlur og bros hennar sem sólskin.
Gullflautan
Dag einn þegar ég ætlaði í veiðiferð fékk ég lánaðan hund nágranna míns. Hann hafði fengið þennan hund fyrir skömmu. Langt uppi á fjalllendinu komum við að vatni þar sem ég reyndi fiskisæld mína. Ég hafði ekki fyrr kastað línunni en bitið var á. Feitur urriði spriklaði á önglinum. En þetta var líka sá eini sem ég fékk.
Síðar um daginn þegar ég var orðinn hungraður hreinsaði ég fiskinn og bjó mér máltíð. Fann ég þá í maga hans gullflautu. Að lokinni máltíðinni lagðist ég niður til hvíldar. Hugsanir mínar snerust um þessa gullflautu áður en ég sofnaði. Ég hafði sett hana í vasann og dregið rennilásinn fyrir.
Þegar ég vaknaði sá ég konu eina sem stóð við hlið mína. Það vill þó ekki svo til að þú hafir fundið gullflautu hér? spurði hún. Er það þessi? sagði ég og sýndi henni gullflautuna. Það er hún, svaraðí konan. Gætirðu ekki tekið af hundinum hálsbandið? spurði hún í sömu andrá. Hvers vegna ætti ég að gera það? vildi ég fá að vita.
Hún hugsaði sig um litla stund en sagði síðan kyrrlátlega: Ég er ekki af mannaættum. Maðurinn minn hafði fengið gefna gullflautu frá föður mínum. Dag einn er við vorum á þessum slóðum týndi hann henni. Faðir minn varð svo reiður að hann breytti honum í hund. Þegar honum rann reiðin sá hann eftir því en þá var það orðið of seint. Menn höfðu handsamað hundinn. Hann var kominn með hálsband og þá duga engir töfrar okkar.
Þá sá ég huldukonuhalann sem gægðist niður undan kjólnum.
Í undrun laut ég niður og leysti af hundinum hálsbandið. Um leið varð hann að huldumanni. Aldrei á minni lífsfæddri ævi hef ég verið svo hræddur. En þegar ég sá gleði þeirra yfir að sjá hvort annað varð mér öllu rórra. Ég skilaði þeim einnig gullflautunni.
Þau þökkuðu mér og buðu mér síðan með sér því að nú ætluðu þau að halda gestaboð. Ég þáði þetta boð. Huldukonan blés þá í gullflautuna og í sömu andrá stóðum við á hlaðinu við bóndanbæ einn. Í stórstofunni voru borð upp sett. Við fengum mikið af góðum mat og sterkum veigum. Margt og undarlegt fólk kom þarna. Ölið var sterkt og ég sofnaði að síðustu. Ég vaknaði við svalan blæ í lofti. Við fætur mér lá hundurinn og hvíldi hausinn á fótum sér. Sólin var að síga bak við fjöllin í vestri. Þetta var undarlegur draumur.
Ég lagði af stað heim á leið. Á leiðinni gáði ég í vasann að gullflautunni. Hún var horfin. Hjarta mitt sló hraðar og ég gaut augunum til hundsins. Skyndihugdetta fékk mig til að lúta niður og leysa af hundinum hálsbandið. Hann þaut af stað og síðan hefur ekkert til hans spurst.
Marie Takvam (1926-2008)
Dýpst kropið á kné
Ég vil dansa
ég vil dansa fyrir þig
í skini náttlampans
kjólinn losar þú af mér
og hárið fær að falla frjálst
Ég vil dansa ungan dans
eftir söngnum inni í mér
og eftir tónum spenntra strengja
Þú skalt vera nálægt
þú skalt falla á kné
við fætur mér
þú skalt liggja á hnjánum
í hálfbirtunni
lengi
Karlmaður á hnjánum
frammi fyrir dansandi konu
dýpst kropið á kné
og eftirvæntingarfyllst.
Arild Nyquist (1937-2004)
Augað
Á daginn
horfist ég
í augu
við sólina
Á næturnar
sé ég
augað
hans föður míns.
Málverk
Myndin opnaðist
ég
gekk inn í
hana með
veiðistöngina mína og
veiddi
spörfugl
gulan spörfugl.
Ó, jólasveinn
Ó, jólasveinn – sendu
mér regnkápu
sem ekki er götótt! Sendu mér
tíukrónu-kúlupenna
fullan af bleki
og skrúfjárn
sem ég get gert svolítið við
heiminn með!
Þegar
Þegar kráka
missir pabba
sinn er
sorglegt
að vera kráka.
Ingebjörg Kasin Sandsdalen (1915-2003)
Að enni voru
Eins og formæling
töfraformúla
heyrist orðið Víetnam
eins og messa
undarlegra atburða
dulmálstákn
þess sem eyðir
Frelsarar erum vér
en rótlausir
án persónuleika
vér afberum ei lengur
hið fagra
vér dreypum á orðunum
eins og áfengu eitri
vér sem förum yfir landamærin
í Víetnam
Vor eigin ófæddu afkvæmi
hrópa ekki á oss
hrópa ekki
þessar ungu konur
með barnlausa arma
þessir mýrarmóar
rétt hjá
...
Víetnam
alls heimsins
að enni voru!
allt þetta fólk með sína
molddimmu húð
fólkið – allt þetta stolta fólk
með hátt nefið
Síbería og Tíbet
Alabama
að enni voru!
Bál
Þessi spjöld skulu ekki
eyða plássinu í bókaskápnum
fá ekki að standa við hlið
gömlu hetjanna
í morgunskímunni lýsa
litríkir kilirnir
til mín
Dostojevskí, Wergeland, Bunyan
og allir þessir rólyndu
frægðarmenn
Það er sárt fyrir
þessi fögru spjöld
sem eru eins og silkimöttlar
ýtt burt
eins og þegar lífið
vísar deyðandi vefjum burt
Eldurinn og nóttin bíða
bíða hinna litlu
sveiflandi hnatta
í efsta dálki
til vinstri
blaktir eldur
í ofni stjarnanna
Nú
það er bókin
eins og trjábútur
í rauðum glóðunum
hikandi tungur
rísa upp
og hörfa til baka
með miðaldalegum skrípahætti
blöðin verpast
og bólgna
sífellt nær eldinum
Reykurinn lyftir
tveimur gammsvörtum vængjum
yfir hvíta logana
brakandi heslibúnt
þungir smellir í eldinum
eins og þegar reikandi aldinborri
skellur á vegginn
Stíf spjöldin
verða rauð eins og
brennisteinskvikasilfur
og blöðin skiljast að
eins og þeim sé flett
bókin verður gömul
og nógu merkileg til að hafa í skáp
eins og hundrað ára postilla
Það er gott að skrifarinn er
ekki hér núna
Kannski uppsker hann
einhvern tíma meira lof
fyrir litlu
syndsamlegu
postilluna sína.
Borg friðar
Ó, bið um frið
fyrir það sem við byggjum
það sem við ætlum að gróðursetja
þótt svo óvinur
gangi um akurinn
og illgresið vaxi
í sporum hans
Frið fyrir hina útreknu
til að rísa upp
og varpa af sér hlekkjunum
frið til að taka fram
mælistikuna
og skipta niður landinu
áður en það verður um seinan
Frið til að setja upp
vogarskálarnar
og deila út réttlætinu
það er nóg af gullskálum
fyrir alla
Frið til að stöðva
pyntingarnar
fingur djöfulsins
Frið til að kveikja eld
gegn frostinu
byggja borg
friðar.
Handan við strönd þína
Einhvern tíma mun auga þitt
leita
aftur
frá
formleysunni
frá dragsúgi
hinna sundursprengdu forma
munt þú fylgja
skrúfstiganum
til vinsemdarinnar í hinu sanna
Í hinu kvika flóði sjávarfallanna
fljóta ismarnir eins og þörungar
ef þú ferð
út í dropasteinshellinn
og sérð vott tímans
í deplandi steinauganu
munt þú finna þar
þitt eigið andlit
þitt eigið ráðvillta andlit
Ef þú fengir að sjá
að þú ert hluti heildarinnar
og að ljósið hvílir í myrkrinu
handan við stönd þína
við þessa strönd má finna leir
til að byggja úr eitthvað
af framtíðinni.
Meðan ég er hér
Vér flytjum til
eigur vorar
þessi lykill
er til að opna dyrnar
mínar
þessar dyr
opnast inn í
húsið mitt
þetta hús mitt
rúmar
það sem ég á
það sem ég hef
safnað að mér
ég þurrka ryk
í kringum það
aftur og aftur
Lófarnir slitna
af höndunum á mér
skorpna
eins og múmíur
í grám umbúðum
vanans
Og ég læt það gerast
eins og
ekkert væri
án þess að hugsa um
að litirnir breytast
í tíglóttum bökkunum
sólir áranna hafa
snert glerið
lagt dýpri
lit í viðinn
dálítið af purpuragljáanum
úr samanrúlluðum
gluggatjöldunum
liggur eftir yfir
ávölum bókarkjölum
Máninn leggur
kóngulóarvef sinn
yfir gólfþiljurnar
og borðið
ýtir skugganum af gluggalistanum
óendanlega hægt í
glitrandi nóttum fulls tungls
Meðan ég er hér
enn er hér
og flyt til eignirnar
á þær
raða þeim í kringum mig
eins og múrvegg
Læsi þær inni
þykir vænt um þær
einhver á að eignast
þær eftir mig
virða og raða
þeim upp
eftir smekk
Ef þær safna á sig
öllum sólarlitunum
og ljósaskiptunum
slær norðurljósunum
af fáguðum kristalnum
á norðurvegginn
hinar miðnæturdimmu stundir
þegar litirnir sofa.
