Augnablik og svipmyndir af fólki

 


Þegar ég datt á hausinn

Ég hef sennilega verið um 3-4 ára gamall þegar ég var úti í skúr með pabba. Hann lét mig sitja uppi á borði og var sjálfur að smíða eitthvað við hliðina á mér. Eins og krakka er siður gat ég ekki setið kyrr heldur mjakaði mér til og frá. Ég vildi sjá niður á gólfið því að þar var eitthvað sem barnshugurinn girntist. Skyndilega datt ég fram yfir mig og lenti með höfuðið á steingólfinu fyrir neðan. Ég man enn hvað mér fannst gólfið æða hratt á móti mér. Pabbi náði ekki að grípa í mig. Ég rotaðist og var borinn inn í rúm þar sem ég rankaði ekki við mér fyrr en 24 tímum síðar, að ég held. Þá var ég með alvarlegan heilahristing, stóra kúlu á enninu og sá allt í móðu. Síðan kom í ljós að ég var orðinn kolrangeygur.

Ég var rangeygur næstu árin. Reynt var að fá mig til að nota gleraugu en ég braut þau strax, var eitthvað óhress með að nota þau. Ég hafði ekki vit á að skammast mín fyrir rangeyguna enda háði hún mér lítið þessi fyrstu ár. En þegar ég kom í skólann 7 ára voru skólafélagarnir fljótir að átta sig á að þarna var einn sem lá vel við höggi og var mér óspart strítt. Í dag væri það kallað einelti. Þennan fyrsta vetur fékkst ég til að ganga með gleraugu til að rétta af augað sem horfði skakkt en ég gafst upp á því eftir vikuna. Nú hét það „Hí á gleraugnagláminn!“. Það var ennþá verra. Sumarið eftir sjö ára bekkinn virðist hafa hlaupið í mig einhver ofurkraftur því að þegar skóli byrjaði aftur að hausti var ég ekki lengur rangeygur, heldur var augað hlaupið yfir og ég orðinn örlítið tileygur og samhæfing augnanna rofin.

Mér skilst að vel hefði verið hægt að laga þetta með augnaðgerð en það var ekki gert. Ég fór því tileygur í gegnum lífið. Í kennslu hjálpaði það mér heilmikið. Krakkarnir vissu aldrei hvort ég var að horfa á þau eða ekki svo að ég hef séð ýmislegt til þeirra sem ég átti ekki að sjá.

 

Þegar ég týndi vikulaununum hans pabba

Pabbi vann við rafsuðu í Stálsmiðjunni um þessar mundir og kom heim í hádeginu hvern föstudag með launin sín fyrir vikuna. Það var orðið matarlaust í kotinu í eitt skiptið og pabbi bað mig sex ára guttann að skreppa í tvær búðir að kaupa mat og mjólk. Hann rétti mér 500 króna seðil sem var nánast allt kaupið hans þá vikuna og ég var hinn roggnasti að vera trúað fyrir svona miklum peningum og svo þýðingarmiklu erindi. Ég stakk seðlinum í vasann. Þegar ég ætlaði að borga fyrir kjötið í kjötbúðinni var seðillinn horfinn. Ég trúði þessu ekki og varð mjög örvæntingarfullur, hljóp út úr búðinni og leitaði um allt að seðlinum og þræddi nákvæmlega leiðina heim. Ekkert fannst. Ég þorði samt ekki að fara heim. Ekki af því að ég væri hræddur um að verða skammaður eða refsað, heldur miklu frekar hitt að ég skammaðist mín fyrir að hafa týnt seðlinum og valda mömmu og pabba þessum vandræðum. Og svo fengjum við ekkert að borða í heila viku!

Ég fór því ekki heim heldur rölti niður í Vatnagarða og hékk þar í þrjá klukkutíma og leið alveg hræðilega. Þá var ég orðinn viss um að strákur sem bjó í sama húsi og kjötbúðin var hefði fundið peningana og hirt þá. Eða annar sem bjó í næsta húsi. Þeir voru báðir eldri en ég. Ég fór þá heim og sagði mömmu frá öllu saman og grunsemdum mínum. Pabbi var farinn aftur í vinnuna. Hún skammaði mig lítið en ég sá að hún tók þetta mjög nærri sér. Og þá ég líka. Mamma gekk með mér upp í búðina og lét mig segja sér nákvæmlega hvar ég hefði gengið en við fundum ekkert. Hún bankaði svo upp á heima hjá strákunum sem ég grunaði. En enginn kannaðist við neitt, hvorki þeir né foreldrar þeirra sem var fátækt alþýðufólk eins og við. Þarna kynntist ég óheiðarleika og óréttlæti heimsins og hef ekki þolað óheiðarleika síðan.

 

Þegar litli bróður var tekinn frá okkur

Yngsti bróðir minn fæddist 23. júní 1954. Þá var mamma 34 ára gömul en pabbi 39 ára. Mamma var mikið veik, bæði andlega og líkamlega, eftir að hann fæddist svo að þær móðir hennar og systur komu til skjalanna og ein systranna bauðst á endanum til að taka drenginn og sjá um hann í nokkra daga eða vikur þar til mamma næði sér. Nú leið og beið, mömmu skánaði smám saman andlega en var áfram afskaplega illa haldin líkamlega. Krabbinn var farinn að láta á sér kræla. Hún taldi sig þó geta tekið við drengnum litla aftur og pabbi fór að huga að því að fá heimilishjálp til að létta róðurinn. Systirin kom því með litla guttann heim til okkar og allt virtist ganga vel. En systirin fylltist mikilli sorg að þurfa að sjá á eftir drengnum. Sorgin varð gífurleg og blandaðist annarri sorg, nefnilega þeirri að hún og eiginmaður hennar gætu ekki átt barn saman eins og þau þráðu. Hún féll niður í mikið þunglyndi og þær systur reyndu að gera allt sem hægt væri fyrir hana og ekki síður móðir hennar sem missti mann sinn um þetta leyti en hann lést í október 1954. Allt var reynt en kom fyrir ekki. Hún var gjörsamlega óhuggandi. Það var því ákveðið að litli bróðir okkar færi alfarið til þessara barnlausu hjóna.

Allir vissu að þetta væri endanlegt, líka við strákarnir og litla bróður var sárt saknað af allri fjölskyldunni. Í þessu andrúmslofti ólumst við bræðurnir þrír upp. Fjölskyldan var sjúk af sorg og fékk enga hjálp til að komast í gegnum hana. Ekki síst hafði þetta áhrif á yngsta bróður minn sem aldrei vissi heldur neitt af hvaða sökum ástandið var svona og fékk aldrei að vita. Honum var sagt að hann ætti mömmu og pabba í Reykjavík sem hann hitti raunar einstaka sinnum en skildi ekkert í hvers vegna það væri svo sjaldan. Honum hefur áreiðanlega sviðið mjög að fá ekki að kynnast betur bræðrum sínum og foreldrum. Pabbi gat aldrei rætt þetta við hann þegar hann var orðinn fullorðinn og sennilegast er að hann hafi ekkert af þessu vitað fyrr en við bræður hans sögðum honum undan og ofan af þessu síðustu vikurnar hans. Honum þótti dýrmætt að fá að vita þetta þá þótt seint væri.

Hann dó úr krabbamein á besta aldri, aðeins 49 ára gamall, nýorðinn faðir.

 

Þegar ég mölvaði búðarborð

Pabbi rak litla verslun í Efstasundinu í nokkur misseri og verslaði þar með vefnaðarvörur, sælgæti, leikföng og fleira smálegt. Við mamma skiptumst á að afgreiða í búðinni. Dag einn var ég að afgreiða og Árni vinur minn hjá mér að spjalla. Þá koma þar inn nokkrir strákar úr götunni, eldri en við, og tóku að stríða okkur. Einn þeirra tók xýlófón-leikfang og fór að hamra á það með litlum tréhamri á búðarborðinu sem var með glerplötu efst.. Ég bað hann að hætta þessu en hann lér sér ekki segjast heldur sló með hamrinum í nefið á mér af nokkru afli og þeir hlógu mjög að þessu. Ég snöggreiddist þessu, teygði mig í stólkoll sem ég var vanur að sitja á og reiddi hann hátt til höggs og ætlaði að láta vaða í hausinn á stráknum. Hann vatt sér auðvitað undan svo að kollurinn hafnaði á búðarborðinu og glerið splundraðist. Strákarnir stirðnuðu upp og þustu út. Við Árni stóðum stjarfir eftir en fórum svo í að tína saman grerbrotin og taka til eftir ósköpin.

Ég sagði pabba frá þessi þegar hann kom heim úr vinnunni og átti von á skömmum fyrir að hafa eyðilagt búðarborðið en hann tók þess af mestu hægð og taldi að strákurinn hefði átt skilið að fá stólinn í hausinn en taldi þó heppilegt að höggið hefði geigað. Ég fékk skýringuna á þessari hægð pabba þegar þau mamma fóru að ræða málið sín á milli. Strákurinn var sonur vörubílstjóra sem hafði verið verkfallsbrjótur í mjólkurflutningum skömmu áður þar sem pabbi var verkfallsvörður og hafði stillt sér upp fyrir framan bíl hans. Þrjóturinn hafði þá ekið á pabba sem stökk upp á stuðarann en fótbrotnaði við atvikið. Þeir hötuðust eftir þetta en höfðu verið sæmilegir kunningjar fram að því enda bara nokkur hús á milli þeirra.

 

Þegar lús kom fyrst inn á heimilið

Nei, við strákarnir bárum ekki lús inn á heimilið í Efstasundi í fyrsta sinn. Gömul einsetukona eða umrenningur sem verið hafði til heimilis á Hurðarbaki hjá foreldrum mömmu um langan aldur, sennilega fyrst sem vinnukona, kom til okkar til dvalar. Hún var ósköp fáskiptin og dul, vingjarnleg við okkur strákana, farin að reskjast nokkuð. Eftir fyrstu nóttina varð mamma vör við að hún bar með sér lús. Þá var gripið til þess ráðs að setja alla í lúsabað og greiða hár allra með lúsakambi, taka allan fatnað og sængurföt og þvo vandlega. Gamla konan var sett í föt sem mamma útvegaði og við settir í önnur föt, yst sem innst. Þetta tók allan daginn. Meira að segja pabbi var settur í þessa meðferð þegar hann kom heim úr vinnunni - og var ekki par hrifinn. Það vorum við ekki heldur. En þegar mamma hafði sýnt okkur nokkur kvikindi á hvítu laki, hættum við öllum mótbárum. Það kom svo í ljós að vesalings konan hafði verið með lús meira og minna alltaf því að hún vildi ekki fara í svo umfangsmiklar aðgerðir fyrir austan. En hún mótmælti mömmu ekki. Það þýddi ekki.

Þetta voru okkar fyrstu kynni af lús en ekki þau síðustu. Eftir að við byrjuðum í barnaskóla var það næstum árviss viðburður að við þyrftum að fara í svona meðferð, hvort sem við fundum lús eða ekki. Það var nóg að lúis væri komin í bekkinn.

Ekki skánaði það svo þegar njálgur fór af stað með tilheyrandi rasskláða og hundleiðinlegum hreinsunaraðgerðum. Þessi skaðræðisdýr hafa æ síðan verið svarnir óvinir okkar bræðra. Ég fæ enn hroll af að tala um þetta. En það er svo sem ekki að marka mig, ég hef alltaf verið hræddur við öll meindýr – lýs, mýs, njálg, rottur og fæ hroll af því einu að sjá sakleysisdýr eins og hamstra og býflugur, hvað þá vespur og bitmý.

