
Hér birtast þýðingar mínar á ljóðum Maós formanns, gerðar árið 1977 og birtar í bókinni GANGAN MIKLA sem gefin var út af Prenthúsinu og mér í afar fallegu umbroti Árna M. Björnssonar.

Tsjangsja
Aleinn
í haustnæðingnum við Appelsínuey
þar sem Hsíang-fljótið rennur norður á bóginn
- stend ég og virði fyrir mér rauð fjöllin
haustliti mjórra skógarbelta
báta í hundraðatali sem þokast áfram
yfir tært vatnið
Erni ber við himin
Fiskar smjúga djúp vötnin
Undir hausthimni berst allt sem lifir
fyrir frelsi sínu
Og ég spyr þrúgaður af óendanleikanum:
- Hver er það sem ræður
örlögum þessarar jarðar?
Eitt sinn gekk ég hér með vinum mínum
hönd i hönd
Ég man þá tíð
og hve dagarnir voru annasamir
Við vorum skólafélagar
svo ungir
svo þyrstir í þekkingu
svo fullir af hrifningu nemandans
Alla hnúta skárum við á án þess að depla augum
létum hugann reika að fjarlægum markmiðum
tendruðum glóð í hugum alþýðu með orðum okkar
- Hve við fyrirlitum valdhafana!
Já
munið þið heitin
þegar við ýttum bátunum út í strauminn
og þutum af stað á móti bylgjunum?[1]
Sumarskáli gulu trönunnar
Voldug
voldug
eru Fljótin níu sem renna yfir Kína
Óendanleg
óendanleg
er línan sem sameinar suðrið og norðrið
Þoka og regn fela himin
En Slöngufjall og Skjaldbökufjall spenna greipar
um Fljótið mikla
Hvert er gula tranan flogin?
Aðeins ferðalangar eiga hér afdrep
Ég helli drykkjarfórn í löðrandi vatnið
og í sál minni rís einnig bylgja.[2]
Tsíngkang-fjöll
Við rætur fjallsins stirnir á fána
við tind bess gjalla lúðrar
Eins og naglbítur
þrengir óvinaherinn að oss
en vér stöndumst
Vér hörfum ekki
Vér höfum reist virkismúra
viljinn er virki vort
Frá Húangjangtséh þrumar fallbyssa
þá vitum vér það -
Fjandmaður vor lagði á flótta
út í myrkur næturinnar.[3]
Barátta Tsjang Kæsjeks og Kvangsí-óaldarflokksins
Vindar gnauða
ský þjóta yfir himin
Enn hafa hershöfðingjarnir komið af stað stríði
Eymd og volæði breiðast út um landið
„Eftir drauminn vakna ég til hirsisins“
En Rauði fáninn
er kominn yfir Ting-fljótið
Lúngen og Sjanghang eru frelsuð
Enn einn hluti Gullvasans er endurbættur
Vér skiptum niður eignum
og deilum út jörð![4]
Tsjúngjang-hátíðin
Mannfólkið eldist svo hratt
svo hratt -
en náttúran er síung
Ár eftir ár
er Tsjungjang-hátíðin haldin
nú er aftur komið að henni
Torgin anga af krýsantemómum
Hvert ár
á sína bitru haustvinda
Þeir eru ekki eins og vorbirtan
sem gleymist þegar haustvindar hvína á ný
Himinn og fljót leggjast hrími.[5]
Nýársdagur
Nínghúa, Tsínglíú, Kveihúa
stígarnir eru þröngir
skógarnir djúpir
mosinn sleipur
Hvert skal halda i dag?
Sjá!
við rætur Vúji-fjallsins
við fjallið
við rætur fjallsins
Þar blakta rauðir fánar tignarlega í golunni.[6]
Á leið til Kvangtsjang
Öll víðáttan er hvít
her vor þrammar áfram í snjónum
fjallstindar gnæfa yfir oss
Stórt skarðið leggjum vér að baki
rauðir fánar blakta í vindi
Hvert ætlum vér?
- Að snævi þöktu Kan-fljóti
út í árfarveginn
Í gær hljómaði skipunin:
Hundrað þúsund verkamenn og bændur –
Til Kían![7]
Frá Tíngtsjó til Tsjangsja
Júní -
Hersveitir himins
ráðast til atlögu gegn spillingu og rotnun
Með þúsund mílna reipi
tjóðra þær óvættir láðs og lagar
Hins vegar Kan-fljóts
er jörð þegar orðin rauð -
Húang Kúnglúeh er kominn yfir!
Milljónir verkamanna og bænda
í hrifningu
Eins og dregill
leggst Kíangsí að fótum þeirra
Þeir stefna til Húnan og Húpei
með Alþjóðasönginn á vörunum
þann volduga söng
Og villtir stormar
falla af himnum ofan
oss til hjálpar.[8]
Gegn fyrstu útrýmingarherferðinni
Trén eru skínandi rauð
undir frosthimninum
Reiði himnahersveitar
slær ljóma á skýin
Í móðunni
sem hylur þúsund tinda Drekafjalls
hrópa allir einum rómi:
- Framvarðasveitin
hefur tekið Tsjang Húítsang til fanga!
Á ný
hafa tvö hundruð þúsundir óvinanna
farið inn í Kíangsí
Reykský fellur af himni
það er uppreisnartáknið
- Milljónir verkamanna og bænda sameinast í baráttu
undir rauðri fánaborg við rætur Pútsjó-fjalls.[9]
Gegn annarri útrýmingarherferðinni
Tindur Hvítskýjafjalls er hulinn skýjum
við rót þess færast angistarópin í aukana
Þurrar greinar og gamlir kvistir
safnast saman
Heill skógur vopna geysist fram
Hershöfðinginn fljúgandi
kemur þjótandi niður úr skýjunum
Sjö hundruð lí
höfum vér lagt að baki á fimmtán dögum
víðáttumikil vötn Kan-fljóts
græn fjöll Fúkéns
Vér höfum þurrkað út þúsund herdeildir
vafið þeim saman eins og mottum
Einhver kjökrar –
en nú er of seint að gráta ranga stjórnlist.[10]
Tapótí
Rautt, rauðgult, gult
grænt, blátt, fjólublátt, fjólurautt!
