
Ljóð þessi voru gefin út árið 1975 af Októberforlaginu í Reykjavík en prentuð í Duplotryk AS í Ósló, Noregi. Útgáfan var helguð sigri þjóðfrelsisaflanna í Vietnam í stríði þeirra við bandaríska heimsvaldastefnu. Ljóðin þýddi ég í Noregi eftir norskum, enskum og frönskum útgáfum.
LÍKAMINN SITUR Í FANGELSI
HUGSANIR SLEPPA ÚT
- EIGI MIKLIR ATBURÐIR AÐ GERAST
VERÐUM VÉR AÐ HUGSA DJÚPT OG FAÐMA VÍTT -
Á FYRSTU SÍÐU Í DAGBÓKINNI
Ég er ekki vanur að yrkja ljóð
en hvað get ég annað gert
í fangelsinu?
Fangavistina
ætla ég að nota til að semja ljóð
og syngja þau
Fá færist dagur lausnarinnar nær
HANDTEKINN Á GÖTUNNI
Á Ofgnóttar- og Ærugötu
mætti ég smáninni
og ferð min tafðist
Ég hef góða samvisku
ég er heiðarlegur maður
En þeir
saka mig um að vera njósnara
KOMIÐ TIL HÉRAÐSFANGELSISINS Í TSÍNG-SÍ
Þeir sem lengi hafa setið inni
bjóða nýja fanga velkomna
Á himni veita hvít ský
hinum svörtu eftirför
þar reika skýin frjáls um og hverfa
Hér niðri er frjálsum mönnum
fleygt í dýflissuna
STRÖNG ER LÍFSINS LEIÐ
I
Eftir að hafa klifið fjöll
og háa tinda
ætti þá hættan að vera meiri
á sléttlendinu?
Í fjöllunum mætti ég tígrisdýri
en komst niður ósærður
á sléttlendinu hitti ég mannverur
og var kastað i fangelsi
II
Ég er sendiboði víetnömsku þjóðarinnar
á leið til Kína
til að hitta háttsetta menn
Á stormurinn að gnauða yfir veginn
og mér að veitast sá heiður
að vera úthlutað
fangelsisvist?
III
Ég er hreinskiptinn maður
og hef ekkert gert af mér
en ég er sakaður um njósnir
gegn Kína
Að lifa sínu eigin lífi
er ekki ætíð svo einfalt
Það hefur sjaldan verið erfiðara en nú
MORGUNN
I
Hvern morgunn
sleppur sólin yfir múrinn
varpar geislum sínum á hliðið
en það er læst
Í fangelsinu er dimmt
en vér vitum
- fyrir utan skín hækkandi sól
II
Fyrsta verk dagsins
er að reka burt lýsnar
Klukkan átta
klingir morgunverðarbjallan
Komum
seðjum hungur vort
Vér höfum allir liðið nauð
en betri timar
munu koma
HÁDEGI
Indælt að dotta
í klefanum
Tímunum saman
hrifinn burt af svefni
dreymi um að ríða dreka
til himna
- en vakna svo
í fangelsi
SÍÐDEGI
Klukkan tvö
ljúkast klefadyrnar upp
þeir ætla að lofta út
Við lyftum allir höfði
- skyldi sjá glitta í himininn ?
Frjálsar hugsanir
dragast að frelsi himinsins
- en veit hann
að við erum að rotna í fangelsinu?
KVÖLD
Að lokinni máltíðinni
sigur sólin til viðar
í vestri
Allt í einu
alls staðar að
söngur og tónlist
Allt í einu
er dimmt Tsíng-sí-fangelsið
orðið að óperuhúsi
FANGELSISMATURINN
Í hverja máltlð
er aðeins einn bolli
af rauðum hrís
ekkert grænmeti
ekkert salt
jafnvel ekkert til að renna því niður með
Þeir sem fá sendan mat
geta stundum étið sig sadda
Vér hjálparlausir
stynjum af hungri
FÓTJÁRN
I
Nótt eftir nótt
naga illir andar leggina
með hungruðum kjöftum sinum
Hlekkirnir lykja um hægri fót
aðeins sá vinstri
getur rétt úr sér og leikið laus
II
Enn undarlegra
getur það orðið -
fólk sem kemur hlaupandi inn
til að fá á sig hlekki
Með hlekkjunum öðlast það öryggið
Öðruvísi
hefði það engan stað
til að halla höfði sínu að
SAMFANGI LEIKUR Á FLAUTU
Flaututónn allt í einu
- heimþrá
tónlistin hækkar
tónarnir gráta
Yfir fjöll og ár
meira en þúsund lí[1]í burtu
fer sorgin
þar langt fjarri
klífur kona upp í turn
hún bíður þess
að maður hennar snúi heim
VIÐ TAFL[2]
I
Við lærum að tefla
þá líður tíminn hraðar
riddarar og fótgöngulið
ráðast hver gegn öðrum
eldskörp árás
snöggt undanhald
Með glöggskyggni og tíðum fótaburði
náum við yfirhöndinni
II
Sjá fram
og íhuga vel
vera djarfur og vægðarlaus
í stöðugri sókn
Rangt herboð
- tveir hervagnar úr leik
Fótgönguliði fram á réttum stað
- ef til vill sigur
III
Bæði liðin eru jafn sterk
en aðeins annað
getur sigrað
Beittu gallalausri stjórnlist
í sókn og í vörn
- þá áttu skilið nafnið
herforinginn mikli
VATNSSKAMMTURINN
Skammturinn á mann
er hálft fat af vatni
með honum má þvo sér
eða
laga te
Viljirðu þvo þér
geturðu ekki eldað þér te
Viljirðu drekka te
geturðu ekki þvegið þér í framan
TUNGLSLJÓS
Fangar
eiga hvorki vín né blóm
en nóttin er svo fögur
- hvernig er þá unnt að fagna henni?
