Lars Saabye Christensen


FYRIRGJÖF

Norsk knattspyrnuljóð


 


FYRIRGJÖF

Norsk knattspyrnuljóð - Sýnishorn

 

Formáli 

Ég var hægri bakvörður

Í stákaliði Frigg 2

(meðan Frigg var ennþá

Í forystusætum og fór heim með

marga meistaratitla,

verð ég að skjóta inn)

og eitt sinn lékum við gegn

strákaliði Lyn 2, sjálfum

erkióvinunum, verð ég að segja, á

miskunnarlausum malarvelli

Frogner stadium þar sem Noregur

vann Danmörku 3 – 1

árið 1918 í hörkuleik og Danir

kenndu vellinum um

(og hefði ég ekki gjarnan viljað

gera það sama, kenna mölinni um)

Ég var nefnilega ekki ennþá

með það á hreinu hvað

rangstaða merkti

og þegar strákalið Lyn 2

kom í æðandi árás

upp hægri kantinn minn

stóð ég grafkyrr

í þeirri trú að þeir væru

að ganga í úthugsaða

rangstöðugildru mína

þannig að dómarinn, reyndar

pabbi bekkjarbróður míns,

en það hjálpaði mér ekkert,

gæti blásið í gljáandi

flautu sína

og fært Frigg og mér þannig

verðskuldað og heiðarlegt

aukaspark en það gerðist ekki

Lyn skoraði

og þetta varð líka eina mark leiksins

og þar með úrslitamark

Ég fór ekki inn á

í seinni hálfleik

 

Síðan lagði ég

fótboltaskóna á hylluna

eins og það er kallað

Ég yfirgaf mölina

og grasið

Ég hætti og sneri mér

að bakherbergjum tungumálsins

þar sem ég verð að viðurkenna

að það gerist á góðum dögum

að ég er betri með blýantinn.

Kurteisleg fagnaðarlæti

 

Þegar norska fótboltalandsliðið

lék heimaleiki

milli fimmtíu og sjötíu

mátti sjá fágæta

og á ýmsan hátt grípandi venju

þegar Noregur skoraði

Þá lyftu áhorfendur sem aðallega

voru karlar, höttum sínum

hátt upp í loft

 

Af ýmsum ástæðum

gerðist þetta afar sjaldan

Árið 1955 gerðist slíkur atburður

aðeins einu sinni,

nefnilega gegn Írlandi

Miklu oftar mátti sjá

andstæðuna, að áhorfendur

toguðu hatta sína eins

langt niður á enni og hægt var

þegar andstæðingarnir skoruðu

Hvorki meira né minna en níu sinnum

gegn Írum, Ungverjum og Rúmenum


En þeir sem þarna voru þegar

Noregur skoraði gleyma því aldrei:

Yfir Ullevål stadion

flaug breiður fuglaskari

sem um stund skyggði á völlinn

á meðan leikmennirnir frusu

í kös sigursins


Tilgangur marksins

 

Flest skot fara framhjá, yfir

eða komast aldrei

alla leið, lenda á varnarmúr

eða óvæntum fæti og

nokkrum skotum er bjargað

af athugulum markmanni

sem þannig teygir sig inn í

þröngan hóp hetjanna

(sjá Vítaspyrna)

 

En langfæst skot

enda þar sem þeim er ætlað

nefnilega í markinu

eða eins og það er einnig nefnt

í netinu, búrinu, kassanum, pokanum,

möskvunum fyrir aftan þennan sama markmann

sem sorgmæddur og reiður

verður að sækja boltann

út úr þröngu dánarbúi sínu

 

Ég hef oft hugsað um

hvort það sé gott eða vont

að svo fáir boltar

komist, já, alla leið

Ég hef legið andvaka

margar erfiðar nætur

aleinn í hugsun minni

og nú hef ég komist að því

að það er eins og það á að vera

að svo fáir boltar

komist, já, alla leið

 

Því að annars hefðum við strax

heimtað ennþá fleiri

og að lokum

orðið hundleið.


Bókmenntir og knattspyrna

 

Lítum til þeirrar

ákefðar, elju og mér liggur við að segja

ástar sem rithöfundar láta í

ljósi um fótbolta, ekki bara

á vellinum og kaffihúsunum, heldur líka

við skrifborðin, við sjálfar ritvélarnar, það nægir að

nefna í því sambandi menn eins og Solstad, Michelet

Björnstad, Paus, Holt og ég get varla

munað eftir að hafa lesið norska skáldsögu

sem komið hefur út eftir heimsstyrjöldina

sem nefnir ekki að minnsta kosti einn minnisverðan

fótboltaleik, einn minnisverðan leikmann eða

að minnsta kosti bolta

 

Þess vegna eru það dálítil vonbrigði

að sama ákeft, elja og

mér liggur við að segja ást

kemur ekki í ljós

hvað varðar afstöðu leikmanna

til bókmennta

 

því séu þeir spurðir

(sem gerist oft) hvað lestu? og hvaða

bók lastu síðast? eða hvað ertu með á náttborðinu?

koma svörin hægt og óskýrt

eins og gamlar fyrirgjafir og þreyttar langsendingar

og hlaup, man ekki, svara sumir og

þeir nefna í staðinn teikniseríur, sumir

svara miskunnarlaust og grimmt

ég les ekki bækur

og  benda í staðinn á virkni eins

og að spila á spil, golf, billjarð og spurningakeppnir

 

Leiðast fannst mér þó

þegar Mykland, einnig kallaður Mýflugan

(sjá Nafnið)

sagði frá því í blaðagrein, ef

ég man rétt, að hann hefði bara lesið

eina bók um ævina

reyndar ljómandi góða bók

sem hann valdi sér, nefnilega

Hvítir negrar eftir Ingvar Ambjörnsen

skáldsögu sem á ýmsan hátt má

bera saman við nákvæmna leikni

Mýflugunnar, eða Myklands, kjark

hans sem einstaklings og spádómsgáfu

við þrönga stöðu á miðjunni

eða við hornfána andstæðinganna

 

en ég hugsa hvort Mykland eða

Mýflugan væri ekki enn betri

leikmaður og heilsteyptari

í tæknilegum leikstíl sínum

og fljótari að sjá heildarmyndina

ef hann hefði líka lesið

smásagnasafnið Svörtu móður

eftir sama höfund.