Hver er það sem dansar
og veifar litborðum sínum að himni?
Eftir regnið
kemur kvöldsólin fram
Blámi ása og fjalla dýpkar
Eitt sinn var hér háður trylltur bardagi
Í þorpsmúrunum eru kúlnagöt
en í dag
prýða þau ásana og fjöllin
Hér er fegurra en nokkru sinni fyrr.[11]
Húítsjang
Í austri roðar af degi
Segið ekki að vér höfum lagt of snemma af stað
Enginn eldist við að reika
yfir þessa grænu ása
Aðeins hér
er hin raunverulega fegurð
Fjöllin rísa bak múranna í Húítsjang
tindur af tindi
allt til hafsins í austri
Hermennirnir benda suður á bóginn
í átt til Kvangtúng
- Þar er enn grænna og frjósamara[12]
Lósjan-skarð
Bítandi vestanvindar
frosthiminn
morgunmáni
Langt fjarri –
garg villigæsa
hófatak dunar
lúðraköll hljóðna
Já
skarðið kann að vera gjört af járni
en í dag
komumst vér upp fyrir alla tinda
Vér stígum rakleiðis yfir þá
Bylgjandi hæðirnar
eru grænskærar sem hafið
Sökkvandi sólin
er rauð sem blóð[13]
Þrjú smáljóð
Fjöll!
Ég keyri hestinn
sný mér í söðli
undrast :
- þrjú fet og þrjá þumlunga frá himni !
Fjöll!
Þér eruð sem rísandi bylgjur
eins og þúsund trylltir hestar
sem vaða áfram
í iðu bardagans
Fjöll!
Þér rjúfið bláma himins
en eggjar yðar slævast ekki
Án stuðnings yðar
mundi himinninn hrynja.[14]
Gangan mikla
Rauði herinn
óttast ekki langar göngur
Fyrir hann
eru þúsund fjöll
og tíu þúsund fljót ekkert
Fjallgarðarnir fimm aðeins ójöfnur á vatni
hið risastóra Vúmeng-fjallabákn
aðeins moldarköggull
undir fótum!
Heitar
eru fægðar klappirnar
sem Fljót hins gullna sands skolar
Kaldir
eru járnhlekkirnir
sem spenna brú yfir Tatú-fljót
Meiri var þó gleðin
í fannbreiðum Mínsjans -
Er herirnir þrír voru komnir yfir
ljómaði hvert andlit
í brosi.[15]
Kúnlún
Hátt
eins og þú sért ekki af þessum heimi
stendur þú risavaxna Kúnlún
Fegurðina í lífi alheims þekkir þú –
þrjár milljónir silkidreka
á þyrlandi flótta –
loftið mettast frosti –
En á sumrin
bráðna ís og snjór
ár flæða yfir bakka sína
fólk verður að fiskum og skjaldbökum
Óteljandi
eru dáðir þínar og illvirki
Hver getur nokkru sinni dæmt þig?
En nú segi ég þér
Kúnlún
þú þarft ekki alla þessa hæð
ekki allan þennan snjó
Gæti ég aðeins dregið úr slíðrum Sverðið mikla
sem hallast að himni
skæri ég þig í þrennt –
einn hluta gæfi ég Evrópu
einn hluta gæfi ég Ameríku
einn hluta hefðum við hér í Austrinu
- þá tæki Friðurinn mikli völdin
þá ættu allir jafnan hlut
í hlýju þinni
og kulda þínum.[16]
Ljúpan-fjall
Hár himinn
björt ský
Vér sjáum villigæsir
hverfa til suðurs
Þeir sem ekki komast til Múrsins mikla
eiga ekki skilið að kallast menn
Ef allt er saman tekið
höfum vér gengið
tuttugu þúsund lí
Á tindi Ljúpan-fjalls
blaktir rauður fáni vor í vestanvindi
Í dag
höfum vér langt reipið í höndum vorum
Hvenær auðnast oss að binda Drekann græna?[17]
Snjór
Landið i norðri:
Vindur og birta
þúsund lí umlukin ís
tíu þúsund lí undir snjóbreiðu
Norðan og sunnan
Múrsins mikla
eru aðeins auðar víðáttur
Í Gulafljóti
hafa hringiðurnar kyrrst
Fjöllin
eru dansandi silfurslöngur
víðátturnar
stökkvandi vaxfílar
þeir mæla hæð sína við himin
Í veðursældinni sérð þú hana
jörð vora
prýdda rauðu slöri
yfir hvítum kjól
Meira tælandi fegurð
er ekki til!
Já
þessi fljót og þessi fjöll
eru fögur
óteljandi hetjur hafa þau lokkað til sín
Það var leitt
að keisararnir af Tsín og Han
voru svo fátækir í anda
að keisararnir af Tang og Súng
höfðu svo litlar mætur a ljóðlist
og að Djengis-khan
sem eitt sinn var eftirlæti guðanna
gat aðeins spennt boga sinn
gegn örnum loftsins –
Allir eru þeir horfnir
en mennirnir
sem eru prýddir göfgi
og geta sigrað
eru hér og nú.[18]
Þjóðfrelsisherinn hertekur Nankíng
Við Tsjúng-fjall hvín stomur
Ein milljón hraustra hermanna
hefur farið yfir Fljótið mikla
Borgin –
sitjandi tígrisdýrið
samanhnipraði drekinn –
er tignarlegri en nokkru sinni fyrr
Himinninn er á hvolfi
jörðin er umturnuð
reiði hetjanna byltir öllu
En vér verðum að vera árvökul
vér verðum að elta uppi
þessa örmagna glæpamenn
Vér skulum ekki
geta oss frægðar
af því sama og einvaldurinn af Tsjú
Hefði himinninn tilfinningar
væri hann einnig orðinn aldraður
Í heimi fólksins
verða nú aðeins róttækar breytingar[19]
Svar til Líú Jatsú
Ég gleymi ekki tedrykkjunni
sem við áttum saman i Kantón
Þú baðst um ljóð
er laufin gulnuðu i Tsjúngkíng
Þrjátíu og eitt ár er liðið
ég kem aftur
til vorrar fornu höfuðborgar
Ég les fögur ljóð þin
Árstíð fölnaðra blóma
hefur hafið innreið sína
Áhyggjur þínar eru of miklar
lát þær ei yfirbuga þig
Líttu fremur á atburðina úr nokkurri fjarlægð
Segðu ekki að Kúnmíng-vatn sé of grunnt
það er auðveldara að sjá fiskinn þar
en í Fútsjún-fljóti.[20]
Svarljóð til Líú Jatsú
Það var ekki auðvelt
að tendra himin Kína
Í heila öld
dönsuðu djöflar og óvættir óáreittar
darraðardans sinn
Alþýðan
var fimm hundruð sundraðar milljónir
Þá gól haninn
það birti
hljómlist hvarvetna
Allar þjóðir vorar syngja og dansa
einnig í Jútén
Aldrei hafa skáldin fengið slíkan innblástur.[21]
Peitæhó
Regnstormar æða yfir Jújen
hvítar bylgjur rísa til himins
Fiskibátarnir frá Tsínhúangtá
sem sigldu um hafið
eru horfnir –
Hvar eru þeir nú?
