Fredrik Fasting Torgersen

 

FRÉTTIR ÚR

FANGELSI

 


Fredrik (Ludvig) Fasting Torgersen fæddist 1. október 1934. Hann var yngstur sex systkina í fátækri fjölskyldu, alinn upp í Lille Töyen í Ósló. Árið 1958 var hann ákærður fyrir morð árið áður á hinni 16 ára gömlu Rigmor Johnsen og dæmdur í ævilangt fangelsi og 10 ára einangrunarvist. Hann hefur alla tíð neitað sekt en afplánaði 16 ár af dómnum því að árið 1974 var hann látinn laus. Hann reyndi sjö sinnum árangurslaust að fá mál sitt endur­upptekið á árunum 1958 til 2015.


Einn frægasti stuðn­ings­­maður hans var skáld­ið Jens Björneboe. Árið 1972 skrifaði hann greina­flokk þar sem hann gagn­rýndi mjög veikleika í í rök­semda­­færslum saksókn­ara, vitnaleiðslum og „sönn­­­unum“ og árið 1973 skrifaði hann heimilda­leik­rit um réttarhöldin (Til­fellet Torgersen). Enn er deilt um sekt Fredriks í norsk­um fjöl­miðlum og líta margir svo á að dómurinn yfir honum hafi verið réttarmorð. Árið 2009 skrifaði Johan Dragvoll doktorsritgerð um málið við Björgvinjarháskóla og taldi hann Fredrik aldrei hafa fengið réttláta máls­með­ferð.


Í fangavistinni stundaði hann líkamsrækt og þótti mjög liðtækur lyftinga-, hnefaleika- og karatemaður. Í fangelsinu orti hann einnig ljóð og komu út eftir hann tvær ljóðabækur áður en hann var látinn laus. Þau ljóð sem hér eru þýdd eru öll ort á meðan á fangavistinni stóð og komu út árið 1972 í bókinni Særmelding. Síðar skrifaði hann skáldsögu og fleiri bækur.


Fredrik Fasting Torgersen  lést úr krabbameini 18. júní 2015, áttræður að aldri.




 

FRÉTTIR ÚR FANGELSI

 

Sérleg orðsending frá æðstaráði hersins

 

Allir karlmenn á milli níræðs og hundraðs

eiga þegar í stað að gefa sig fram

til næstu herskrifstofu

til sérstaks verkefnis

í þágu föðurlandsins

 

Að mæta ekki

skoðast sem liðhlaup

og hefur í för með sér

                     dauðarefsingu

sem ekki verður áfrýjað

heldur framfylgt eftir skyndiréttarhöld

 

Að reyna að komast hjá þjónustu

á annan hátt –

til dæmis með ímyndunarveiki –

skoðast sem drottinssvik

og er einnig refsað með dauða

 

Fyrir hönd æðsta ráðsins.

 

Dauðinn

 

Dauðinn

hafði verið á hraðferð

í marga sólarhringa –

 

Um leið og hann fékk skilaboðin

um lítil börnin

sem voru sprengd og brennd

uns þau voru ekkert annað

         en eitt stórt vein

sem enginn gat stöðvað

hafði hann lagt

af stað

 

Reykur og rústir

vísuðu veginn

 

Sársaukaópin

komu í bylgjum

hann vaggaði þeim í svefn –

 

Á heimleiðinni

var dauðinn boginn í baki.

 

Elsku mannsbarn

 

Gráttu ekki

elsku barn –

 

Við fyrstu geisla

morgunsólarinnar

koma vinir okkar

eins og englar

út úr eldkúlunni

og varpa sprengjum

         á hina –

 

Á morgun

geturðu brosað.

 

Ný sápa frá Nix pabba

 

Nú þvo þeir

börn upp úr napalmi –

eins og hlaupkenndri

grænsápu

er því klístrað um líkamann

það hreinsar húðina

með hitastyrk

yfir þúsund gráður

 

Eins og barna er siður

kveina og kvarta

gemlingarnir

undan þessari böðunaraðferð

sem Nix pabbi notar

 

Nix pabbi

mælir með napalmi

fyrir stóra og smáa

 

Napalm hreinsar

napalm hreinsar segir Nix pabbi.

 

Lítil taktísk atómvopn

 

Lítil

taktísk atómvopnin

eru nærri því ekkert annað

         en

unglingabólur

 

Þetta

getur

faðir Nix staðfest

því að hann er orðinn fullorðinn

og alsettur logsárum

kýlum

         um allan líkamann.

