
Ég tók mig til árið 2000 fyrir áeggjan bernskuvinar míns, Árna Mogens Björnssonar prentsmiðs, og þýddi úrval af textum Bobs Dylans, auk æviágrips hans. Við ætluðum síðan að gefa þetta efni út í litlu hefti, á stærð við hljómdisk, til heiðurs Dylan. Þýðingin er þannig að ég reyndi að endurskapa stemningu og blæ textana sem ljóðræns texta en hirti minna um form, takt og bragarhátt enda ekki ætlaðir til að syngja þá.Textana átti einnig að birta á ensku. Við reyndum mánuðum saman að fá leyfi umboðsmanna Bobs Dylans til að gefa úr þessar þýðingar en fengum loks afsvar þar sem það stangaðist að sögn á við hagsmuni einhverra hljómplötuútgefenda hérlendis.
Óður til Woodys
(af plötunni Bob Dylan)
Hérna er ég, þúsund mílur að heiman, og geng eftir vegi sem aðrir menn hafa troðið. Ég horfi á veröld þína, fulla af fólki og hlutum, niðursetningum og bændum, prinsum og kóngum.
Heill þér, Woody Guthrie, ég samdi óð til þín um þennan gamla skrítna heim sem heldur áfram göngu sinni. Hann virðist veikur, er svangur, er þreyttur og lúinn. Hann virðist í dauðateygjunum, þótt hann sé vart fæddur.
Komdu sæll, Woody Guthrie, en ég veit að þú þekkir allt sem ég tala um, og svo ótalmargt fleira. Ég syng þér þennan söng, en get ekki sungið þér nóg, því að þeir eru ekki margir sem hafa gert það sem þú hefur gert
Skál fyrir Ciscos og Sonnys og Leadbelly og öllum þeim góðu mönnum sem áttu samleið með þér. Skál fyrir hjörtum og höndum þeirra manna sem komu með rykinu og eru horfnir með vindinum.
Ég fer aftur á morgun, en gæti eins farið í dag, eitthvert áfram veginn einhvern daginn. Það síðasta sem mig langar til að gera er að segja þér að ég hef einnig átt erfiða ferð
Berst með vindinum
(af plötunni The Freewheelin´ Bob Dylan)
Hve marga vegi verður maður að ganga til enda, áður en hann geti kallast karlmaður? Já, og hve mörg höf verður hvít dúfa að sigla, áður en hún sefur í sandinum? Já, og hversu oft þarf fallbyssukúlan að þjóta, áður en hún verður að eiflífu bönnuð? Svarið, vinur, berst með vindinum. Svarið berst með vindinum.
Hversu oft þarf maður að líta til lofts, áður en hann sér til himins? Já, og hversu mörg eyru þarf manninum að vaxa, áður en hann heyrir fólkið gráta? Já, og hversu marga dauðdaga þarf hann til að skilja að allt of margt fólk hefur dáið? Svarið, vinur, berst með vindinum. Svarið berst með vindinum.
Hversu mörg ár getur fjall verið til, áður en það skolast til sjávar? Já, og hversu mörg ár getur fólk verið til, áður en því er leift að vera frjálst. Já, og hversu oft getur maður litið undan og þóst ekkert sjá? Svarið, vinur, berst með vindinum. Svarið berst með vindinum.
Brátt kemur hörð rigning
(af plötunni The Freewheelin´ Bob Dylan)
Ó, hvar hefurðu verið, bláeygi sonur minn? Ó, hvar hefurðu verið, kæri ungi sveinn? ég hef reikað um hlíðar tólf skýhulinna fjalla. Ég hef gengið og skriðið á sex krókóttum þjóðvegum. Ég hef dansað í miðju sjö dapurra skóga. Ég hef staðið frammi fyrir tylft dauðra hafa. Ég hef farið tíu þúsund mílur að mynni kirkjugarðs. Brátt kemur hörð, kemur hörð ... kemur hörð rigning.
Ó, hvað sástu, bláeygi sonur minn? Ó, hvað sástu, kæri ungi sveinn? ég sá nýfætt barn umkringt villtri úlfahjörð. Ég sá demöntum skreyttan þjóðveg þar sem enginn var. Ég sá svarta grein sem blóðið draup af. Ég sá herbergi fullt af mönnum með blæðandi hamra. Ég sá hvítan stiga þakinn vatni. Ég sá tíu þúsund ræðumenn með afhöggnar tungur. Ég sá byssur og beitt sverð í höndum ungra barna. Brátt kemur hörð, kemur hörð ... kemur hörð rigning.
Ó, hvað heyrðirðu, bláeygi sonur minn? Ó, hvað heyrðirðu, kæri ungi sveinn? ég heyrði þrumugný, sem öskraði viðvörun. Ég heyrði brimhljóð í öldu sem gæti drekkt öllum heiminum. Ég heyrði í hundrað trumbuslögurum með logsára lófa. Ég heyrði tíu þúsund hvísla, en enginn var að hlusta. Ég heyrði einn mann svelta, en fjöldi fólks hló. Ég heyrði söng skálds sem dó í ræsinu. Ég heyrði hljóð trúðs sem grét í trjágöngunum. Brátt kemur hörð, kemur hörð ... kemur hörð rigning.
Ó, hvern hittirðu, bláeygi sonur minn? Ó, hvern hittirðu, kæri ungi sveinn? ég hitti ungt barn við hliðina á dauðum hesti. Ég hitti hvítan mann á gönguferð með svartan hund. Ég hitti unga konu með brennandi líkama. Ég hitti unga stúlku sem gaf mér regnboga. Ég hitti mann sem var særður af ást. Ég hitti annan mann sem var særður af hatri. Brátt kemur hörð, kemur hörð ... kemur hörð rigning.