Ég geng að loftopinu
horfi á mánann
og í gegnum þetta op
brosir máninn til skáldsins
HAUSTJAFNDÆGUR
I
Haustmáninn
er sem hringlaga spegill
sólhvítir geislar hans
falla til jarðar
Þú sem fagnar miðhausti
gleymdu ekki þeim
sem í fangelsi
drekka beiskar dreggjar eymdarinnar
II
Einnig í fangelsinu
fögnum við
hátíð miðhaustsins
en fyrir okkur
bera haustmáninn
og vindurinn
með sér keim sorgar
Hjarta mitt er ófrjálst
og getur ekki glaðst
yfir ferðalagi haustmánans
um himininn
FJÁRHÆTTUSPIL
Þeir sem spila fjárhættuspil
eru handteknir
en í fangelsinu
geta þeir spilað að vild
Við heyrum þá því oft kveina
hvern upp í annan
- þessum stað
hefðum við þurft að vita af áður –
FANGELSAÐIR FYRIR FJÁRHÆTTUSPIL
Ríkið
heldur þeim ekki uppi á mat
sem eru teknir fyrir fjárhættuspil
Því fremur
ættu þeir að læra af mistökum sinum
Hvern dag
snæða hinir auðugu
stórar máltíðir
hinir fátæku gráta
og hungrið fyllir munn þeirra
SENDUR TIL TÍAN PÁ Á „TVISVAR TÍU“-DEGINUM[3]
Blóm og Ijósker
hvert hús hátíðarbúið
allt landið gleðst
á þjóðhátíðardeginum
en þann sama dag
var ég settur í hlekki
og sendur áfram
Örninn hefur vindinn sífellt í fangið
Á LEIÐINNI
Þú verður að fara af stað
til að finna
hvaða erfiðleikum sé að mæta
Þú klífur yfir eitt fjall
þá skagar annað upp í loftið
En hafirðu sigrað erfiðleikana
og komist upp á hásléttuna
sérðu út yfir
meira en tíu þúsund lí
LÍÐUR AÐ KVÖLDI
Þreyttir fuglar
leita sér hvíldar í skóginum
yfir heiðan himininn
færist einmana ský
Í fjallaþorpinu
mylur ung stúlka maís
Þegar allt er mulið
logar eldurinn í ofninum
NÆTURGREIÐI Í LONG TSÚEN
Allan daginn
hafa hestarnir mínir tveir[4]
öslað áfram
Að kvöldi fæ ég "fimmvafinn kjúkling"[5]
ofurseldur árás sængurlúsanna
og frostsins
Velkominn sé gulþrösturinn
sem boðar komu nýs dags
TÍAN-TÚNG
Hver máltíð
er einn bolli af hrísgrjónum
nótt og dag
verkjar í soltnum maganum
Hrís fyrir þrjú júan
seður engan
þegar viðurinn í eldinn
kostar jafn mikið og kanill
og hrís kostar jafn mikið og perlur
KOMIÐ TIL TÍAN PÁ
Í dag
hef ég gengið
fimmtíu og þrjá kílómetra
gegndrepa
í gauðrifnum skóm
Ég finn engan stað til að sofa
Alla nóttina
bíð ég komu dagsins
sitjandi
á kamarbekknum
KONA HEIMSÆKIR MANN SINN Í FANGELSIÐ
Hann
stendur á bak við járnrimlana
hún
fyrir framan þá
svo nærri - aðeins þumlungur á milli
svo fjarri - eins og himinn og haf
Það sem orð geta ekki tjáð
segja þau með augunum
Áður en nokkuð er sagt
fljóta augun í tárum
Hver getur horft á þetta
án þess að klökkna?
WILLKIE[6]FÆR HÁTÍÐLEGAR MÓTTÖKUR
(Tilkynnt I blöðunum)
Báðir erum við vinir Kína
báðir erum við sendimenn
á leið til Tsjúngkíng
Þú færð að sitja í heiðurssæti
en ég er fangi
fleygt niður tröppurnar
Hví svo ólíkar móttökur?