 

Á leið þinni

 

Á leið þinni

mætirðu manni

andlit hans er sprengt

í myndlausan massa

hann dregur á eftir sér þarmana

 

Hann talar –

honum kom þetta

alls ekkert við –

 

Afbrigði

er að þú mætir barni

sem hungurdauðinn

hefur þegar sett mark sitt á –

 

Þú munt sjá kjúkubarn

með svo stór augu

að þau sjá langt inn í himininn

– þá er það undir þér komið.

 

Við stóðum aðeins

 

Þarna stóðum við aðeins

án þess að gera

flugu mein –

 

Þá komu árásarmennirnir

í skjóli rökkursins

og afklæddu okkur

 

Við förum ekki fram á

         að neinum sé refsað –

við viljum aðeins fá

grænu blöðin okkar

aftur.

 

Að lifa svolítið

 

Hengdu mennirnir

báðu um að vera hengdir

aftur og aftur

 

Dauðir menn

vilja svo fúslega

lifa

svolítið meir.

 

Baskarnir

 

Þeir voru náðaðir

og dómnum breytt

         í þrjátíu ára fangavist

hvað er það?

 

10.950 dagar

– að nóttum meðtöldum

262.800 stundir

eru þrjátíu ár

 

En enginn böðull mun heilsa –

það er svo.

 

Mynd 1972

 

Myndin

sýnir átta

hengda menn

og prestinn

sem

blessar þá alla

 

Handan við

eru höfuð

hoggin

af

 

Og

bakvið og

allt í kring

rísa

rúbínsettu krossarnir.

 

Fyrir þá ríku – af hinum ríku

 

Lagagreinarnar voru þurrar eins og

         hrossatað

og þær fuðruðu upp

í rauðglóandi bálinu

þegar Réttlætisgyðjan

fleygði þeim á eldinn

 

Þetta er eins og að tína lýs

sagði gyðjan og gerði athugasemdir

við lögin um leið og hún

tíndi þau út

og lét þau detta í logana

þar sem þau sprungu

með viðbjóðslegum hljóðum

 

Lagasafnið varð sífellt þynnra

og Réttlætisgyðjan sífellt fölari –

allt þetta er aðeins sverð og skjöldur

hinna ríku, sagði hún

og reif út heila síðu

af kúgun

 

Þegar Réttlætisgyðjan stóð upp

var bakið beint –

af lagasafninu

voru aðeins blóðrauð kápuspjöldin

eftir.

 

Krypputrú

 

Ég er með kryppu

á bakinu

 

Augu mín

eru beint

upp af hvort öðru –

 

Þeir segja mig ljótan

 

Ég tek það ekki

nærri mér

því að það hef ég lesið

að ég sé skapaður

í hans mynd.

 

Líttu einnig til himinsins

 

Líttu einnig til himinsins

og sjáðu augu þín fljóta hægt burtu

 

Eins og tóm skurn

stendurðu eftir og starir

inn í koldimma nóttina –

því að þú ert ekki meir.

 

Þróun

 

Ég var kristinn á dögum Nerós

í Collosseum dó ég

 

Ég gat orðið frjáls

með því að segja ...

 

Ég var kristinn á dögum Nerós

og dó í Collosseum

 

Ég er heiðingi á dögum kristninnar

í klofnum atómum mun ég deyja

 

Ég hef engu við að bæta

því að enginn er frjáls

 

Ég er heiðingi á dögum kristninnar

og mun deyja í klofnum atómum.

 

Kirkjusaga

 

Kirkjuturninn stóð beint

upp í skýin

eins og stærðar

         augntönn

sem vaxið hefði

í tvö þúsund ár

 

Það var mjög til umræðu

að draga tönnina úr

því að rótin var svo illa farin

að líta mátti á hana

sem grautúldna.

 

Spil

 

Spilin eru stokkuð

dregið

gefið

 

Drottinn gaf –

 

Guð hjálpi okkur!

 

Himinninn

 

Það er til einskis

að laumast

inn í himininn –

 

Vegir og stræti

eru þar vel upplýst –

 

Í birtu sólarinnar

falla af þér

stórir skuggar –

 

Og í skini mánans

muntu líta út

eins og galdranorn

á leið til messu –

 

Viljirðu komast

að gullnu hliðinu

skaltu ekki taka með þér

svo mikið –

 

Hugrekki og hreinskilni

eru alveg nóg.