Spyr hjartað
Ég heyri að fuglar óttunnar syngja
það gerir sá sem ferðast
mót svölum hlíðum
eitthvað sem hefur verið
fer framhjá mér
í kyrrðinni
Mildir vindar
líða yfir grjótflæmin
þar sem hesturinn stendur
með álútt höfuð
við blindstólpann
Spyr vindinn
hvað hann viti
um vot fræin
Spyr hestinn
hví hann standi
eins og bundinn
Spyr hjartað mitt, vinur
hvernig því líði
þegar óttufuglarnir syngja.
Halvor J. Sandsdalen (1911-1998)
Af manndráparaætt
Við erum mörg
skyld
manndráparanum
segir ættfræðingurinn
hann situr með gerðabókina
Einnig þú
fingurinn bendir
á mig
einnig þú
ert af manndráparaætt
Ég?
Hlátur gamlingjans vellur fram
vissirðu það ekki?
hélstu að þú værir frjáls
eins og barn í móðurkviði?
ég er með þig
í bókunum mínum
Fingurinn bendir
einnig þú
ert af manndráparaætt.
Bannað að betla við húsdyr
Brauð
sagði betlarinn í loftinu
orðið sveif
eins og slökkt lugt
yfir honum
þegar hann féll í götuna
og allt sotnaði
Sterkur maður
stendur í dyrunum
og blæs í
kjúkur sér.
Í dag
Eftir sjö þúsund ár
er þessi klukka
aðeins einni mínútu
of sein
segir vísindamaðurinn
hreykinn
sjö þúsund ár
og aðeins einni mínútu
of sein ...
Hvað varðar mig um það
hvort klukkan sé einni mínútu
of sein
eftir sjö þúsund ár?
Í dag byggir þrösturinn hreiður
undir þakinu okkar
syllan við búrvegginn er í blóma
og haginn hvítur
af kirsuberjablómum
Í dag raular kona
í baðinu
hvað varðar mig um það
hvort klukkan sé einni mínútu
of sein
eftir sjö þúsund ár?
Í niði Þjórsár
Ragnhildur Greipsdóttir!
rís upp úr öskunni
og þerra brjóst þín
í ágústvindinum
Hann hefur byggt keilur yfir þau
meðan þú svafst
í þúsund ár
Bær ykkar mannsins þíns
er grafinn upp
og axirnar taldar fram
eldtangirnar liggja á arninum
eins og nóttina
sem þið reynduð öll
að flýja örlögin
Nýtt vatn
er komið í steinkerið
og hringurinn eftir kornámuna
er sýnilegt í skemmunni
Nógu lengi
hefur vindurinn
byggt keilur sínar
yfir þig og ambáttirnar
á þessari eyðimörk
nógu lengi
hafa Meyjarbrjóstaslétturnar
í Þjórsárdal
geymt sína dauðu
Guð veit hvað þið hélduð
sem reistuð hér bú
í eldskininu
frá Heklu
í niði Þjórsár.
Kjell Röseth (1934-1999)
Vesaas
Svo mörg orð
þurfti sem sé
til að skapa kyrrðinni
nógu stórt rúm
umleikis það sem aldrei var sagt.
Þúsundfætla
Þúsundfætlan
skoðar framlínuna
áttar sig þegar í stað
á kringumstæðunum
skipar: Byssur
um öxl!
stutt umhugsun
þangað til allt liðið
fer á hreyfingu
til hliðanna
aðeins sá sem skipar
hefur fulla yfirsýn
veit hvert leiðin liggur
hinir treysta blint
á foringjann
það er hann
sem ræður yfir höfðinu.
Erling Christie (1928-1996)
Credo - ég trúi
Sín trú
er gefin hverju tilefni:
barnatrú sovéttrú
jesútrú schweitzertrú notatrú
sunnudagatrú
Sumt mælir með trúnni:
hvers vegna ættum við ekki
að lofa í hrifningu
útjaskaðar bölvanir sannfæringarinnar?
Hvers vegna ættum við ekki
að taka með gleði þátt
í skrúðgöngunni
sem ætlar að skoða heiminn?
Sumt mælir með trúnni:
trúin bjargar heiminum
barnatrú sovéttrú
jesútrú schweitzertrú notatrú
sunnudagatrú
En sá sem efast
skal ekki örvænta
enn eiga einhverjir eftir
að trufla svefn heimsins
með heilögum hversdagslegum efa.
Ulf Jakobsen – alias Jan Anker Fröydarlund (1911-1996)
Í klefanum
Einmana
með söng í hjarta
Söng og þakklæti
gagnvart þeim
sem gáfu honum jafnvægið aftur
öryggið
Við það að vera fangi hér.
Gítar
Hann fær kvenlíkama að láni
hjarta sem slær ákaft
af ást eða kvöl
uppreisn eða villtri gleði –
Hann vílar ekki fyrir sér að segja
grófan eða harmþrunginn sannleika
og egna til orrustu þá sem þjást
Hann er það hljóðfæri
sem helst getur búist við fangelsisdómi
Hann býr ekki yfir neinni háspeki
– gítarinn –
rödd hans hrífur
gælir ákærir huggar
Þetta er mennsk rödd
Fyrir honum er tíminn ekki slagorð
eða kerfisreglur – nei, einfaldur
– að syngja um ástina
sem kemur
sem fer
og um friðinn sem dreymir
undir ólífutrénu
um frelsið sem slítur sig burt
úr uppsettum takmörkum
erfðavenjunnar –
Strengir gítarsins eru rétt hjá hjarta mannsins
sál hans elskar alla sem dansa.
Sigmund Mjelve (1926-1995)
Smásaga
Rétt eins og snerting í háu grasinu
merkingarlaus hamingja
Síðar kólnaði
og sólsetrrin urðu koparrauð
Þegar bátarnir blésu á sundinu utan við
fengum við löngun til að fara langt í burtu ...
Gunvor Hofmo (1921-1995)
Hvað veistu ... ?
Hvað veist þú um dauðann
þú sem grætur hann sem óraunveruleika utan við þig
eins og gröf – eins og kistu!
dauðinn er ekkert daður við tár
engin höfn ósigra þinna
dauðinn er brostin augu sem urðu veruleiki í þér
dauðinn er blóðugar frumur sem urðu reiði í þér
dauðinn er Guð sem streymir í gegnum allt með dýpt
sinni
sem vaggar börnum sínum í eilífri þögn
meðan allt hlustar
dauðinn er gránandi hús djúpt inni í rökkrinu
og vindar sem stíga upp frá allri heimsins sorg
og allri fegurð
dauðinn er nafnlaus eymsli í brestandi brumhnöppum
og fugl sem flýgur ...
Kringum múr
Ekki blind!
hrópar litla barnið
Ekki dáin!
hrópar grænn septembermánuðurinn
En þögn múrsins
er dáin
er grátur hins blinda.
Draumóramenn næturinnar
Ég mæti augum draumóramanna
ég heyri raddir draumóramanna
gegnum þessi votu suðandi kirkjugarðstré
og fólk á bekkjunum
sem hlustar
Þreytu sína ber það með sér
eins og þunga lykla
þreyta þess titrar
í sárri eftirvæntingu:
Brátt skal það mæta
byrði glötunar sinnar
gegnumgeislað og skilið við hásæti skýrleikans
brátt skulu hinar myrku myndir falla
eins og gullin epli í hönd djúpsins
Söngur draumóramannsins
ég mæti allsstaðar augum draumóramannsins
Draumóramenn næturinnar
með þroskuð
þroskuð hjörtu.
Þetta er vorið ...
Þetta er vorið:
birtan sem full þjáningar
dregur þig að öllu sem hljóðlaust er
Legg hönd þína á trjábörkinn:
eins og þér blæðir honum
legg enni þitt að steini merkurinnar:
eins og þig nístir kuldinn hann
hlustaðu á þögnina
hlustaðu á loftið:
eins og þú er það hjálparvana.
Olav H. Hauge (1918-1994)
Vegurinn þinn
Enginn hefur varðað veginn
sem þú átt að fara
til hins óþekkta
til hins fjarlæga
Þetta er vegurinn þinn
aðeins þú
átt að fara hann
og það er
óráðlegt að snúa við
Og ekki varðar þú veginn
ekki þú heldur
og vindurinn fyllir í sporin þín
í auðu fjallinu.
