Í þessari bók er úrval ljóða minna allt frá upphafi til ársins í ár. Ég er afar stoltur af ljóðunum mínum en geri mér samt ljóst að þau falli sjálfsagt ekki að allra smekk. En þau hafa veitt mér mikið og í gegnum þau hef ég upplifað góðar stundir.


Hér getur þú skoðað þau, gjörðu svo vel. En fyrirgefðu uppsetninguna. Tölvan mín kann ekki allt og ég ekki heldur. Í fallegri bók yrði þetta allt miklu áferðarfegurra.


Á HAFSBOTNI býr hús á hverjum steini


Á HAFSBOTNI BÝR HÚS Á HVERJUM STEINI

Ljóðasafn


Að loknu þessu lífi

Að sjálfsögðu er framhaldslíf þitt nokkuð óráðið

en þú ert viss um það

Þú ert líka staðráðinn í að gera það

eins skemmtilegt og hægt er

Ekki ætlar þú að fara að dúsa í gröfinni

til dómsdags

Þú ætlar þess í stað að njóta framhaldsins

halda áfram að læra og mennta sál þína

hitta og umgangast gott framliðið fólk

sé það viðlátið

 

Í framhaldslífinu

verðurðu áreiðanlega heilagur um stund

þar til þú verður sendur í annað líf

til að bæta fyrir mistök þín í þeim fyrri

eða taka við verðlaunum fyrir vel unnin störf

Bara að nefna það. (2024)

 

Allt er eitt

Fagur og ljúfur er lögur

í lyndi blása vindar

skýlaus er himinn heima

hlý er sól að nýju

Morgunsins fegurð fjörgar

full er leið af gulli

Fljúga þar snarar flugur

fagnar óðum gróður

Eins er með ást í brjósti

ef ann kona manni

geðin tendrast af glóðum

gefin er birta í sefa

 

Leika um hugann logar

ljúfir flögra sem dúfur

Gaman að njóta glaumsins

gleðin er með í hjarta

Oss Lát nú lífið kyssa

í hjartanu laufum skarta

logandi fugla fegurð

brjóstin finna ljósta

sólina verma sálu

syngja öll með fjöllum

eiga með fríðu fljóði

fullkomna stund í lundi. (2024)

Alþýðusvikarar

Alþýðuhetjur í argasta sinni

en aumustu vargar í geithafraskinni

Svo ötulir telja upp dygðir og dáðir

og drafla í svaðinu ríkir og fjáðir

En fólki sem treysti þeim fólum til verka

því fátækt er búin í vindinum sterka

skór þess svo skitnir og snjáðir

 

Of verkalýð drottnandi gylfar og gungur

sem gráðugar halda þeim lýðnum við hungur

Skjaldborg þeir byggja þar einn hver um annan

þeir einræði dýrka og fláttskapinn sannan

En fólki sem treystir þeim fólum til verka

því fátækt er búin í vindinum sterka

dauf er sú dúsfyllta kannan

 

Í stjórnmálum svikdraugar sveittir þar lafa

í samfó og vaffgé nú flykkt sér þeir hafa

jóhönnur rétt eins og steingrímar storka

stingur þar hver sá sem betur má orka

En fólki sem treystir þeim fólum til verka

því fátækt er búin í vindinum sterka

 

Í svínsskapnum ólmast ferlegir forkar

Þannig má skoða um vígvöllinn víðan

í veröldu allri er samskonar líðan

pútínar fólkið sitt píslunum kvelja

og pípkanar vitgrannir trömpana velja

En fólki sem treystir þeim fólum til verka

því fátækt er búin í vindinum sterka

Þeir ömmur og afana selja. (2019)


Andaglas í stofunni

Mamma þín var miðill

Það var oft andaglas í stofunni á kvöldin

stundum reyndirðu að hlusta

það var spennandi

Framliðnir ættingjar og vinir

komu fram á þessum fundum

Elsti bróðir þinn var tíður gestur

Hann var orðinn læknir

 

Hún spáði líka í bolla

fyrir konurnar í götunni

þá var enn skemmtilegra að hlusta

Þær áttu mjög oft börn í vændum

ferðalag stóð fyrir dyrum

og eldheit ástarsambönd

nema þær væru giftar

Stundum var röð af bollum á ofninum í eldhúsinu. (2024)

 