Slíkur er háttur heimsins
kuldi við einn
hlýja við annan
vatnið rennur ætíð til sjávarins
HEILRÆÐI HANDA SJÁLFUM MÉR
Án kuldans
án hins eyðilega vetrar
væri ekki ylurinn
og auðæfi vorsins
óhamingjan
hefur gert mig þolinn
og sterkan
og viljinn er hertur til stáls
BYGGÐ Í SVEIT
Er við komum hér
voru hrisplönturnar grænar og bjartar
Nú er haust
uppskeran er hálfnuð
hvarvetna brosa bændurnir
Hrísekrurnar
óma af söng og gleði
„SÆLUHÚS“
Við vegkantinn
í svölum skugga stórs trés
er hálmi þakinn kofi
„sæluhús“ fyrir ferðamenn
En gestum hér
er ekki borið sætt vín
aðeins köld hrísgrjón
og hvítt salt
FANGELSIÐ Í KÚÓ ÞE
Undarlegt fangelsi
hér er aðbúðin eins og heima
- við kaupum eldivið
hrís
olíu
salt
Fyrir framan hvern klefa
er lítill ofn
þar ilmar allan daginn
af súpu og hrísgrjónum
BROTTFÖR FYRIR DÖGUN
I
Haninn gól einu sinni
nóttin er ekki á enda
Hægt klífur máninn upp haustásana
ásamt stjörnunum
en ferðalangurinn
á langan veg fyrir höndum
og er þegar kominn af stað
Ísvindar
bíta andlitið
II
Blikið í austri
er orðið rósrautt
náttskuggarnir
feykjast burt
varmur andardráttur
breiðist yfir heiminn
og ferðalangurinn finnur
að skáldið hefur tendrast
FRÁ LÚNG-AN TIL FANGELSISINS Í TÚNG TSJÚNG
Jörðin í þessu héraði
er víðfeðm en léleg
þess vegna er alþýðan iðin
og sparsöm
Okkur er sagt
að í vor hafi orðið miklir þurrkar
það sé ekki hægt að sá í
nema tvo eða þrjá
tíundu hluta jarðarinnar
Á LEIÐINNI
Þótt þeir hafi bundið hendur mínar
og fætur
heyri ég fuglana syngja
yfir öllu fjallinu
Skógurinn
angar af vorblómunum
Hver getur hindrað mig í
að vera glaður
og finnast ég örlitlu minna einmana
á þessari endalausu ferð?
TÚNG TSJÚNG
(2. nóvember)
Túng Tsjúng-fangelsið
er líkt fangelsinu í Píng Ma -
skál af köldum hrísgrjónum
í hverja máltið
alltaf tómur magi
En það er nóg af vatni og birtu
loftað er út úr klefanum
tvisvar á dag
PAPPÍRSLAK SAMFANGANS
Blaðsíður
gamalla og nýrra bóka
límdar saman
Pappirslak er betra en ekkert lak
Þið sem sofið í silkirúmfötum
með forhengi úr brókaði
- í fangelsinu eru margir
sem ekki kemur dúr á auga
KÖLD NÓTT
Kalda haustnóttina
án dýnu
án teppis
með hniprað bak og kreppta fætur
reyni ég að sofna
En það er til einskis
Tunglið skín á bananatrén
kuldinn er nístandi
Áhimninum
- milli rimlanna –
horfir Stóri Björn inn til min
REIPIÐ
Langur dreki
hefur fléttað sig um hendur mínar og fætur
Ég gæti verið erlendur herforingi
með axlaskúfa
en herforingjaskúfar
eru ofnir af gullþræði
mínir
eru annar endi hampreipisins
KVEÐJA TIL TANNAR
Þú ert hörð og stolt
vinkona
ekki löng og mjúk
eins og tungan
saman höfum við þolað allt
bæði súrt og sætt
en nú ferð þú i vestur
ég i austur
KONA LIÐHLAUPANS[7]
Dag einn fórstu á brott
og komst ekki aftur
ég varð eftir ein
í sorg
Stjórnvöld
sýndu mér miskunn
- þau buðu mér húsnæði og mat
um tíma
í fangelsinu
GAMANMÁL
Ríkið elur mig á hrísi
ég dvel i höllum Ríkisins
verðir Ríkisins vinna á vöktum
við að þóknast mér
mér er leyft að horfa á fjöll
og ár Ríkisins
að vild
Ég er fullur yfirlætis
af öllum þessum forréttindum
Á LEIÐ TIL NANNÍNG
Nú hef ég fengið járnhlekki
í stað reipanna
þeir hringla eins og skrauthringir[8]