Færið mér ekki allan sannleikann
Færið mér ekki allan sannleikann
færið mér ekki hafið við þorsta mínum
færið mér ekki himininn þegar ég bið um ljós
færið mér heldur ávæning, leiftur, dropa
eins og fuglarnir flytja með sér vatnsdropa úr lauginni.
Rolf Jakobsen (1907-1994)
Ófægð rúða
Andspænis öllum þessum máluðu steinveggjum
andspænis snjó skjalanna
og andspænis stormviðri ritvélanna í herberginu
skín rúða úr ófægðu gleri
inn í bjarta, bjarta skrifstofu
Ekkert sólskin er skærara
og enginn dagur er blárri
en það sem sést móta fyrir
handan við óskyggðan, hvítan skuggaleik rúðunnar
Skjölum snjóar og snjóar
það niðar í fjarlægum handlaugum
yfir bogin bökin
gegnum daufa rúðuna
grillir í ský á flótta.
Sérkenni
Það er ekki
skvett hjólbarðans á regnvotu malbikinu
sem er sérkenni borgarinnar
Það er ekki
skrap mjólkurvagnsins við gangstéttarbrúnina
alskýjaða morgna. Æðandi lestir
Það er ekki
hljóðlátur blossagangur ljósaskiltanna
yfir lifandi árstraumnum
eða glitrandi perlubönd
boglampanna
Klingur glasanna
í stórum bramlandi veitingastofum
hráslagalegt flaut eimskipanna í höfninni
Tvö stutt og eitt langt, tvö stutt og eitt langt
Það er ekki svæfandi
söngur næturlestarinnar á götum sem þú þekkir ekki
saxófónn á 5. hæð
Nei –
Sérkenni borgarinnar
hvínandi æðaslátt borgarinnar
muntu skynja einhverja nóttina
þá nótt
er þú í fyrsta sinn
gengur einn og vondapur
það hækkar eins og gjallandi háð að baki þér
upp af götusteinunum:
Þitt eigið skröltandi fótatak.
Lúðraþytur
Hefurðu séð lyftikranana hífa upp gargandi
járnbitana?
Hefurðu heyrt glaðlegan söng sleggjanna
á svignandi bjálkunum?
Hefurðu séð stálgrindurnar breiða úr sér í loftinu
eins og rauðir kniplingar í sólskini?
hefurðu heyrt trumbuslátt lofthamranna á naglanum
frá skinnum, húsum, háum járnsíðum skipanna?
Þá hefurðu séð snarkandi fána
stríðsins á lofti!
Þá hefurðu heyrt vélbyssurnar
dæla stáli sínu í hjarta óvinarins!
Raunveruleiki
Dagurinn sem við höldum dauðahaldi í
búðirnar þar sem við kaupum falleg föt. Ferðalög sem við ætlum
að fara í innan skamms
ys gatnanna. Regnið sem fellur á
gangstéttirnar í húminu
er draumur
nóttin og svefnleysið
peningaáhyggjurnar
hamingjan sem ekki kemur
er raunveruleiki
Öryggi hinna stóru freyðandi samkoma
hraðinn
öskur hljómsveitanna og þykk spennandi dagblöð eru draumur og skuggi
augu þess sem biður
hendur þess sem er kalt
fótatak fjöldans sem reikar
hungraður um stórborgirnar
er raunveruleiki
Langar forvitnilegar ræður. Rökin
(annars vegar og hins vegar)
kirkjurnar, prestarnir, lúðraþyturinn
trommurnar, hljómfallið, straumurinn sem ber oss áfram er draumur
vélbyssurnar
blóðakrar og leðjan. Ópið þegar þú
kvöld eitt vaknar til sársaukans
snjór sjúkraskýlanna
fjöldagrafirnar
eru raunveruleiki
Torfið sem grær
grasstráin sem hneigja sig mjúklega í blænum
söngur bylgjanna
er raunveruleiki.
Landslag með skurðgröfum
Þær éta af skógunum mínum
sex skurðgröfur komu og átu af skógunum mínum
Guð hjálpi mér hvernig þær eru ásýndum
höfuð
án augna og augu á bakinu
Þær sveifla kjöftunum á löngum hálsi
það eru fíflar í munnvikunum
Þær éta og hrækja, hrækja og éta
því að þær eru ekki lengur með kok, aðeins stærðar
kjaft og skröltandi maga
er þetta einhvers konar helvíti?
Fyrir vaðfugla? Fyrir hina alltof gáfuðu
pelíkana?
Þær eru með blind augu og hlekki um fæturna
þær munu starfa um aldir, tyggja bláklukkur
og breyta þeim í malbik. Hylja þær með skýjum af fitugum
reyknum úr púströrunum
og kaldri sól ljóskastaranna
Enginn háls, engin raddbönd, engar kvartanir.
Verslanahverfið
I.
Glerbúðin selur ósýnilegar vörur
þær klingja eins og slaghörputónar
og eru viðkvæmar eins og blöðrur á þangi
það er hús geðklofanna sem eru
kólnaðir innvortis og eiga tilkomumikla drauma
hinna þunglamalegu sem eru hringaðir utan um sjálfa sig
Glermaðurinn lifir í ríki ljóssins
fullu fegurðar en er geldur
eins og fagurfræðingur
Skrift á gleri
er eins og regn í augunum.
II.
Járnvöruhillurnar eru skrúðhús
mannshugans
þar tóna hin heilögu ílát
þau sem ákvarða líf okkar. Kastarólurnar
bæði þær glerjuðu og þær sem leiftra
af gráu stáli
Þar eru hugmyndirnar úthugsaðar af vitringunum sjö
fyrir okkur. Hamarinn til að reka þær
inn
og töngin til að draga þær út aftur
og sandpappír
Flugeldaverslun til vinstri og skotvopn
beint á móti.
III.
Saumabúðin er lítið kaffihús
ástarævintýranna. Þess vegna þjónar hún
viðhaldi lífsins
það geta verið ýmis konar faðmlög
fólgin í gljáandi prjónum
og djúp ást
í prjónatreyju og grænum trefli
Þarna er verslað með leynilegar uppskriftir
og töfrarúnir handa sálunum
góð ull ilmar eins og ungur frjóangi
sef og vökvi hjartans.
IV.
Málningarvöruverslunin er betur við mitt hæfi
hún afgreiðir hin leynilegu lyf jarðarinnar
gult okkur, terpentínu og leirblátt
angandi af úldnun og fæðingu
– apótek fyrir heilbrigðina í heiminum
einu sinni var málningarsali
sem giftist saumasölukonu. Þau urðu
að göfugum glitvef
og mjög gömul. Ófu sig hvort að öðru
með björtum og dökkum þráðum í mynd af hjörtum
undir eikartrjám og gránuðu saman
í silfri og grænku.
Gamlar konur
Ungu fótlipru konurnar – hvað verður af þeim?
þær hafa hné eins og litla kossa og sofandi hár
Löngu síðar þegar þær eru orðnar hljóðlátar
gamlar konur með grannar hendur og ganga hægt um
tröppurnar
með stóra lykla í veskinu og líta í kringum sig
og tala við lítil börn við kirkjugarðshliðin
í ókunnu stóru landi þar sem veturnir eru langir
og enginn skilur lengur mál þeirra
Hneigðu þig djúpt og heilsaðu þeim af virðingu
því að ennþá bera þær það með sér eins og angan
Leyndur herpingur í kinn, titrandi taug einhvers staðar
í lófa – kemur upp um þær.
Undir háum styttum
Þær valda sársauka, þessar endalausu raðir af lífverum
í lituðum klæðum milli vélanna, næstum eins og stríðið
það eru þær sem dauðinn hefur í dag gefið örlítinn frest
svo að þær geti keypt sér svolítinn ost og staulast áfram
milli rafmagnsgirðinga úr spegilgleri
sem valda þessum svala draumvotti:
óskaðu þér eins hlutar, óskaðu þér hlutar, óskaðu
Svo að vér getum þraukað enn eina stund
og komist út úr bíóunum, rauð af neonljósum
á enninu og fingrunum og safnast ráðvillt saman
undir háum styttum sem fljúga hjá sem skuggar sjálfra
sín
eldsnöggt eins og arnarvængir.
Kyrrðin á eftir - - - (brot)
Reynið nú að ljúka
áróðursbrellunum og sölutölfræðinni
helgarmorgunmatnum og skarnaofnunum
ljúkið af tískusýningunum og stjörnuspánum
hersýningunum, húsagerðarsamkeppnunum
og þessari þreföldu röð umferðarljósa
klárið það og ljúkið
hátíðarundirbúningi og átta raða
getraunaseðlum
vísitölufjölskyldum og markaðsrannsóknum
því að það er áliðið
alltof áliðið
ljúkið því og komið heim
til kyrrðarinnar á eftir
sem mætir ykkur eins og blóðbuna á ennið
eins og þruman á leiðinni
eins og högg voldugra klukkna
sem láta hljóðhimnuna skjálfa
því að orðin eru ekki lengur til
það eru ekki til fleiri orð
héðan í frá á allt að tala
með röddum steina og trjáa
- - -
Kyrrðin sem býr í grasinu
neðan á hverju strái
í bláu bilinu milli steinanna
kyrrðin
sem kemur eftir skotin og eftir fuglasönginn
kyrrðin sem leggur ábreiðu yfir hinn dauða
og bíður í tröppunum þar til allir eru farnir
kyrrðin
sem leggst eins og fuglsungi milli handa þinna
þinn einasti vinur.