Á fyrsta degi skólans

Á fyrsta degi skólans

lærði 6 ára dóttir mín

að hlýða flautunni

 

Þegar kennslukonan

blés í flautuna

átti skarinn að hlaupa af stað

þegar hún blés aftur

áttu allir að stansa

 

Úti í heimi       

blása geðveikislegir herforingjar

í flautur

þá mega hermennirnir byrja

að slátra börnum og konum

 

Á fyrsta degi skólans

lærði 6 ára dóttir mín

að hlýða flautunni (1973)

 

Á skilorði

Eftir tíu útlegðarár

skiptirðu um skóla

Þú varst raunar enn í útlegð

en á einskonar skilorði

á meðan beðið væri loka gjaldþrotaskeiðsins

Þarna bjóstu í þrettán ár

Kenndir mest við háskólaútibú á staðnum

vænkaðist nú hagur hins snauða

í glímu við fræðimennsku

og fróðleiksfúsa stúdenta

spriklandi íþróttakengúrur

Þú fékkst titilinn M.Ed

og starfsheitið aðjunkt. (2024)

 

Árin sem þú manst ekki

Þú manst ekki hver þú varst sem lítið barn

en áreiðanlega varstu saklaus og fallegur

dálítið ofverndaður

 

Húsið ykkar var enn í smíðum

kalt og hráslagalegt

en hjartaþel foreldra þinna var hlýtt

svo að þér var aldrei kalt

 

Hlutverk þitt fyrstu árin

var að bæta foreldrum þínum

þriggja barna missi

 

Þú fékkst snert af lungnabólgu nokkurra vikna

og pabbi þinn brunaði með þig

upp á spítala

í leigubíl sem hann hafði engin efni á

bláfátækur verkamaðurinn. (2024)


Ástarbréf

Seltjarnarnesi 11. ágúst 2016

Elsku kona. Ég skrifa þér þetta bréf til að segja þér hve heitt ég elska þig. Það var svo skrítið að þegar ég sá þig fyrst sumardag einn vissi ég að nú væri leitinni lokið. Ég varð heitur inni í mér og blóðþrýstingurinn fór upp í 180/100 í nokkrar vikur þrátt fyrir blóðþrýstingslyfin. Í mörg ár áður en við hittumst þarna hafði ég verið dapur í sinni og þungur, vonlítill og þreyttur. Sumum fannst ég nánast þunglyndur þótt ég yrði þess ekki var sjálfur. En þarna breyttist allt og sérstaklega eftir að þú réðst þig til starfa á sama vinnustað og ég. Skyndilega varð svo undurgaman að lifa, hver dagur varð ævintýri. Auðvitað urðum við ekki

par með það sama. Það þurfti að yfirstíga ýmsar hindranir og leyfa tilfinningunum að þróast. Við unnum mikið saman, hjálpuðum hvort öðru, ræddum um starfið og lífið og tilveruna og fundum smátt og smátt samstillingu huganna.

Við urðum vinir. Það var eins og við hefðum þekkst alla ævi. Fólk sem fylgdist með okkur þessa mánuði sagði mér síðar að margir hefðu vitað það mun betur en við hvernig þetta mundi enda. Við urðum par, trúlofuðumst, keyptum

okkur sælureit og hófum búskap saman með yngsta syni mínum sem þá var á mínum vegum. Síðan hefur tíminn liðið og nú er eins og við höfum alltaf verið saman. Ég er þér ævinlega þakklátur fyrir að faðma svo vel að þér fortíð

mína og hjálpa mér að samræma hana nýju lífi með þér. Við giftum okkur svo, Guð hvað þú varst falleg og yndisleg brúður! Ég gekk um með stjörnur í augum og ástarroða í kinnum. Ég elskaði þig þá og elska þig jafnheitt nú.

Heimilið okkar á nýjum stað er þrengra en þröngt mega sáttir sitja – veggir og víðátta ráða litlu um ástina. Elsku, hjartans kona, ég á þér svo margt að þakka og elska þig svo heitt að ég get ekki einu sinni komið orðum að því. Þú ert heilladísin mín, ástarstjarnan undir Hraundröngum. Ég skrifa þér þetta bréf í tilefni af brúðkaupsafmælinu okkar

sem er nýliðið. Við eigum eftir að rækta ást okkar í mörg ár enn. Fyrirgefðu gallana mína, ég veit þeir eru ýmsir. Þeir koma úr fortíðinni. Með ástarkveðju. Þinn Guðmundur. (2016)

 

Ástin hefur hýrar brár

Vissulega býr ást mín

í sálinni

í hugsuninni

í tilfinningunum

Hvernig væri annars hægt

að finna hlýju í huga og væntumþykju

virðingu og gleði?