Ó, hvað ætlarðu nú að gera, bláeygi sonur minn? Ó, hvað ætlarðu nú að gera, kæri ungi sveinn? Ég ætla aftur af stað áður en regnið fer að falla. Ég ætla að ganga lengst inn í myrkur hins dimmasta skógar þar sem fólkið er margt og hendur þess tómar, þar sem eiturhöglin menga vatn þess, þar sem heimilið í dalnum og rakt skítugt fangelsið mætast, þar sem andlit böðulsins er ávallt vel hulið, þar sem hungrið er ljótt, þar sem sálirnar eru gleymdar, þar sem svart er eini liturinn, þar sem ekkert er eina talan. Og ég mun segja frá því, hugsa það, tala það og anda því og endurvarpa því frá fjöllunum svo að allar sálir megi sjá það. Síðan stend ég á hafinu þar til ég fer að sökkva. En ég mun þekkja sönginn minn til hlítar áður en ég fer að syngja hann. Brátt kemur hörð, kemur hörð ... kemur hörð rigning.
Stúlka að norðan
(af plötunni The Freewheelin´ Bob Dylan)
Ef þú átt leið um fegurðina fyrir norðan, þar sem vindarnir blása við landamærin, mundu eftir að skila kveðju til einnar sem þar á heima. Hún var eitt sinn mín sanna ást.
Ef þú ferð þar þegar snjókornin lemjast, þegar árnar frjósa og sumri lýkur, gáðu hvort hún er í nógu hlýrri úlpu til að verjast ýlfrandi vindunum.
Gáðu fyrir mig hvort hár hennar er slegið, hvort það bylgist niður yfir brjóstin. Gáðu fyrir mig hvort hár hennar er slegið, því þannig man ég hana best.
Ég velti því fyrir mér hvort hún muni nokkuð eftir mér. Oft hef ég beðið þess í myrkri næturinnar og birtu dagsins.
Svo að ef þú átt leið um fegurðina fyrir norðan, þar sem vindarnir blása við landamærin, mundu eftir að skila kveðju til einnar sem þar á heima. Hún var eitt sinn mín sanna ást.
Hugsaðu þig ekki um, þetta er allt í lagi
(af plötunni The Freewheelin´ Bob Dylan)
Það er til einskis að brjóta heilann um hversvegna, ljúfan, það skiptir heldur engu máli. Og það er til einskis að brjóta heilann um hversvegna, ljúfan, ef þú veist það ekki nú þegar. Þegar haninn þinn galar í dagrenningu líttu þá út um gluggann og sjáðu að ég er farinn. Þín vegna held ég áfram ferð minni. Hugsaðu þig ekki um, þetta er allt í lagi.
Það er til einskis að kveikja á ljósinu þínu, ljúfan, ljósinu sem ég kynntist aldrei. Og það er til einskis að kveikja á ljósinu þínu, ljúfan, ég er skuggamegin við veginn. Samt vildi ég óska að þú gerðir eða segðir eitthvað til að fá mig til að skipta um skoðun og vera kyrr. Við töluðum svo sem ekki mikið saman svo að hugsaðu þig ekki um, þetta er allt í lagi.
Það er til einskis að kalla nafnið mitt, ljúfan, enda hefur þú aldrei gert það áður. Það er til einskis að kalla nafnið mitt, ljúfan, ég heyri ekki lengur til þín. Á leið minni eftir veginum hugsa ég og grufla - eitt sinn elskaði ég konu, barn, að því er mér er sagt. Ég gaf henni hjarta mitt en hún vildi sál mína. En hugsaðu þig ekki um, þetta er allt í lagi.
Ég geng eftir löngum, einmanalegum veginum, ljúfan. Hvert ég stefni get ég ekki sagt. En vertu sæl er of góð kveðja, ljúfan, svo að ég segi bara bless. Ég segi ekki að þú hafir komið illa fram við mig. Þú hefðir getað gert betur en mér er alveg sama, þú eyddir bara dýrmætum tíma mínum. En hugsaðu þig ekki um, þetta er allt í lagi.
Einmanalegur dauðdagi Hattie Carroll
(af plötunni The Times They Are A-Changin´)
William Zanxinger drap vesalings Hattie Carroll með göngustaf sem hann sveiflaði umhverfis demantskrýddan baugfingur á fínni samkomu á hóteli í Baltimore. Og lögreglumenn voru kallaðir til og vopnið tekið af honum á leiðinni með hann í gæsluvarðhald á stöðinni. Og þeir kærðu William Zanzinger fyrir morð að yfirlögðu ráði. En þið sem stundið heimspekilegar hugleiðingar um smán og gagnrýnið allan ótta, takið klútinn frá andlitinu. Nú er ekki tíminn til að gráta.
William Zanzinger sem aðeins 24 ára gamall á tóbaksbúgarð upp á 600 ekrur og vellauðuga foreldra sem sjá honum fyrir öllu og vernda hann og hefur góð sambönd í opinberum stjórnmálum Marylands brást við ódæði sínu með því að yppta öxlum, bölva, glotta og bretta grön. Eftir örfáar mínútur gekk hann út sem frjáls maður fyrir lausnarfé. En þið sem stundið heimspekilegar hugleiðingar um smán og gagnrýnið allan ótta, takið klútinn frá andlitinu. Nú er ekki tíminn til að gráta.
Hattie Carroll var vinnukona í eldhúsinu. Hún var 51 árs gömul, móðir 10 barna sem tóku af borðinu og fóru út með ruslið. Og hún hafði aldrei svo mikið sem setið við borðsenda og talaði ekki einu sinni við þjónustufólkið við borðið sem var nýbúið að hreinsa allan mat af borðinu og tæma öskubakkana á allt annari hæð. Hún var drepin í einu vetfangi, slátrað með göngustaf sem þaut í gegnum loftið þvert yfir herbergið, boðinn og búinn til að eyða öllu göfugu. Og hún hafði aldrei gert William Zanzinger eitt eða neitt. En þið sem stundið heimspekilegar hugleiðingar um smán og gagnrýnið allan ótta, takið klútinn frá andlitinu. Nú er ekki tíminn til að gráta.