Hægt ...
Myndir af ómælanlegum löndum
sandfok, bronslitaðir himnar
skulu haldast til eilífðarnóns, vindurinn
lyftir litlu sandkorni upp á stein
regnið skolar því á brott
Þannig er andlit jarðarinnar milli stjörnumyndanna
hulið gleymsku – hægfara
eins og steinarnir eru gjörðir Guðs við oss
dagur skal koma sem rós – dagur sem eldur
allt tekur sinn tíma
eftir þúsund ár
er snigillinn kominn að trénu
Ég sé gamalt regnviðri ganga lotið yfir land kvöldsins
og leita grönnum fingrum að týndum hlutum
því sem enginn man lengur – þögninni milli stránna
hálfsögð orð, brotum þess sem glatað er, hugsunum
sem næstum enginn hefur hugsað, hinum þöglu
grasvegum og svefni sem sofinn er
öðru hverju
Hvar finnum vér nú
það sem tengt getur hið dreifða
stíginn í stjörnunum, leiðir áttavitanálarinnar
eða línurnar í lófum allra stúlkna
sem líkjast vindinum sem blæs um rósirnar?
því að það er orðið áliðið
brátt ber áin myndir mínar út
áshlíðar, spegilmyndir húsa, elskað andlit
ber hún til hafsins. Allt á að hreinsa
orðalaust og hnötturinn hneigir
sig rólega að nóttu og degi
einhvers staðar þeytir vindurinn nú þegar morgninum inn í skógana
einhvers staðar hverfa útlínur klettsins ómerkjanlega inn í nóttina.
Í skógum verslananna
Gú-gú segir gaukurinn í peningakassanum
girnilegt er vorið í skógum verslananna
ilmandi af leðri, berjum, sápulitum og ullarströngum
og fuglakliður er leikinn af segulbandi milli níu og sextán
og svín og pelsdýr eru stöðugt felld með hljóðlausum skotum
Speglaðu þig í litla stöðuvatninu okkar
úr silki – brostu við öllu
Því að önnur himnaríki eru ekki til en þessi
ævintýraströnd handan glersins sem snýr að öllum strætum
og engir aðrir skógar þar sem þú getur reikað frá jólum
til júlí í mýrinni svo glöð, örstutt andartak
á þessari jörð (Gú-gú)
sem er stjarna (Gú-gú)
og nú er vor.
Það er barið
Högg högg þeir vilja komast inn til þín það er barið
harkalega á allar dyr glugga það er barið
hræðslulega óttaslegið það er barið
inni í kjúkum þínum brjóstkassa þínum
hjartslættinum í hjarta þínu það er barið
úti á götu yfir himni jörð
stimpilhöggin skipaskrúfurnar lestar-
teinarnir í hálsi þínum
umhverfis múrana þeir vilja komast inn
gegnum gluggana dyrnar örvæntingar-
fullt það er barið
í skelfingu barið þorsta og hungri
barið dag og nótt óstöðvandi
á hljóðhimnur slagæðar enni þitt
barið barið
– getur þú náð andanum?
En vér lifum
– En vér lifum af
stórmarkaðina og ostahyllurnar, og vér lifum
undir þoturákunum í gylltum maímánuði
og í reykmettuðum borgum
og vér lifum með hósta bensíndælunnar og skellum bílhurðanna
vér lifum af
sjónvarpskvöld gullinnar aldar
yfir steinsteypunni, bak við vikublöðin og á bensínstöðvunum
vér lifum
í tölfræðiyfirlitunum og á kjörskránni þegar kosningaár er. Vér lifum
með blóm í glugganum
þrátt fyrir allt lifum vér í skugga
kjarnorkufræðilegra útrýmingar-
hótana vetnissprengjunnar
svefnleysi. Vér lifum
við hlið þeirra soltnu þeirra sem
deyja í milljónatali, lifum
með þreytu í hugsun vorri, lifum
ennþá, lifum
óskýranlega dulrænt, lifum
lifum
á stjörnu.
Gunnar Lunde (1944-1993)
Sprengjan
Þegar þeir slepptu sprengjunni
í höfuðið á mér
varð ég til að byrja með
fálmandi örvinglaðir handleggir
mót geislavirkni loftsins
en síðan
urðu blaðafyrirsagnirnar
sífellt minni
og minni og minni
þangað til ég gleymdi
hvað komið hafði
fyrir mig
þangað til dag einn
að brakaði svo undarlega í höfðinu á mér
ég skoðaði mig í speglinum
og sá
strývöndul sem þaut ýlfrandi
að höfði mínu
hélt ég fyrst
en síðan uppgötvaði ég
að höfuðið á mér var sprengja
hvenær umskiptin
höfðu orðið
vissi ég ekki nákvæmlega.
Að elska
Afgerandi
brosa líkamar okkar
hlýlega hvor upp við annan
þrýsta holdi að holdi
Ómerkjanleg
köld óró
í öllu því hlýja
sem við viljum veita hvort öðru
Net
bannsettra áreitinna augna
fjarlægra óþekktra lífvera
leggst yfir nautn okkar
Eistu mín
hanga að aflokinni girndinni
eins og nýdauðir barnsfætur
úr nýdauðu móðurlífi
í undarlegri veröld
hinum megin á hnettinum.
Apartheid
Hvítir í einum bás
svartir í öðrum bás
gulir í þriðja bás
Gyðingar
(þeir sem enn eru eftir)
í fjórða bás
Hinn góði í sér bás
hinn slæmi í sér bás
Launaflokkur tólf
í bás númer níu
launaflokkur tuttugu
í bás númer fimmtán
Gamla unga
létta og þunga
litla stóra
dólgar og hóra
morðingja lík
fátæk og rík
gáfaða og drumba
daufa og dumba
föður og móður
systur og bróður
rammsterkan lás
á sinn eigin bás.
Híróshímakona
Þú lást á götusteinunum
eftir vindhviðuna
eftir ljósglampann
loftið blossaði upp
fyrir framan kynfæri þín
þú varðist
en tókst ekki að stöðva
undarlega geislana
milli fingranna
til litninganna
sem engdust
geislana
sem skáru burt
fyrstu dóttur þína
sem aldrei varð til
Síðar
yppti fólkið öxlum
yfir smábarnasprengjunni í Híróshíma
sundurtættar hendur þínar
struku yfir dauða kjöltu þína.
Hlýja kona
Hlýja kona
undarlegt
Að flota okkar
rak saman
í ólgandi sænum
Að flotar okkar
sigldu saman
að kyrrlátri höfninni
þar sem við byggðum hús okkar
úr vatnsósa leifum flotanna
Undarlegt
Að hinir flotarnir
á ólgandi sænum
rákust á með þungum dynkjum
og trufluðu svefn okkar
Hlýja kona
Að löðurtoppar sjávarins
fossuðu í gegnum vegginn
svo að við lágum snöktandi
og snerum baki hvort að öðru
meðan við heyrðum
flotana mölva hver annan
Þarna langt úti í dimmri nóttinni
fundum kuldann steypast yfir líkami okkar
án þess að geta flutt okkur um set
Kona.
Ormurinn
Gat ég vitað
að ormurinn
þessi gljásvarti
sem ég dró út úr
munninum á mér
tæki með sér
hvítu kringlóttu eggin
undir húð minni
þannig að ég
fyndi fyrir holrúmi
sem stöðugt særði mig
milli húðarinnar og innyflanna
daginn
sem ormaveiðin hófst
og ég vildi vera með?
Gátuð þið ekki
aðvarað mig
og sagt mér
hvað væri eiginlega
á seyði hér
vinir?
Staðreyndir um Víetnam
Í Víetnambókinni
segir á bls. 69 að:
„Maður sem var skotinn í bakið lést eftir fimm mínútur. Allir aðrir dóu þegar í stað. Með öðruvísi kúlum hefði hann aðeins særst lítillega.“
Les ég ruglaður
og fylgi línunum með nöglunum
sem prýddar eru svörtum sorgarröndum
kitlandi skef ég af mér mýbit
síðan úr veiðitúrnum í dag
Mjólkurverðið hefur hækkað
úr tólf og fimmtíu í þrettán og fimmtíu
segir eiginkona mín
ástin mín
með granna silkifætur
kreppta í sófahorninu
leitar hún andlits míns
með blíðum augum
stofuspjallsins
ástin mín
heyrðu hvað bókin segir
„Maður sem var skotinn í bakið lést eftir fimm mínútur. Allir aðrir dóu þegar í stað. Með öðruvísi kúlum hefði hann aðeins særst lítillega.“
Les ég skýrt og greinilega
Við lítum hvort á annað
flóttalegum augum
snúum
grettnum andlitum
hvort að öðru
Það er best að leggja sig
segi ég
gegnum múrbrotin
á milli munna okkar
en Víetnambókin
fellur í kjöltu okkar
opin á blaðsíðu 69.