Hvernig væri annars hægt að elska?

En ég elska líka með líkamanum

ég finn hitann í brjósti mér

hjartsláttinn

stjörnurnar í augunum

Mér líður alltaf betur í hnjánum

þegar ég elska. (2017)


Besti vinurinn

Ekkert er eins dýrmætt

og að eiga góðan vin

og besta vináttan eru kannski sú

sem verður til í bernsku

Í götunni þinni bjó jafnaldri þinn

Þið kynntust einmitt á götunni

lékuð saman

ólust nánast upp saman

voruð heimagangar hvor hjá öðrum

voruð saman í bekk

þar til ofbeldi einkunnaspjalda

setti ykkur í hvorn sinn bekkinn

fenguð hvolpavitið saman

voruð skotnir í stelpum saman

þær voru líka vinkonur

Leiðir ykkar hafa legið saman alltaf við og við

Þið eruð ólíkir eins og rúgbrauð og kæfa

en bætið hvor annan upp

eins og rúgbrauð og kæfa (2024)

 

Bitlingar

Illt er að lifa á annars brauði,

eins manns lán er hinum dauði

Mér eru boðnir bitlingar af borðum ríkra manna

            „Nei takk,“ samt ég segi

            og svangur höfuð reigi

 

Þótt ég yrði álfum gefinn

ekki réttast mundi hnefinn

móti blauðum bitlingum af borðum ríkra manna

            því huglæg hungurvaka

            er hálfu betri en kaka. (1964)

 

Dauðastundin

Þegar ég legg af stað Í ferðina löngu

standa aðstandendurnir á brautarpallinum

og óska mér góðrar ferðar

 

Þá sleppi ég takinu

Sál mín svífur upp yfir dánarbeðinn

Ég horfi á líkama minn

og alla viðstadda ofan frá

 

Næst birtist mér ljós við enda ganga

sem ég dregst inn í

og ljósið færist æ nær

 

Á einhverjum stað er ég skoðaður og metinn

og fæ þar staðfestingu

um að ég hafi lokið verkefnum þessa lífs

ef ekki, verð ég sendur til baka

 

Þó er talið að ég eins og flest fólk

fái að vera viðstaddur útför mína

greftrun og erfidrykkju

Líklega verð ég því á sveimi

í kringum nánustu fjölskyldu

milli andláts og útfarar. (2025)

Draumur um ríkidæmi

Þú gerðist sjálfstæður atvinnurekandi

Þá vaknaði draumur kommans um að verða ríkur

Það átti líka að gera allt gott í einkalífinu

en þú varðst aldrei ríkur

Eftir nokkurra ára hark fór allt niður á við

 

Gjaldþrota

og algjörlega magnþrota

hrökkstu í kút ef síminn hringdi

ansaðir ekki ef barið var að dyrum

Menn eiga ekki að fást við það

sem þeir ráða ekki  við. (2024)

 

Ein sál

Jú, víst hefurðu skipt um persónuleika

eftir tímabilum

En er ekki eðlilegt að breytast og þroskast?

Hlýtur sál þín þá ekki að vera ein?

 

Svo er hitt sem ekki er hægt að vita

aðeins trúa:

Er sál þín sá innsti kjarni

sem fylgdi þér inn í þetta líf

öðlaðist þar nýja reynslu

og fylgir þér svo út úr því aftur?

Lifandi bergmál

frá fyrra lífi eða lífum og í gegnum þetta líf

og inn í þau næstu? (2024)


Eitt land – mitt land

Eitt nakið land með logn í vík

og ljósan hatt á kolli

lagði af stað með léttan mal

í ljósaskiptum kvöldsins

Sökk í hafið til að sjá og heyra

sanna visku neðan lands og eyra

 

Á hafsbotni var hús á hverjum steini

heldur dimmt og hákarlar í felum

en landið mitt það hratt burt öllum hættum

og hjó sér leið að sjávarguðsins stalli

 

Komdu sæll minn sjávarguð

þú sérð að ég er kominn

Gef mér bita af borði þín

og bjóddu mér í höllu

 

Ég vil nema fræðin fús og hlýðinn

og fara með og kasta fyrir lýðinn

 

En sjávarguðinn reis af sínum stalli

Svo leið ein stund – hann horfði fast á landið

spýtti galli, glennti kjaft og sagði:

Gakk til sætis. Hér er krásafjöldi

 

Eitt sviðið land með logn í vík

Ljósin sýndust blása

Í höllu gekk með grænum lit

og gráma draums og písla

spurði: Fæ ég fræðin fús að læra?