 

Í garðinum

 

Í garðinum

verpa sálir fuglanna

eggjum hvern morgun

 

Eins og skínandi perlur

fullar af lífi

blika þau

í grænum hreiðrum sínum

 

Þegar þú ferð í garðinn

hafðu þá með þér

nokkur orð

til fuglanna

 

Ekki eitt þeirra

verður skilið eftir

í leirnum.

 

Ævintýri frá Kína

 

Kirsuberjatrén blómstra

yfir höfðum

litlu gulu

kvennanna og karlanna

sem flökta um

eins og fiðrildi

hljóðar sumarnætur

 

Hér eru hin öldnu

heiðruð og elskuð

eins og óbætanlegir gimsteinar

 

Hér er annast um þá

af börnum þeirra

með slíkri alúð

að hinir öldnu

blómstra

í tímaglasi lífsins.

 

Ímyndaðu þér

 

Þú mannvera ímyndaðu þér

að þú sért þrædd upp á öngul

og þér sé kastað

út í hið ókunna

þar sem verur gráðugri

en hugsanir þínar skynja

glefsa eftir þér

 

Geturðu ímyndað þér þetta?

 

Risahöfuðið

 

Risahöfuðið

var gjörsamlega tómt

 

Alheimur

án lífs

 

Heimur

án stjarna og vetrarbrauta

 

Höfuð með tveimur augum

sem endurspegluðu

ókunn hafdjúp.

 

Eins og sítróna

 

Eins og sítróna

verður líkaminn kreistur

 

Geymdur eins og reyktur lax

 

Látinn þroskast

við heilsusamleg skilyrði

 

Með tíð og tíma

er framleiðslan tilbúin

nú er hægt að brjóta hana

                     og mylja

í kjötkvörn samfélagsins

 

Þú ert

með öðrum orðum

örlítið af kjötdeigi

sem enn er á lífi.

 

Á stóru myndinni

 

Þokan var þétt

 

Vindurinn bar með sér rykkornið

 

Þegar sólin kom upp

var allt

eins og áður

 

Aðeins lítil

rykögnin

var horfin.

 

Fingurnir

 

Strokleður

í hönd þinni

getur strokað mig í sundur

 

Strokað mig

inn í hið óþekkta óminni

 

Fingur þínir

með sorgarröndunum

eru eins og skapaðir

til að þurrka út.

 

Þefjarinn

 

Þefjarinn

má ekki þefja –

 

Hann á að vera

vökull og skýr –

 

Skilja

eitruð endalokin

sem fylla

jörð, himin og haf

 

Hann á ekki

að deyfa sig burt

 

Flýja þá jörð

sem ákvarðandi stjórnvöld

gera rotnari

og rotnari

með hverju andartaki.

 

Við balalaikatónlist

 

Boris heyrði balalaikatónlist –

þeir eru að leika hana heima núna

 

Hugsanirnar flugu með skýjunum

sem sigldu eins og ævintýraskip

yfir frjóa akra

þar sem kornið blakti í vindinum

eins og stúlkur

 

Hann var kominn –

stórt landið

fyllti himininn

stórum skógum

þar sem fuglarnir báru hann

á vængjum þagnarinnar

yfir eilífan snjó tindanna

í nið balalaikatónlistarinnar.

 

Frostrósin

 

Frostrósin

sýndi ekki af sér ótta

þegar sólin

lyfti höfði sínu

         upp fyrir sjónhringinn

– ófreskja

reiðubúin til að

gera hana að engu

 

Köld og róleg

mætti hún

dauða sínum

 

Aðeins eitt tár

kom upp um

hljóðan sársauka

frostrósarinnar.

 

Dragsúgurinn

 

Dragsúgurinn dregur þig

niður í dimman gang

þar sem þú reynir að opna

dyr í leiðinni

 

Allt er lokað –

þú fálmar þig áfram

         niður á við

með loftstraumnum

 

Svo lýkurðu upp síðustu gáttinni

og sérð stórt auga himinsins

stara niður á þig

 

Þá fyrst skilurðu

að botninum er náð.

 

Nú skaltu gráta

 

Nú skaltu gráta

flóði

         sem þú aldrei

hefur ímyndað þér –

 

Uppþornuð táragöng þín

munu fyllast af litlum

         gljáandi dropum

sem sigla

að þeim endalokum

sem augu þín sáu.

 

Læknirinn

 

Læknirinn segir:

         – og hér

         höfum við fullkominn örvita –

         gáfnavísitalan er um það bil 5

sjúklingurinn er 17 ára

         og fær daglega

         rafmagnslost

 

         Þrátt fyrir lága gáfnavísitölu

         sjúklingsins

         má greina auðsveipni hjá honum

         gagnvart okkur

                     sem viljum honum vel.