Þú og bíllinn þinn
Þú gælir við bílinn þinn
eins og hann sé
brjóst þinnar elskuðu
þú ert ein girnd
þar sem þú dáist að
þessum gljáfægða hlut
Þú sérð ekki þá
með ávölu brjóstin
hún grætur
í örvinglan
meðan líkami hennar gránar
í gryfjunni
þú veitir henni aðeins
vélrænar hreyfingar
Svefn þinn sýnir hergöngu
meðal öfundsjúkra augna
þú vaknar
og hugsar um afborganirnar
Þú þekkir ekki
hina mannlegu hlýju
við hlið þér
köld yfirbyggingin
veldur fullnægingarkippum
í andliti þínu.
Simen Skjönsberg (1920-1993)
Kvæði um ást
Tölum um ást:
hvernig þú heldur á bolla
hvernig þú ræðir stjórnmál
hvernig þú gengur að glugganum
Jú þegar við tölum um ást:
hárið á þér liðast þegar þú svitnar
pilsið strengist yfir lærin á þér
þú þarft svo litla hanska á hönd þína
Víst vil ég tala um ást:
þú staðnæmist og lætur útsýnið streyma að þér
þú opnar bók og leggur hana flata í höndina
þú teygir úr fótunum undir borðinu þegar þú borðar
hádegismatinn
Svo sannarlega vil ég tala um ást:
þú klæðir þig úr kjólnum á svo eðlilegan hátt
þú kaupir blaðið og tekur með þér heim þegar þú hefur
verið úti
þú ekur aðeins of hratt þegar þú notar bílinn
Ég skal ekki tala meira um ást, bara þetta:
þú veist nákvæmlega hvernig á að fara með þvottavélina
þú veist hvað þú gerir þegar þú stingur nöktu læri fram
undan sænginni
þú hefur þitt eigið handbragð þegar þú festir á tölu.
Simen Skjönsberg (1920-1993)
Æ níd jú darlíng
Æ dónt níd jú nómór
bakvið tvöföld gluggatjöld
við skríðum lengra inn í sjálf okkur
brynjum okkur gegn áhyggjum sjónvarpsins
brynjum okkur gegn óvæntum augnablikum
Þegar myrkrið kemur
og bílarnir aka í ljósgeislanum
stöndum við hjá glugganum eins og styttur
upplýst aftan frá
með gula kafbátinn í eyrunum
og ókunnar hugsanir í höfðinu
Síðan er skipt um plötu
hléð er að falla niður í sprungu
hæ læt end grín grass
verður þú herra atburðarásarinnar
er veggurinn nógu stöðugur
er myrkrið nógu dimmt
ó bigg hitts ov Rollíng Stóns
kuldinn leggst yfir í nótt
að morgni verður dagurinn rauður
eins og hitasóttarsjúklingur.
Magli Elster (1912-1993)
Frá þollausum stundum
Hnakki minn hrópar
á koss –
– koss frá þér –
– í dag
það eru annars ekki svo margir staðir
sem þú hefur hlaupið yfir
en hnakki minn harmar
að þér kom ekki í hug
að kyssa hann
að kyssa hann
einmitt í dag.
Kjell Sandvik (1929-1992)
Á hungurári
Eplið er þungt
eins og fylltur hnöttur
(sagði heimspekingurinn)
Þyngri er jörðin
í hendi Guðs
(sagði biskupinn)
Safameira
er konubrjóst
(sagði elskhuginn)
Og þá er komið haust
með nýju afurðaverði
(sagði bóndinn).
Hann pabbi vann í pulsuvagni
Hann pabbi vann í pulsuvagni
Bærinn taldi sig þekkja hann:
Hann var einhentur
og gekk á hækjum
Hann pabbi átti bækur heima
á hverju kvöldi tók hann með sér
Immanuel Kant eða Karl Marx
sem hann las
á hljóðum kvöldstundum
fyrir miðnættið
Það var bjart
í litlu íbúðinni
en innum gluggann
barst að lokum fylleríisröflið
vændiskonur hlógu fólk dansaði framhjá
á íshálkunni í myrkrinu
Hann pabbi vann í pulsuvagni
hann þekkti þau öll
hann þagði.
Kjell Sandvik (1929-1992)
Nátt og skuggi
Á slíkri nótt
er til angurværð
dægradvöl stundaglassins
hellir himneskum endurskinstöflum
á snjóinn
Og Jesús
gengur krókloppinn burt
yfir skaflana
Það er svo kalt
í lokuðum
skugga
kirkjunnar. –
Predikun
Kæri söfnuður, kæru landsmenn
Guð þarf ekki fallbyssur til að verja sig
og illskan lifir af allar útrýmingarárásir
aðeins helvíti hlær með atómsprengjur í kjaftinum.
Stjórnmálamaður játar
Einu sinni var ég
heiðarlegur hugsjónamaður
Þá framdi ég
morð.
Stríðsleikurinn
Dag einn vöknuðum við
þá var húsið horfið
við gengum krókloppin út í garðinn:
trén voru höggin
Að eigin ósk
drógum við bók
upp úr frakkavasanum:
En kaflann
um bruna Trójuborgar
hafði ritskoðunin
þurrkað út.
Kjell Sandvik (1929-1992)
Vorið
Hægt
þiðnar
ísinn
dropi
eftir
dropa
ekki
einu
sinni
vald-
hafarnir
geta
kúgað
sólina.
Þegar brosið dó
Bros
hentist skyndilega
af barnsandliti
og fauk
út um borgina
Hljóð leikandi
milli fótanna
á fjölda alvarlegs fólks
varð fyrir ofsóknum
skammaryrða
og högga regnhlífanna
Skildi ekkert
hrópaði án árangurs
á hjálp
Var að lokum
hrakið út á götuna
og lést
undir skólabílnum
Strax
kom líkbíllinn
og ók
dauða brosinu
burt eins og
brandara.
Þróun
Vinnuaflið
sótti í bæinn
í verksmiðjunni
varð nafnið númer
---
Jaðarþjóðin
vaknar hægt
fátækraheimili
kýttir hnúar.
Engelke Revold (1921-1991)
Leikur
Hún var ákaflega skemmtileg
þegar hún hló og sagði: Ég er leið á því
að láta brenna mig
ég hef tekið ákvörðun: Nú vil ég fá önnur hlutverk –
þá hló ég að henni og gladdist
að hafa hitt hana
En þegar hún stóð upp og fór
sá ég á álútu höfðinu
að þessi glaðværð
var sú síðasta sem hún átti
og ég fann til – sektar.
Hús-Freyja
Vitið þið að ég drottning hinna þúsund hafragrjóna
hef meira frelsi herrar mínir
til að ávaxta mitt pund
eða láta það eiga sig
heldur en þið hafið í dagdraumum ykkar
nokkurn tíma gert ykkur í hugarlund
Hvern morgun get ég handfjatlað
eins mörg grjón af þessu þúsundi
og poki minn inniheldur
þann daginn
og leyft þeim að sáldrast
yfir vatni og eldi
án þess að nokkur nema ég
viti hvað ég vil
Ó sætbitri leikur að grjónum og tíma
sem seytlar milli fingra minna
þú sveiflar mér milli lúinnar visku
og barnsins drauma –
til undarlegrar gerðar af þroska
sem aldrei fær rúm í dálkum áhrifamannanna
Og þess vegna hef ég drottning hinna þúsund hafragrjóna
meira frelsi herrar mínir
til að ávaxta mitt pund
í tíma og ótíma
heldur en nokkur tölfræðinga ykkar
getur nokkurn tíma afstýrt.
Anna Sandnes (1903-1988)
Barn
Barn, þú ert eini vitringurinn
meðal okkar
því að þú veist ekkert
augu þín spyrja og undrast –
þú ert ókunnugt
en hér áttu að eiga heima
innan um vélar og fólk
ennþá eru augu þín
úr annarri veröld
Ég sé þig
upp við fyrsta hliðið
sem þér tókst ekki að opna –
því að fyrir utan leyndist dauðinn
Ó barn
ég vil ekki sjá augu þín
þegar þú hefur fengið að vita allt –
ég bið þess eins að þú fyrirgefir okkur
eins og við sjálf verðum að fyrirgefa
lífinu sem við fengum
án þess að vita það.
Anders A. Hovden (1905-1986)
Beygðu þig
Beyg þig
fyrir bljúgri sál
sem forherðist ekki
Fyrir hjarta
sem ekki er orðið að
steini
Beyg þig
fyrir ráðgátunum
án þess að spyrja
eða biðja
um svar
Anders A. Hovden (1905-1986)
Meitlaðu ekki ...