Í hæstvirtum dómssal sló dómarinn hamrinum í púlt sitt til að sýna að allir væru jafnir og dómurinn réttlátur, að ekki væri teygt og togað í strengi bókanna, að jafnvel hinir tignu fengju réttláta meðferð, svo fremi verðir laganna hefðu elt þá og náð þeim, að armur laganna ætti sér engin takmörk. Hann starði á manninn sem drap án ástæðu, sem hafði aðeins fengið þessa löngun svo skyndilega og hann talaði í gegnum skikkjuna, svo djúpt og af ákveðni, og felldi af myndugleik dóm sinn til framkvæmdar og eftirbreytni: William Zanzinger fékk hálfs árs dóm. Ó, þið sem stundið heimspekilegar hugleiðingar um smán og gagnrýnið allan ótta, setjið klútinn fyrir andlitið því nú er kominn tíminn til að gráta.
Tímarnir breytast
(af plötunni The Times They Are A-Changin´)
Safnist saman, gott fólk, hvar sem þið eruð á flakki, og viðurkennið að vötnin umhverfis ykkur hafa vaxið. Sættið ykkur við að brátt verðið þið holdvot. Sé ævi ykkar þess virði að bjarga henni ættuð þið að leggjast til sunds, annars sökkvið þið eins og steinar því að tímarnir breytast.
Komið rithöfundar og gagnrýnendur sem spáið með pennum ykkar. Haldið augunum galopnum, tækifærið gefst ekki aftur. Takið ekki of fljótt til máls því að hjólið snýst enn og enginn veit á hvers nafni það lendir. Því þeir sem tapa núna munu vinna síðar því að tímarnir breytast.
Komið öldungadeildarmenn, þingmenn, sinnið kallinu. Standið ekki í dyragættinni, fyllið ekki gangana. Því að sá sem meiðist verður sá sem hindrar. Það er bardagi úti og hann geysar enn. Brátt mun hann hrista glugga ykkar og veggi því að tímarnir breytast.
Komið mæður og feður alls staðar frá. Gagnrýnið ekki það sem þið getið ekki skilið. Synir ykkar og dætur taka ekki lengur við skipunum ykkar. Gamli vegurinn ykkar eldist hratt. Farið út af nýju vegunum ef þið getið ekki rétt hjálparhönd því að tímarnir breytast.
Komið er að lokum, bölvunin hafin. Sá hægfara núna verður hraðfara síðar rétt eins og nútíðin núna verður síðar að fortíð. Reglan er á hröðu undanhaldi og þeir fyrstu núna verða síðastir síðar því að tímarnir breytast.
Stígvél úr spænsku leðri
(af plötunni The Times They Are A-Changin´)
Ó, nú sigli ég burtu, mín eina sanna ást. Ég sigli burt í fyrramálið. Er eitthvað sem ég get sent þér frá hinni hlið hafsins? Frá staðnum sem ég lendi á?
Nei, það er ekkert sem þú getur sent mér, mín eina sanna ást, það er ekkert sem mig langar til að eiga. Flyttu sjálfan þig aðeins óskemmdan til baka frá hinni hlið einmanalegs hafsins.
Ó, en ég hélt bara að þig kynni að langa í eitthvað fallegt, gert af silfri eða gulli, annaðhvort frá fjöllum Madridar eða af strönd Barcelónu.
Ó, en ef hefði ég stjörnur dimmustu nátta og demanta djúpasta sjávar mundi ég gefa þá alla upp á bátinn fyrir sætan koss þinn því það er allt sem mig langar til að eiga.
Kannski verð ég lengi í burtu svo það er allt sem ég bið um: Er eitthvað sem ég get sent þér til að minna þig á mig, til að létta þér stundina?
Ó, hvernig geturðu, hvernig geturðu spurt mig aftur? Það færir mér aðeins sorg. Það sama og ég þrái frá þér í dag, þrái ég aftur á morgun.
Ég fékk bréf einn einmanalegan dag. Það kom frá skipinu sem hún sigldi með. Í því segir: Ég veit ekki hvenær ég kem aftur. Það veltur á því hvernig mér líður.
Jæja, ástin mín, ef þú verður að hugsa þannig er ég viss um að hugur þinn er á reiki, viss um að hjarta þitt er ekki hjá mér heldur landinu sem þú stefnir til.
Gefðu því gaum, gefðu gaum að vestanvindinum, gefðu gaum að óveðrinu. Og raunar, það er eitt sem þú gætir sent mér, spænsk stígvél úr spænsku leðri.
Eirðarlaus kveðja
(af plötunni The Times They Are A-Changin´)
Ó, allir þessir peningar sem ég eyddi allt mitt líf hvort sem ég fékk þá með réttu eða röngu. Ég lét þá renna um greipar vina minna til að binda saman tímann með handafli. En flöskurnar eru tómar, við höfum tæmt þær allar. Og borðið er fullt og ofhlaðið og á skiltinu á horninu segir að nú sé komið að lokunartíma. Ég kveð því og held áfram veginn.
Ó, sérhver stúlka sem ég hef snert, ég gerði það ekki til að skaða hana. Og sérhver stúlka sem ég hef sært, ég gerði það ekki af ásettu ráði. En svo að við skiljumst sem vinir og bætum fyrir allt, þarftu þinn tíma og verður eftir. Og þar sem fætur mínir hlaupa og beinast brott frá fortíðinni kveð ég og held áfram brautina.
Ó, sérhver óvinur sem ég stóð frammi fyrir, málstaðurinn var þar áður en við birtumst. Og fyrir sérhvern málstað sem ég barðist fyrir barðist ég án iðrunar eða skammar. En myrkrið deyr þegar tjöldin eru dregin frá og augu einhverra hljóta að mæta dagrenningunni. Og ef ég sé dagsljósið þarf ég aðeins að dvelja lengur svo að ég kveð um nótt og fer.