Fyrir nærri tvö þúund árum
sveiflaði keisarinn Vei Vú svipu sinni hér:
„Austur til Tséhsjíh!“
Enn í dag er ljóð hans lesið
Já
þá sem nú blésu „haustvindar kaldir og einmana“
en
heimurinn er annar![22]
Sundsprettur
Ég er nýbúinn að fá mér vatn að drekka
úr Tsjangsja
og snæða fisk úr Vútsjang
Nú syndi ég yfir hina breiðu Jangtsekíang
og sé inn í víðan Tsjú-himininn
Hvað gerir til þótt vindar gnauði
og bylgjur risi?
Þetta er betra
en að reika aðgerðarlaus um lystigarð
Loks er ég frjáls
„Vitringurinn sagði
er hann stóð á bakka fljótsins:
„Þannig gengur allt mannlíf“„
Möstur svigna i vindinum
en Skjaldbakan og Slangan hreyfast ekki
Mikil áætlun verður til
- svífandi brúarbogi skal tengja suðrið og norðrið
djúpt gil verður alfaraleið
Á vesturbakkanum
verða byggðir steinmúrar
sem halda aftur af regnskýjum Tröllkonufjalls
Djúpur dalur breytist í kyrrt stöðuvatn
Komi Fjallgyðjan til að svara kveðju vorri
mun hún undrandi fá að sjá
að heimurinn er orðinn allur annar.[23]
Svar til Lí Sjújí
Ég missti mína stoltu Jang
þú misstir þinn Líú
Bæði gengu þau beint
inn í þann hæsta hinna níu himna
Þau spyrja Vú Kang
hvað hann hafi á boðstólum
og Vú Kang gefur þeim kassía-vín
Mánagyðjan
hin einmana Tsjang Ó
breiðir út víðar ermar sínar
hún dansar fyrir hina tryggu
í voldugu andrúminu
Allt í einu
berast þær fréttir frá jörðu
að tígrisdýrið sé fallið
Sem þétt regn falla þá gleðitár þeirra.[24]
Fyrsta kveðja til farsóttarguðsins
(Í Dagblaði Alþýðunnar 30. júni 1958 las ég að tekist hefði að útrýma Schístósómíasis-sýklinum í Júkíang-fylki. Ég varð svo hrærður yfir þessu að ég gat með engu móti sofnað. Þegar morgunvindarnir feyktu burt þungu loftinu og sólin skein á gluggann minn, virti ég fyrir mér suðurhimininn og skrifaði í gleði minni þessar línur:)
Grænn litur vatnanna
og blámi fjallanna
voru til einskis
jafnvel hinn mikli Húa Tó
gat ekkert aðhafst
gegn einni lirfu
þúsund þorp
gróin yfir grasi
yfirgefin
Tíu þúsund heimili
- aðeins draugar og djöflar bjuggu þar
Vér getum setið róleg
- en færst með jörðu áttatíu þúsund lí
hvern dag
vér getum rannsakað stjörnuþokur
á ferð vorri
Spyrji Smalinn eftir Farsóttarguðinum
svaraðu þá:
-- sömu áhyggjur ber að höndum sem fyrr.[25]
Önnur kveðja til farsóttarguðsins
Milljónir pílviðargreina
í vorblænum
Hinar sex hundruð milljónir
í Ríkinu mikla
eru orðnar jafnvígar Sjún og Já
Ekrurnar hafa umskapast í rauðar bylgjur
að vorri ósk
Græn fjöllin lúta vilja vorum
og breytast í brýr
Á Tindunum fimm
blika skörðin sem silfur
Fljótin þrjú
sem létu jörð vora skjálfa
tæma úr sér járnormum
Vér spyrjum
Farsóttarguðinn:
Hvert er ferð þinni heitið?
Vér skulum brenna þér pappírsbáta og kerti
að skilnaði.[26]
Aftur til Sjásjan
(Hinn 25. júni 1959 fór ég í ferð til Sjásjan. Ég hafði farið þaðan úr þorpinu 32 árum áður.)
Tærar myndir frá brottförinni
og frá þorpinu í þá tíð
Ég syrgi rás tímans
- síðan þá eru liðin þrjátíu og tvö ár
Rauði fáninn
blakti á spjótum leiguliða
svartur hnefi harðstjórans
lyfti svipunni til höggs
Þeirra vegna sem vildu fórna sér
fylltumst vér öll nægu hugrekki
til að skipa sólu og tungli
að gefa oss nýjan dag!
