LJÓÐAÞÝÐINGAR


Ég hef alltaf haft sérstaka unun af að þýða erlend ljóð og koma þeim á gott íslenskt mál. Einkum hef ég haft unun af að þýða ljóð eftir erlenda höfunda sem þekktir eru en ekki svo mjög af ljóðum sínum, t.d. Maó formann, Hó Chí Mính, Dylan og Cohen. Þar að auki hef ég haft sérstaka unun af að kynna mér norska nútímaljóðlist og þýða sem mest af henni.