Ó, sérhver hugsun sem hefur bundið hnút í huga mér, ég yrði geðveikur ef hann fengist ekki leystur. En það er ekki til að geta staðið nakinn fyrir óvitandi augum. Fyrir mig og vini mína eru sögur mínar sungnar. En tíminn er ekki hár í loftinu. Samt reiðum við okkur á tímann og orðin eru ekki eign neins sérstaks vinar. Og þótt línan sé rofin eru það engin endalok alls. Ég kveð aðeins þar til við hittumst aftur.
Ó, fölsk klukka reynir að tifar burt tíma minn til að smána mig, rugla og angra. Og skítur slúðursins feykist í andlit mér og rykagnir orðrómsins hylja mig. En sé örin bein og oddurinn skreipur, getur hann komist í gegnum rykið, sama hve þykkt það er. Svo að ég tek afstöðu og held áfram að vera ég sjálfur, kveð og læt mér standa á sama
Það er ekki ég, ljúfan
(af plötunni Another Side of Bob Dylan)
Farðu burt frá glugganum mínum, farðu á þeim hraða sem þú kýst. Ég er ekki sá sem þú vilt, ljúfan, ég er ekki sá sem þú þarft. Þú segist vera að leita að einhverjum sem er aldrei veikur, alltaf sterkur, til að vernda þig og verja hvort sem þú hefur á réttu að standa eða ekki, manni til að opna þér allar dyr. En það er ekki ég, ljúfan. Nei, nei, nei, það er ekki ég, ljúfan. Það er ekki að mér sem þú ert að leita, ljúfan.
Gakktu léttilega frá syllunni, ljúfan, gakktu léttilega á jörðinni. Ég er ekki sá sem þú vilt, ljúfan, ég mun aðeins bregðast þér. Þú segist vera að leita að einhverjum sem lofar því að yfirgefa þig aldrei, manni sem vill loka augum sínum fyrir þig, manni sem vill loka hjarta sínu, manni sem vill deyja fyrir þig og jafnvel meira. En það er ekki ég, ljúfan. Nei, nei, nei, það er ekki ég, ljúfan. Það er ekki að mér sem þú ert að leita, ljúfan.
Hverfðu aftur inn í nóttina, ljúfan. Allt hér inni er gert úr steini. Ekkert bærist hér inni. Og auk þess er ég ekki einn. Þú segist vera að leita að einhverjum sem mun reisa þig á fætur í hvert sinn sem þú hrasar, manni sem tínir stöðugt blóm og kemur í hvert sinn sem þú kallar. Manni sem er líftíðarelskhugi þinn og ekkert annað. En það er ekki ég, ljúfan. Nei, nei, nei, það er ekki ég, ljúfan. Það er ekki að mér sem þú ert að leita, ljúfan.
Ballaða í D-moll
(af plötunni Another Side of Bob Dylan)
Ég elskaði eitt sinn stúlku, hörund hennar var sem brons. Með sakleysi lambsins var hún viðkvæm eins og hindarkálfur. Ég biðlaði til hennar stoltur en nú er hún farin, farin eins og árstíðin sem hún tók með sér.
Í vorgolu hreif ég hana burt frá móður sinni og systur, þó héldu þær sig nálægt. Allar þjáðust þær vegna mistaka ævi sinnar. Með strengjum sektar sinnar reyndu þær af alefli að leiðbeina okkur.
Af systrunum tveimur elskaði ég þá yngri. Skyn hennar var næmt, hún var sú skapandi. Þar sem hún var stöðugur blóraböggul var auðvelt að skaða hana með afbrýði annarra í kringum hana.
Fyrir sníkjusystur hennar bar ég enga virðingu. Hún var fjötruð af eigin leiðindum, eigin metnaði í að vernda. Óteljandi sýnir hinnar speglaði hún sem hækju fyrir sínar eigin uppákomur og umhverfi.
Fyrir það sem ég gerði er ekki hægt að afsaka sjálfan mig. Breytingarnar sem ég gekk í gegnum er ekki einu sinni hægt að nota til að afsaka lygarnar sem ég bar á borð í þeirri von að missa ekki hana sem hefði getað orðið draumaástmær ævi minnar.
Af óþekktri meðvitund hélt ég í hendi mér stórkostlegum listmun þótt hjarta hans væri skörðótt og veitti því ekki athygli að ég var horfinn inn í synd falsks öryggis ástarinnar.
Frá útlínum reiðinnar til tilbúins friðar, tómlegra svara, radda sem þögðu þar til að við mér blöstu frá legsteinum skaðans engar spurningarnar, heldur: „Já, en hvað er að, hvað nákvæmlega er í ólagi?“
Og þannig gerðist það eins og sjá hefði mátt fyrir, tímalaus sprenging drauma ímyndunaraflsins. Á hátindi næturinnar hrundu kóngur og drottning og leystust upp til agna.
„Vesalings stúlkan!“ hrópaði systir hennar. „Láttu hana í friði. Til fjandans með þig, farðu út!“ Og ég sneri mér að henni í fullum herklæðum og negldi hana fasta við rústir smæðar sinnar.
Undir nakinni ljósaperu molnaði gifsið, systir hennar og ég í öskrandi bardaga. Og hún á milli, fórnarlamb hljóðsins. Brátt niðurbrotin, hún sem barn undir skuggum.
Allt er búið, allt er búið, viðurkenndu það, taktu flugið, stundi ég tvisvar og tvisvar sinnum það. Tárin blinduðu mig. Hugur minn var limlestur. Ég hljóp út í nóttina og skildi eftir mig ösku ástarinnar.
Vindurinn ber á glugga minn, herbergið er rakt. Afsökunarorðin hef ég ekki fundið enn. Ég hugsa oft til hennar og vona að hver sá sem hefur hitt hana geri sér fulla grein fyrir því hve dýrmæt hún er.