Hrísekrur og grænmetisakrar
skína í þúsund bylgjum
Hetjurnar
snúa heim af ökrunum í kvöldmóðunni.[27]
Lúsjan
Tignarlegt fjallið
rís við Fljótið mikla
Ég hef gengið fjögur hundruð hringi upp á við
til að komast að grænum tindinum
Af ástríðufullri athygli
gaumgæfi ég heiminn handan hafsins
Hlýr vindur blæs regndropum
af himni og fjalli
Ský drúpa yfir Fljótunum níu
og Sumarskála gulu trönunnar
Bylgjur skvetta hvítu löðri
að gömlu Vú-bæjunum
Heimspekingurinn Tá er farinn sína leið
- enginn veit hvert –
skyldi hann einmitt núna
vera að yrkja jörðina í Fíkjublómalandi?[28]
Konurnar í Alþýðuhernum
(Áritun á ljósmynd)
Lifandi sem blærinn!
Hraustar og glæsilegar
með langar byssur sínar
þegar fyrstu logar morguns
varpa birtu sinni á æfingasvæðið
Þessar dætur Kína
hafa þúsund ný markmið
Þær elska ekki lengur
rauð stássklæðin
Þær elska búninga sína.[29]
Svar til vinar
Hvít ský
berast yfir Tsíú-Jí-fjall
Prinsessur
ríða vindi til Grænufjalla
Bambusinn
er markaður þúsund stöðum
eftir tár þeirra
Þúsundir rósrauðra skýja
eru klæðnaður þeirra
Bylgjutoppar Túng-Tíng-vatns
þyrlast að himni eins og snjófjúk
Alþýðan á Appelsínuey syngur
svo að jörðin bifast
Ég læt mig dreyma um hið óendanlega:
um morgunsólina
sem að eilífu
mun skína yfir land Híbískus-blómanna.[30]
Áritun á ljósmynd félaga Lí Tsín af helli hinna ódauðlegu á Lúsjan-fjalli
Í hálfbirtu rökkursins
stendur traustvaxin fura
Rytjulegt ský
læðist hægt framhjá
Hellir hinna ódauðlegu
er verk náttúrunnar
Fegurðin
í endalausri fjölbreytni sinni
á sér bústað
hér
meðal þessara villtu tinda.[31]
Svar til félaga Kúó Mójó
Vindar og þrumur riðu á jörðu
um leið steig Afturgangan
upp af bleikum beinahaug
Þótt Munkurinn sé einfaldur
má samt breyta honum
en Afturgöngunni
hinum illa anda
verður að eyða
Gullapinn
hefur sveiflað voldugum staf sínum
silkihiminninn
er nú hreinn af ryki
Í dag skulum vér bjóða velkominn
vitringinn Sún Vúkúng
því að þoka andans
hefur birst á ný.[32]
Vetrarplómutréð
Vindur og regn kve
ðja vorið
snjóflygsur bjóða það velkomið
brattur kletturinn er ísi þakinn
En
þarna er ein blómstrandi grein!
Hún er falleg
samt vill hún ekki vera sjálft vorið
aðeins boðberi þess
Þegar fjallablómin glóa
eins og silkitraf
mun hun brosa meðal þeirra.[33]
Vetrarský
Vetrarský
þung af snjó
hvít snjófiðrildi þyrlast um
þúsund blóm visna og deyja
ísvindar
þjóta yfir himininn
en af jörðu stígur samt
heitur
óskynjanlegur
andardráttur hennar
Aðeins hetja
megnar að reka Tígrisdýrið
og Hlébarðann
á flótta
Enginn hugrakkur maður
hræðist Björninn
Nú blómstrar plómutréð
undir snæhimninum
- Til hvers er þá að hafa áhyggjur
af helfrosnum flugum?[34]
Svarljóð til félaga Kúó Mójó
Á þessum örlitla hnetti
ráðast flugur á veggi
þær suða án afláts
hræddar
örvinglaðar
Á jóhannesarbrauðstrénu
gortar einn mauranna:
- Við eigum stórt land
og ekkert er auðveldara
en að grafa undan risatrénu
Vestanvindar
feykja laufi yfir Tsjangan
Örvar
þjóta suðandi hjá
Svo margri dáð
ætti að vera lokið
hvert andartak krefst skipulags
jörðin snýst
himinninn hverfist
- Bíða í árþúsundir?
Það er of lengi –
MÆTUM DEGI!
Höfin fjögur skulu mylja hlekkina
ský og bylgjur
skulu settar af stað
meginlöndin fimm skulu skjálfa
vindar og þrumur skulu öskra:
- Afl vort er ósigrandi
sópum burt öllum meindýrum![35]
Gengið á ný á Tsíngkang-fjöll
Löngum hef ég þráð
að snerta skýin –
ganga á Tsíngkang enn einu sinni
Ég hef ferðast þúsund lí
Gamall svipur þess
er nú markaður nýjum dráttum
Gulþröstur syngur
svölur dansa
vatn seitlar fram víðsvegar
há tré rjúfa þokuna með krónum sínum
Eftir að hafa farið framhjá hyldýpunum
í Húangjangtséh
- hættulegum þverhnípunum –
þarf ekki að skoða neitt meir.
Þá voru vindar og þrumur í lofti
svo að small í fánum og flöggum
Landið
endurheimti friðinn
Þrjátíu og átta ár
eru liðin
- fingurbjargarfylli af elfi tímans -
Það er hægt að klífa
upp í Níunda himin
til að hernema mánann
Það er hægt að stíga
niður í Höfin fimm
til að veiða skjaldbökur
Þá heilsa okkur sigursöngvar
og gleðihlátrar
Í þessum heimi er ekkert ómögulegt
hafirðu aðeins viljann
til að rísa upp.[36]
Tveir fuglar ræðast við
Risafuglinn
blakar vængjum sínum
eins og blævængjum
svífur níutíu þúsund lí
vekur upp æðisgengna hvirfilvinda
Handan hans er heiðblár himinn
Hann lítur niður
til að virða fyrir sér heim mannsins
borgir og bæi
Vopnaleiftur lýsa upp himin
sprengikúlur tæta upp jörðina
Spörfugl í runni stirðnar af ótta
„Hvílíkur glundroði –
hvílíkar hörmungar!