þegar ég geng um
Þótt ég sé fangi
grunaður um njósnir
geng ég virðulega
eins og fornfánlegur embættismaður
VERÐIRNIRHALDA á GRÍSUM
I
Áleiðinni
halda verðirnir á grísum
Grísir á herðum
menn í járnum
Missi mannvera frelsi sitt
er hún minna virði
en grís
II
Margt er biturt í þessum heimi
og margt bjátar á
en ekkert er þó verra
en að missa frelsi sitt
Ekki eitt orð
ekki ein hreyfing
er lengur réttur vor
Eins og búfé
erum við reknir áfram
HRÖSUN
Það er myrkur
en við erum reknir af stað
leiðin er krókótt
hörð og óslétt
ég hrasa
ligg flatur í gryfju
Nú er ég hætt kominn
en ég skal upp úr
Í BÁT TIL NANNÍNG
Bátinn ber fyrir straumi
í átt til Nanníng
fæturnir hlekkjaðir við mastrið
eins og á galeiðum fornaldarinnar
Á árbökkunum eru lífleg þorp
fiskibátarnir
renna sér lipurt í straumnum
FANGELSIÐ Í NANNÍNG
Fullkomlega nýtískulegt fangelsi –
alla nóttina flæðir rafmagnsljósið
yfir svæðið
En þar sem skammturinn er aðeins
einn bolli af hrísgrjónum
er maginn stöðugt
haldinn sársaukafullum skjálfta
SORG
Heimurinn logar í stríði
menn keppast um
að verða fyrstir að víglínunni
Í fangelsinu
fær athafnaleysið þungt á okkur
Göfugar hugsjónir okkar
eru ekki einseyringsvirði
HANINN GALAR
Þú ert aðeins venjulegur hani
en hvern morgun
boðar þú komu roðans
Gaggalagó -
þú vekur þá sem sofa
Sannarlega
er starf þitt
ekki þýðingarlaust
FANGELSAÐUR FJÁRHÆTTUSPILARI DEYR
Ekkert eftir
nema skinn og bein
ógæfa
kuldi
hungur
bundu enda á líf hans
Það er ekki lengra síðan
en í fyrrinótt
sem við sváfum hlið við hlið
en þegar dagaði
var hann horfinn
til Lands hinna níu vora
EINN Í VIÐBÓT ...
Pó Jí og Tsjú Tsí[9]
vildu ekki éta hrís
Tsjó-keisaraættarinnar
Þessi maður
vildi ekki éta hrísgrjón
ríkisstjórnarinnar
Pó Jí og Tsjú Tsí
dóu á Sújang-fjalli
Fjárhættuspilarinn
svalt í hel í klefanum sínum
REYKINGAR BANNAÐAR
Reykingar stranglega bannaðar!
Tóbak þitt hverfur
í vasa varðarins
Hann treður því í pípu sína
- það er sjálfsagður réttur hans
og ef þú reynir það aftur
er alltaf nóg til af handjárnum
Í LJÓSASKIPTUNUM
Stormurinn æsist á klettunum
Spjót kuldans
borast inn í greinarnar
Klukknaslögin
frá hofunum langt fjarri
reka ferðalanginn áfram
Drengir leika á flautur
og reka nautgripina heim
í ljósaskiptunum
VERÐLAG
60 sent fyrir að elda hrísgrjónapott
1 júan fyrir fat af heitu vatni
1 júan fyrir það sem er hálfs júans virði
En það er til einskis fyrir fanga
að prútta
SVEENLAUS NÓTT
Fyrsti vörður kemur ...
annar ... þriðji –
ég bylti mér
svefninn kemur ekki
fjórði ...
fimmti vörðurinn –
augun ljúkast aftur
og fimmgeislastjarnan tindrar
HUGSAÐ TIL VINAR
Þann dag
fórstu með mér niður að á
spurðir þú
svaraði ég
Sú uppskera er löngu komin í hús
en mér dvelst enn
ég er fangi
í framandi landi
SKRIFA UMSÓKN FYRIR SAMFANGA
Allir erum við
undir sömu sök seldir
við getum ekki neitað
að hjálpa hver öðrum
Ég skrifa þessa umsókn fyrir þig
og byrja á orðum
sem álitin eru rétt:
"Þess vegna í samræmi við
yðar göfugu fyrirskipanir ...“
Slíkt orðbragð
læri ég nú í fyrsta sinn
Og hve þú ert mér þakklátur!
KLÁÐI
Rauðir og bláir
eins og klæddir brókaði
Allt þetta klór
er eins og við séum að leika á gítar
- klæddir brókaði?