Nú, en fangelsisfélagar mínir spyrja: „Hversu gott, hversu gott finnst þér að vera frjáls?“ Og ég svara þeim á dulúðugan hátt: „Eru fuglarnir frjálsir frá hlekkjum himinsbrauta?“
Neðanjarðarheimþrárljóð
(af plötunni Bringing It All Back Home)
Johnny er í kjallaranum að blanda meðalið. Ég er uppi á gangstétt að hugsa um ríkisstjórnina. Maðurinn í rykfrakka, skjöldurinn út, til sýnis. Segist vera með vont kvef, vill láta múta sér. Gættu þín, drengur, það var eitthvað sem þú gerðir, guð veit hvenær, en þú ert enn að gera það. Flýðu heldur í skjóli húsasunda og leitaðu nýrra vina. Maðurinn með bjarnarskinnshattinn i stóru stíunni vill fá ellefu dollaraseðla. Þú átt bara tíu.
Maggie kemur snarfætt með andlitið fullt af svörtu sóti, segir að hitinn valdi plöntum í rúminu. Síminn er hleraður hvort sem er. Maggie segir að margir segi að þau hljóti að blómstra í byrjun maí. Fyrirmæli frá umdæmissaksóknaranum: Gættu þín, drengur, það skiptir ekki máli hvað þú gerðir. Gakktu á tánum. Reyndu ekki það sem ekki má. Haltu þig burtu frá þeim sem halda á slökkvislöngu. Haltu nefinu hreinu. Sjáðu þessi einföldu föt. Þú þarft engan veðurfræðing til að skilja hvaðan vindurinn blæs.
Vertu veikur, vertu hress, hangsaðu við blekbyttu. Hringdu bjöllu, erfitt að segja hvort eitthvað seljist. Reyndu til þrautar, láttu fangelsa þig, komdu aftur, skrifaðu blindraletur, farðu í steininn, stingdu af frá tryggingunni. Farðu í herinn ef þér mistekst. Gættu þín, drengur, þú verður skotinn. En notendur, svindlarar, margfaldir taparar hangsa fyrir utan leikhúsin. Stúlka við hringiðuna leitar sér að nýjum bjána. Fylgdu ekki foringjum. Fylgstu með stöðumælum.
Leyfðu þér að fæðast, vera hlýtt. Fáður þér stuttbuxur, ástarævintýri, lærðu að dansa. Klæddu þig, láttu blessa þig, reyndu að slá í gegn. Þóknastu henni, þóknastu honum, keyptu gjafir. Þú skalt ekki stela eða hnupla. Eftir 20 ára skólagöngu setja þeir þig á dagvakt. Gættu þín, drengur, þeir halda því öllu leyndu. Stökktu heldur niður í mannhol, kveiktu á kerti. Notaðu ekki sandala, reyndu að forðast hneykslin. Viljirðu ekki verða róni, skaltu heldur tyggja tyggjó. Dælan virkar ekki því að skemmdarvargarnir tóku handföngin.
Hr. tambúrínuleikari
(af plötunni Bringing It All Back Home)
Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Ég er ekki syfjaður og hef engan stað til að fara á. Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Í myrrakyrrafyrramálið ætla ég að fylgja þér.
Samt veit ég að heimsveldi kvöldsins hefur aftur breyst í sand og horfið milli fingra mér, skilið mig hér standandi í blindni en sofna ekki. Þreytan kemur mér á óvart, fætur mínir eru markaðir. Ég þarf engan að hitta og gamalt, autt strætið er of dautt til að dreyma þar.
Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Ég er ekki syfjaður og hef engan stað til að fara á. Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Í myrrakyrrafyrramálið ætla ég að fylgja þér.
Taktu mig með í ferð á iðandi töfraskipinu þínu. Skynfæri mín eru tóm og hendurnar finna ekkert grip. Tærnar eru of dofnar til að dansa og bíða þess eins að stígvélahælarnir gangi áfram. Ég er ferðbúinn hvert sem er, ég er tilbúinn til að hverfa inn í mína eigin skrúðgöngu. Fleygðu dansgöldrum þínum yfir mig, ég lofa að gangast undir þá.
Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Ég er ekki syfjaður og hef engan stað til að fara á. Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Í myrrakyrrafyrramálið ætla ég að fylgja þér.
Þó þú heyrir geðveikislegan hlátur, snúning, sveiflu upp yfir sólina, þá er henni ekki beint að neinum sérstökum. Hún sleppur bara út á flóttanum. Og fyrir utan skýin eru engar hindranir í vegi. Og ef þú heyrir óljós merki um skoppandi fjörugt lag að tambúrínunni þinni í tíma er það aðeins tötralegur trúður að baki þér. Ég mundi ekki gefa því neinar gætur, það er aðeins skugginn sem þú sérð hann eltast við.
Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Ég er ekki syfjaður og hef engan stað til að fara á. Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Í myrrakyrrafyrramálið ætla ég að fylgja þér.
Láttu mig síðan hverfa með þér í gegnum reykhringi huga míns, niður þokukenndar rústir tímans, langt fram hjá frosnum laufunum, hundelt, óttaslegin trén, út til storma strandarinnar, langt í burtu frá snúnum greipum geðveikrar sorgar. Samt dansa ég undir demantaskýjum og veifa frjálst með annarri hendi, útlínurnar ber við hafið umgirt af sirkussandi. Með allar minningarnar og örlögin kaffærð djúpt undir öldunum. Leyfðu mér að gleyma deginum í dag þangað til á morgun.
Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Ég er ekki syfjaður og hef engan stað til að fara á. Sæll, hr. tambúrínuleikari, leiktu söng fyrir mig. Í myrrakyrrafyrramálið ætla ég að fylgja þér
Því er öllu lokið, ljúfan mædda
(af plötunni Bringing It All Back Home)
Nú verður þú að fara, taktu með þér það sem þú þarfnast og heldur að endist. En því sem þú vilt halda, ættirðu að halda fast í. Þarna hinum megin stendur munaðarleysinginn þinn með byssu, öskrar eins og eldur sólar. Passaðu þig, dýrlingarnir eru að komast í gegn og því er öllu lokið, ljúfan mædda.