Nei
nú flýg ég á braut“
„Hvert
ef ég má spyrja?“
Og spörfuglinn svarar:
„Í höll búna gimsteinum
á hæðum huldulanda
(Veistu ekki
að undir björtum hausthimni
fyrir tveimur árum
var þríhliða samningur undirritaður?)
Þar verður nóg til matar
funheitar kartöflur
glóðarsteikt naut“
„Hættu -
þetta er innantómt blaður!
Líttu á -
hér er allt á hvolfi
heimurinn umturnaður!“[37]
Neðanmálsskýringar:
[1]Bragarháttur: „Vor í Tsín-garði“. Ljóðið er ort 1925. Tsjangsja er borg við Hsíang-fljótið. Appelsínuey er í fljótinu beint á móti borginni. Maó gekk í skóla í Tsjangsja á árunum 1911 til 1918 og synti oft með skólafélögum sínum úti við eyna.
[2]Bragarhátttur: „Pú Sa-barbararnir“. Ljóðið er ort vorið 1927. Sumarskáli gulu trönunnar er á hæð einni utan við Vúhan. Við rót hæðarinnar rennur Jangtsekíang (Fljótið mikla) en þar rennur í hana fjöldi hliðarfljóta, hin svonefndu Fljótin níu. Samkvæmt gamalli þjóðtrú átti sá sem vildi synda eða sigla yfir Fljótið mikla að færa drykkjarfórn til að þvinga fljótið á táknrænan hátt undir vilja sinn.
[3]Bragarháttur: „Máninn i Vesturfljóti“. Ljóðið er ort haustið 1928. Í ágúst 1927 setti Maó á stofn fyrstu herstöð byltingarinnar í Tsíngkang-fjallabákninu. Í ágúst 1928 réðist herlið þjóðernissinna á varnarstöðvar kommúnista í fjallagilinu Húangjangtséh en varð frá að hverfa eftir mikið afhroð.
[4]Bragarháttur: „Gleði hins hreina friðar”. Ljóðið er ort haustið 1929. f mars 1929 tóku hershöfðingjarnir á ný upp baráttu sína. Kvangsi-óaldarflokkurinn réðst gegn Tsjang Kæsjek sem á sama tíma var önnum kafinn við að reyna að halda kommúnistum niðri. Friðurinn var sem sé aðeins draumur. Skamkvæmt sígildri kínverskri goðsögn hitti maður að nafni Lú Sjeng ódauðlegan landa sinn, Lú Veng, á gistihúsi og kvartaði yfir hlutskipti sínu i lífinu. Lu Veng lánaði Lú Sjeng kodda. Lú Sjeng hafði ekki fyrr lagt höfuðið á koddann en hann sofnaði. Hann dreymdi að hann væri hamingjusamastur allra dauðlegra manna. En þegar hann vaknaði var hirsið sem veitingamaðurinn hafði sett yfir til að hafa í mat handa þeim enn ekki tilbúið. - Það er hefð frá gamalli tíð að líkja Kína við Gullvasa. Frelsisherinn reynir nú brot eftir brot að setja saman hlutana.
[5]Bragarháttur: „Stúlkan sem tínir multuberjablöð“. Ljóðið er ort í október 1929. Tsjúngjang-hátíðin er hausthátíð, níundi dagur níunda mánaðar skv. fornu kínversku tímatali. Árið 1929 lenti hátíðin á 11. október, afmælisdegi misheppnuðu byltingarinnar 1911.
[6]Bragarháttur: „Eins og í draumi“. Ljóðið er ort í janúar 1930. Nínghúa, Tsínglíú og Kveihúa eru svæði í Fúkén-fylki.
[7]Bragarháttur: „Magnolíublómið”. Ort í febrúar 1930. Kían er bær i Kíangsí-fylki. Árið 1930 reyndi Rauði herinn, sem hafði bækistöð í fjallasvæðinu Kvangtsjang, níu sinnum að hernema bæinn, í fyrsta sinn í febrúar
[8]Bragarháttur: „Fiðrildið elskar blóm“. Ljóðið er ort í júlí 1930. Herlið himins var nafnið sem uppreisnargjarnir bændur i Tæ-píng höfðu gefið sjálfum sér einni öld áður. - Húang Kúnglúeh (1898-1931) var foringi hægra armsins i framvarðaveit Rauða hersins. – Óvættir láðs og lagar beina huganum að fornri kínverskri þjóðsögn: Risafugl (hvalur í álögum) sem aðeins gat hafst við í storminum flutti með sér ógæfu. Væri hægt að „sigra“ vindinn var vætturin þar með sigruð. - Frá fornu fari hafa Kínverjar álitið að júní-stormar flyttu með sér farsóttir.
[9]Bragarháttur: „Fiskimaðurinn er stoltur“. Ort vorið 1931. Í lok árs 1930 ákvað Tsjang Kæsjek sem farinn var að óttast baráttuþol kommúnista að útrýma uppreisnarhernum og eyða herstöðvum hans. Tsjang Húítsang var foringi framvarðasveita Tsjangs. Fimm slikar útrýmingaratlögur voru gerðar að kommúnistum sem tókst að brjóta fjórar þeirra a bak aftur. Við þá fimmtu urðu þeir að leggja á flótta. Þá hófst Gangan mikla sumarið 1934.
[10]Bragarháttur: „Fiskimaðurinn er stoltur“. Ljóðið er ort sumarið 1931. Í þessari atlögu var aðstaða enn verri fyrir Rauða herinn en í þeirri fyrstu. -Þurrar greinar og gamlir kvistir: Kúómintangher, her Tsjangs Kæsjeks. - Fljúgandi hershöfðinginn var auknefni á herforingja i gamalli tíð, Lí Kúang, sem var þekktur fyrir snarræði. Maó notar hér nafnið sem heiðursnafn á Tsjú Téh, hernaðarlegum yfirforingja rauðu skæruliðasveitanna.