 

Þegar ég reiddist dánum bróður

Áður en ég fæddist höfðu mamma og pabbi eignast 3 börn. Elsta barnið var drengur sem fæddist 24. júlí 1940, frumburðurinn og sólar­geislinn í lífi mömmu og pabba. Þann 4. júlí 1945 dundi reiðar­slagið yfir. Hreiðar litli fór gangandi að heiman til að hitta vin sinn í næstu götu. Mamma fylgdist með honum út um glugga og sá þegar slysið varð, bíll ók yfir hann. Við stýrið sat óreyndur ökunemi en í bílnum var ekki aukahemla­búnaður fyrir ökukennara. Pabbi var sóttur en hann var einmitt þennan dag að vinna í næsta nágrenni við skurðgröft. Hann fór með litla drenginn í fanginu á sjúkrahús en hann andaðist áður en þangað var komið.

Þegar þetta var höfðu þau misst tvær dætur. Sú eldri fæddist 7. október 1943, daginn eftir 28 ára afmælisdag pabba. Hún lifði þó aðeins í rúma fjóra mánuði, lést af lungnabólgu 21. febrúar 1944. Sú yngri  fæddist svo 19. desember 1944. Hún var veikburða frá upphafi svo að ákveðið var að skíra hana skemmri skírn. En allt kom fyrir ekki, hún lést úr heilahimnubólgu 11. febrúar 1945. Andlát hennar var samt slys, því að læknirinn sem fenginn var til hennar var drukkinn, ók út af á leiðinni til þeirra og kom ekki fyrr en mörgum klukkustundum síðar, illa til reika. Til að bæta gráu ofan á svart ákvað hann að hún væri bara með pest og ætti að ná henni úr sér af sjálfsdáðum. Nokkrum klukkustundum síðar var hún látin.

Svo fæddist ég, 16 mánuðum eftir að þau voru búin að missa þrjú fyrstu börnin sín. Þau pössuðu auðvitað firnavel upp á mig fyrstu árin en svo þegar ég varð eldri og óþekkari fékk ég að heyra hve bagalegt það væri að ég væri ekki eins þægur og góður og stóri bróðir minn hefði verið. Þetta sat í mér og lengi vel var ég reiður út í þennan fullkomna bróður sem ég þekkti ekkert en varð samt svo sterkur þáttur í mínu lífi.

 

Þegar ég fékk að sitja miðilsfund

Mamma var búin miðilshæfileikum. Sennilega hafði hún alla tíð haft dulræna hæfileika og verið jafnvel ofurnæm. Að minnsta kosti var hún alltaf afskaplega næm á líðan og hugsanir annarra. Hins vegar eru ekki heimildir um að hún hafi nýtt hæfileika sína fyrr en eftir að hún missti börnin sín þrjú.

Hún var oft önnum kafin við að spá í bolla fyrir fólk, aðallega þó konur. Hún þótti sérlega fær á því sviði og las oft miklu meira úr bollunum en þar rúmaðist. Stundum var hún í einhvers konar spátransi þegar hún spáði í bollana, horfði varla í þá en talaði og talaði. Þeir sem komu til hennar og hún spáði fyrir voru gjarnan konurnar í hverfinu og hálffullorðnar dætur þeirra. Einstaka karl eða strákur bað hana um að spá en þeir voru fáir og fóru laumulega að því. Þegar ég var orðinn unglingur spáði hún stundum fyrir mér og mér fannst mikið að marka þessa spádóma og fannst þeir koma fram.

Eftir að börnin þrjú dóu stundaði mamma síðan miðilsstörf með litlum hópi vina og vandamanna. Formið á þessum fundum var „andaglas“. Andaglasið var þó í rauninni aðeins formsatriði eða rammi utan um miðilsfundina sem fóru þannig fram:

Ljósin í stofunni voru slökkt og dregið fyrir gluggana en kveikt á kertum. Andaglasspjald var sett á kringlótta stofuborðið og þátttakendurnir settust allir í kringum borðið. Mamma sat alltaf á sama stað. Eftir nokkurra mínútna hljóða stund sýndi hún að hún væri tilbúin með því að leggja fingur á bollann. Aðrir viðstaddir fóru þá að dæmi hennar og hún fór fljótlega í einskonar hálftrans. Bollinn fór að hreyfast, fyrst hægt og síðan hraðar. Svo hætti bollinn að hreyfast en mamma talaði þess í stað og sagði hverjir væru komnir á fundinn handan að og hvaða skilaboð þeir hefðu. Fundirnir stóðu oftast í 60 - 90 mínútur. Auk stjórnanda og verndara voru margir framliðnir sem gerðu vart við sig á fundunum. Oftast komu nánustu ættingjar, nýdánir eða sem höfðu dáið löngu fyrr og ættingjar annarra sem tóku þátt í fundunum. Elsti drengurinn sem dó var fastur gestur á fundunum en einnig komu systurnar mjög oft.

Þeir sem tóku þátt í þessum miðilsfundum með þeim voru ýmsir og ekki alltaf þeir sömu. Þarna voru oft nágrannar og vinir, alloft ættingjar pabba og einstaka sinnum ættingjar mömmu, þó sjaldnar. Það var ekki fyrr en síðustu árin sem ég fékk leyfi til að vera með og það var mikil upplifun og hátíðlegar stundir fyrir mig. Stundum kom þó fyrir að við strákarnir laumuðumst til að vera inni í stofu og fylgjast með þegar við áttum að vera sofnaðir inni í svefnherbergi. Ég trúði því og trúi enn að þessi samskipti við handanheiminn hafi verið raunveruleg og sönn.

 

Þegar heimsstyrjöld var næstum skollin á

Ég hef verið svona 15-16 ára og hlustaði á útvarpið rétt áður en ég lagði af stað í efsta bekk í grunnskólanum. Þetta var 15 mínútna göngutúr svo að þá var tími til að hugsa margt. Ég fór að hugsa um fréttirnar af því að rússnesk kjarnorkuskip væru á leið til Kúbu og ætluðu að berjast við Bandaríkjamenn til úrslita. Þarn miðja vegu greip mig ofsahræðsla og ótti við að allir mundu deyja hér á Íslandi sem annars staðar. Þetta var skrítin og mjög yfirþyrmandi tilfinning. Allt varð svo tilgangslaust og mér datt ekki í hug að fara í skólann heldur reikaði um hverfið og vissi eiginlega ekkert hvert ég fór. Þegað bráði af mér var ég kominn niður að sjó og skólinn löngu byrjaður. Þá fór ég heim.

Æ síðan hef ég verið hernáms- og síðan hernaðarandstæðingur og friðarsinni og hef viðbjóð á öllum tegundum hernaðar. Bandaríkin hataði ég eins og pestina og gerðist mikill andstæðingur stríðsreksturs þeirra og ofbeldisverka í Víetnam og Kampútseu. NATÓ lít ég á sem hermannasamkundu sem við Íslendingar höfum ekkert að gera í. Þegar ráðist var á turnana tvo árið 2001 voru tilfinningarnar miklu hófstilltari. Að sumu leyti fannst mér Bandaríkjamenn eiga þetta skilið fyrir yfirgang sinn í heiminum þótt ég vorkenndi fórnarlömbunum innilega og hefði andstyggð á hermdarverkum af þessu tagi sem eru jafnvel enn verri en stríðsátök.

Stundum grípa friðelskandi menn til varna fyrir varnarbaráttu þjóða gegn utanaðkomandi hernaðarofbeldi. Ég tel að það samt ekki rétta leið, aldrei. Þótt friðsamlegri leiðir taki lengri tíma reynast þær betur til langframa og valda sennilega minni sárindum og ömurð.

 

Þegar ég varð ekki leikari

Ég var í 11 eða 12 ára bekk. Bekkurinn ætlaði að setja upp leikrit um árstíðirnar fyrir árshátíð skólans og kennarinn valdi mig til að leika Haustið. Ég var mjög upp með mér og spenntur, lærði fljótt það sem ég átti að segja og gera og mamma hjálpaði mér að útbúa búning sem hæfði hlutverkinu. Á þessum tímapunkti dreymdi mig um að verða stórleikari. Undirbúningstíminn var nokkuð langur og æfingar margar. En þegar líða tók að sýningu fór ég allur að spennast upp. Ég fékk í magann og daginn sem sýningin átti að vera ældi ég og engdist og komst bara engan veginn í skólann. Þar með missti ég af því að vera viðstaddur þennan fyrsta leiksigur minn.

Örlögin höguðu því þó svo að ég fékk annað tækifæri. Ég var þá búsettur á Akureyri og kynntist fólki úr Leikfélagi Akureyrar sem átti þá í miklum fjárhagserfiðleikum og hafði verið lokað. Ég tók að mér að semja kabarett sem fékk nafnið KABARETT og leikarar úr Leikfélagi Akureyrar æfðu hann og sýndu í Sjallanum við góðar undirtektir haustið 1980. Allur ágóði rann til leikfélagsins og allir sem að sýningunni komu lögðu fram vinnu sína endurgjaldslaust.

Síðar um veturinn var mér boðið að leika í uppfærslu leikfélagsins á Skáld-Rósu Birgis Sigurðssonar og þáði ég það. Ég mætti á fyrstu sýningu og allt gekk vel. Ég lék Pál Briem sýslumann, ástmann Skáld-Rósu. Á 6. sýningu gerðist þó hörmungin, ég gleymdi nánast öllum setningunum mínum á sviðinu. En fagfólkið bjargaði mér, hvíslarinn stóð rétt hjá mér og Sunna Borg sem lék á móti mér lagði mér orð í munn þannig að sjálfsagt tóku fáir eftir þessu. Þetta gerðist ekki oftar og mér tókst að komast í gegnum þetta til enda, einar 15-18 sýningar.

Veturinn eftir settum við Karl Jónatanson harmonikkuleikari saman upp annan kabarett, GRÁU HÁRIN, og fengum með okkur nokkra einstaklinga sem léku með. Hann stýrði stórsveit sem lék undir. Við sýndum í Sjallanum en þessi kabarett hlaut miklu minni undirtektir en sá fyrri.

 

Þegar ég gerði allt vitlaust í sveitinni

Eitt sumarið var mér komið fyrir í sveit. Þá hef ég verið 8 eða 9 ára gamall. Þetta var á bæ í Álftafirði. Ég var settur um borð í Esjuna aem sigldi í kringum landiðog var settur í land í Breiðdalsvík. Þar átti ég að gista í eina nótt en síðan færi ég með mjólkurbílnum inn í Álftafjörð. Þessi fyrsta nótt var ömurleg. Ég svaf í herbergi með fullorðnum þroskaheftum manni sem ég var logandi hræddur við, hafði aldrei kynnst slíku fólki. Um nóttina þurfti ég að fara á klósett en þorði ekki fyrir mitt litla líf að fara fram úr. Ég kúkaði því og pissaði í rúmið en ýtti lakinu til hliðar og sofnaði svo aftur. Um morguninn þorði ég ekkert að segja frá þessu, hafði ekki lyst á morgunmat og svo var farið með mig þangað sem mjólkurbíllinn var. Það hefur sennilega verið upplit á fólkinu þegar farið var að búa um rúmið eftir mig!

Ég var ósköp umkomulaus á leiðinni og ekki batnaði það þegar í sveitina kom. Bærinn sem ég átti að vera á næstu mánuðina var ómúrað og lhjótt íbúðarhús, eins konar annexía ungra hjóna frá bæ foreldra bóndans. Þar var svínabú og stórt hænsnabú, auk þess sem þau voru með eitthvað af kúm. Ég átti að fara með kýrnar út í haga, gefa hænunum og auk þess passa barn ungu hjónanna. Ég fékk heimþrá strax á fyrsta degi og bað um að fá að hringja heim. Ég bað mömmu um að leyfa mér að koma heim strax en það var ekki hlustað á það og ég beðinn að vera aðeins lengur og sjá hvort þetta lagaðist ekki.