Þjóðvegurinn er fyrir fjárhættuspilara, notaðu heldur skynsemina. Taktu heldur það sem þér hefur safnast fyrir tilviljun. Tómhenti málarinn af strætunum þínum er að teikna geggjuð mynstur á blöðin þín. Og þessi himinn leggst saman yfir þér og því er öllu lokið
Allir sjóveiku sjómennirnir þínir róa nú heim á leið og hreindýraherirnir þínir eru líka á heimleið. Elskhuginn sem nýlega yfirgaf þig tók með sér ábreiðurnar sínar af gólfinu þínu. Teppið bifast líka undir fótum þér og því er öllu lokið, ljúfan mædda.
Skildu gangsteinana eftir, eitthvað kallar þig til sín. Gleymdu þeim dauðu sem eru að baki, þeir munu ekki fylgja þér. Flakkarinn sem hamast á dyrunum hjá þér, stendur þarna í fötunum sem þú áttir eitt sinn. Kveiktu á annarri eldspýtu, svona. Byrjaðu nýjan leik, því er öllu lokið, ljúfan mædda.
Eins og veltandi grjót
(af plötunni Highway 61 Revisited)
Eitt sinn klæddist þú svo fínum fötum í blóma þínum varst þú vanur að kasta skildingi til rónans, ekki satt? Fólk kallaði til þín: „Gættu þín, brúða, þú átt eftir að lúta lágt.“ Þú hélst að fólkið væri allt að stríða þér. Þú hlóst upphátt að öllum sem þvældust um. Nú talarðu ekki jafn hátt, nú ertu ekki eins hreykin af að þurfa að nurla saman fyrir hverri máltíð.
Hvernig finnst þér, hvernig finnst þér að eiga hvergi heima, eins og framandi gestur, eins og veltandi grjót?
Þú hefur svo sem gengið í bestu skóla, ungfrú Einsemd, en þú veist að þar lærðirðu aðeins að drekka. Og enginn hefur kennt þér hvernig á að lifa af á götunni. Nú skilurðu að þú verður að venjast því. Þú sagðist aldrei mundu sætta þig við málamyndun við dularfullan rónann. En nú skilurðu að hann er ekki að selja fjarvistarsannanir þegar þú starir í augu honum og spyrð hann: „Eigum við að semja?“
Hvernig finnst þér, hvernig finnst þér að vera upp á sjálfa þig komin og eiga enga stefnu heim, eins framandi gestur, eins og veltandi grjót?
Þú snerir þér aldrei við til að sjá yglibrúnina á töframönnum og trúðum sem stilltu sér upp og sýndu þér brögð sín. Þú skildir aldrei að það er til einskis, þú átt aldrei að láta annað fólk fá spörkin sem þér eru ætluð. Þú varst vön að spóka þig á krómhesti með diplómatanum þínum sem var með Síamskött á öxlinni. Er ekki erfitt að uppgötva að hann var eitthvað allt annað, þegar hann hann var búinn að stela af þér öllu sem hönd gat á fest?
Hvernig finnst þér, hvernig finnst þér að vera upp á sjálfa þig komin og eiga enga stefnu heim, eins og framandi gestur, eins og veltandi grjót?
Prinsessan í turninum og allt þetta fallega fólk, nú drekkur það og hugsar með sér að allt þetta tókst því. Það skiptist á dýrmætum gjöfum en þú ættir heldur að lyfta demantshring þínum, þú ættir að setja hann í pant, ljúfan. Þú hafðir alltaf svo gaman af að sjá keisarann í kotungsklæðum og hlusta á málið sem hann talaði. Gakktu nú til hans, hann kallar á þig, þú getur ekki neitað. Þeir sem ekkert eiga hafa engu að tapa. Núna ertu ósýnileg, þú átt engin leyndarmál til að fela.
Hvernig finnst þér, hvernig finnst þér að vera upp á sjálfa þig komin og eiga enga stefnu heim, eins og framandi gestur, eins og veltandi grjót?
Kona í rigningu nr. 12 og 35
(af plötunni Blonde on Blonde)
Nú, þeir setja þig í vímu þegar þig langar að vera svo góð, þeir setja þig í vímu eins og þeir sögðust ætla að gera, þeir setja þig í vímu þegar þú ætlar að reyna að komast heim og svo setja þeir þig í vímu þegar þú ert alein. En mér mundi ekki finnast ég vera svo ein, allir verða að komast í vímu.
Nú, þeir setja þig í vímu þegar þú gengur eftir götunni, þeir setja þig í vímu þegar þú reynir að halda sætinu, þeir setja þig í vímu þegar þú gengur um gólf og þeir setja þig í vímu þegar þú ferð til dyra. En mér mundi ekki finnast ég vera svo ein, allir verða að komast í vímu.
Þeir setja þig í vímu þegar þú ert að fá þér morgunmat, þeir setja þig í vímu þegar þú ert ung og fær, þeir setja þig í vímu þegar þú ert að reyna að vinna þér inn pening, og þeir setja þig í vímu og segja svo: „Gangi þér vel“. En ég get sagt þér að mér mundi ekki finnast ég vera svo ein, allir verða að komast í vímu.
Nú, þeir setja þig í vímu og segja að nú sé því lokið, þeir setja þig í vímu og svo koma þeir aftur, þeir setja þig í vímu þegar þú ekur í bílnum þínum og þeir setja þig í vímu þegar þú ert að leika á gítarinn þinn. Já en mér mundi ekki finnast ég vera svo ein, allir verða að komast í vímu.
Nú, þeir setja þig í vímu þegar þú gengur alveg ein, þeir setja þig í vímu þegar þú gengur heim á leið, þeir setja þig í vímu og segja svo að þú sért hugrökk og þeir setja þig í vímu þegar þú ert á leið í gröfina. En mér mundi ekki finnast ég vera svo ein, allir verða að komast í vímu.