Meitlaðu ekki nafn þitt
í stein
skrifaðu heldur boðskap þinn
í sandinn
vindurinn mun feykja honum burt
sem leyndardómi
inn í eilífðina
boðskapur þinn verður hluti
alls sem er
verður aldrei skilinn
frá heild hins gjörvalla
Steininn þarf að mylja
niður í sand
áður en unnt er að mynda
lifandi orð
hverful eins og
mannshugurinn
en með eilíft líf
í slóð sinni
Steinninn er dauður
en orðið á líf
frá manninum
sem reit boðskap sinn
í sand
sálir hafa risið upp
til eilífs lífs
og orðið
var skrifað í sand.
Anders A. Hovden (1905-1986)
Hlið þitt er knúið
Hlið þitt er knúið
í nótt
einhver vill inn
til þín
þú getur ekki lokið upp
og hönd þín skelfur
Hlið þitt er knúið
einhver kvelst
í kuldanum
í nótt
og kannski á hann sér veika von:
hann hjálpar mér
Það er svo dauðahljótt
milli högganna
líklega var það hin sterka hönd
stormsins
sem lamdi grein
í gluggann þinn
Þá hefst aftur dynjandi barsmíð
þungra högga
hlið þitt er knúið
hönd þín er loppin
hún megnar ei að ljúka upp.
André Bjerke (1918-1985)
Veisla hinna fullorðnu
Hvað var það sem gerðist
í veislu hinna fullorðnu?
Fyrir löngu síðan varstu rekinn
í háttinn
vandlega sveipaður
sæng kossi og kvöldbæninni
og þau héldu að þú svæfir
(börn eiga svo gott með að sofna!)
en þú lást með augun opin
eins og maurildi í myrkrinu
þú lást með eyrun opin
eins og kuðunga
vakandi lástu stilltari en í svefni
og hlustaðir ...
Frá stofunni niðri
barst hláturinn upp
eins og loftbólur úr hafdjúpi
barst upp og sprakk
á vatnsborði ljósvökullar þagnar þinnar
Frá djúpinu niðri
hljómaði og söng
suðaði leyndardómsfullt
eins og kvörnin
sem malar á hafsbotni!
Hvað var veisla hinna fullorðnu?
hvaða kuðungsdýpi ævintýranna
– fjarlægt og forboðið –
var þetta sem alltaf fór að heyrast
eftir háttatíma barnanna
Þetta hlaut að vera
hinn hafmyrki leyndardómur
þeirra fullorðnu
sjálfur leyndardómurinn
sem gerði þau fullorðin:
stórar persónur
með alvís augu
og hafmeyjabros ...
Þarna lástu
í hraksmánarlegum fangabúningi barnsins
pottormurinn
(þú átt að vera sofandi! sofandi!)
dreymandi spurði maurildið:
„hvenær verð ég fullorðin?“
„hvenær fæ ég að vita það?“
og það svaraði í öldugjálfri myrkrar villtrar sorgar:
„o, það er langt þangað til!“
„langt! langt þangað til!“
---
Fangavist þinni er lokið
þú ert sjálfur kominn niður í stofuna
og enginn skipar þér að fara að hátta
nú hljómar þín eigin rödd í veislunni
(„skál vinir mínir og bræður!“)
og berst upp í hlustandi barnaherbergið
nú veistu hvað það er sem gerist
í veislu hinna fullorðnu
nú veistu að þú hefur ekki sigrað
heldur tapað
hinum leynda heimi hafdjúpsins
Þau þarna niðri voru ekki lifandi
í því sem þú heyrðir forðum berast upp
í þér var veislan kuðungurinn hafmeyjan
í þér var kvörnin
sem malar á hafsbotni!
Astrid Hjertenæs Andersen (1915-1985)
Hestsaugað
Dýpst
í auga hestsins
dimmu – átakanlega viðkvæmu
djúpt
bak við sára speglun
geislandi grasteiga
djúpt
í gullinbrúnu landslagi
hinu angurværasta á jörðu
sé ég manninn aftur
varnarlausan, nakinn
upptendraðan af lífinu.
Ernst Orvil – alias Ernst Nilsen (1898-1985)
Sálfræði
Ég vildi óska
að hún væri nógu
döpur
svo að ég gæti
gert hana glaða
og hún mundi segja:
þú
gerir mig glaða
ég vildi óska
að ég gæti gert hana
nógu dapra.
Jens Björneboe (1920-1976)
Innlegg í baráttu dagsins
Til hvers er að kveina og kvarta
þegar klögur og harmleikir
eru boðnir upp í heilum bílhlössum?
Hverjum kemur til hugar
að spyrja um brúðu barnsins
í grasinu
þar sem foreldrarnir voru skotnir fyrir hádegi?
hverjum kemur til hugar
að spyrja um sannanir
eða hvort dómararnir séu hæfir
þegar hinir dæmdu eru stráfelldir
og brenndir
– heilar þjóðir í einu?
Hverjum kemur til hugar
að spyrja um hægri eða vinstri
þegar spurning dagsins er:
ert þú ein af morðingjunum
eða eitt af fórnarlömbunum?
ertu ein af dómurunum
eða ein hinna dæmdu?
Hvaða meining er í því
að börn sem fá að lifa
megi einnig eiga foreldra
þegar allt miðast við
að koma rússneskum eða amerískum hermanni
til tunglsins?
Finn Björnseth (1924-1973)
Undir rúsínurunninum
„En Drottinn sagði: Þig tekur sárt til rúsínurunnans, sem þú hefur ekkert fyrir haft og ekki upp klakið, sem óx á einni nóttu og hvarf á einni nóttu. Og skyldi mig ekki taka sárt til Níníve, hinnar miklu borgar, þar sem eru meira en hundrað og tuttugu þúsundir manna, er ekki þekkja hægri hönd sína frá hinni vinstri, og fjöldi af skepnum?“ (Jónas. 4. kapítuli, 10. og 11. vers).
Ég hafði rétt fyrir mér
járnör meitlar opinberunina inn
á milli 5. og 6. rifbeins
meðan æðaslögin í gagnaugunum
umla tónlaust:
– ég hafði rétt fyrir mér
hinir rangt,
rétt, rétt, rangt, rétt
Drottinn tak mig burt
frá brennandi vindinum
burt af eyðimörkinni og inn
í skugga sundurkraminna hjartna
tak glitrandi gersemar réttlætis míns
og gef mér brotinn demant í barminn
þessi söngur er óþolandi
og verri en hvert illt tilræði
við líf mitt.
Tarjei Vesaas (1897-1970)
Regn í Hírósíma
Þegar hún lyfti hendinni
til að taka tekönnuna
kom glampandi ljós –
– Var ekki meir
allt var horfið
þeir voru horfnir
ummyndaðir í gufu og ský
sem steig upp
leyndardómsfullt og hljótt
hróp var ekki lengur hróp
en jörðin sló í tryllingi
krepptum hnefa hátt mót himni
í sjálfsvörn
– vegna þess sem allt lifandi líf veit
hvarvetna
en megnar ekki að skilja:
Hírósíma –
Mílubreiðar slæður sem stigu upp
þeir voru þarna í þeim
endurgerðir í frummynd
gufubólstrar
yfir kvalinni jörðunni
að vera ögn af þessu –
Að vera í þessu sem hvarf
en ekki lengi
glundroðinn varð brátt minni
slæðan þéttist í dropa – þétta dropa
með eilífum skapnaði dropans
án upphafs og endis
Þeir féllu niður
svalandi óteljandi
í stríðu regni.
Tarjei Vesaas (1897-1970)
Andspænis nýju
Viðvörunarhróp
strýkur lágt eyddan mó þinn
og breiðir skuggar vakna
og ganga fram
þeir reisa tjöld sín
skjótt og varlega
til að gefa þér skjól
sem stendur tæmt í striti þínu
Þú sem hefur verið klofinn
af efa og trú
og tærður af eldi
sem át sjálfan sig í leynum –
það virkar eins og nýtt
eigi að fylla hið tóma
en hið horfna hefur samt
fagran hljóm
Lágt hrópið
um að því sé lokið í þetta sinn –
þetta bragð af aldrei framar
hlýtur ætíð að svíða
eins og ljúf sumarkvöld
og börn sem eiga að fara í háttinn
þegar knötturinn flýgur glaðlega
og leikurinn stendur sem hæst
Þá hefur þú opnað hús þitt
og rétt fram höndina
og undrast hvaða landamærum
þú ætlir þér að ná
Einhvers staðar bak við þessa angan
er báti róið
bak við þessa angan
af stuttum degi okkar.
Leið ormsins yfir bjargið
Á sólvermdu bjarginu
er sléttur mjúkur kúfur
og heitar hallandi hlíðar
enginn fer þar fyrir sitt litla líf
Hér hafa engir mæst
engin spor eru í sandinum
aldrei skrjáfar í lynginu
bjargið geislar frá sér hryllingi
Eins og frjósandi rennsli
yfir heitan barm
en björg eru mállaus
björg hrópa ekki
fyrr en við dagsbrún
þegar bæði björg og ský eiga að hrópa
og ormurinn skríður yfir
slípar bjargið ofurhægt
í sýslan sinni
og fuglinn sem ætlar niður í djúpið
syngur.