Þá virðist ég hafa tekið til minna ráða og einsett mér að komast heim hvað sem tautaði og raulaði. Einn fyrsta daginn hleypti ég öllum hænununum út úr hænsnagirðingunni svo að það var mikið verk fyrir fjölda fólks að koma þeim aftur þangað inn. Svínunum þorði ég ekki að skipta mér af en einn daginn fór ég með barnið sem ég átti að passa út í móa og skildi eftir þar. Barnið hefur verið 4-5 ára og sjálfsagt færari en ég að rata um þessar auðnir. Ég villtist þarna í móunum og fannst ekki fyrr en fólk fór að leita að okkur. Þá lá ég grenjandi á milli þúfna og þóttist hafa týnt barninu. Svo var farið að leita að því og ég varð logandi hræddur um að það hefði farið sé að voða, eins og móðirin tönnlaðist á og skammaðist mikið í mér fyrir. Fullt af fólki var komið af bænum til að leita og á meðan fólkið leitaði lagðist ég aftur niður og faldi mig nilli þúfna og hæða, há grenjandi. Þar fannst ég svo löngu seinna eftir að barnið var fundið heilt á húfi.

Daginn eftir var hringt í mömmu og pabba og þeim sagt að ég kæmi með næstu ferð. Þá tók ég gleði mína og tíu dögum eftir að ég var sendur af stað var ég kominn heim. Ekki var reynt að senda mig í sveit eftir það.

 

Þegar ég horfði á bakið á pabba

Fljótlega eftir að ég fæddist fór pabbi að sinna nýju áhugamáli, að safna og versla með frímerki. Áður hafði hann um árabil bundið inn bækur og hélt því reyndar áfram talsvert lengur. Hvort tveggja var hugsað til að drýja tekjur heimilisins. Mamma var svo oft veik og heimilið stórt svo að hún vann ekki fyrir miklum tekjum. Skrifborðið hans pabba var inni í stofu upp við vegg og blasti við þegar gengið var framhjá dyrunum að stofunni. Það varð afskaplega venjuleg sjón þegar komið var inn á kvöldin úr leikjum í götunni að sjá pabba sitjandi við borðið að dunda í frímerkjunum sínum. Þessi mynd af bakinu á pabba greyptist inn í barnssálina. Einkum varð þetta áberandi þegar ástandið á heimilinu var erfitt og mamma og pabbi töluðust lítið við.

Sennilega hefur það verið tilraun mín til að tengjast pabba betur að ég fór að safna frímerkjum. Ég átti orðið gott safn af Íslandi, íþróttafrímerkjum, Evrópufrímerkjum, Rússlandi, Bandaríkjunum og Norðurlöndunum, meðal annars. Ég var þó ekki í því að selja og kaupa eins og pabbi. Stundum sátum við pabbi saman inni í stofu og dunduðum við frímerkin. Það voru góðar stundir. Hann sýndi frímerkjunum mínum áhugaog hrósaði mér fyrir söfnunina sem ég var ennþá duglegri við en hann.

Pabbi seldi frímerki seinna í Versluninni Sund í skúrnum heima og síðan í Safnarabúðinni sinni sem hann starfrækti á Laufásvegi, Laugavegi og síðast á Frakkastíg. Ég geymdi hins vegar söfnin mín árum saman en bætti engu við. Svo fór ég smám saman að gefa þau og á nú aðeins eftirhreytur af þeim sem ég geymi til gamans og í minningu pabba.

Bræður mínir tengdust líka þessari söfnun. Næstelsti bróðirinn fór smam saman að starfa með honum í Safnarabúðinni og tók síðan alfarið við rekstrinum. Þriðji bróðirinn safnaði dálítið eins og ég en fór svo í að reyna að selja túristum frímerkjapakka í fallegum umbúðum. Því lauk með því að frímerkjunum hans var stolið og þau eyðilögð af ógæfufólki.

 

Þegar séra Árelíusi var strítt

Sá mæti prestur, sr. Árelíus Níelsson, fermdi mig. Fermingarfræðslan var sérlega eftirminnileg og vel skipulögð, verkefnin gefandi og þroskandi. Samt var það nú svo að stór strákahópur gerði sífellt gys að honum og hæddi, ekki bara á bak, heldur beint. Bréfkúlum var fleygt í hann, gipið fram í fyrir honum og snúið út úr fyrir honum, Ísrael og Gyðingum hallmælt og hvers konar guðlast haft í frammi. Þegar verst lét grét sr. Árelíus höfgum tárum. Hann skildi ekki hvers vegna börnin voru svona vond. Ég var það sem kallaðist meðreiðarsveinn í þessu einelti, tók ekki þátt í því en hló með hinum og reyndi aldrei að stöðva það. Allan tímann sem þetta stóð yfir skammaðist ég mín og var sr. Árelíusi raunar reiður fyrir að láta þetta viðgangast. Um leið fann ég til með honum og innra með mér grét ég með honum.

Löngu síðar starfaði ég við útgáfustjórn og þá kom sr. Árelíus gangandi að heiman frá sér með kassa fullan af handskrifuðum blöðum. Þetta var ævisaga hans. Hann vildi að hún yrði gefin út og kvaðst gjarnan vilja borga fyrir það. Ég tók það auðvitað ekki í mál, minnugur þess miska sem við fermingarbræður höfðum valdið honum forðum, við værum tilbúin hjá forlaginu til að gefa hana út á eigin kostnað og reyna að selja hana fyrir kostnaði. Við bundum þetta fastmælum og var nú hafist handa við að slá textann inn. Ég tók að mér að ritstýra verkinu en þurfti fátt að gera annað en fjölga greinaskilum sem voru örfá og skipta ævisögunni í kafla. Málfar og stíll voru framúrskarandi og ritvillur engar.

Bókin kom svo út haustið 1988 og nefndist Horft um öxl  af Hálogalandshæð. Hún seldist nokkuð hægt en örugglega og stóð undir sér að mestu en skilaði litlu til forlagsins eða höfundar. Ég fór með sr. Árelíusi á ýmsa staði til að árita eins og venja er. Meðal annars fólrum við á Stokkseyri þar sem sr. Árelíus hafði eitt sinn þjónað. Enginn mætti til að fá áritað. Á leið okkar út úr bænum ókum við framhjá kirkjugarðinum. Þá varð sr. Árelíus að orði: „Hér hvíla þeir sem hefðu kannski keypt bókina mína.“

Fjórum árum síðar var hann allur, 82 ára að aldri. Blessuð sé minning hans.

 

Þegar ég var trúnaðarvinur mömmu

Mömmu leið mjög illa andlega eftir að krabbameinið byrjaði að herja á hana. Það stóð lengi. Eftir að yngsti bróðirinn fæddist fékk hún krabbamein í brjóst og var það tekið. Seinna var hitt tekið. Þá fékk hún krabbamein í móðurlífið og var legið þá fjarlægt. Eftir það varð hún reyndar ófrísk og fóstrið óx þarna utanlegs í nokkrar vikur en síðan missti hún það eins og viðbúið var. Hún fékk nokkurn frið fyrir krabbameininu í nokkur ár en svo kom það á ný með tvíefldum krafti og lagðist á bein , lungu og eitla og fylgdi því mikill sársauki.

Mamma varð á þessum árum afar þunglynd og þurfti um skeið að leggjast inn á geðdeildir. Pabbi varð líka þunglyndur af þessu öllu og sambandið milli þeirra varð mjög slæmt, stundum ískalt. Pabbi vissi ekkert hvernig hann gæti brugðist við. Heilu vikurnar og mánuðina töluðust þau ekki við. Einu samskipti þeirra voru á miðilsfundunum sem þau héldu áfram að halda. Sennilega bjargaði það geðheilsu þeirra beggja.

Þegar ástandið var sem verst og þau áttu ekkert sálufélag var það ég, elsti sonurinn, sem varð trúnaðarvinurinn. Samt var ég bara unglingur og hafði engan veginn þroska til að takast á við það. Ég þurfti að hlusta á allar hennar raunir og reyna að hugga hana, sem ég kunni ekki, og varð auk þess að taka heilmikla ábyrgð á yngri bræðrunum. Þegar leið að lokum sagði mamma mér að hún væri alls ekki með liðagigt eins og látið hafði verið í veðri vaka, heldur væri hún með ólæknandi krabbamein. Ég mætti samt ekki segja pabba það. Hann fengi að vita það nógu fljótt.

Ekki nóg með það. Læknarnir máttu að beiðni pabba ekki segja mömmu að hún væri með krabbamein. Hann kallaði eitt kvöldið á mig og sagði mér að mamma væri með krabbamein og mundi deyja úr því. Ég mætti samt alls ekki segja mömmu það og ekki minnast á það við yngri bræðurna. Þeir héldu því allt til loka að hún væri með svona illvíga liðagigt og liðabólgur. Þarna var ég líka orðinn trúnaðarvinur pabba.

Þegar mamma dó 1965 var ég 18 ára og yngri bræður mínir tveir 16 og 13 ára. Sá yngsti sem ólst upp hjá systur mömmu var aðeins 11 ára.

 

Þegar ég hljóp fram úr sjálfum mér

Ég ólst upp við þá móðurmjólk að vera af Hurðarbaksættinni. Það fól í sér að fylgjast náið með glímuafrekum móðurbræðra minna og að eltast við öll glímumót sem haldin voru í Hálogalandi, venjulega á messutíma á sunnudögum. Samtímis bárust stanslausar fréttir af því austan úr Flóa að frændsystkini höfundar væru sífellt að sigra á alls kyns íþróttamótum.. Þetta hafði áhrif á saklausa barnssálina sem varð strax handviss um meðfædda íþróttahæfileika sína og fullvissu um að komast langt á þessu sviði. Annað kom í ljós þegar frá leið.

Eitt vorið var íþróttafélag með útiæfingar á Kleppstúni, rétt neðan við Brákarborg. Ég rölti þangað og ákvað að prófa að taka þátt í tímatöku í 100 metra hlaupi. Þá gerðist það að ég hljóp hraðar en ég hef nokkru sinni gert, fyrr eða síðar, og fékk tímann 11,9 sek. Ég var 10 ára um þetta leyti.

Ég veit ekki hvað skýrir þennan tíma. Kannski var skeiðklukka þjálfarans biluð, lengd brautarinnar röng eða meðvindurinn meiri en gáðu hófi gegnir. Kannski var ég bara svona fljótur að hlaupa þennan dag.

Þetta efldi hins vegar mjög áhuga minn á að taka þátt í og fylgjast með íþróttum. Ég hvatti strákana mína til að taka þátt í íþróttum og var virkur íþróttapabbi, fór til dæmis í keppnisferð með þeim til Færeyja, auk ýmissa ferða út um land.

 

Þegar ég stofnaði urmul íþróttafélaga

Í Kleppsholtinu var ekkert íþróttafélag starfandi. Ég sá við því. Vorið sem ég var átta ára, þann 21. maí 1955, stofnaði ég tvö félög. Frjálsíþróttafélag Vaskra Drengja, skammstafað FVD, og Glímufélag Vaskra Drengja, skammstafað GVD. Í félögunum voru auk mín aðallega vinur minn og jafnaldri og tveimur árum yngri bróðir. Þessi tvö félög störfuðu á Kleppstúninu í að minnsta kosti sex ár.

Félögin urðu fleiri. Þann 31. maí 1956 höfðum við eignast fótbolta og stofnuðum þá Knattspyrnufélagið Óðinn, skammstafað KFÓ. Þann 21. júlí 1958 stofnaði höfundur Sundfélagið Hafþór, skammstafað SFH. Eina keppnisgreinin var 200 metra sund með frjálsri aðferð. Metin eru týnd en eru sjálfsagt skráð í skýrslur Norrænu sundkeppninnar sem Íslendingar og þar með félagar SFH sigruðu í ár eftir ár þar til aðrar norrænar þjóðir sáu sitt óvænna og lögðu keppnina niður.