Fastur á ný inni á Mobile með Memphis-þunglyndi
(af plötunni Blonde on Blonde)
Ó, tötrarinn teiknar hringi upp og niður eftir götunni. Ég gæti spurt hann hvað er að en ég veit að hann talar ekki. Og konurnar fara vel með mig og láta mig hafa nóg af hljóðsnældum. En djúpt í hjarta mér veit ég að ég get ekki sloppið. Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Nú, Shakespeare er í húsasundinu í oddmjóu skónum sínum og með bjöllurnar sínar. Hann er að tala við einhverja franska stelpu sem segist þekkja mig vel. Og ég myndi senda skilaboð til að komast að því hvort hún hefur talað en pósthúsinu hefur verið stolið og póstkassinn er lokaður. Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Mona reyndi að segja mér að halda mig fjarri járnbrautateinunum. Hún sagði að allir járnbrautamennirnir drykkju bara úr manni blóðið eins og vín. Og ég sagði: „Ó, ég vissi það ekki en ég hef raunar ekki hitt nema einn og hann reykti bara augnlokin í mér og sló í sígarettuna mína.“ Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Afi dó í síðustu viku og nú er búið að jarða hann uppi í klettunum. En ennþá tala allir ekki um annað en hve mikið áfall þeir fengu. En ég, ég átti von á því, ég vissi að hann var búinn að missa tökin þegar hann hlóð bálköst í Aðalstræti og skaut hann sundur og saman. Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Áðan kom þingmaðurinn hingað niður og sýndi öllum byssuna sína og deildi út ókeypis aðgöngumiðum að brúðkaupi sonar síns. Og ég, ég var næstum gripinn. Væri það ekki eftir mér að vera tekinn án aðgöngumiða og finnast undir flutningabíl? Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Áðan varð presturinn svo hissa þegar ég spurði hann hvers vegna hann væri klæddur í tuttugu pund af fyrirsögnum sem heflaðar væru á brjóstkassann á honum. En hann bölvaði mér þegar ég sannaði það fyrir honum. Síðan hvíslaði ég:
„Jafnvel þú getur ekki falist. Þarna sérðu að þú ert alveg eins og ég. Ég vona að þú sért ánægður.“ Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Áðan gaf regnmaðurinn mér tvo skammta. Svo sagði hann: „Hoppaðu upp í.“ Annað var lyf frá Texas, hitt var bara járnbrautargin. Og eins og asni ruglaði ég þeim saman og ég var alveg lokaður á eftir. Og nú verður fólkið bara ljótara og ljótara og ég hef ekkert tímaskyn. Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Þegar Ruthie segir: „Komdu og sjáðu hana í honky-tonk-lóninu þar sem ég get horft á hana dansa vals ókeypis undir Panama mánaskini“, og ég segi: „Æ, komdu, þú hlýtur að vita um fyrstu ástina mína“ og hún svarar: „Fyrsta ástin þín veit hvers þú þarfnast en ég veit hvað þú vilt.“ Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Nú liggja múrsteinarnir á Stórastræti þar sem neonljósabrjálæðingarnar klifra. Þeir detta allir þar á svo fullkominn hátt, tímasetningin virðist frábær. Og hér sit ég svo þolinmóður og bíð þess að komast að því hvaða verð þú verðir að greiða það að komast af eftir að þurfa að ganga í gegnum þetta allt tvisvar. Ó, mamma, getur verið að þetta séu lokin? Að vera fastur inni á Mobile með Memphis-þunglyndi?
Myndir af Jóhönnu
(af plötunni Blonde on Blonde)
Er þetta nú rétta nóttin fyrir töfrabrögð þegar þú reynir að vera svo hljóð? Við sitjum hér föst þótt við reynum öll að þræta fyrir það. Og Lovísa heldur á lófafylli af regni, reynir að fá þig til að ögra því. Ljósið blikkar í þakherberginu á móti. Í þessu herbergi hósta hitapípurnar. Sveitasöngvastöðin leikur ljúf lög en það er ekkert, alls ekkert sem ástæða er til að slökkva á. Aðeins Lovísa og elskhugi hennar svo samtvinnuð. Og þessar myndir af Jóhönnu sem sigra huga minn.
Í tóminu þar sem konurnar leika blindingjaleik með lyklakippuna og stúlkur næturinnar hvíslast á um flóttamenn úr D-lestinni getum við heyrt næturvarðmanninn kveikja á vasaljósinu sínu og spyrja sjálfan sig hvort það sé hann eða þau sem séu geðveik. Lovísa, hún er í lagi, hún er bara svo nærri. Hún er brothætt og virðist eins og spegillinn. En hún gerir það aðeins of nákvæmt og of skýrt að Jóhanna er ekki hér. Draugur rafmagnsins ýlfrar í beinum andlits hennar þar sem þessar myndir af Jóhönnu hafa nú komið í minn stað.
Núna tekur litli týndi drengurinn sjálfan sig svo alvarlega. Hann stærir sig af vesöld sinni, hann vill lifa áhættusömu lífi. Og þegar nafn hennar ber á góma, talar hann um kveðjukoss við mig. Vissulega hefur hann mikinn kjark að vera svona gagnslaus, muldrandi innihaldslaus orð að veggnum á meðan ég er úti á gangi. Hvernig get ég útskýrt þetta? Ó, það er svo erfitt að átta sig og þessar myndir af Jóhönnu héldu vöku fyrir mér fram yfir dagrenningu.
Inni á söfnunum er óendanleikinn fyrir rétti. Raddir bergmála að þetta hljóti að vera eins og frelsunin verði eftir skamma hríð. En Móna Lísa hlýtur að hafa verið haldin þjóðvegaþunglyndi, það sést á brosinu. Sjáið frumstætt veggblómið frjósa þegar konurnar með hlaupkenndandlitin hnerra. Heyrið manninn með yfirskeggið segja: „Jesús minn, ég finn ekki fyrir hnjánum.“ Ó, gimsteinar og sjónaukar hanga á haus múldýrsins, en þessar myndir af Jóhönnu gera þetta allt svo grimmdarlegt.