Aslaug Låstad Lygre (1910-1966)
Þrír deplar á teignum
Ofan úr þessari brekku
get ég séð húsþakið á Bæ
og fari ég aðeins ofar í hlíðina
get ég líka séð túnið
Þegar við förum inn eftir um nónleytið
ætla ég að dragast svolítið aftur úr
og þá ætla ég að klifra upp í urðina
þaðan get ég séð allt búið
ykkar á Bæ
Og sjái ég svartan depil
niðri á teignum
er það líklega bara hann pabbi þinn
en sjái ég tvo depla
ert þú kannski annar
en það getur svo sem alveg eins verið hún mamma þín
en sjái ég þrjá depla
þá ert þú einn þeirra –
Heldurðu að það sé ekki kominn tími til að fara –
Ef við dveljum lengur núna
fara þau í Bæ í nónkaffi
á undan okkur
en þá ætla ég að fara hingað upp eftir
þá sé ég allan bæinn
út frá
Og sjái ég svartan depil
niðri á teignum
er það líklega bara hann pabbi þinn
en sjái ég tvo depla
ert þú kannski annar
– ef það er þá ekki hún mamma þín
En sjái ég þrjá depla
ert þú örugglega einn þeirra.
Einar Skjæraasen (1900-1966)
Ákæra við múrinn
Við getum ekki hist
boðberarnir hrapa í myrkrið
ekki heyrt hvort í öðru
söngurinn hljóðnar inn í stein
Hví aðskildir Þú okkur
ég sem við sólsetur
átti að þjóta til móts við hana
út á völlinn
bregða örmunum um mjúkt mittið
og dansa af gleði
Hví reistir Þú múr að enni mínu
enni sem vildi halla sér
að ljósum öxlum
hví fléttaðir Þú reipi
um hendurnar
hendur fullar af ást
Hver ert þú, Þú
sem mæltir til mín á kunnri tungu
og rakst mig burt
til lands án árstíða
ég sem sá fuglana fljúga í norður og suður
haglendin gróa undir grönum dádýranna
uppspretturnar streyma fram
Þú heldur mér föstum
með augu úr ís
og gætir útgönguleiðanna
með ofstækisstáli –
ég sem er fæddur í hinum milda
sjöunda mánuði
þegar gróðurinn blómgast
og fyllir stað sinn
undir lögum þrárinnar
Í nafni lífsins: hver ert Þú
sem hlekkir dag minn við múrinn
og lítillækkar mátt minn
eyðir mér upp til ösku og einskis?
Ég teygi mig í áttina til hins helga turns
í upphæðum –
þetta er ofbeldi
líttu á hinn stutta tíma vorn
og gef oss jörðina aftur
Unnusta mín er hinum megin
ég get ekki náð henni –
ég sem ætlaði að lyfta barninu með höndunum
fagna: Ávöxtur ástar vorrar
ætlaði að hrópa að hjarta mannsins
snú hvorki til austurs né vesturs
svo sannarlega ekki.
Kristofer Uppdal (1878-1961)
Hersla
Stálið
er hert í stríði
án óvina
værir þú minna en þú ert
Í eld
þarf að setja það sem herða skal
í eggjarstál
og síðan á hverfissteininn
til að hvessa það
Eldurinn eyðir
slítur
Eyðing og slit:
tortíming
Í tortíminguna með þig!
Í eggjarstál!
Sigbjörn Obstfelder (1866-1900)
Hin svartklædda
Ég reika niður eftir auðri götunni. Ég læðist með húsveggjum.
Er einhver að elta mig? Læðist einhver að baki mér með álútt höfuð? Eins og ég sjálfur?
Ég þori ekki að líta í kringum mig.
það er kolsvarta myrkur. Hjarta mitt slær örar.
Ég heyri hvíslað:
– Karlmaður!
Ég finn kvenfatnað strjúkast við mig. Ég lít ekki upp en þó veit ég að þessi föt eru svört.
Og ég veit að þetta er ósnortin mær og ég veit að brjóst hennar ólgar.
Hún grípur hönd mína. Hönd hennar skelfur. Hún hallar sér að mér og styður sig upp að mér og hvíslar:
– Karlmaður!
Við förum inn á milli timburs og tunnuræfla og alls kyns rusls. Við förum upp stiga, við göngum inn undir súðarglugga.
Hún tekur af sér slörið. Ég sé tvö stór, sérkennileg augu. Hún leysir upp um sig, hendur hennar skjálfa.
– Sjáðu, segir hún, – er það fallegt?
Og hún þrýstir sér upp að mér og hún strýkur andlit mitt, hálsinn, brjóst mitt, allan líkama minn. Með mjúkum, varfærnum höndum.
Og þessar hendur hvísla:
– Blind.
Maginn
– Kyrktu mig, er hvíslað.
Eins og heitur suðaustanvindurinn frá svörtu hyldýpinu.
Síðan er þögn, langt slen og myrkur sem linast og augun tvö, augun tvö með nýja augnaráðið.
Allt í einu stekkur hún fram úr. Hún dregur gluggatjöldin frá, stekkur upp í gluggann. Hún er nakin.
– Sérðu mig?
Þarna inni nóttin. Þarna úti dagurinn.
Bleikir geislar morgunsins falla á þrútinn maga konunnar.
Þetta háa, hvíta á milli næturinnar og dagsins, var þetta eiginkona hans?
– Sérðu mig?
- - - Og hann dragnast af stað í kaldri grábirtunni í átt til hafnarinnar. Ólyktina leggur af fiskúrganginum. Í grágrænu vatninu mætir hann sínu eigin andliti, heimskulegu, dauðu.
Mókir upphafið að barni hans þarna inni í þrútnum, sjóðandi maganum?
Nafnlaus
Myrk þokan sígur yfir tré, yfir blettina
blöðin eru litlaus, grasið er ekki grænt
skíma lugtanna er gulir augasteinar myrkursins –
gulir augasteinar sem víkka svo undarleg út
enginn er þarna, enginn hlær eða andvarpar í trjágöngunum
ég hósta, hósti minn hljómar líkt og draugur ræski sig
ég geng, fótatak mitt er eins og fótatak draugsins
En í myrkum gangi garðsins þar sem engar lugtir lýsa
situr vændiskona hulin á milli trjánna á einmanalegum
bekk
það er slæða um föla vangana, svört slæða –
bak við svarta slæðuna eru augu sem tindra svo
undarlega
Og ég er gripinn af blíðri gleði næturinnar
við að hitta í myrkrinu, í dauðri nóttinni, mannveru
ég sest hljóðlega – dreg slæðuna þögull til hliðar
augu mín nálgast augu hennar, sál mín sál hennar
Hljóðlega svífa niður nokkur lauf
varlega legg ég eyrað að hjarta hennar ...
og brest í grát, græt niður í kalda hanska hennar
græt og græt og veit ekki hvers vegna ég er að gráta
Hún hrindir mér ekki burt
hún þerrar augu mín vandlega
Og ég gríp hendur hennar í angistarfullu þunglyndi mínu
og bið hana að fela mig, fela mig, fela mig
Myrk þokan sígur yfir tré, yfir sálir
laufið er litlaust, grasið er ekki grænt
en í þokunni svífa svört laufblöð hljóðlaust til jarðar
og í myrkrinu situr nafnlaus mannvera falin á einmanalegum bekk
og felur við hlýtt brjóst sitt andlit hins sjúka
og felur í mjúkum höndum augu hins hrædda
og enginn nema Guð heyrir sárt snökt hans
og enginn nema Guð heyrir huggandi hvísl hennar.
Nocturne
Vængir myllunnar stöðva nið sinn
áin speglar auga næturinnar
varir blómanna biðja auðmjúklega
krónur trjánna hvísla, hvísla
Prestarnir tendra á fölum kertum
nunnurnar söngla frómar bænir
börnin spenna magrar greipar
svanirnir hylja nef sitt undir væng
Brátt munu allir hinir þreyttu sofa
hvíla höfuð mjúkt á koddanum
gleyma gráum, harmrænum hugsunum
móka, sofa, dreyma, sofa
Úti í blánum svífur kona
móðir Krists, María, María
lýkur ástúðlega aftur augum sálnanna
stígur varlega bogtré jarðarvöggunnar.
Kvenleggur
Þær sofa
báðar sofa
sú litla indæla í vöggunni
sú stóra indæla í rúminu
Og náttljósið logar
á oblátunni
flýtur lítið skar
saklaust
í gulleitri olíu
Rúllugardínan er runnin upp
gaslugt fyrir utan.
Það er allt
En hve hún flöktir angurvært!
sængin hefur dregist niður
gaslugtin teygir úr sér og starir á axlir konunnar minnar
Ég skal breiða yfir þig, mín sofandi eiginkona
og ég skal draga rúllugardínuna niður
gaslugtin fær ekki að sjá
þetta bjarta sem ég á
Ég ætla að þrýsta tveimur kossum á spékoppana þína
– sem brosa í svefni –
og á fingur þína
og á trúlofunarhringinn
og á silfurkrossinn um hálsinn
Ég ætla að læðast upp í til þín
og hlýja mér hjá þér
og gleyma
að stundum erum við ekki eins og við ættum að vera
hvort við annað.