Ég minnist þess einnig að hafa stofnað eitt ólöglegt íþróttafélag. Þetta var Hnefaleikafélag Vaskra Drengja, skammstafað HVD. Mamma saumaði handa mér tvo boxhanska. Félagarnir voru þrír, ég og tveir vinir mínir. Bróður mínum var bannað að vera með af því að mamma vildi ekki leyfa eldri strákunum að berja hann. Hann var tveimur árum yngri en við. Þremenningarnir æfðu þannig að tveir og tveir æfðu í einu í bílskúrnum í Efstasundi 28. Þegar við æfðum hafði hvor einn boxhanska. Þar sem ég átti hanskana var ég alltaf með hægri hanskann þegar ég æfði. Svo reyndum við að kýla hver annan eftir bestu getu eftir gamalli kennslubók í hnefaleikum sem hét Kennslubók í hnefaleikum eftir Edvin L. Hajslet (1948), þýdd af Eggert G. Þorsteinssyni. Æfingar félagsins fengu snöggan endi skömmu eftir stofnun þess. Mér tókst að koma góðri hægri handar sveiflu beint á hökuna á öðrum vini mínum svo að hann seig út af og hálfrotaðist. Þegar hann kom til sjálfs sín reif hann af sér hanskann og strunsaði út. Við tveir sem eftir vorum nenntum ekki að halda þessu áfram. Við vorum of góðir vinir til að vilja vera að lemja svona hvor annan.

 

Þegar ég kvaldist í íþróttum

Árið 1991 fór ég að kenna úti á landi. Þar voru strákarnir synir mínir áfram í íþróttunum og gengu í ungmennafélag sveitarinnar. Ég var drifinn í það líka og náði meira að segja að verða HSK-meistari í frjálsum með félaginu. Það var þannig að félögin innan Skarphéðins kepptu sín á milli með því að safna stigum fyrir þátttöku. Ég fór með í að safna stigum fyrir félagið og stökk þrístökk (ekki í gaddaskóm) og langstökk og fór rúman metra í hástökki, auk þess sem ég hljóp 100 metrana á hálfri mínútu eða svo. En svo kom vandamálið. Ég fengi ekki stigin nema hlaupa 1500 metrana á undir hálftíma.

Fyrir mér var tíminn ekki aðalvandamálið, heldur að komast þetta, enda reykti ég á þessum árum og var 30 kílóum þyngri en nú eða um 120 kg. En þetta tókst með því að Ólafur Elí Magnússon formaður félagsins og þjálfari gekk með mér alla hringina og studdi mig og hvatti þar til ég komst í mark. En ég var ekki hæfur til kennslu daginn eftir, tilkynnti mig mikið veikan.

Þarna tókst mér einnig að láta þann draum minn rætast að komast í fótboltalið. Þegar nemendur skoruðu á kennara í kappleik vantaði markmann. Ég fékk lánaða gula vinnuvettlinga og stóð í markinu með prýði. Þau tuttugu mörk sem nemendur skoruðu í leiknum voru ekki mér að kenna, heldur afspyrnulélegum varnarmönnum kennara.

Hitt var verra að undir lok fyrri hálfleiks þegar ég sparkaði frá marki í fyrra skiptið sem mér tókst að verja skot, sparkaði ég svo fast að ég tognaði í lærinu. Eftir það varð ég að biðja aðra í liðinu að sjá um útspörkin. En ég kláraði þó leikinn. Ég var haltur í þrjár vikur eftir þetta.

Eftir þetta hef ég verið afar tortryggin á áhrif afreksíþrótta á heilsufar. Einn góður læknir hefur orðað það svo að afreksíþróttir séu beinlínis heilsuspillandi.

 

Þegar mér brást bogalistin í matargerð

Ég nefni það víst sjaldan of oft að ég var elsti sonurinn í húsinu. Þegar mamma var lasin eitt sinn og pabbi að búa sig í vinnuna tók ég að mér að hræra skyrið. Það skyldi verða gott skyr, það besta sem við hefðum smakkað. Ég setti auðvitað rjóma í skyrið, mikið af sykri og bræddi meira að segja súkkulaði í það.

Ég hrærði þetta allt í hrærivélinni og setti loks egg út í. Skyrið varð ljósbrúnt að lit og afskaplega lystugt. Frekar þunnt og rann vel. Ég setti síðan á diska fyrir okkur alla fjóra og kallaði svo á strákana og pabba. Sá yngsti var fyrstur til að fá sé að smakka og leitt upp og sagði hreinskilnislega: „Það er vont“. Ég taldi þetta hreinustu bábilju og fékk mér væna skeið og renndi hanni strax niður. Mér fannst ég loga að innan og segi það satt að aldrei hef ég smakkað neitt svo vont á bragðið. Ég öskraði upp og hljóp inn á bað og reyndi að losna við bragðið úr munninum. Þegar ég kom fram voru strákarnir báðir flúnir úr eldhúsinu og pabbi spurði mig hvað í ósköpunum ég hefði sett út í skyrið. Þá kom í ljós að ég hafði ekki sett sykur í það, heldur heila lúku af salti. Ég ráðlegg engum að prófa það. Pabbi var orðin tímalaus og þurfti að drífa sig í vinnuna svo að hann lét sig hafa það að borða skyrið sitt en gretti sig ógurlega. Um leið og hann var farinn hellti ég öllu skyrinu sem eftir var, ég ætlaði ekki að láta mömmu smakka á þessum óþverra.

Ég reikna með að pabbi hafi sagt mömmu frá þessu versta skyri í heimi en það var aldrei minnst á það meir. Takk, mamma og pabbi. Seinna lærði ég smám saman að elda einfaldasta mat en þegar ég var einn með strákunum var þó einkum þrenns konar matur vinsælastur: pizzur, pylsur og hamborgarar.

 

Þegar ljóð eftir mig var lesið í kirkju

Mamma dó 23. nóvember 1965 og var jörðuð nokkrum dögum síðar frá Laugarneskirkju af gamla sóknarprestinum þeirra, sr. Garðari Svavarssyni. Mér gekk illa að syrgja, gat ekki grátið mömmu. Kannski hafði ég löngu syrgt hana þegar ég vissi að hverju dró. Pabbi var fremur dapur og framkvæmdalaus við undirbúning jarðarfararinnar svo að margt lenti á mér. Ég fór til dæmis á Vífilstaði til að sækja dánarvottorðið hennar og koma því á viðeigandi staði. Ég orti einnig erfiljóð um hana og fékk vin minn til að fjölfalda það til að dreifa í kirkjunni. Það birtist einnig í Mogganum á jarðarfarardaginn.

Pabbi eða Óli bróðir hans höfðu látið sr. Garðar fá ljóðið mitt, með mínu samþykki reyndar. Ég átti hins vegar ekki von á því að hann færi að lesa það allt í kirkjunni sem hann gerði. Kirkjugestir grétu hástöfum undir lestrinum og sr. Garðar gat varla lesið það fyrir eigin ekka. Ég var auðvitað að rifna úr stolti og ljómaði af gleðiþarna innan um grátandi fólkið. En undir lokin tókst mér samt að kreista fram nokkur tár.

Frá þeirri stundu vissi ég að mig langaði til að yrkja ljóð um ævina, verða ljóðskáld. Ljóð eftir mig hafa síðar verið lesin í kirkju og ég sjálfur las til dæmis ljóð í kirkjulegri minningarstund um Sigga bróður. Reyndar hafa tækifærisljóð verið helstu ljóðin mín um ævina og ég geri svo sem ekki lítið úr þeim. Þau gleðja oft meira en ljóð í ljóðabókum. Reyndar hef ég gefið út þrjár ljóðabækur á efri árum, fannst ég þurfa að koma þeim frá mér. Og væntanlega er ég ekkert hættur ljóðasmíðum enda frekar lélegur smiður á öðrum sviðum.


Þegar ég eignaðist fyrsta bílinn

Þegar ég var 16 ára gamall þráði ég heitt að eignast bíl og beið í ofvæni eftir bílprófinu. Ég held að það hafi verið aðalástæðan fyrir því að ég tók mér eins árs hlé frá menntaskólanámi og fór að vinna. Ég vann við járnabindingar í eins konar akkorði og hafði talsvert upp úr mér. Var jafnvel farinn að hugsa um að stofna járnabindingaflokk og hætta öllu námi. Hvað um það, sumarið 1963 keypti ég bíl, Ford árgerð 1950. Ég var þá byrjaður í ökunámi en átti talsvert eftir til að teljast fullnuma. Ég fékk þann sem seldi mér bílinn til að aka honum heim og leggja honum fyrir framan húsið. Svo fór ég hvenær sem laus stund var og mátaði mig við bílinn, þreif hann og bónaði. Rosalega var ég stoltur af honum. Daginn fyrir 17 ára afmælið tók ég svo bílprófið og gekk vel og fékk svo skírteinið afhent á afmælisdaginn.

Á þessum bíl var svo ekið um allar trissur næsta árið. Honum var gefið heitið GULA HÆTTAN enda með gulan efri hluta og topp. Hann bilaði lítið svo að þetta gekk nokkuð vel og ég lenti ekki í neinum stóráföllum. Þegar málin æxluðust svo að ég ákvað að halda áfram námi seldi ég bílinn til að eiga fyrir helstu útgjöldunum fyrsta veturinn minn á Laugarvatni.

Mér þótti afar skemmtilegt að aka bíl á þessum árum og fann fyrir því frelsi að geta farið hvert sem er. Einnig var mér það mikils virði að eiga eitthvað sjálfur sem skipti máli. Líklega skipti það mestu. Í rauninni hef ég aldrei haft neinn sérstakan áhuga á bílum til annars en að komast á milli staða – og á þessum árum að geta boðið öðrum unglingum með mér í bíltúr. Það gerði mig vinsælan.

 

Þegar ég var rotaður

Ég fór eitt sumar á þriggja eða fjögurra vikna námskeið á skólaskipi á vegum Reykjavíkurborgar. Mér þótti það svo gaman að í þrjú sumur á milli menntaskólaára fékk ég pláss á síldarbátum. Mamma og pabbi þekktu til stýrimannsins á því fyrsta, Skipaskaga AK. Ég var yngstur um borð og alger rati í flestu sem sneri að sjómennsku. Um borð voru þó nokkrir strákar svona 2-4 árum eldri sem vildu gjarnan kúska þennan menntaskólastrák til. En stýrimaðurinn hélt yfir mér verndarhendi og tókst að afstýra einelti um borð.

Eitt af því sem ég gerði mér til dundurs um borð var að yrkja vísur, aðallega kersknisvísur um skipverjana um borð, allt frá skipstjóra til hásetanna. Flestir hinna eldri tóku þessu vel og hlógu að vísunum og hældu mér fyrir þær en yngri strákarnir voru heldur viðkvæmari og hældu mér hreint ekki.

Svo var það einn daginn að báturinn var í landi vegna brælu og skipverjar bjuggu sig undir að skemmta sér um kvöldið, voru búnir að útvega sér áfengi. Þeir reyndu mikið til að fá mig til að fá mér sopa með þeim en ég fékkst ekki til þess. Svo vildi til að ég stóð við matarborðið í messanum og átti einhver orð við einn af strákunum sem voru lítið eldri ég en þá kemur inn annar. Hann gengur rakleiðis að mér og kýlir mig beint á hökuna svo að ég steinlá yfir borðið en ranka við mér eftir nokkrar sekúndur.

Þá vildi svo til að stýrimaðurinn var að koma inn í messann og sá hvað gerðist. Hann hafði engar vöblur á en kýldi strákinn sem sló mig og steinrotaði hann. Hánn lá þarna hreyfingarlaus og stýrimaðurinn sagði hinum strákunum að fara með hann í koju og láta hann sofa úr sér.