 

Marsbúar

 

Marsbúarnir voru grænir –

það er rétt –

en að þeir hefðu

sogskálar

á höndum og fótum

er þvæla

 

Þetta er frjálst

og sjúklegt hugmyndaflug

órar taugasjúklinga

eða meira eða minna

geðveiks fólks

sem skilur ekki

að marsbúarnir

eru eins og við –

að þeir eru grænir

er aðeins af öfund –

 

Það er bara mannlegt.

 

Lítið bréf

 

Hér liggja Hans 4 ára

og Anna 7 ára –

mamma, pabbi, amma og ég

heimsækjum þau daglega

 

Mamma grætur alltaf

og segist ekki skilja

 

Þau voru að hoppa í parís á gangstéttinni

þegar bíllinn ók þau niður

 

Hann sem ók

var fínn maður

hann sá eftir því og ætlar aldrei

að drekka undir stýri aftur

 

Læknirinn segir

að hann mundi ekki þola

það álag

sem fylgir afplánun

 

Ákærandi kveðst sammála

málið sé mjög sérstakt

hann fer fram á 30 daga varðhald – skilorðsbundið

 

Nú verð ég að hætta

mamma og ég ætlum

út að kaupa blóm.


Ruslahaugurinn

 

Á dvalarheimilunum

hímir

gamla fólkið

í stólum

eins og pottablóm

 

Umhyggja samfélagsins

í stað þess

að vera úðað skordýraeitri.

 

Gömlu konurnar

 

Undir

háum trjánum

fara gamlar konur

safna sölnuðu laufi

í körfur

fléttaðar

af barnahöndum

 

Könglar, greinar

og laufblöð

sem sólin hefur sett lit sinn á

verpast

í körfunum

þegar fólkið sem tínir þau saman

fer heim

til að flétta kransa

 

Gamalt fólk

á svo marga vini –

í kirkjugarðinum.

 

Sigurinn er okkar

 

Brátt

höfum við sigrað

 

Skógur og lyng

hörfa undan

 

Fiskitegundir

eru lagðar að velli

 

Jafnvel himinninn

felur sig

að baki reykteppinu

 

Þetta gengur vel –

sigurinn er okkar

 

Vígvöllurinn fyrir ofan okkur

 

Gasgrímur

fyrir alla landsmenn

 

Hér er brátt

jafn hættulegt að draga andann

og á Vesturvígstöðvunum

 

Austurvígstöðvar

þar sem blýmassarnir

bora sig inn í

lungun

 

Gasgrímur

eða englavængir

 

Þriðji valkosturinn

– skynsemin –

er eitraður.

 

Valdhafarnir

 

Rauðar rósir sótthitans

hafa þeir ekki

hrifsað af okkur

 

Blómum dauðans

megum við halda.

 

Mannveran

 

Mannveran

er spendýr

af tegundinni hómó sapíens

 

Andstæðan er

nefdýrið

sem einnig er spendýr –

af

tegund skólpdýranna.

 

Teningurinn

 

Þegar

teningurinn

hringsnýst í loftinu

er

einnig hann

á ferðalagi

sem

aðeins svindlarinn

veit

hvar endar.

 

Opnar dyr

 

Þegar

þú hefur kynnst

mannfólkinu

ferðu

gjarnan fyrst

inn í húsið

sem hefur aðeins einar dyr –

 

Og

ef þú þaðan

         gegnum glugga

         glitrandi tára

sérð veginn sem þú lagðir að baki

þakkarðu

fyrir

að þessar dyr

stóðu þér þó opnar.

 

Hugsun þín

 

Þrjú höfuð fundust

í ruslatunnunni

 

Lítil andlit

með stirðnað augnaráð

 

Hugsanir þínar

eru á villigötum –

þrjú síldarhöfuð.

 

Rándýrin

 

Inni í búrinu

vappar ljónið

úti standa hin rándýrin

 

Gul kattaraugu

leita að graslendinu

þau sjá ekkert

nema önnur rándýr.

 

Spurningin

 

Þeir hálshöggnu

eru auðvitað dauðir

 

Þeir hafa misst höfuðin

 

Spurningin er hinsvegar

hvað verður um þá

sem enn hafa höfuð?

hver hefur sagt –

 

Heldurðu ekki að blómið

standi skjálfandi

þegar það sér þig

koma með klippurnar?

 

Hver hefur sagt

að þú

sért ekki böðull?