o sei sei
hér erum við
virtir gestir
og tölum sama máli
og aðrir tónsnillingar
HLUSTAÐ Á HRÍS MULINN
En hve hrísinn má kveljast
að vera mulinn í steytli –
Eftir höggin
kemur hann út eins og bómull
Þannig er það oft með mannfólkið
ógæfusmiðirnir
slípa okkur
og breyta okkur í slétt silki
11. NÓVEMBER
I
Eitt sinn
var ellefti nóvember
hátíð í Evrópu
þá var undirritað vopnahléð
eftir heimsstyrjöldina fyrri
Í dag
eru háðar blóðugar orrustur
í fimm heimsálfum
og nasistar
eru verstu glæpamennirnir
II
Í Kína
hefur varnarstríðið
staðið í nær sex ár
Hetjudáðir Kínverja
eru þekktar um víða veröld
Sigurinn er í nánd
með auknu afli
mun gagnárásin heppnast
III
Um alla Asíu
blakta andjapönsk flögg
stór flögg og lítil flögg
þau eru ekki öll jafn stór
Auðvitað þörfnumst við stóru flagganna
en litlu flöggin
eru líka nauðsynleg
LOFTVARNARFLAUTA 12. NÓVEMBER
Óvinaflugvélar
drynja í lofti
fólk leitar hlés
torgin verða tóm
við erum teknir út
úr fangelsinu
og þess vegna gleðjumst við
þótt flautan gjalli
„SÆLUHÚS“
Samkvæmt reglunum
eiga hinir nýju
að sofa nær kamarbekknum
Sá sem vill tryggja sér nætursvefn
verður að greiða fyrirfram
og út íhönd
MORGUNSÓL
Nú þrengir morgunsólin sér
inn í fangelsið
sópar burt gufunni
brennir burt þokuna
Lífsglóðin fyllir veröldina
og fangarnir ljóma í brosi
LEIKUR AÐ ORÐTÁKNUM
Fólk sem kemur úr fangelsi
getur byggt upp landið
óhamingja er mælikvarði
á hreysti mannfólksins
Þeir sem hyggja að hag allra
eru hinir hæfu
Þegar dyr fangelsisins eru opnaðar
flýgur hinn sanni dreki út[10]
HERBLÁSTUR Í VÍETNAM
(Símskeyti frá fréttastofunni Tsé-tá i Nanníng-blöðunum)
Heldur dauður en þræll -
Um allt land mitt
blakta á ný rauðir fánar
ó að vera fangi núna -
Hvenær kemst ég út
til að taka þátt í baráttunni ?
BRESK SENDINEFND Í KÍNA
Bandaríkjamennirnir eru farnir
nú koma Bretar
Ég er einnig sendimaður í Kína
ég hef einnig fengið hlýlegar móttökur –
ENDURSENDUR TIL ÚMÍNG
Þeir senda mig til Nanníng
þeir senda mig aftur til Úmíng
flutningar eftir flutninga
ferð mín ætlar að verða löng
Ég er búinn að fá NÓG!
VEGAVINNUMAÐURINN
Gegndrepa af regni
laminn af vindunum
hvíldarlaus
leggur þú veginn
Hvílík vinnuaðstaða
En hversu margir þeirra
sem ganga
ríða
eða aka veginn
hugsa til þín með þakklæti?
HUNDAKJÖT Í PÁ SÍANG
Í Kúó-té er étinn hrár fiskur
í Pá Síang er étið hundakjöt
Jafnvel fangaverðirnir
fá stundum sjaldgæfa rétti -
VÖRÐURINN STAL STAFNUM MÍNUM
Allt lífið hefurðu verið sterkur og beinn
saman ferðuðumst við gegnum árstíðirnar
gegnum snjóa og þoku
Megi fjandinn hirða þjófinn
sem skildi okkur að -
Við verðum báðir ætíð einmana og óhuggandi
VARÐAN
Ekki há
ekki neitt sérstakt
ekki keisari - ekki konungur
bara lítil varða
við vegkantinn
Fólki
vísarðu veginn
svo að það villist ekki
Þú segir þvi
hversu langt sé eftir
af leiðinni
Þjónusta þín er ekki smá
Vér munum ætíð minnast þín
SMÁBARNIÐ Í PÍNJANG-FANGELSINU
Ó ó ó
pabbi flúði
pabbi þorir ekki að vera hermaður
þess vegna er ég í fangelsi
Ég kom með mömmu
FANGALÍF
Allir eiga sinn eigin ofn
og fáeina leirpotta
við eldum hrís og grænmeti
og sjóðum te
Frá morgni til kvölds
er hér þykk reykjarsvæla
BIRTUSKATTURINN
Þegar þú ert kominn
verðurðu að greiða fyrir birtuna
sex Kvangsí-júan á mann
Í þessu aðsetri myrkursins
er birtan
sex júana virði
HERRA KÚÓ
Gleðifundir -
eins og þegar tvö fljótandi blöð
berast saman í straumnum
ó herra Kúó
hve vinsemd þín
var mér mikilvæg -
eins og að fá örlítinn kolamola
í svartasta skammdeginu
var að fá að vita
að fólk eins og þú er enn til –
HERRA MÓ VAKTSTJÓRI
Vaktstjórinn í Pínjang
hefur göfugt hjarta
hann kaupir hrís handa föngunum
fyrir eigin peninga
Á næturnar
tekur hann af okkur hlekkina
svo að við getum sofið
Hann
styðst ekki við valdið
heldur vinsemdina
Í LESTINNI TIL LÆ-PÍNG
Eftir margra vikna göngu
komum við í dag
í lest
og þótt við verðum að sitja
á steinkolapokum
þá er það að minnsta kosti betra
en að ganga
HANN REYNIR AÐ FLÝJA
Aðeins ein hugsun
rekur hann áfram
- frelsi -
Hann stekkur út úr lestinni á ferð
hann hættir lífi sínu
og hleypur
Hann er varla komin hálfa lí
þegar verðirnir ná honum
og flytja hann til baka
LÆ PING
Hér spilar vaktstjórinn á spil
hvern dag
Lögreglustjórinn þvingar peninga
út úr hverjum fanga
sem vill láta flytja sig
Héraðsstjórinn vinnur slælega
i birtu lampans
Ekkert hefur breyst í Læ-píng
Hér ríkir Friðurinn mikli
TIL LÍÚTSJÓ
Einhvern tíma
hlýtur þó hinu sára og illa
að ljúka
Þann níunda
þegar ég kom til Líútsjó
átti ég að baki
meira en hundrað daga martröð
og þegar ég vaknaði
var andlit mitt enn markað sorg
INNILOKUN ÁN YFIRHEYRSLU
Drykkurinn verður því beiskari
sem nær kemur dreggjunum
Alltaf eru síðustu dyrnar
lang erfiðastar
Mandarín-höllin
er aðeins eina lí héðan
En hví halda þeir mér enn?