Honum auðnaðist ekki að skemmta sér neitt þetta kvöldið en ég jafnaði mig. Ég man hvað ég var ringlaður og hræddur þegar ég var að ranka við mér. Stýrimaðurinn ráðlagði mér að yrkja ekki svona mikið um skipverjana. Þeir yrðu ánægðari ef ég gerði vísur um stelpur og kvennaför og yfirmennina um borð.

 

Þegar ég flaug í þrístökki

Veturinn 1961-1962 gekk ég í Frjálsíþróttadeild Ármanns. Ég sótti æfingar, þá fimmtán ára, og stóð mig bara nokkuð vel innan félagsins. Þann 17. júni árið 1962 átti ég að taka þátt í mínu alvöru frjálsíþróttamóti á Laugardalsvellinum. Ég skráði mig í langstökk, þrístökk og 100 metra hlaup.

Ég mætti með glænýja gaddaskó sem ég hafði fengið lánaða hjá frænda mínum en hafði ekki haft tíma til að máta þá eða æfa mig á þeim fyrir keppni. Fyrsta keppnisgreinin var þrístökk og fyrsti keppandinn var ég. Ég tók glæsilega atrennu, hljóp á miklum hraða að plankanum, hitti hárnákvæmt á hann og spyrnti mér frá jörðu með miklum krafti sem margfaldaðist við langa gaddana undir skónum. Sennilega hefur aldrei sést jafn langt og glæsilegt fyrsta stökk í þrístökki á Laugardalsvelli fyrr né síðar, að stökkum Vilhjálms Einarssonar meðtöldum. Lengd og hæð stökksins komu mér í opna skjöldu. Jafnvægið riðlaðist í lokin og ég kom skakkt niður á fótinn við lendingu. Ég fann ægilegan sársauka í ökklanum og lyppaðist niður á stökkbrautina, svona einn til tvo metra frá sandgryfjunni. Þetta var ægilega sárt fyrst en svo dofnaði fóturinn. Ég var hættur að finna til þegar kom að mér aftur í næstu umferð. Ég gerði því aðra tilraun en hún fór út um þúfur. Mér tókst tilhlaupið vel. Þó ég færi varlega og stykki af ásettu ráði mjög stutt í fyrsta uppstökki gaf fóturinn sig og ég haltraði á öðrum fæti til dómaranna og sagði sig úr keppni. Strax eftir stökkið lét ég einnig vita að ég tæki heldur ekki þátt í 100 metrunum eða langstökkinu. Ég fékk síðan ís á fótinn, klæddi mig endanlega úr gaddaskónum og settist upp í stúku. Ég gekk síðan við hækju og staf næstu vikur.

Andlega gerði þetta út af við íþróttadrauma mína. Ég er alla tíð síðan veikur fyrir í ökklanum og á vanda til að misstíga mig.

 

Þegar ég barðist fyrir Lídó

Á unglingsárum mínum var aðeins einn skemmtistaður þar sem fólk undir áfengiskaupaaldri mátti skemmta sér. Það var Lídó. Hljómsveit Svavars Gests lék fyrir dansi og krakkarnir dönsuðu af hjartans list. Svo bárust fréttir af því að til stæði að loka skemmtistaðnum og þar með skrúfa fyrir að æskufólk sem ekki hefði aldur til að komast inn á vínveitingastaði gæti skemmt sér. Ég og bekkjarfélagi minn tókum okkur til og útbjuggum undirskriftalista og fjölrituðum og fórum síðan að safna undirskriftum gegn þesari ákvörðun. Okkur tókst að komast í blöðin með listann og eftir það gekk okkur mjög vel að safna undirskriftum. Við fórum í skóla og söfnuðum líka hér og þar þar sem ungt fólk var á ferli og náðum nokkur þúsund undirskriftum. Það var þó ekki nóg til að ráðamönnum hjá borginni snerist hugur og Lídó var lokað.

Hvort sú athygli sem þessi undirskriftasöfnun varpaði á aðstöðuleysi unglinga átti síðar meir sinn þátt í stofnun félagsmiðstöðva fyrir ungt fólk skal ósagt látið en það væri ekki verra. Það eina sem í boði var á þessum tíma var skátahreyfingin og KFUM og KFUK en á engum þeirra gátu kynin hist og kynnst. Svo voru það reyndar íþróttafélögin en þau höfðuðu á þessum tíma ekki mikið til unglinga.

Það sem ég lærði af þessu brambolti okkar bekkjarfélaganna var að ef mann langaði til að fá einhverju framgengt eða mótmæla einhverju varð maður að vera tilbúinn til að láta til skarar skríða og gera eitthvað í málunum sjálfur. Ég lærði líka að maður nær ekki alltaf árangri og þarf að kunna að fást við ósigra.

 

Þegar menntaþörfin var vakin á ný

Eftir landspróf innritaðist ég í Menntaskólann í Reykjavík og var þar í 3. bekk sem kallaður var. Mér leiddist heldur þar, þótti snobbið mikið og krakkarnir upp til hópa leiðinlegir. Einstaka kennarar voru eftirminnilegir, svo sem Jón Guðmundsson íslenskukennari, Baldur Ingólfsson (Bingó) þýskukennari og Bodil Sahn enskukennari. Allir voru skyldaðir til að þéra kennarana og þótt ég kynni það ágætlega tók ég þá ákvörðun að þéra aldrei neinn þeirra, umorðaði frekar það sem ég sagði til að komast hjá því.

Þarna hélt ég út allt fyrsta árið. Eftirminnilegast þótti mér að ég fékk -25 í einkunn fyrir fyrsta stafsetningarprófið hjá Jóni Gúmm. Hafði ég þó aldrei farið niður fyrir 9 í stafsetningu í unglingaskólanum eða landsprófinu. Það hljóp í mig mikið kapp við þessa hræðilegu einkunn og um jól var svo komið að ég var farinn að fá einkunnir yfir 5 í stafsetningunni.

Ég byrjaði svo í 4. bekk haustið eftir en eftir þrjár vikur var ég búinn að fá nóg og pabba og mömmu til mikils ama hætti ég í skólanum og fór að vinna.

Sumarið eftir er ég kallaður í síma þar sem ég var að vinna við járnabindingar. Þar var þá kominn Jóhann S. Hannesson skólameistari í Menntaskólanum að Laugarvatni en ég hafði í einhverju bríaríi sent inn umsókn um skólavist einhvern tíma um veturinn á undan og fengið það svar að ég gæti hugsanlega sótt um skólavist um vorið þegar umsóknarfrestur yrði opnaður. Sem ég gerði ekki enda orðinn afhuga námi og háður því að fá góð laun.

Jóhanni tókst í lukkustundar löngu símtali að sannfæra mig um að mennt væri máttur og miklu vænlegri en að slíta út skrokknum á steypustyrktarjárni. Aðeins 6 hefðu sótt um nám á málabraut ML og hann yrði að leggja hana niður ef ekki næðist talan sjö. Það endaði auðvitað með því að ég samþykkti að skrá mig í skólann, ég þyrfti ekki að senda neina umsókn, hann sæi um þetta. Ég fór því austur um haustið og stundaði nám við skólann í 3 ár, fyrst í 2. bekk, síðan utanskóla í 3. bekk og loks var ég vetrarlangt fyrir austan utan vistar í 4. bekk og lauk stúdentsprófi vorið 1967. Krakkarnir sem ég kynntist þarna voru ljómandi fínir, bæði bekkjarfélagar mínir og aðrir sem ég átti samneyti við. Kennararnir voru afskaplega ljúfir og alþýðlegir og mér þótti vænt um þá alla, Ólaf Briem, Þór Vigfússon, Ingvar Ásmundsson, Teit Benediktsson, Þóri Þorgeirsson, Þóri Ólafsson, Alfreð Árnason og Wincy Hannesson. En eftirminnilegastur var Jóhann S. Hannesson skólameistari og síðan annað starfsfólk skólans eins og Benjamín Halldórsson. Og Ólafur Ketilsson rútubílastjóri var ekki síður eftirminnilegur þáttur í skólalífinu en hann sá um að aka okkur til og frá staðnum.

 

Þegar ég rukkaði í lögreglufylgd

Þegar ég hafði ákveðið að snúa aftur á menntaveginn og halda áfram menntaskólanámi þurfti ég að selja bílinn sem ég hafði keypt. Ég auglýsti hann í blaði og seldi hann manni sem var mér alókunnugur. Hann átti að greiða bílverðið til helminga helgina á eftir og síðan hinn helminginn mánuði seinna.

Þetta stóðst þó ekki og engir peningar komu. Ég flutti austur á Laugarvatn og bjó á heimavistinni þar og mátti ekki fara suður um helgar. Ég varð því að reyna að rukka manninn símleiðis og biðja pabba að hafa samband við hann líka. Hann lofaði alltaf öllu fögru en sveik allt. Við komumst að því að þetta var þekktur svindlari, hrossaprangari og ruslasali austan úr Ægissíðu og þeir sem þekktu til hans sögðu mér að tilgangslaust væri að reyna að hafa af honum peninga. Ég skyldi bara reyna að ná af honum bílnum aftur.

Ég leitaði til móðurbróður míns sem var varðstjóri í lögreglunniog bað hann að hjálpa mér. Hann sagðist ekki geta hjálpað mér að taka bílinn af honum, það væri þjófnaður því að ég væri búinn að láta hann hafa afsal fyrir honum. Hins vegar skyldi hann koma með mér og reyna að hræða hann til að borga.

Ég komst að því hvar hann bjó og þangað fór ég í jólafríinu og frændi minn með, klæddur lögreglubúningi. Hann var stór og stæðilegur, dökkur á brún og brá. Þegar við bönkuðum upp á hjá kaupandanum brá honum mjög og bar sig illa. Hann ætti enga peninga en stóra fjölskyldu og bíllinn hefði verið tekinn af honum upp í skuld. Frændi þjarmaði að honum en þó án alls æsings og á endanum brast hann í grát og sagðist skyldu fara inn og gá hvort hann fyndi einhverja aura upp í skuldina. Frændi setti fótinn á dyrastafinn svo að hann gæti ekki lokað á okkur og gaurinn fór inn og kom til baka með smáaura. Frændi minn byrsti sig þá mjög og sagði honum að þetta þýddi ekkert, hann yrði að koma með helming bílverðsins strax. Þá fór hann aftur inn og kom grenjandi til baka - með helming bílverðisins. Svo lét frændi hann lofa að greiða hinn helminginn inn á reikninginn minn innan viku, annars ætti hann ekki á góðu von.

Við fórum svo harla ánægðir með árangurinn. Auðvitað stóð hann ekki við að greiða eftirstöðvarnar svo að ég fór enn eina ferð til að rukka  hálfum mánuði seinna eða rétt áður en ég átti að fara aftur austur á Laugarvatn. Ég bankaði upp á en var þá tjáð af kurteisum manni að maður þessi væri fluttur burt, hann hefði skuldað húsaleigu fyrir marga mánuði og verið kastað út.

Ég hafði ekki upp á honum en nokkrum áratugum síðar sá ég hann á sameiginlegum Lionsfundi Lionsklúbbanna í Vík í Mýrdal (sem ég var í) og á Hellu (sem hann var greinilega í). Hann þóttist ekki þekkja mig en ég sá á flóttalegum tilburðum hans að hann vissi vel hver ég var. Mér datt ekki í hug að lítillækka mig með því að yrða á hann.