Goðið svarar: Dúlla-salla-væra

 

Þau gengu inn mitt land og landsins drottinn

inn langa ganga, rangala og sali

 

Þau gengu að borðum, blöstu þeim þá við

beinagrindur, hauskúpur og mergur

 

Þá ældi land og spýju spjó

og spennti greipar frómar

Hljóp af stað og hentist út

og happi þóttist fagna

að losna svona létt og vel

frá lygum, svikum, hafsins vél

En gangar reyndust langir, salir luktir

og leiðin brott var hulin sjónum lærðum

Þá leit það upp af góðum vana og gömlum

en guðs þess loft var þakið allt með punktum … (1970)

 

Endurholdgun

Það virðist sannað

af færustu vísindamönnum

að einhvern tíma í eilífðarvistinni

fæðumst við á ný

Að minnsta kosti mörg okkar

Jarðvistin sé eins konar þróunarsetur

þar sem við þroskumst æ meir

 

Sumir endurfæðast oft

aðrir sjaldnar

 

Ég kvíði þessu svolítið

Hvað verð ég í þessum nýju lífum?

Góðmenni eða illmenni?

Karl eða kona?

Eða jafnvel eitt af dýrum merkurinnar?

 

En gaman væri að komast að því

hvað ég var í fyrra lífi

eða fyrri lífum. (2025)

 

Er ástin barnaskapur?

Kær bróðir

sagðist líta á ástina

sem skemmtilegan barnaskap

... og stundum óskemmtilegan

Góð skilgreining

líti menn á bernskuna í sjálfum sér

sem eftirsóknarverðan eiginleika

sem öllum beri að finna á ný

 

Skemmtileg er hún

satt er það

Ég veit fátt skemmtilegra

Óskemmtileg?

Nei, þá er það eitthvað annað

sem truflar:

Samviskubit

Lemstruð fortíð

Skilningsleysi

...

Já já kæri bróðir

ástin er skemmtilegur barnaskapur

ef barnið er enn til (2020)

 

Erum við öll hinsegin?

Að aflokinni gleðigöngu spurði gamall vinur:

Erum við ekki öll hinsegin eins og forsetinn

sagði?

Ekki til að draga úr vægi dagsins

heldur einmitt til að sýna fram á nauðsyn hans

Hann fengi okkur til að hugsa

og skilja

Þetta snýst ekki um að geta skipað sjálfum sér

í einhvern viðurkenndra flokka hinsegin fólks:

hómó -

trans -

pan -

pólý -

streit -

eða hvað sem er

Ég er einstakur

við erum öll einstök

og ást mín er ekki bundin eigin kynhneigð

eða kynhneigð annarra

heldur þeim yndislegu persónum

sem ég elska

Ég er hinsegin (2025)


Ég var orðinnGuð

Í skelfingu minni uppgötvaði ég

að ég var orðinn Guð

það mátti svo sem alltaf búast við því

3 af hverjum 10

lenda í einhverju skrítnu um ævina

en ég hélt ekki

að það væri svo létt

svo raunverulegt

svo rökrétt

því að –

þegar ég fór með bænirnar mínar

fann ég svo vel

að ég var að tala við sjálfan mig. (1999)

 

Ég þakka þér, forsjón

Ég þakka þér, forsjón, þú færðir mér ást

og fegurð af himnum ofan

Indæla konu með yndislegt skap

og ástleitið bros á munni

Ég hreifst af þeim augum og orðanna hljóm

ástfanginn miðaldra strákur

 

Ég þakka þér forsjón, þú færðir mér ást

og fullgilda lífsgjöf með gleði

Við eignuðumst börn sem við dýrkum svo djúpt

dásemdar stúlkur að elska

Guðbjörg og Sóley, tvær systur í raun

sem færa okkur hamingju og gleði

 