[11]Bragarháttur: „Pú Sa-barbararnir“ Ort sumarið 1933. Við Tapótí í Kíangsí-fylki barðist Rauði herinn árið 1930 við lið Tsjangs og vann mikinn sigur. Á árunum 1930 til 1933 umkringdi Tsjang þorp þetta fjórum sinnum án þess að ná því á sitt vald. - Í Kína eru vissir dansar dansaðir um leið og sveiflað er löngum litborðum.
[12]Bragarháttur: „Gleði hins hreina friðar“. Ljóðið er ort sumarið 1934. Húítsjang liggur á mótum Fúkén og Kvangtúng. Í janúar 1930 höfðu kommúnistar náð Húítsjang-svæðinu og sett þar upp herstöð.
[13]Bragarháttur: „Ég minnist Tsín Ó“. Ljóðið er ort i febrúar 1935. Þetta er fyrsta ljóð Maós úr Göngunni miklu, ort eftir ráðstefnuna í Tsúnjí þar sem Maó var kosinn formaður Stjórnmálanefndar Kommúnistaflokks Kína. - Lósjan-skarð er í Kveitsjó-fylki, ekki langt frá Szetsjúan. Sagt er að skarðið sé svo þröngt að þar geti einn maður varist tíu þúsundum. Rauði herinn tók skarðið fyrst í janúar 1935, í annað sinn í febrúar sama ár.
[14]Bragarháttur: „Söngurinn um Kíang Hú“. Ljóðin eru ort 1934-35. Hvert ljóð samanstendur á frummálinu af 16 rittáknum. Ljóðin eru ort í Göngunni miklu. Fyrsta ljóðið vísar til gamals þjóðkvæðis:
Þar uppi er Hauskúpufjall
þar niðri er Fjall hinna átta fjarsjóða
Þú ert þrjú fet og þrjá þumlunga frá himni
Til að komast fótgangandi yfir verður þú að beygja höfuð
til að komast með hesti verður þú að stíga úr söðli.
[15]Sjökvæð átthenda. Ort i október 1935. Þann 16. október 1934 yfirgaf Rauði herinn herstöð sína í Kíangsí. Gangan mikla var hafin, gangan yfir 12.000 km vegalengd. Í bókinni „Red Star over China“ skrifar Edgar Snow:
Það var að jafnaði ein orrusta á dag, stundum allt að 15 daga óslitinn bardagi. Gangan stóð yfir í 368 sólarhringa. Gengið var í 235 skipti að degi til og 18 sinnum að næturlagi . . . Dagleg ganga var jafnaðarlega 70 lí, um það bil 39 km.
Á þessum tíma varð herinn að fara yfir fjölda fjalllendissvæða, meðal annars Fjallgarðana fimm í Suðaustur-Kína og Vúmeng-fjallbáknið milli Kveitsjó og Júnnan-fylkis. Hann fór yfir 24 stórfljót, þar á meðal Jangtsekíang sem í efra farvegi sínum nefnist Fljót hins gullna sands og Tatú-fljótið milli Szetsjúan og Síkang. Við Tatú-fljót lokuðu óvinirnir yfirferðinni algjörlega. Það var aðeins ein brú, 200 metra löng, krækt saman með 13 járnhlekkjum, sem lausum plönkum var tyllt á. Flestir þessara planka höfðu nú verið fjarlægðir af liði Tsjang Kæsjeks. Þrjátíu sjálfboðaliðar skriðu yfir eftir járnhlekkjunum. Um helmingur þeirra komst alla leið og gat veitt viðnám þar til afgangur herliðsins var kominn yfir. Síðasta stóra þrekvirki göngunnar var hið snæviþakta Mínsjan-fjall. Þegar herinn um síðir komst yfir til Sénsí (þar sem var byltingarsinnuð andjapönsk herstöð) voru aðeins 10.000 eftir af þeim 100.000 þátttakendum sem lagt höfðu af stað.
[16]Bragarháttur: „Nén Nú er fögur“. Ljóðið er ort í október 1935. Kúnlún er nafn fjallgarðs sem er 4.000 km langur og liggur um miðbik Asíu. Rauði herinn gekk sumarið 1935 yfir Mínsjan og hermennirnir gátu þá séð hinn eilífa snjó á Kúnlún í norðvestri. Bæði Jangtsekíang og Gulafljót eiga upptök sín þarna. – Sverðið mikla sem hallast að himni kemur fyrir í mörgum fornum kínverskum ljóðum. - Maó skrifar í athugasemd við þetta ljóð:
Sígilt ljóðskáld hefur sagt: „Þegar hinar þrjár milljónir silkidreka berjast fyllist loftið af afrifnu hreistri þeirra.“ - Þannig lýsti hann þyrlandi snjónum. Ég fékk að láni þessa líkingu til að gefa mynd af snæviþöktu fjallinu.“
[17]Bragarháttur: „Gleði hins hreina friðar“. Ort í október 1935. Þann 7. október 1935 braust Rauði herinn gegnum víglínu fjandmannanna í Ljúpanfjalli og tókst að komast inn í Sénsí-fylki sem Múrinn mikli liggur meðal annars um.Baráttan gegn Japönum (Drekanum Græna) sem höfðu ráðið yfir Mansjúríu og hluta af Norður-Kína, gat nú hafist fyrir alvöru. - 20.000 lí: 1/4 af ummáli jarðar.
[18]Bragarháttur: „Vor i Tsín-garði“. Ort í febrúar 1936. Þetta mun vera þekktasta ljóð Maós. Landslagið sem lýst er í fyrsta erindinu er aðallega í fylkjunum Sénsí og Sjansí. Tsín, Han, Tang og Súng eru frægar höfðingjættir í sögu Kína. Djengis-khan er hinn frægi mongólski herforingi (um 1162-1227). Lí er kinversk lengdareining, tæplega 600 metrar.
[19]Sjökvæð átthenda. Ort í apríl 1949. Tsjúng-fjalli austan við Nankíng er líkt við dreka en borginni sjálfri við tígrisdýr. Myndirnar vísa til hinnar hernaðarlega mikilvægu stöðu borgarinnar frá upphafi. - Einvaldurinn af Tsjú (233-202 f.Kr.) vildi skapa sér orðstír fyrir hjartagæsku og drap því ekki sigraðan fjandmann sinn, Líú Pang. Síðar sigraði Líú Pang einvaldinn sem þá framdi sjálfsmorð.