 

Þegar ég hélt ég væri að deyja

Fyrsta vorið sem ég fór á síld var ég sóttur til Reykjavíkur um leið og síldarnótin en báturinn var gerður út frá Akranesi. Mér var vísað í lúgarinn frammí en fór fljótlega upp á dekk til að fylgjast með enda spenna í kappanum að vera orðinn alvöru sjómaður. En við vorum ekki fyrr komnir út úr Reykjavíkurhöfn en ég fór að finna til ógleði og innan skamms fór ég að æla. Það var vont í sjó og báturinn hristist og skalf og hjó í öldurnar. Ég ældi alla leiðina til Akraness eða réttara sagt kúgaðist því að ég var fljótur að æla öllu sem í maganum var. Þetta var hræðileg vanlíðan. Á milli þess sem ég hélt að ég væri að deyja óskaði ég þess heitast af öllu að ég væri dauður og sór og sárt við lagði að ég mundi hætta við þessa sjómennskuvitleysu og húkka mér far með bíl heim þegar við værum komnir upp á Skaga. Auðvitað stóð ég ekki við það því að um leið og ég hafði fast land undir fótum hresstist ég allur við og vildi alls ekki láta spyrjast um mig að ég gæfist svo auðveldlega upp.

Ég fann aldrei aftur til sjóveiki þetta sumar né næstu tvö sumur. En veturinn sem ég tók menntaskólanámið utanskóla fór ég á vetrarvertíð á þorskanót. Það hefði ég ekki átt að gera því að þá kom sjóveikin aftur af endurnýjuðum krafti og ég ældi stöðugt allan fyrsta túrinn minn, ýmist í nótina, á dekkið eða út fyrir borðstokkinn. Gat varla fest svefn fyrir þessum fjanda. Þegar við komum svo að landi var ég orðinn 10 kílóum léttari, fölur og tekinn af svefnleysi og tilkynnti skipstjóranum að ég treysti mér ekki í fleiri túra. Það kom ekki á óvart en hann kvaddi mig þó neð virktum og sagðist dást að því að ég hefði alltaf mætt á dekk þrátt fyrir sjóveikina.

 

Þegar ég kom pabba á óvart

Þegar pabbi varð sextugur héldum við bræður honum veislu íTemplarahúsinu með bakkelsi og kaffi. Fjöldi ættingja mætti þar til að heiðra hann. Ég flutti honum ljóð, einhverjir tóku til máls og óskuðu honum til hamingju en síðan bað Bessi Bjarnason leikari um orðið. Hann hafði verið nágranni okkar um hríð, bjó í Skipasundi 24 þegar hann var að alast upp og kannaðist örlítið við pabba. Hann hélt frábæra 15-20 mínútna afmælisræðu blaðalaust þar sem hann sagði sögur af pabba og mömmu og rifjaði upp ýmislegt sem gerst hafði í ævi pabba, uppátæki okkar strákanna og margt fleira. Pabbi var gjörsamlega dolfallinn yfir þessari ræðu og undraðist stórum yfir því hvernig Bessi gæti vitað og munað þetta allt og sagði Bessa það eftir ræðuna. Ég held að pabbi hafi aldrei fundið eins mikið til sín alla sína ævi og þegar hann hlustaði á þessa ræðu eins ástsælasta leikara þjóðarinnar sem hann hafði aðeins þekkt lauslega um tíma áður en hann varð frægur.

Skýringin á þessari uppákomu var auðvitað sú að ég hafði nokkuð löngu fyrr haft samband við Bessa og spurt hvort hann væri til í að koma í afmæli pabba sem leynigestur og halda þar ræðu sem ég mundi semja fyrir hann. Hann tók því vel svo að ég settist niður og samdi ræðuna og sendi honum. Bessi gerði sér lítið fyrir og lærði ræðuna utan að og flutti hana með tilþrifum í afmælinu.

Pabbi talaði um þetta í mörg ár eftir þetta. Mikið óskaplega þótti mér gaman að hafa glatt hann svona innilega jafnvel þótt ég segði honum aldrei málavöxtu. Ég vissi þó að hann grunaði að við strákarnir hefðum matað Bessa á sögunum en svo taldi hann að Bessi hefði sjálfur samið ræðuna á staðnum. Svo eðlilega var þetta leikið hjá Bessa, þeim mikla snillingi.

 

Þegar ég var ritskoðaður af Sambandinu

Árið 1982 skrifaði ég tvær bækur og samdi við Örn og Örlyg um útgáfu þeirra beggja fyrir jólin. Önnur fjallaði um kvennaframboðin sem unnu stóra sigra um vorið í Reykjavík, Akureyri og Selfossi, auk þess sem bókin geymdi ýmsan fróðleik um jafnréttisbaráttuna og ástandið í jafnréttismálum á Íslandi um þetta leyti. Þessi bók seldist sæmilega þrátt fyrir að forystukonur Kvennaframboðsins dæmdu bókina úr leik fyrirfram með harðorðum yfirlýsingum um að hún gæti ekki verið góð þar sem höfundur þekkti ekki á eigin skinni reynsluheim kvenna. Ég fékk því ósköp lítil höfundarlaun af henni.

Síðari bókin sem ég skrifaði og gerði útlitshönnun að hét Ó það er dýrlegt að drottna og fjallaði um foringja- og flokksræði í verkalýðshreyfingunni og var stíluð sem kennslub+ok fyrir verkalýðsforingja, eins konar meinhæðin ádeila. Þegar búið var að prenta 2.000 eintök af bókinni tilkynnti eigandi útgáfunnar mér að hann gæti ekki gefið bókina út. Það væru í henni ummæli um samvinnuhreyfinguna sem hann gæti ekki samvisku sinnar vegna gefið út því að Sambandið væri helsti styrktaraðili þess sem hann gæfi út. Hann viðurkenndi ekki að neinn hjá Sambandinu (SÍS) hefði lesið hana en auðvitað hefur það verið þannig, að minnsta kosti hvað varðar þau ummæli sem honum fannst árás á Sambandið. Hann bauðst til að selja mér prentunina á slikk og gefa mér útgáfuréttinn og umbrotið sem Skjaldborg á Akureyri hafði séð um. Ég átti engra kosta völ ef ég vildi koma bókinni út. Upplagið seldist allt og ég gat greitt prentunina og dreifinguna og í bjartsýniskasti pantaði ég aðra prentun af bókinni, 2.000 eintök. Aðeins hluti upplagsins seldist fyrir jól svo að ég varð að beita „brögðum“ til að selja nægilega mikið af henni til að geta greitt þessa síðari prentun. Ég sendi fjölda einstaklinga eitt til tvö eintök af bókinni og grátbað þá um að kaupa af mér bókina með því að senda mér greiðslu í póstkröfu. Ef þeir gætu það ekki bað ég þá að senda mér bækurnar aftur. Flestum fannst minnst fyrirhöfn í því að kaupa bara bókina en sumir svöruðu mér þó engu, sendu mér hvorki peninga né bækur. Í raun tapaði ég því á þessu ævintýri.

Bókin hafði þó mikil áhrif og var mjög umtöluð enda í fyrsta sinn sem svo harkalega var fjallað um þann skort á lýðræði sem viðgengist hefur síðustu 60 árin í verkalýðshreyfingunni. Ég var hins vegar úthrópaður sem óalandi og óferjandi róttæklingur. Þann stimpil hefur mér ekki tekist að þvo af mér enda svo sem lítið gert til þess.

 

Þegar ég tók líf

Eitt sinn var ég einn á ferð á milli Kristnesshælis og Akureyrar. Ég var á Trabantinum okkar sem frægur varð á Akureyri fyrir að ekki var hægt að aka upp brekkurnar í hálku í Hlíðarfjalli nema afturábak. Þarna var hins vegar líka hálka en engin brekka. Skyndilega gengur andamóðir yfir veginn fyrir framan mig með 4 unga í halarófu á eftir sér. Það skipti engum togum að mér tókst ekki að bremsa heldur rann yfir ungaflokkinn og svo hálfur út af.

Ég hef sjaldan fengið annan eins hjartslátt og þarna. Ég þorði ekki að bakka af ótta við að aka yfir ungana aftur svo að ég bisaði við að komast aftur upp á veg með því að aka áfram. Ég lagði svo bílnum út í kant og fór út til að athuga verksummerki. Það sem við mér blasti var hörmulegt. Öndin hafði komist yfir veginn og sat með tvo unga sína eina tvo metra frá veginum. Tveir ungar lágu eftir á veginum, báðir með lífsmarki. Ég vissi að það eina rétta væri að ganga til þeirra og snúa þá úr hálslið en mér var það lífsins ómögulegt. Að vera búinn að lemstra þá og taka þá svo af lífi. Þetta gat ég ekki. Þess í stað beið ég og vonaði að einhver kæmi sem gæti gert það sem gera þyrfti. Ég var svo heppinn að eftir örfáar mínútur kom aðvífandi bóndi á gölmlum Landrover. Ég stoppaði hann og bað hann að hjálpa mér. Hann jánkaði því en ekki líkuðu mér aðfarirnar. Hann vatt sér út, sótti skóflu í skottið og bjó sig undir að afhausa ungana með henni. Ég gat auðvitað enn síður horft á það og sneri mér undan. Þegar hann taldi sig vera búinn að þessu fór hann burt og skildim hræin eftir við veginn. Mér þótt það ekki nógu gott svo að ég sótti skóflu sem ég var með í bílnum og setti hræin lengra út fyrir veg. Öndin vaggaði þá í áttina til mín og fór að huga að hræjunum. Ég gat ekki horft upp á það svo að ég ýtti henni frá og mokaði smá holu og jarðsetti ungana tvo þar.

Svona gátu andstæðurnar leikið mann. Á sama tíma var ég annálaður fyrir hörku og miskunnarleysi í gagnrýni minni á forystu verkalýðsfélagsins á Akureyri.

 

Þegar ég missti frænda minn

Fátt hefur mótað meira afstöðu mína til dauðastundarinnar en andlát föðurbróður míns, Ólafs Elímundarsonar sagnfræðings. Hann var alla tíð nátengdur fjölskyldunni og góður vinur pabba. Lengi vel bjó hann einn og starfaði sem bankagjaldkeri en hafði áður stundað Samvinnuskólanám. Á tímabili skaut hann skjólshúsi yfir okkur fjölskylduna í nokkur ár eftir að pabbi seldi húsið í Efstasundi og var að byggja hús í Fellsmúla sem við fluttum þó reyndar aldrei í. En það er önnur saga.

Á efri árum eignaðist Óli góða konu, Viktoríu Daníelsdóttur. Þau áttu góð ár saman. Þegar hann komst á eftirlaun hjá bankanum lauk hann stúdentsprófi og innritaðist í sagnfræði við Háskóla Íslands. Að loknu námi skrifaði hann mikið ritsafn, Jöklu I og II, þrjár stórar bækur. Hann skrifaði einnig greinar í ýmis rit um efni sem vörðuðu sögu Smæfellsness.

Þannig var að árið 2004 var Ólafur í heimsókn í sumarbústað rétt austan við Laugarvatn hjá Erlendi Grétari frænda okkar. Þeir höfðu verið að dunda við að gróðursetja runnagræðlinga og taka til í gróðurhúsi Erlendar og voru báðir hressir eftir útiveru og örlitla líkemlega áreynslu. Verki var lokið og þeir skruppu heim á bóndabæ að skila verkfærum en hringdu svo í mig og spurðu hvort þeir mættu ekki koma við hjá okkur á Laugarvatni og þiggja kaffisopa og te. Það var meira en velkomið og ég fór að hella upp á og undirbúa komu þeirra eftir 5-10 mínútur. En þeir komu ekki. Þess í stað hringdi Erlendur í mig eftir 10 mínútur og bað mig að koma, það væri eitthvað að honum Óla.