Ég þakka þér forsjón, þú færðir mér ást

Ég fæddist að nýju til lífsins

Hætti við ruslfæði og reykingakóf

Það raknaði allt til grunna

Nú líkar mér sannlega sjálfan mig við

sem smáði ég áður og níddi

 

Ég þakka þér forsjón, þú færðir mér ást

Við fundum í hvort öðru samhljóm

Styðjum hvort annað í starfi og önn

og stöndum gegn áfallahrinum

Þessi dísin hún tugtaði og töfraði mig

og tók mig til jarðar að nýju

 

Ég þakka þér forsjón, þú færðir mér ást. (2022)


Feimni er veiki

Fæstum kemur til hugar

að þú hafir verið feiminn í æsku

Þú varst það nú samt

Ef þú varst ávarpaður

vafðist þér tunga um tönn

og þú brást við með flíruglotti

sem gjarnan var misskilið

 

Í tólf ára bekk áttirðu að leika í leikriti

þú æfðir stíft og lærðir hlutverkið utan að

en á sýningardegi veiktistu illilega af feimni

og lást ælandi og skælandi heima

á meðan skólafélagarnir slógu í gegn. (2024)


Ferðamaður

Ferðamaður –

undir háum kletti

æir þú

eftir fárra tíma reið

og ég sé

að nú viltu gjarna hvílast

reisa tjald þitt

skríða í pokann þinn

og sofa... sofa...

En rís upp!

áningarstaður

er bara áningarstaður

mundu að í töskunni þinni

eru meðul handa veikum börnum.


Rís upp!

haltu áfram reið þinni

renndu gæðingum þínum á skeið

láttu grundirnar duna

og svellin gneista

láttu fák þinn renna í hlað

á litla bænum

fyrir sólsetur í kvöld (1972)


Fé eða frami?

Þú bröltir upp í menntaskóla

eftir sæmilegt landspróf

en lentir svo í sálarkreppu

þurftir að velja á milli járnabindinga

og áframhaldandi menntaskólanáms

 

Í járnabindingum varstu fremstur í hópnum

eignaðist fyrsta bílinn

áttir peninga í öllum vösum

en eitthvað vantaði

svo að þú ákvaðst að ganga menntaveg

þótt það kostaði stríðna skólafélaga

og sérvitra kennara. (2024)


Félagsmálafrík

Í háskóla valdirðu ekki þá námsgrein

sem pabbi og mamma vildu

heldur greinar sem aldrei hafa gefið neitt af sér

En það skipti svo sem ekki máli

því þú veltir þér upp úr félagsmálum

og safnaðir vegtyllum hvers konar

Réði metorðagirnd för þinni

eða var þetta löngun til að koma að gagni

og öðlast viðurkenningu?

 

Meðfram háskólanáminu

gerðistu stjórnmálagaur

starfaðir fyrir frjálslynt flokksbrot

sem þóttist vera boðberi lýðræðis

og nýrra aðferða

Það brást. (2024)


Framlíf og væntingar

Af einhverjum sökum held ég

að framlíf okkar hvers og eins

mótist mjög af óskum og hugsunarhætti

hvers og eins

 

Viljum við liggja í kistunni okkar

og rotna til dómsdags?

Eða tökum við þátt

í iðandi þróun hins nýja lífs?

 

Ég veit að ég mun velja það síðarnefnda

því ég vil læra meira

og þroskast áfram

kynnast sem flestum

 

En svo langar mig mikið

til að sinna áfram sumum

af fyrri áhugamálum

 

Og halda áfram að yrkja ljóð. (2025)

 

Framtíðarsýn

Þú átt gott líf framundan

og hefur ekki undan neinu að kvarta

Það veistu sjálfur

Átt yndislega konu

sem gaman verður að elska

öll árin sem framundan eru

Þú átt óviðjafnanlegar litlar dætur

sem vaxa upp og dafna í skjóli ykkar

Þú átt mörg börn sem þykir vænt um þig

og skemmtilegum barnabörnum og barnabarnabörnum

á bara eftir að fjölga

Sjálfur ertu við góða heilsu

andlega sem líkamlega

þrátt fyrir ainstök óhöpp

Þegar þú varðst sextugur

lofaðirðu sjálfum þér

og fólkinu þínu

að eftir það mundirðu aðeins yngjast

Þú stendur auðvitað við það. (2024)

 