[20]Sjökvæð átthenda. Ort í apríl 1949. Þetta er svarljóð til vinar Maós, Líú Jatsú. Líú tók sér ferð á hendur frá Hongkong til að taka á móti Maó í Pekíng 8. mars 1949. Þegar hann var að fara þaðan aftur orti Maó þetta ljóð þar sem 1. og 2. lína vísa til þess er þeir hittust 1924, 3. lína til óskar Líús um að fá hjá Maó ljóðið „Snjó“ - og 5.-7. lína til fyrstu ferðar Maós til Pekíng árið 1918. - Jen Kúang (úr Han-ættinni síðari (25-220 e.Kr.)) yfirgaf hofið í Tsékíang til að stunda fiskveiðar i Fútsjúnfljóti og dýraveiðar á svæðunum þar í kring.
[21]Bragarháttur: „Lækjarsandur í Húan“. Ort í október 1950. Í athugasemd við þetta ljóð skrifar Maó: „Við hátíðarsýningu með Úíghúr-donsum (Úíghúrar búa i Sínkíang-fylki þar sem er borgin Jútén) á ársafmæli Alþýðulýðveldisins Kína 1. október 1950, mælti Líú Jatsú af munni fram ljóð við lagið „Lækjarsandur í Húan.“ Ég svaraði næsta dag með öðru undir sama formi og notaði sömu endaorðin“.
[22]Bragarháttur: „Bárur skola strönd“. Ort sumarið 1954. Peitæhó er sjávarþorp norðaustan við Hópei rétt hjá Tsínhúangtá. Jújen er gamalt nafn á Hópei. llinn stríðsglaði keisari Vei Vú (eða Tsá Tsá) (220-280 e.Kr.) fór á sínum tíma norðaustur á bóginn gegn törturum í Vúhan. Á leið sinni fór hann framhjá Tsehsiih, klettaskeri nálægt Peitæhó sem i aldanna rás hefur horfið í hafið. Þarna reit hann ljóð sem hefst með ljóðlínunni „Austur til Tsésjíh“. Önnur þekkt ljóðlína úr því er „haustvindar kaldir og einmana“.
[23]Bragarháttur: „Söngur vatnsins“. Ort í júní 1956. Samkvæmt kínverskri þjóðtrú búa illar vættir í vatninu. Þess vegna tíðkaðist sundíþrótt ekki í Kína fyrr en eftir að Maó sem alla ævi hefur verið ákafur sundáhugamaður opnaði möguleikana með fyrirmynd sinni. Sumarið 1956 synti hann þrisvar yfir Jangtsekíang. Tvær fyrstu línur ljóðsins eru umsnúningur á gömlu þjóðkvæði: „Heldur viljum við drekka vatn úr Tsénjeh/ en snæða fisk úr Vútsjan“. - Brúin yfir Jangtsekíang var í byggingu árið 1956 og tilbúin ári síðar. Árið 1956 var einnig verið að reisa stíflu í fljótinu. – Samkvæmt fornum goðsögnum elskaði Fjallgyðjan á Tröllkonufjalli prins nokkurn og birtist honum að morgni sem ský. Auk þess leiddi hún marga villur vega og olli slysum.
[24]Bragarhátturr: „Fiðrildið elskar blóm“. Ort i maí 1957. Lí Sjújí er kennari i Tsjangsja. Hún er ekkja eftir Líú Tsíhsún, fornvin Maós og félaga i Kommúnistaflokki Kína frá 1923. Hann féll 1933. Eiginkona Maós, Jang Kæhúi sem verið hafði góð vinkona Lí var tekin af lífi af Kúomintang-liðum árið 1930. Vu Kang er vera úr kínverskri goðafræði. Að refsingu fyrir afbrot sem hann haf6i framið varð hann að höggva greinar af kassíatrénu á tunglinu. Um leið og ein grein var hoggin af óx þar ný. Kassíavín var mjöður hinna ódauðlegu. Tsjang Ó stal víninu og komst undan til mánans með það. En vistin þar varð henni óþolandi einmanaleg, segir goðsögnin. Tígrisdýrið er hér tákn fyrir þá sem börðust gegn Rauða hernum.
[25]Sjökvæð átthenda. Ort 1. júli 1958. Húa Tó var mikill læknir á tímaskeiði Konungdæmanna þriggja (220-264 e.Kr.). Schístósómíasís-sýkillinn er ein af plágum hins forna Kína. Sýkillinn sest inan á maga manna og dýra, svo að fæðan helst ekki niðri og sjúklingurinn deyr úr sulti. - Þegar einhver dó óeðlilegum dauðdaga, var það útbreidd trú í Kína að sál hans hyrfi ekki af staðnum heldur yrði eftir og kveinaði þar til hún fyndi sér nýjan bústað - Samkvæmt goðsögninni býr smali á stjörnu einni í Mjólkurþokunni. Hann er einn af vörðum himins og ber ábyrgð á mönnum og húsdýrum. - Ummál jarðar er 80.000 lí.
[26]Sjökvæð átthenda. Ort 1. júlí 1958. Tilefni: Sjá ljóðið hér á undan. -Já og eftirmaður hans, Sjún, sem lifðu á 23. öld f.Kr., sameinuðu Kína í eitt ríki í fyrsta sinn, samkvæmt fornum sögusögnum kínverskum. Rauðar bylgjur: Hér mun annað hvort vera átt við rauð fikjublómin eða hirsisakrana þegar hirsið er farið að ná þroska. - Í Kína voru hinum látnu brenndir pappirsbátar og kerti við jarðarfarir.
[27]Sjökvæð átthenda. Ort 25. júní 1959. Sjásjan í Húnan-fylki er fæðingarþorp Maós. Þar skipulagði hann baráttu leiguliða gegn jarðeigendum. Sumarið 1927 varð hann að flýja.