Ég rauk af stað og var kominn til þeirra eftir 5 mínútur miðja vegu milli bústaðarins og Laugarvatns. Ólafur virtist alveg lífvana í framsætinu svo að ég tosaði hann út og lagði hann á jörðina og fór að hefja lífgunartilraunir. Erlendur hringdi í 112 og þeir sendu strax sjúkrabíl af stað með lækni frá Laugarási. Síðan leiðbeindu þeir okkur í lífgunartilraununum sem ég hélt áfram allt þar til læknirinn kom. Læknirinn skoðaði og hlustaði og kvað síðan upp úr með að Ólafur væri látinn. Hann hafði skyndilega sigið fram í sætinu og Erlendur stoppað strax og rétt hann við og síðan hringt í mig.

Sjúkrabíllinn fór með líkið suður. Erlendur kom síðan með mér heim og jafnaði sig eftir þetta mikla áfall. Við höfðum báðir verið mjög nátengdir Ólafi og þetta fékk því mjög á okkur. Hann fór síðan suður og fór með öðrum frænda okkar og tilkynnti ekkju Ólafs andlátið.

Mér fannst þetta afskaplega skrítin og átakanleg stund. Það kom mér á óvart hve mikil friðsæld var yfir andliti Ólafs, eins og hann hefði séð yfir í annan betri heim á dánarstundinni. Erlendur var einnig ákaflega rór þrátt fyrir djúpa sorg, enda virtur og raunar heimsfrægur á sviði dulrænna fræða. Hann hafði einhvern tíma orð á því að honum fyndist mikil þörf á námskeiði í að deyja. Þá átti hann við að vera bæði andlega og efnislega tilbúinn og undirbúinn fyrir þessa stund sem allir upplifa.

 

Þegar ég fregnaði andlát bróður míns

Siggi bróðir var yngstur okkar bræðra, fæddur 1951,  sem ólumst upp saman. Sennilega hefur ekki verið auðvelt að vera hann. Hann var mikill ærslabelgur og dugnaðarforkur í bernsku, síbjástrandi og kraftmikill. Til að hann færi sér ekki að voða og færi burt af lóðinni þegar við Hreiðar nenntum ekki að passa hann var hann stundum tjóðraður við staur í miðjum garðinum. Eitt skiptið tókst honum samt að komast að girðingunni og klifra upp á hana en svo hékk hann utan á henni háöskrandi.        

Siggi átti erfiða ævi. Hann komst ungur í tæri við Bakkus og leiddist út í vandræði á hans vegum. Hann dvaldi mörg sumur í sveit og fór síðan ungur til sjós á togurum. Inn á milli átti hann góð ár, starfaði sem sendibílastjóri, stofnaði heimili og eignaðist þrjá duglega og skapandi stráka. Hann var hörkuduglegur til vinnu og mjög laginn við allt sem hann fékkst við. Hjálsamur var hann og naut þes að gera öðrum greiða. Hann gekk í Hvítasunnusöfnuðinn í framhaldi af árangursríkustu áfengismeðferðinni og starfaði sem áfengisráðgjafi hjá Samhjálp í nokkur ár. En Bakkus sleppti aldrei takinu.

Upp úr fimmtugu eignaðist Siggi bróðir minn nýja fjölskyldu. Hann var þá farinn að venja komur sínar til Thailands og eignaðist þar marga vini, innfædda sem erlenda. Sumir voru meira að segja íslenskir. Í Thailandi kynntist hann frábærri konu, Say, sem átti sama afmælisdag og hann en var miklu yngri. Þau eignuðust saman son árið 2007 og nefndu hann Mána. Auk þess gekk Siggi Vai, dóttur Say í föðurstað. Til að byrja með var Siggi gjarnan hálft árið á Íslandi við vinnu og hálft árið í Thailandi. En þegar barnið var á leiðinni tók hann ákvörðun um að flytja alfarið til Thailands. Hann seldi eigur sínar og kom peningunum til Thailands iog fór síðan út. Hann var þá kominn í þrot fjárhagslega á Íslandi, skuldaði meira en hann átti og sá enga aðra leið en yfirgefa skuldirnar og láta sig hverfa. Hann kom einu sinni í stutta ferð til Ísland eftir þetta, fyrst og fremst til að ganga frá því að sonur hans fengi íslenskt vegabréf og til að

Úti í Thailandi átti hann síðan nokkur góð ár en 24. ágúst árið 2017 varð hann bráðkvaddur úti í Thailandi á leið á markaðinn, tæplega 66 ára gamall. Vafalaust hafði það sitt að segja að hann hafði farið illa með sig alla ævina, unnið mikið, drukkið mikið og reykt.

Þegar andlát hans var tilkynnt fékk það mikið á okkur því það var svo stutt síðan allt virtist vera í lagi, hann hættur að drekka og stutt í að hann kæmist á ellilífeyri og gæti þá lifað áhyggjulaus. Ég brást þannig við að innst inni trúði ég fréttinni ekki og mér líður oft eins og þetta sé óraunverulegt. Hann sé ekki dáinn. En ég veit hann er dáinn því að hann hefur vitjað mín nokkrum sinnum, ýmist í draumi eða með því að setjast að í huga mínum án þess að sérstakt tilefni sé til.

Við Ingibjörg og Hreiðar bróðir stóðum fyrir minningarathöfn um Sigga sem haldin var 9. september 2017 í Fíladelfíukirkjunni, kirkju Hvítasunnusafnaðarins. Það var falleg og fjölmenn athöfn undir stjórn sr. Varðar Leví Traustasonar. Ég flutti þar minningarljóð sem ég hafði ort til Sigga.

Árið eftir að Siggi dó kom Say til Íslands með Mána son þeirra. Hún dvaldi norður í Þineyjarsýslu í hálft ár með son sinn hjá Sæmundi bróður hans. Síðan varð Máni eftir í nokkra mánuði einn. Það var yndislegt að kynnast þessu öndvegisfólki.

 

Þegar ég varð ljóðskáld

Nánast alla mína ævi hefur mig dreymst um að verða ljóðskáld sem fólk þekkti og vissi hver væri. Það rættist nú ekki enda lét ég aldrei verða af því að gefa út ljóðin mín. Kannski treysti ég því ekki að fólk mæti þau að verðleikum. Kannski fannst mér ljóðin vera gluggi að sál minni sem ég treysti mér ekki til að leyfa fólki að gægjast um. Hver veit? Loksins þegar ég varð sjötugur lét ég verða af því að gefa út ljóðabók. Hún var sambland af nýlegum frumsömdum ljóðum, eldri ljóðum og ljóðaþýðingum en öll áttu ljóðin það sameiginlegt að fjalla á einhvern hátt um ástina. Já það er satt, ég hef verið ástfanginn allt síðan ég kynntist konunni minni, henni Ingibjörgu elskulegri. Ekki svo að ég hafi ekki verið ástfanginn fyrr. Ég er sennilega ástsækinn maður því að ég hef oft orðið skotinn, hrifinn og ástfanginn. En ástin hefur aldrei enst eins lengi og með Ingibjörgu. Og með árunum hefur hún orðið dýpri og einlægari en ég kannast við hjá sjálfum mér frá fyrri tíð.

En hvað sem því líður var líðan mín þegar ég gaf út þessa ljóðabók mjög sérstök. Mér fannst ég hafa rofið einhvern múr, viðurkennt sjálfan mig sem frambærilegt ljóðskáld. Í framhaldinu hef ég síðan gefið út tvær ljóðabækur í viðbót og er vonandi ekki hættur yrkingum. Bækurnar heita Í sjöunda himni býr sólin. Ljóð um ástina (2016), Ekki er sú rósin best. Heimsósómar og ádeiluljóð (2017) og loks Ljóðabók (2019). Ég gaf þessar bækur allar út sjálfur í nafni litla fyrirtækisins míns, Bláskóga ehf.

 

Þegar ég hitti miðil

Árið 1989 datt mér í hug að skrifa bók um dulræn fræði og framhaldslíf. Bókin hafði að einkum að geyma greinar, ljóð og samantektir eftir aðra um framhaldslíf og skyld efni en einnig viðtal við starfandi miðil, Maggý. Viðtalið gekk vel og margt fróðlegt kom þar fram um störf hennar og lífið eftir dauðann. Það sem mér þótt hins vegar merkilegst var að eftir að viðtalinu lauk skýrði hún mér frá því að á meðan á því stóð hefði eldri maður, búandlegur í sjón með pípustert í munni, setið fyrir aftan mig og brosað góðlátlega. Auk þess hefði fleira fólk komið þarna við og viljað heilsa upp á mig. Ekkert af þessu fólki sagði neitt við miðilinn en ég þekkti ýmsa af lýsingunni. Þó ekki gamla manninn með pípustertinn og derhúfuna. Það var greinilega ekki afi á Hurðarbaki því að hann reykti ekki svo að ég vissi til. Ekki heldur afi á Hellissandi en það kann að hafa verið Cýrus langafi sem ég hitti aldrei eða Árni langafi sem ég hitti heldur aldrei.

            Fleiri miðla hef ég svo sem hitt eftir að ég varð fullorðinn, þar á meðal tvo hjá Sálarrannsóknarfélaginu en einhvern veginn fannst mér Maggý þeirra sönnust og öflugust. Ég hef lesið um flesta miðla sem starfað hafa á Íslandi á fyrri tíð og þar voru greinilega í sérflokki tvö andans ofurmenni, þeir Indriði miðill og Hafsteinn miðill. Auk þeirra Einar á Einarsstöðum sem sérhæfði sig í sambandi við framliðna lækna. Hann hélt jafnvel áfram störfum eftir andlát sitt.


Þegar ég var viðstaddur fæðingu

Ég fékk ekki að vera viðstaddur fæðingu þriggja elstu barnanna minna. Þannig var það bara í þá daga. Reyndar var það dálítið skondið þegar elsta dóttirin fæddist. Ég fór að sjálfsögðu með móðurinni á fæðingardeildina en þegar þangað kom var mér vísað á biðstofu og sagt að halda mér þar. Eftir smábið kom ljósmóðir og sagði mér að allt væri í besta lagi, hún mundi fæða eftir nokkra klukkutíma sennilega og mér væri best að fara heim. Það yrði hringt í mig. Ég spurði hvort ég mætti bara ekki bíða á biðstofunni en fékk þvert nei. Það var ekki um annað að ræða en hlýða konunni, hún var mjög svo ákveðin í fasi. Ég brunaði því heim og settist þar við símann. Ég var ekki fyrr sestur en hringt var og mér tilkynnt að ég mætti koma og hitta dótturina og móður hennar. Ég rauk því af stað frá fullum kaffibolla og samloku og var kominn á fæðingardeildina rúmum hálftíma eftir að ég fór þaðan. Þar fékk ég að sjá þær og taka dótturina í fangið.

Þetta var æðisleg upplifun og ég varð strax uppfullur af ást og væntumþykju til þessarar fallegu litlu hnátu. Ég hafði aldrei séð neitt jafn fallegt og hana.

Samt vildi ég óska að ég hefði fengið að vera viðstaddur sjálfa fæðinguna. Ég var viðstaddur fæðingu allra fimm barnanna sem fæddust árið 1980 og síðar. Þessi unaðslega upplifun af að sjá börnin fædd og þvegin og komin í fangið á mér var sú sama en tilfinningatengingin sem varð til við að horfa á þau fæðast og berjast fyrir lífi sínu var yndisleg viðbót sem gaf mér enn meira. Samt held ég að tilfinning móðurinnar sé óendanlega miklu sterkari í fæðingunni en föðurins. Hún hefur verið líftaug barnsins í níu mánuði og níu mánaða forskot er ekki svo lítið. Mikið vildi ég að karlmenn gætu gengið með börn! Mig hefur meira að segja dreymt það að ég væri óléttur og mér fannst það frábær tilfinning.