 

Stuttbuxurnar

 

Það er eitt

sem ég hef tekið eftir: að

stuttbuxurnar eru orðnar

stærri og stærri

á seinni árum,

það er að segja að upphaflega

voru þær virkilega stórar, til dæmis

á bronsliðinu, þá voru þær í raun

stuttar síðbuxur

eða hvítar hnébuxur, ef

við kjósum að líta þannig á þær,

mjög víðar um kröftug lærin

voru þær að minnsta kosti og náðu

næstum niður á hné, en síðan urðu þær

smátt og smátt minni og þrengri

ég gæti trúað að þær hafi

verið einna minnstar

í HM 78, í Argentínu

þegar markahrókurinn og hetja

heimaliðsins, hinn síðhærði framherji

Kempes, mætti til leiks í stuttbuxum

sem huldu varla neitt

þegar tæklingarnar urðu sem ákafastar

eða þegar hann teygði sig

í gullskallabolta við stöngina hjá andstæðingunum

en síðan hafa stuttbuxurnar sem sé

orðið stórar aftur

og ég veit ekki alveg hvort þetta

er dæmi um aðra þróun tískunnar

sem síðustu árin hefur lagt

áherslu á laust og frjálshangandi

í mótsetningu við

þrönga hnappa, slimfit

og aðskorið

eða hvort að baki þessu

séu íþróttaleg

sjónarmið

 

Ég vel að trúa því síðara

því að þegar ég hugsa mig um

er það oftast liðið í

stærri buxunum

sem vinnur.

 

Marokkó – Noregur

 

Gekk hljóðlega fram í

eldhús

í hálfleik

og opnaði  bjórdós

sem hafði staðið þar

síðan í tapinu gegn Hollandi

í Rotterdam fyrsta

nóvember 1972

 

Aðeins ein hugsun í höfðinu:

út og standa sig, strákar

út og helvítis standa sig

 

En hvað

lagaðist við það

jafntefli er þröngur skór

(sjá Hálfleikur)

 

Stundum er gott að vita

at Tore André Flo

hringir alltaf heim til mömmu

eftir leik.


Flautan

 

Dómarinn

t.d. Norðmaðurinn Rune Pedersen

í Evrópuslagnum

milli Þýskalands og Króatíu

auk sinnar vel notuðu svörtu Fox

án baunar og með örugg merki eftir

tennur, hafði líka með sér fjórar

aukaflautur út á völlinn

er í alla staði róandi

því að hvað hefði verið meira

auðmýkjandi, já nánast sjúklega

hlægilegt fyrir dómara

en vera með hljóðlausa flautu

þegar hann með fullum krafti lungnanna

blæs í flautuna eftir háan olnboga, vafasama

tæklingu eða greinilega rangstöðu

og nær ekki neinu öðru en vesælu

pípi á meðan ruddalegur leikurinn

fær að halda óáreitt áram

 

En nú getur hann bara strax

náð í nýja flautu

og blásið í hana eins og hann vill

ef sú fyrri er stífluð, brotin

eða hann hefur einfaldlega

misst hana

og það hefði kannski verið enn verra:

dómari sem skríður

um í grasinu og leitar

að týndu flautunni sinni

á meðan tæklingar herja

á lága skó í kringum hann

og línuverðirnir lyfta

merkngarlausum flöggum sínum

(sjá Línuvörður)

 

Slíkur dómari kemur aldrei aftur

síkur dómari án flautu

gleymist aldrei

og hann mun sjálfur ekki heldur gleyma

jafnvel á dánarbeði mun hann enn

reyna með fölum, þunnum vörum

að blása á Guð fyrir að handleika boltamm

 

En öllu þessu þurfum við

sem sagt ekki að kvíða.


Bolti

 

Rétt við völlinn, til dæmis á Parc des Princes

eru sjö aukaboltar

ef svo skyldi fara

að eitthvað kæmi fyrir boltann

sem upphaflega var byrjað með, til dæmis

að honum yrði sparkað yfir stúkuna

og hann hyrfi sporlaust þar

en þetta tel ég

nánast óhugsandi

meðal annars vegna risavaxinna fjarlægða

innan leikvanganna nú á dögum

Þetta hefði getað gerst á Bislet þegar

Vålerenga átti heimaleik, segjum

árið 1960, í september, í gulri

birtunni sem flæddi upp

af þunnu gerfigrasinu og það var

næstum unaður þegar Bruno sem eins og

ítalski allmiklu eldri nafni hans

hélt að heimurinn væri óendanlegur,

hæfði boltann rétt yfir stórutá

og hann lenti með soghljóði

í skorsteini brugghússins

þannig að feðurnir urðu að láta sér nægja

að fá maltöl fram að næstu helgi

En nú er líklegra

að einhver áhorfenda

haldi boltanum

ef svo vill til að hann hafni hjá honum

og að viðkomandi af einhverri ástæðu

neiti beinlínis að afhenda hann

eða að boltinn springi einfaldlega

á miðjum vellinum,

en að það gerist sjö sinnum

í einum og sama leiknum

hef ég mjög litla

trú á.

 

unsplash