MIÐNÆTTI
Í svefni
eru öll andlit heiðarleg
Aðeins þegar þau vakna
birtist hið góða
eða hið illa
Enginn er fæddur
með góðsemi eða illsku
Við lærum þetta yfirleitt smám saman
Í MANDARÍN-HÖLLINNI
Loksins –
hugsaði ég
- síðasti þröskuldurinn!
Ég hélt að nú rynni upp
dagur frelsisins
Hver gat ímyndað sér
enn eina hindrun?
Nú eigum við að fara til Kveilín
VIÐ LOK FJÓRÐA MÁNAÐAR Í FANGELSI
„Einn dagur í fangelsi
er eins og þúsund ár utan þess ...“
hinir gömlu
höfðu rétt fyrir sér
er þeir mæltu svo
Á þessum fjórum mánuðum
af ómennsku lífi
hef ég elst um meira en tíu ár
Í fjóra mánuði
hef ég aldrei étið mig mettan
aldrei átt væran svefn
aldrei skipt um föt
aldrei baðast
Þess vegna hef ég misst eina tönn
hár mitt hefur gránað
ég er magur og svartur
eins og hungraður púki
alsettur kaunum
Það er hamingja mín
að andinn heldur velli
hann er þrjóskur og langþolinn
og víkur ekki þumlung
þrátt fyrir líkamlegar þjáningarnar
ALVARLEGA VEIKUR
Líkaminn er niðurbrotinn
af umhleypingasamri veðráttunni
í Kína
Hjarta mitt er kvalið
af ógæfunni í Víetnam
Það er bitur reynsla
að verða sjúkur í fangelsi
Ég syng í stað þess að gráta
KOMIÐ TIL KVEILÍN – „KANILSKÓGARINS“
Það er hvorki kanill né skógur í Kveilín
Há fjöll
djúpar elfur
Í skugga hávaxins bananatrés
er fangelsið hræðilegt
svart á daginn
eyðilegt um nætur
INNGÖNGUSKATTUR
Þegar við erum komnir til fangelsisins
verðum við að greiða skatt
minnst fimmtíu júan
En séu engir peningar til
er að sjálfsögðu greitt út í hönd
með þjáningu og þrautum
? !
Fjörutíu dagar glataðir
til einskis
fjörutíu dagar
af ólýsanlegri kvöl
0g nú er ég aftur sendur til Líútsjó
nýtt friðleysi
eilíft kvalræðI
? !
Líútsjó - Kveilín –
og svo aftur Líútsjó
sparkað fram og aftur
eins og knetti
Ég er saklaus
en mér er þvælt um alla Kvangsí
Hvenær lýkur
þessu endalausa hringsóli ?
HJÁ STJÓRNVÖLDUM Á FJÓRÐA ANDSPYRNUSVÆÐI
Ég hef ferðast
um öll hin þrettán héruð Kvangsí
Ég hef bragðað unaðssemdir
átján fangelsa
Enn held ég áfram að spyrja
- Hvað hef ég gert af mér ?
er það afbrot mitt
að mér er annt um
mína eigin þjóð?
AÐ MORGNI
Morgunn
sólin klífur upp fyrir fjallstindana
og baðar fjallshlíðarnar
rósrauðri birtu
Aðeins við fangelsið
eru enn myrkir skuggar
og geislar sólarinnar
komast ekki inn í klefann minn
TSÍNGMÍNG-HÁTÍÐIN[12]
Það er Tsíngmíng-hátíð
og regnið fellur strítt
og tilbreytingarlaust
Í fangelsinu
finnum við skyndilega
til okkar eigin sorgar
- Hvar bíður frelsið? spyrjum við
Vörðurinn
bendir á ríkisstjórnarhöllina
úti við sjóndeildarhring
AÐ KVÖLDI
Rósin opnast að kvöldi
síðan fölnar hún
breiðir úr sér og visnar
án þess að nokkur taki eftir
En rósailminn
leggur inn í afkima fangelsisins
þar segir hann föngunum
frá óréttlæti lífsins og sorgum
HÖFT
Líf án frelsis
er svo sannarlega skítt
Jafnvel kamarinn er bundinn reglum
Þegar dyrnar eru opnar
er maginn ekki reiðubúinn
Þegar maginn krefst síns
eru dyrnar læstar
SVEFNLAUSAR NÆTUR
Endalausar nætur
og svefninn neitar að koma
Ég yrki fleiri en hundrað ljóð
um fangavistina
Þegar ein vísa er búin
legg ég frá mér pennann
og horfi til hins frjálsa himins
á milli rimlanna
ENDALAUST REGN
Níu regndagar
á móti einum góðum
Himinninn hlýtur
svo sannarlega að vera vægðarlaus
Skórnir eru tættir
leðjan á vegunum óhreinkar fætur mína
en hvað um það
Ég verð að halda áfram
GLATAÐUR TÍMI
Blámi himinsins
veldur mér leiðindum
Átta mánuðir glataðir í hlekkjum
Hver dagur er gulls verður
Hvenær
sé ég aftur frjálsan dag ?