 

Þegar ég tók á flug

Ekki veit ég hvort það voru sögur bernskunnar um engla með vængi sem ollu því að mig fór fljótt að dreyma að ég gæti flogið. Þó var ég ekki með vængi í þessum draumum heldur flaug ég með höndunum, eða sveif frekar því að ég notaði hendurnar ekki bara til að fljúga heldur til að stýra mér í loftinu. Þetta var gífurleg frelsistilfinning og upplifun full að einhvers konar fögnuði. Mér fannst ég fyrst í stað vera í um það bil fimm metra hæð og horfa niður á sjálfan mig sofandi og ég sá einnig annað heimilisfólk í öðrum herbergjum, eins og ég sæi niður í gegnum þakið eða þakið væri horfið. Í sumum draumunum gerðist lítið meira en í öðrum draumum fór ég í styttri og lengri ferðalög. Stundum hitti ég aðra sem gátu flogið eða var að reyna að kenna öðrum að fljúga. Ég man lítið eftir þeim stöðum sem ég fór á en meira eftir sjálfum ferðalögunum í gegnum ský og yfir sjó.

Draumar eru manninum mikilvægir og raunar nauðsynlegir. Ef ekki væri fyrir draumana mína hefði ég ekki hugmynd um hvernig það væri að geta flogið um loftin blá.

Flugferðir mínar hafa gert það að verkum að ég hef ekki átt neitt erfitt með að trúa frásögnum jóga af ferðum sínum utan líkamans. Þótt sá munur sé á að þeir gerðu þetta í vöku en ég í draumi finnst mér það litlu skipta. Það er oft furðu stutt á milli svefns og vöku.

Svefnrof eru líka oft gefandi andartök. Ég hef til dæmis stundum orðið  var við látið fólk, ekki endilega séð það, helu-dur febgið tilfinningu fyrir návist þess. Slíkar stundir eru dýrmætar.

 

Þegar ég hrapaði

Það var í skólaferð einhvern tíma í barnaskólanum sem við fórum að klifra í klettum. Þetta var ekkert stórkostlegt né erfitt. En ég var þvílíkur rati að ég klifraði á eftir bekkjarfélaga og var því staddur beint fyrir neðan hann. Steinhnullungur losnaði undir fótum hans og rúllaði niður í áttina til mín án þess að ég tæki eftir honum og hann varaði mig ekkert við, vissi sennilega ekkert af mér beint fyrir neðan sig. Það skipti engum togum að ég fékk hnullunginn í ennið, rann aftur á bak niður klettinn og lá hálfrotaður fyrir neðan hann í stutta stund. Þegar ég rankaði við mér voru allir að stumra yfir mér og ég fann að ég var blóðugur í framan. Sem betur fer var þetta ekki mjög hátt fall þannig að ég var óbrotinn en marinn og lemstraður. Kennarinn sem með okkur var ákvað að láta gott heita og snúa förinni heim, enda var liðið vel á dag og tími til kominn að huga að heimferð.

Eftir þetta hef ég verið afar varkár í fjöllum og stundum afskaplega lofthræddur. Sérstaklega hefur þetta verið áberandi þegar ég hef verið með börnum mínum og þau sýnt af sér einhverja dirfsku á bjargbrúnum eða öðrum brúnum. Þegar ég fór hins vegar í ferðalag til Spánar með yngsta syninum í tilefni fermingar hans fórum við feðgar í bátsferð með fallhlíf sem dró okkur í loft og lét okkur svífa í því sem mér fannst mikilli hæð. Ég þorði þó ekki að láta hann fara á undan svo að fyrst fór ég upp. Þetta var mikil lífsreynsla og bráðskemmtileg en mér varð þó um og ó þegar báturinn hægði ferðina og ég endaði með fæturna rétt fyrir ofan öldurnar og hélt að ég mundi jafnvel lenda í sjónum. En allt var þetta sýndarmennska og ég drukknaði ekki. Svo fór drengurinn upp og það gekk enn betur og ég var ekkert hræddur um hann.

Eftir þetta hef ég ekki verið lofthræddur, aðeins skynsamlega varkár þar sem einhver hætta er.

 

Sonur minn lenti í umferðarslysi

Einhverju sinni eftir að elsti sonur minn var orðinn fullorðinn fékk ég upphringingu um að hann hefði lent í alvarlegu bílslysi og búið væri að flytja hann á sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Hann hafð lent í árekstri við bíl sem ók inn í hliðina á bíl hans á talsverðri ferð. Mér brá ofboðslega og einhvern veginn tengdi ég þetta við slysið sem elsti bróðir minn lenti í barnungur og dó. Ég beið ekki nánari skýringa eða lýsinga heldur stökk út í bíl og lagði af stað norður. Þegar þangað kom var ég enn með hjartslátt og óttaðist það versta, hélt í alvöru að sonur minn væri að deyja. Ég fór beint til hans á sjúkrahúsið. Hann var hins vegar nokkuð hress og með fulla meðvitund og ekkert á þeim buxunum að fara yfir móðuna miklu. Hann var að vísu margbrotinn eins og oft síðar en ekki lífshættulega meiddur. Við áttum góða stund saman þarna á spítalanum.

Ég hef annars verið blessunarlega laus við umferðarslys. Þó poppar alltaf upp í minningunni þegar ég var að aka á mínum eðalfólksvagni eftir Kleppsveginum með elstu dótturina á leið í leikskólann. Öryggisbelti voru ekki komin til sögunnar og sú stutta sat afturí. Á horni Holtavegs æddi bíll inn á Kleppsveginn og svínaði á okkur, sá sig svo um síðir um hönd og reyndi að aka út af til að ég lenti ekki á honum. Ég hefði kannski getað forðast árekstur með því að nauðhemla eða snarbeygja frá en bremsaði þess í stað bara hóflega til að dóttirin færi ekki á flug og út um framrúðuna, rétti út hægri höndina og hélt framsætinu föstu. Ég ók svo af talsverðum krafti á bílinn sem svínaði á okkur. Þegar dóttirin kom þjótandi á sætisbakið gat ég stoppað hana þannig og enginn meiddist, nema hvað mér var dauðillt í handleggnum í marga daga á eftir. Bíllinn skemmdist að framan en hann var þó ökufær. Lögreglan mætti á staðinn og þegar ég var kallaður yfir í lögreglubílinn með harðri hendi sat hún háskælandi eftir í bílnum. Ég stökk því út úr Svörtu-Maríu í leyfisleysi og sótti hana. Það var í fyrsta skipti sem hún lenti inni í löggubíl, og vonandi það síðasta.

 

Hræddur við eigin síma

Prentsmiðja DV og fleiri smákrimmar gerðu kröfu um að ég yrði gerður gjaldþrota í kringum 1990. Það gekk í gegn með dómi. Ég var blessunarlega laus við að hafa misfarið með fé, skuldaði til dæmis hvorki viðisaukaskatt né önnur opinber gjöld. Fyrir utan viðskiptaskuldir, aðallega vegna prentunar og útgáfu blaða fyrir aðra, skuldaði ég um tvær milljónir króna  vegna láns í banka sem ég hafði tekið með tengdamóður mína sem ábyrgðarmann. Næstu árin fóru í að greiða af því láni þar sem ég vildi ekki að það félli á hana. Ég flutti austur í Skóga undir Eyjafjöllum og kenndi þar við Skógaskóla í ein 10 ár og vann fyrir þessari skuld og öðrum persónulegum skuldum mín sjálfs. Þessi ár var ég frekar þunglyndur og kvíðinn og þoldi illa að lánardrottnar væru að rukka mig skriflega eða með símhringingum. Ég hætti að svara í síma nema ég þekkti símanúmerin. Þessik slæma líðan stóð í mörg ár þótt ég hefði yndi af kennslunni og gæfi henni allan tíma minn sem ekki fór í strákana mína sem dvöldu mikið hjá mér.

Af og til voru gerð hjá mér árangurslaus fjárnám og í eitt skipti átti að framkvæma hjá mér uppboð á gamalli bíldruslu sem ég hafði eignast fyrir 25 þúsund krónur til að komast á milli bæja og skjótast í næsta þorp. Ég frétti að Alþýðubankinn heitinn, þá orðinn Íslandsbanki,  vildi komast yfir bílinn svo að ég skráði  að honum annan eiganda. Hann komst þó inn í bifreiðaskrá á mínu nafni og það var ekki að spyrja að því, Íslandsbanki krafðist uppboðs á bifreiðinni og ég var boðaður á uppboð á Hvolsvelli hjá sýslumanni. Daginn áður en uppboðið skyldi fara fram fór ég til Friðjóns Guðröðarsonar sýslumanns og setti hann inn í málið og sýndi honum afsal á bílnum. Hann var yfir sig hneykslaður á Íslandsbanka en sagðist ekki ætla að aflýsa uppboðinu, hann langaði til að niðurlægja bankann. Á uppboðinu daginn eftir mætti lögfræðingur fyrir hönd Íslandsbanka og hafði uppi kröfur sínar. Ég lagði fram afsalið sem sannaði að ég ætti ekki bílinn. Þá tók sýslumaður til máls og hellti sér nánast froðufellandi af bræði yfir lögfræðinginn fyrir að vera að hundelta fólk sem væri að reyna að halda lífi  og greiða upp skuldir sínar. Hann bað lögfæðinginn um að skila til umbjóðanda síns að skammast sín og hætta slíkum aðförum. „Málinu er vísað frá með skömm.“ Lögfræðingurinn nánast hljóp út af skrifstofunni eldrjóður í framan og mjög skömmustulegur.

 

Föðurhjartað kramið

Ég kenndi við Menntaskólann að Laugarvatni í allmörg ár og meðal nemenda minna þar var yngsti sonur minn. Honum gekk allbærilega í náminu en sinti lítið þeim greinum sem honum leiddist. Eitt sinn féll hann í líffræðiáfanga og þá skoraði ég á hann að við læsum báðir námsefnið og færum í próf og sæjum hvor okkar stæði sig betur. Ég var annálaður hatursmaður líffræðinnar frá fyrri tíð og hafði líka fallið í henni einu sinni í menntaskólanum. Þetta bar árangur. Hann fékk 9 á prófinu. Ég var að vísu aðeins hærri en flíkaði því ekki svo mjög.

Sagan var þó verst. Þar safnaði hann upp óloknum áföngum og átti í stríði við sögukennara sem hafði engan skilning á einstaklingsbundnum vanda hans eða annarra. Á síðasta árinu hans, reyndar síðustu önninni, reyndi ég að brýna hann til dáða og komst einhvern veginn svo að orði að hann gæti alveg eins hætt námi eins og að ætla endalaust að falla í sögunni. Tveimur dögum eftir þessi orðaskipti  rölti hann til skólameistara og sagði síg úr skóla, hann væri hættur, búið og basta. Skólameistari kallaði mig í flýti inn á skifstofu og sagði mér hvað gerst hefði. Það féll yfir mig og ég fór strax og leitaði drenginn uppi. Hann var harðákveðinn, sagðist ætla að fá sé vinnu og hætta þessu, þetta væri algerlega vonlaust. Ég var nær gráti af sorg yfir þessu, fannst   þetta mér að kenna. Ég hefði gert of miklar kröfur til hans, fyrir utan bannsettan  sögukennarann sem sýndi honum engan skilning. Daginn eftir mætti ég til kennslu í bekknum hans og krakkarnir höfðu sumir haft eitthvert veður af því sem gerst hafði og spurðu mig hvar hann væri. Ég brotnaði niður andlega fyrir framan bekkinn hans, táraðist og svaraði klökkur að hann væri hættur. Mér tókst að segja krökkunum að ég væri afar sorgmæddur yfir þessu og bað þau að afsaka mig. En ég gat haldið áfram að kenna. Þau voru líka niðurbrotin og fannst þau ekki hafa stutt hann nóg. Þetta þjakaði mig mánuðum saman og ég reyndi endalaust að finna leiðir til koma honum af stað aftur, án árangurs.