[28]Sjökvæð átthenda. Ort 1. júli 1959. Lúsjan-fjall er við vesturhlið Pójang-vatns i Kíangsí. Hið gamla ríki Vú svarar til núverandi Kíangsí-fylkis. Fljótin níu eru hliðarelfur Jangtsekíang (Fljótsins mikla). - Um Sumarskála gulu trönunnar, sjá næstfremsta ljóðið hér að framan. – Heimspekingurinn Tá var Tá Tsén (372-427 e.Kr.) frá Norður-Kíangsí, mikið skáld og frægur einbúi. Eitt þekktasta verk hans er „Fíkjublómaland“ sem segir frá þrá höfundar eftir friði og hamingju á tímum ringulreiðar og ófriðar.
[29]Sjökvæð fjórhenda. Ort í febrúar 1961. „Dætur Kina“ hafa frá fornu fari klæðst rauðu við brúkaup og aðrar stórhátíðar. Rauði liturinn er í Kína litur ástar og hamingju.
[30]Sjökvæð átthenda. Ort 1961. Tsíú-Jí-fjall, Túng-Tíng-vatn og Appelsínuey eru öll í Húnan-fylki. Að því er sagnir herma, grétu eiginkonur Sjúns keisara - hinar tvær dætur Jás keisara - svo við dauða manns síns, að tárin festust við bambusinn. Í Mið-Kína eru rauðar doppur sem líkjast tárum á bambusnum. - „Land Híbískus-blómsins, þar sem hin eilífa sól skín“ var nafnið, sem hirðskald Tang-keisaraættarinnar nefndu Húnan.
[31]Sjökvæð fjórhenda. Ort 9. september 1961. Lúsjan er fjall sem haft hefur sérstakt kyngimagn á Kínverja. Hellarnir i fjallinu hafa verið afdrep flóttafólks og einsetumanna. Þetta fjall er við vesturbakka vatnsins Pójang í Kíangsí. Í hugmyndafræði taóismans merkti furan afl, langlifi og ódauðleika.
[32]Sjökvæð átthenda. Ort 17. nóvember 1961. Ljóð þetta er ort sem svar við ljóði eftir Kúó Mójó. Bæði hann og Maó nota goðsögur og þjóðsögur sem allir Kínverjar þekkja til að lýsa pólitísku ástandi í Kína og í heiminum. Hér er hugsanlega fjallað um baráttuna milli tveggja stefna innan Kommúnistaflokks Kína - stefnu Maós og stefnu Líú Sjátsís. Sumir skýrendur álíta þó að í þessu ljóði sé fremur eða jafnframt sveigt að Sovétríkjunum. Afturgangan sé þá nútíma endurskoðunarstefna, Munkurinn sé Krústjoff og Gullapinn (og Vitringurinn Sún) marx- og lenínismi kínverskra kommúnista. Annars eru þessi nöfn öll tekin úr forni kínverskri þjóðtrú.
[33]Bragarháttur: „Spámaðurinn“. Ort í desember 1961. Blóm vetrarplómutrésins var þjóðarblóm Kína og blóm hins fullkomna samhengis. Tréð ber blóm i desember. Ljóðið er ort í tilefni hugmyndafræðilegs ágreinings Kína og Sovétríkjanna. Sovétríkin hættu skyndilega öllum stuðningi við kínversku byltinguna - á tíma þegar efnahagur Kína stóð ákaflega höllum fæti. Sagt er að Maó hafi látið ljóðið ganga á milli félaga sinna í miðstjórn flokksins til að styrkja og efla baráttuþrek þeirra.
[34]Sjökvæð átthenda. Ort 26. desember 1962 á 69 ára afmælisdegi Maós. Þetta ljóð fjallar sem það næsta á undan um einangrun Kína. Tígrisdýrið og Hlébarðinn merkja heimsvaldaseggi hins kapítalíska heims, Björninn er hér tákn Sovétríkjanna.
[35]Bragarháttur: „Gjörvallt fljótið er rautt“. Ort 9. janúar 1963. Ljóð þetta er svar við vinarljóði fra Kúó Mójó til Maós. Tveimur dögum áður en þetta var ort hafði PRAVDA birt fyrstu opinberu árásina á Kína. Flugurnar hljóta að merkja þá, sem Maó álítur vera endurskoðunarsinna almennt. Maurarnir eru leiðtogar Sovétríkjanna. Tsjangan merkir hér Kína.
[36]Bragarháttur: „Söngur vatnsins“. Ort 1965. Birtist fyrst í janúar 1976. Maó formaðurgengur á ný á Tsíngkang-fjöll þar sem fyrsta hernaðarbækistöð byltingarsinna var. - Hann minnist fornra afreka, minnist þess sem áunnist hefur og bregður upp mynd af möguleikum byltingarinnar eins og þeir blasa við honum i dag. Ljóðið er því annars vegar táknmynd þeirrar baráttu sem kínverska þjóðin hefur háð gegn kapítalisma og endurskoðunarstefnu, gegn heimsvaldastefnu og sósialheimsvaldastefnu, gegn arðráni og kúgun, - hins vegar hvatning til þjóðarinnar um að halda baráttunni áfram og gefast ekki upp fyrr en fullum sigri er náð.
[37]Bragarháttur: „Nén Nú er fögur“. Ort 1965. Birtist fyrst i janúar 1976. Þetta ljóð er fordæming á endurskoðunarsinnum, færð í búning fornrar þjóðsögu um risafuglinn og spörfuglinn. Risafuglinn táknar hér marx- og lenínista, þá sem horfa langt og stefna hátt. Spörfuglinn sem heldur sig í kjarrinu táknar endurskoðunarsinna, huglausa og gagnbyltingarsinnða fals-“sósíalista“ sem hræðast og óttast um eigin limi í hvert sinn sem alþýðan rís upp. Endurskoðunarsinnar predika um draumahallir „á hæðum huldulanda“, fá fólk til að treysta á samningamakk og „afvopnunar“-ráðstefnur en á meðan undirbúa þeir nýja heimsstyrjöld, nýja vopnaða uppskiptingu markaðanna i heiminum.