Stúlkur (brot)
Skógurinn muldrar við sjálfan sig
hvers vegna muldrar hann?
áin rennur raulandi fram
hvers vegna raular hún?
pabbi sefur
mamma les
ég held bara að ég skreppi í bátsferð
- - -
Fjörðurinn er svo fagur!
hvers vegna stækka ég?
reykur – frammi við oddann
það er gufuskipið
Nestún, Árvík
Berjar, Tangi
ég held ég vilji heldur fara inn og spila tónlist
- - -
Svona voðalega margir draumar
hvaðan koma þeir?
er þeim vaggað úr skóginum
hingað til Aulabárðar
Aula – bárður
Aula – Bárður
nei, það verður víst enginn „Álfadans“ úr þessu!
Guð, hve þetta er dýrlegt!
það er svo dýrlegt!
enginn getur lifað án tóna
eða hvað?
einn og ... tveir og ...
einn og ... tveir og ...
það væri gaman að vita hvort álfar væru til
- - -
Þetta er vinstri
það á að vera hér
er það það sem slær?
eða kannski úrið?
einn og tveir og
einn og tveir og –
ég held svo sannarlega að ég sé ekki með hjarta
- - -
Skógurinn þegir
hvers vegna þegir hann?
– o, það er svo einmanalegt
hérna á Furulundi!
Fanginn ... fuglinn ...
einmana ... situr ...
ég þoli þetta ekki!
Billet doux
Komdu kæra frú!
komdu ef þú vilt!
komdu inn í myrkrið
sem rennur kalt og vott
um deyjandi mann
og sýgur hið deyjandi hjarta
Ertu sterk?
geta augu þín geislað
andspænis líki?
ertu hugdjörf
þarna inni í kyrkislöngunni?
Við ættum að hlæja!
hlæja að sjálfum okkur
hlæja að öllu
hlæja að hjörtum okkar
hlæja að blæðandi, lemstruðum hjörtum okkar!
Við ættum að hlæja
hlæja eins og vitstola
hlæja svo að braki í kinnbeinunum
hlæja svo að skuggarnir skelli upp úr fyrir aftan okkur
komdu ef þú vilt! Komdu inn í myrkrið!
Því að þú þekkir víst grátinn
þú þekkir víst grátinn um nótt ... ?
Komdu ef þú vilt! Komdu inn í myrkrið!
Berceuse (Vögguljóð)
Hristu blómablóm
dauð blöð þín
yfir hvelft ennið
svo að hún fái svala hvíld!
hristu, hristu
dauð blöð þín!
Suss, vormorgunn
þú skalt sussa hljóðlega
inn í bylgjandi barm hennar
friðsælu skvampi!
suss, suss
þú skalt sussa hljóðlega!
Uss, fossaniður
það eru álfar hjá okkur
láttu vísu þína hríslast
inn í kuðung eyra hennar
uss, uss
það eru álfar hjá okkur
Kyssið, ljósbylgjur
augnalok hennar
nasvængi hennar
svo að hún vakni í anganinni!
kyssið, kyssið
augnalok hennar.
Dagur
Ég vaki
nýr dagur breiðir blóm sín yfir mig
angandi af sólrænum þönkum
Eyru mín hafa opnast
fyrir ljóðum bára og vinda
með bergmáli af ánægju fuglanna
Augu mín hafa opnast
himinninn hvelfist yfir heiminn
sólin er efst í hvelfingunni
Ég svaf
sál mín reikaði, ég veit ekki hvert
þar var engin sól
Ég skalf þegar dimmdi að
þarna inni var dauðinn
dauðinn og hvíslandi tungur
Nú er dagur jarðarinnar
bjöllurnar flykkjast fram úr skauti hennar
ólmast í glöðu andrúmi hennar
Hvað varð af hinu undarlega myrkri?
hvert er það farið?
Nú eru alls staðar geislar –
er heimurinn búinn til úr geislum?
Að baða hár sitt í þessu ljóshafi!
sem vellur inn í grasið
og kyssir frjóin
sem spretta litrík upp
Að finna angan þessa fæðandi lofts!
sem dansar um enni mitt
sveiflar sér á nasvængjum mínum
Geislandi dagur!
þú ert hlæjandi auga Guðs, spegill sálar hans
Hugsanir hans
spretta upp úr djúpinu
úr hvelfingum, hnöttum
í logandi sálnagrúann.
Getur spegillinn talað?
Hefur spegillinn mál?
spegillinn hefur mál!
spegillinn horfir á þig á hverjum morgni
rannsakandi
horfir á þig djúpu, alvitru auga
– þínu eigin!
heilsar þér með sínu hlýja,
sínu dökkbláa auga:
ertu hreinn?
ertu trúr?
Tréð
Hvar eru lauf mín, brumknappar mínir?
greinar mínar eru horfnar, sprotarnir fallnir af
Ég dreifði blómunum mínum öllum út um heiminn
Ég vildi skapa sumar
ég deildi út öllum blómunum mínum
ég á sjálft ekkert eftir
Eitt sinn rann safi um sprota mína
mikil króna sveipaðist um stofn minn
hún svignaði í vindinum
blöð hennar skulfu við hvern vindblæ
og hlýr snjórinn gægðist út á milli þess græna
Æ, hví þyrlaði ég snjónum niður?
ef til vill hef ég ekki þyrlað sumri í eitt einasta hjarta
nú er allt nakið
það er vetur
aðeins þurr stofn minn og kalt bládjúpið
– Og þó, hvað er þetta?!
eitthvað liðast út úr stofni mínum
það er eins og öll jörðin nötri
Undarlegt. Ég finn nýjan sprota spretta fram
Hann er sterkur eins og steinn
ég veit ekki hvert hann bendir
ég veit ekki hvort það er til upphæða
eða til undirdjúpa
milljónir stjarna eru umhverfis
eru þær snjórinn sem ég forðum deildi út?
Brumknappar mínir, lauf mín, stönglar mínir eru horfnir
ég á aðeins einn grjótharðan sprota
eitt sinn rann safi um stofn minn
málmur, málmur, heyri ég gjalla í sprotanum mínum
Allt sköpunarverkið stynur
Allt sköpunarverkið stynur
nötrandi spyr það
bylgjandi hvíslar það
Fuglarnir þyrpast saman
lesa í augu hver annars
Og að vestan
rær vindurinn svo þungt
og að austan
niðar æðasláttur sjávarins
Sköpunarverkið þjáist
Blómin við rætur furunnar
skilja það ekki
Lækir og elfur
þjóta – hvert?
Maður mætir manni:
hver ert þú?
Konur fæða
og deyja
Þar sem leiðir skerast
stendur hvítur kross
yfir honum er slæða
úr blóðdropum
Þar krýpur kona á kné
Hvíti kross!
hvað er það að elska?
Ég hef spurt frjóvegu Jónsmessublómsins
þegar sólin rann
ég hef spurt gárur tjarnarinnar
Ég hef setið undir aski gauksins
um miðnæturbil
hann söng um angurværðina og flaug burt
Og ég kom langt inn í stóran skóg
til eldgamals spámanns
Hann var svo vitur
skegg hans var svo hvítt
„Ást – hana þekkir enginn.
þrá – hana þekkja allir.“
Fætur mínir eru sárir
augu mín eru þreytt
hjarta mitt svo þungt
Hvíti kross
hví grætur þú blóði?
er ástin dauði?
Þá draup aldinfrjó af blóðdropaþyrpingunni
þá skutu blómmunnarnir blómum
þá var muldrað ástúðlega í földum lindum
þá hríslaði og freyddi í lækjum og elfum
þá sáldraðist, fossaði, kyssti og blossaði:
„þar til nú, þar til nú, þar til nú!“
Og að vestan
kemur þjótandi vængjatak stormsins
og að austan
kemur freyðandi andardráttur hafsins
í glóandi geislum!
Allt sköpunarverkið fagnar!
því að jörðin er þunguð!
og ástin, hún kemur
kemur
með sumar
með glóandi geisla
kemur með sársauka
með veraldaryndi!
Ég sé ...
Ég horfi á þennan hvíta himin
ég horfi á þessi blágráu ský
ég horfi á þessa blóðugu sól
Þetta er sem sagt heimurinn
þarna búa sem sagt mennirnir
Regndropi!
Ég horfi á þessi háu hús
ég horfi á þessa þúsund glugga
ég horfi á þessa fjarlægu kirkjuturna
Þetta er sem sagt jörðin
þarna býr sem sagt mannfólkið
Blágráu skýin dragast saman
sólin horfin
Ég horfi á þessa vel klæddu menn
ég horfi á þessar brosmildu konur
ég horfi á þessa álútu hesta
En hve blágráu skýin dökkna!
Ég sé, ég sé ...
ég er víst kominn á rangan hnött!
hér er allt svo undarlegt ...