HAUSTHRIF
I
Klukkan tíu
stendur Karlsvagninn á fjallinu
Hljómur trjásöngvunnar rís og hnígur
og boðar haustið
Hverju skiptir fangann
þótt árstíðahvörf verði ?
Hann
hugsar aðeins um ein hvörf
II
Eitt ár er liðið
í fyrrahaust var ég frjáls
en nú í haust
ligg ég í fangabæli
Ég get því vel sagt
um þjónustu mína við land mitt:
- Þetta haust
hefur það gefið jafn mikið af sér
og haustið í fyrra ?
LEYFI TIL AÐ GANGA UM Í FANGELSISGARÐINUM
Fætur mínir
eru eins og bómull
eftir kyrrsetuna
ég reyni að ganga eitt skref
en hrasa og dett
Um leið öskrar vaktstjórinn:
Hættu þessu - komdu inn aftur
nú er nóg komið af hangsi -
HAUSTNÓTT
Fyrir framan hliðið
stendur vörðurinn með riffil
Hvassbrydd ský færa mánann á brott
Rúmdýrin sveima um
eins og skriðdrekar á æfingu
Moskitó-flugurnar
mynda árásarfylkingar
og gera áhlaup eins og orrustuflugvélar
Hjarta mitt
færist þúsund líum nær fósturjörðinni
Sorgin fléttar drauminn
íflóka þúsund þráða
Saklaus
hef ég verið heilt ár í fangelsi
Ég nota tárin sem blek
og yrki Ijóð
úr hugsunum mínum
ÞEGAR EG LES „SÝNISBÓK HINNA ÞÚSUND SKÁLDA“
Hinir gömlu
sungu um fegurð náttúrunnar
snjó
blóm
mána
vinda
þokuna, fjöllin og árnar
Á vorum dögum
verður að stálbrydda ljóðin
og skáldin
verða að geta barist
LANDSLAG
Greinar mynda málverk
af Tsjang Fei
Hin eilífa sól
skín á dygðir Kúan Jú[13]
Í heilt ár
hef ég ekkert heyrt
að heiman
Hvern dag bíð ég frétta
FAGURT VEÐUR
Allt umhverfist
það er lögmál náttúrunnar
Eftir regndagana kemur uppstyttan
og dagurinn hristir í einu vetfangi
af sér vot klæðin
fjöllin breiða úr brókaðiteppum sínum
í hlýrri sól
og léttum blæ
blika blómin
Í voldugum trjám
milli hreinþveginna greina
syngur fuglakórinn
Hjörtum vorum hlýnar
lífið vaknar
hið sára víkur fyrir því milda
Þannig
er náttúran
GANGA Í FJALLINU EFTIR FANGAVISTINA
Skýin faðma tindana
tindarnir faðma skýin
Elfurnar blika
eins og flekklausir speglar
Við rætur Vesturfjalla[14]
slær hjarta mitt hraðar á göngunni
Ég lít til suðurhimins
og læt mig dreyma
EFTIRMÁLI
Í fangavist sinni í Kína 1943-1944 orti Hóþessi 100 Ijóð „til að hafa eitthvað að gera“. Þau eru skrifuð á klassískri kínversku og með klassísku formletri Túng-ættar-tímabilsins (600-900 e.Kr.) svo að fangaverðirnir gætu fylgst með því hvað hann aðhefðist. Ef til vill einnig til að hafa áhrif á þá. Kínversk fangelsi á þessum tima voru ógeðslegar myrkraholur. Þarna var hrúgað saman fjárhættuspilurum, eiturlyfjasjúklingum, afbrotamönnum, sýfilissjúklingum, konum og börnum, - ásamt lús, flóm og öðrum óþrifum. Allt var undirlagt af eymd, sjúkdómum, óhreinindum og spillingu.
Það er ekki venjulegt að miklir stjórnmálamenn yrki ljóð. Maó gerði það, Dag Hammarskjöld einnig. Hó Chí Mính hefur ekki gefið út önnur ljóð en þessi en það þarf vart að geta þess að næstu áratugina - áratugi styrjaldar og erlends ofbeldis - voru þau lesin og lærð. Það sem fyrst og fremst hrífur við lestur ljóða hans er hinn hreini og fágaði einfaldleiki, hin beina og óbrotna leið ljóðanna til hjarta hins einfalda almúgamanns Víetnams. Ljóðin eru flest stutt og bregða upp skýrum og skörpum myndum. Við lestur Ijóðanna mun ef til vill einhverjum sýnast að ljóðin séu helst til einhæf. Það er á vissan hátt rétt - þau fjalla ákaflega oft um sama eða svipað efni, enda eðlilegt, sé tillit tekið til tilkomu þeirra. En Hó sýnir okkur ýmsar hliðar efnisins, bregður upp nýjum og nýjum myndum, setur fram ný og ný einföld en markviss og sönn spakmæli.