Ræðarinn talar nú við greifynjuna sem þykist láta sér annt um hann og segir: Nefndu mér einhvern sem ekki er sníkjudýr. Þá skal ég fara og biðja fyrir honum. En eins og Lovísa er vön að segja: „Maður getur ekki horft á margt, er það nokkuð?“ Og hún undirbýr sig sjálf fyrir komu hans og Madonna hefur enn ekki birst. Við sjáum nú þetta tóma búr ryðga þar sem herðaslá hennar áður flæddi. Fiðlarinn gengur nú út á veginn. Hann skrifar að öllu hafi nú verið skilað sem aðrir áttu upp á pall fiskflutningabílsins sem verið er að hlaða á meðan vitund mín springur. Munnhörpurnar leika beinagrindarlykla og rigningu og þessar myndir af Jóhönnu eru allt sem eftir er.
Þú, dapureyga kona frá Láglöndunum
(af plötunni Blonde on Blonde)
Þú með þinn kvikasilfursmunn á þessum trúboðstímum og augu sem reyk og bænir sem vers og silfurkross og rödd eins og bjöllur. Ó, hver af þeim halda þeir að geti jarðað þig? Þú, með vasa þína loksins vel verndaða og sporvagnsdrauma sem þú leggur í grasið og með hold eins og silki og andlit eins og gler. Hver af þeim halda þeir að geti borið þig? Þú dapureyga kona frá Láglöndunum, þangað sem dapureygir spámenn segja að enginn mannvera komi, hvað með vöruhúsaaugun mín, arabísku trommurnar mínar, ætti ég að skilja þær eftir við hlið þitt? Eða, þú dapureyga kona, ætti ég að doka við?
Þú sem átt lök eins og málm og belti eins og blúndu og ert með spilastokk án gosa og ása og ert í kjallarafötum og með holt andlit. Hver af þeim halda þeir að geti reiknað þig út? Með útlinur þínar þegar sólskinið dofnar, inn í augu þín þar sem mánaskinið syndir, með þína kappleikjasöngva og sígaunasálma. Hver af þeim mundi reyna að vekja aðdáun þína? Þú dapureyga kona frá Láglöndunum, þangað sem dapureygir spámenn segja að enginn mannvera komi, hvað með vöruhúsaaugun mín, arabísku trommurnar mínar, ætti ég að skilja þær eftir við hlið þitt? Eða, þú dapureyga kona, ætti ég að doka við?
Kóngarnir í Týrus með lista sinn yfir grunaða bíða í röð eftir geraniumkossi sínum og þú mundir ekki vita af því að það gerðist bara sísona. Hvern af þeim langar raunverulega til að kyssa þig? Þú með elda æskunnar á miðnæturteppinu og spánska framkomu þína og eiturlyf móður þinnar og kúrekamunn og útgöngubannskló. Hver af þeim heldurðu að gæti staðist þig? Þú dapureyga kona frá Láglöndunum, þangað sem dapureygir spámenn segja að enginn mannvera komi, hvað með vöruhúsaaugun mín, arabísku trommurnar mínar, ætti ég að skilja þær eftir við hlið þitt? Eða, þú dapureyga kona, ætti ég að doka við?
Ó, bændurnir og kaupmennirnir, þeir ákváðu allir að sýna þér dauðu englana sem þeir áður voru vanir að fela. En hvers vegna reyndu þeir að fá þig til að auðsýna málstað þeirra samúð? Ó, hvernig gátu þeir misreiknað sig svo um þig? Þeir vildu láta þig taka á þig sökina fyrir bóndabýlið. En þú sem ert með sjóinn við fætur þér og falska uppgerðarviðvörun og með þorparabarn í fangi, hvernig gátu þeir nokkurn tíma, nokkurn tíma fengið af sér að reyna að sannfæra þig? Þú dapureyga kona frá Láglöndunum, þangað sem dapureygir spámenn segja að enginn mannvera komi, hvað með vöruhúsaaugun mín, arabísku trommurnar mínar, ætti ég að skilja þær eftir við hlið þitt? Eða, þú dapureyga kona, ætti ég að doka við?
Þú með þitt málmblaðsminni um Cannery Row og tímaritaeiginmanninn sem dag einn þurfti bara að fara og með næmleika þinn núna sem þú sýnir án þess að vita af því. Hver af þeim heldurðu að vildi ráða þig í vinnu? Núna stendurðu með þjófnum þínum, þú ert á reynslulausninni hans með heilaga orðu sem fingurgómarnir lykjast um með þitt heilagleikaandlit og þína draugalegu sál. Ó, hver af þeim heldurðu að gæti tortímt þér? Þú dapureyga kona frá Láglöndunum þangað sem dapureygir spámenn segja að enginn mannvera komi, hvað með vöruhúsaaugun mín, arabísku trommurnar mínar, ætti ég að skilja þær eftir við hlið þitt? Eða, þú dapureyga kona, ætti ég að doka við?
Ég er einmana flækingur
(af plötunni John Wesley Harding)
Ég er einmana flækingur, á hvorki fjölskyldu né vini. Þar sem líf annars manns gæti byrjað, nákvæmlega þar lýkur mínu. Ég hef sýslað við mútur, fjárkúgun og svik og hef setið inni fyrir allt nema að betla á götum úti.
Jú, eitt sinn var ég efnaður og skorti ekki neitt. Ég var með 14 karata gull í munninum og silki við bakið. En ég treysti ekki bróður mínum og kom honum í smán. Það leiddi yfir mig örlagadóminn - að fara burt í skömm.
Ágætu herramenn og frúr, brátt verð ég horfinn á braut. En leyfið mér að vara ykkur við áður en ég held áfram. Haldið ykkur frá smásálarlegri afbrýði, lifið ekki eftir reglum annarra. Haldið dómgreind ykkar fyrir ykkur sjálf, annars endið þið á þessum vegi.