Eins og nefnt hefur verið er einfaldleikinn og markvissan megineinkenni Ijóða Hós, En þessi stíll hans kemur einnig i ljós íöðrum verkum hans, til dæmis í stjórnmálaritgerðum hans.
Hó Chí Mính bjó síðustu ár sín i garðyrkjumannsbústaðnum við höll hins fyrrverandi franska ríkisstjóra í Hanoí. Hann var lítillátur um sína eigin persónu, gekk í einföldum klæðnaði en hafði unun af ljóðlist og því að horfa á knattspyrnuleiki. Hann talaði fjöldamargar kínverskar og víetnamskar mállýskur, frönsku, ensku, þýsku, rússnesku, portúgölsku og japönsku. Hann lést 3. september 1969, 79 ára gamall.
Ljóðin eru hér þýdd fyrst og fremst eftir norsku þýðingunni sem norska skáldið Tor Obrestad gerði. Á þessari útgáfu eru einnig byggðar athugasemdir við ljóðin og þessi eftirmáli. Hliðsjón er jafnframt höfð af enskri og franskri þýðingu Ijóðanna.
NEÐANMÁLSSKÝRINGAR
[1]Lí er kinversk lengdareining, tæplega 600 metrar.
[2]Í kinverskri skák eru notuð heiti úr hinum forna kínverska her. Peðin nefnast (óbreyttir) hermenn eða fótgönguliðar; kóngurinn er kallaður yfirmaður eða hershöfðingi en drottning og hrókar heita hervagnar. Þessum kínversku heitum er haldið hér efnissamhengis vegna.
[3]Tvisvar tíu-dagurinn: 10. október (10.10.), þjóðhátiðardagur Kína í tíð Kúómíntang.
[4]„Hestarnir mínir“: (grín) fætur minir.
[5]„Fimmvafinn kjúklingur“: (grín) vísar til þess að fæturnir eru hlekkjaðir alla nóttina,eins og kjúklingar eru fótreyrðir þegar undirbúinn er rétturinn „fimmvafinn kjúklingur“ á veitingahúsum.
[6]Willkie var foringi amerískrar sendinefndar er heimsótti Kína árið 1942.
[7]Þegar hermaður gerðist liðhlaupi setti Kúómíntang konu hans og börn í fangelsi.
[8]Þegar embættismenn og vitringar veittu áheyrn fyrr á tímum voru þeir vanir að bera belti, prýdd eðalsteinum. Í þessum beltum hringlaði þegar þau komust á hreyfingu.
[9]Pó Ji og Tsjú Tsi eru tvær hálfgerðar goðsagnapersónur (tákn tryggðar og skoðanafestu) sem ekki vildu ganga á vald Tsjó og lifðu sem jurtaætur og einbúar i skógunum þar til þeir sultu i hel.
[10]Ráðning: Tak burt táknið maður frá tákninu fangelsi. Bætið við líkindi, þá fáum við orðið þjóð. Takið burt efsta hluta táknsins óhamingja, þá verður til orðið hreysti. Bætið tákninu standandi maður, við táknið áhyggjur, það gefur orðið hæfni. Takið burt slá, sem er efsti hluti táknsins fangelsi, þá fáum við dreki.
[11]Læ-píng : Friðurinn mikli - þ.e. Pax Romana hins kínverska heimsveldis - friður mandarínanna.
[12]Tsíngmíng er tímabil í hinu forna kínverska tímatali, sem svarar til fyrstu fjórtán daganna í apríl. Í hefðbundnum skáldskap Kinverja er það ímynd vorsins, tímabilsins þegar ávaxtatrén og skrautrunnarnir blómstra. En í Suður-Kína er allajafna regn á þessum árstima.
[13]Tsjang Fei og Kúan Jú voru tvær hetjur á 3. öld e. Kr. sem börðust fyrir réttlætinu. Tsjang Fei var hinn ákafi og tryggi. Dygðir Kúan Jús voru réttvisi, hugrekki og sálarstyrkur.
[14]Vesturfjöll eru fjallakeðja, þaðan sem sjá má Líó Tsjó þar sem HóChi Mính var leystur úr haldi.- Þetta ljóð var ekki með í elstu útgáfunni af dagbók Hós. Hann losnaði úr haldi vorið 1943. Um þær mundir gengu þær sögusagnir í Víetnam, að hann væri látinn. „Stuttu síðar“, segir Vó Ngúén Gíap hershöfðingi frá, "fengum við sent dagblað frá Kína. Á umslagið var þessi vísa rituð og við þekktum aftur rithöndina.“