Frá ýmsum hliðum

Auðvitað elska ég

alla þá kosti

minni sem meiri

og magnaðar dygðir

Hreyfingar hlýjar

hugljúfar kveðjur

færni og fegurð

fljóðsins míns eina

 

En meira er að marka

og miklu betra

að gallana góðu

ég gjarnan dái

Fáir þó finnast

og fljóðið ei skemma

litlir og leyndir

þeir lífsanda krydda

 

Fegnastur fira

finnst mér þó vera

að mey sú hin mæta

mig skuli elska

þvermóðsku þola

þumbara unna

 

Mest gæfa var gripin

að eg gefinn var henni. (2017)

 

Gamla testamentið

­Eitt áhugaverðasta ritið

sem ég þekki

er gamla testamentið

Það er varla kristið

varla trúarrit

frekar sagnfræðiskrudda

samt trúir fjöldi fólks á það

og enn fleiri trúa á einstaka atburði þess

sumir trúa á sköpun jarðar

sumir trúa á leiðsögn Abrahams

sumir trúa á boðorðin tíu

 

Ýmislegt úr gamla testamentinu hefur ratað

inn í önnur trúarbrögð

eða á ættir sínar að rekja

í önnur trúarbrögð

Múhameðstrú, Gyðingatrú, Baháí-trú

Norænn heiðinn siður,

Mormónatrú, náttúrutrú

 

Hvar skyldi trúin á Mammon lenda?

Eða Satan? (2025)


Gifting aldarinnar

Já, svo kom að því að þið giftuð ykkur

Yndisleg stund

og söguleg

Brúðaraðstoðin mætti of seint

Brúðarbíllinn fastur í umferðinni

Presturinn spurði brúðgumann

hvort brúðurin væri hætt við

Einsöngur varð að tvísöng söngvara og klerks

Myndatakan úti í skógi full af glensi og gríni

Þú varst stoltari en hani á haug

og brúðurin var fegurri en allar heimsins konur

Veislan fjallmyndarleg

Einn veislugesta skilgreindi ætt þína

með eyrnasneplunum

Brúðguminn flutti ljóð sem ekki var ljóð

og allir klöppuðu fyrir

Þeir klöppuð þó enn meira fyrir ljóði brúðarinnar

sem var alvöru ljóð

Þetta var dagur allra daga. (2024)

 

Guð! Eru komin jól?

Helgi Jónsson

á Bræðraborgarstíg

á ekki krónu til jólanna

engin jól koma til hans

presturinn í sjónvarpinu

sagði að jólin kæmu ekki

Jesús kæmi

Jesús kemur ekki

til Helga Jónssonar

á Bræðraborgarstíg

 

Kátt er á jólunum

ég kannast við það

ég var einu sinni lítill

 

Í Betlehem er barn oss fætt

börn fæðast

og deyja yfirleitt ekki

nema úr sulti

barnið í Betlehem

átti góða daga

en fullorðni maðurinn

sonur hennar Maríu

var hálf vansæll

 

Ó Jesús bróðir besti

bræður eru bræðrum verstir

undantekningin sannar regluna

Heims um ból

liggja menn á maganum

og skjóta bræður sína

 

Gleðileg jól

lítið leggst fyrir kappana

ég meina, hvað kemur mér það við?

 

Guð gaf – og Guð tók

þetta al – eitthvað

sem við köllum Guð

sendi okkur jól

til að við gætum skilið sig

við höfðum öll skilyrði til móttöku

í lagi sem börn

en skorti skilninginn

nú – sem fullorðið fólk

er skilningurinn skárri

en móttökutækin

eru öll úr lagi gengin

 

Við erum ekki

á bylgjulengd við Guð. – (1973)

Guð gaf …

Þú eignaðist fyrsta barnið þitt

rauðhærðan hnokka

 

en uppeldi hans fór mestmegnis fram norður í

landi

Þið mamman skildust að

Þú dýrkaðir þennan indæla dreng

heimsóttir hann

og fékkst hann í heimsókn til þín

Síðar var hann hjá þér

Það var dýrmætur vetur

sem aldrei gleymist

Svo ljóslifandi í minningunni

meira en hálfri öld síðar

 

Hann er fastur fyrir

og smitar út frá sér ljúfmennskunni

Auk þess er hann dverghagur í höndunum. (2024)


Gull

Þú ert gull

þú ert gimsteinn

gull í huga og hári

Fingurgull

gaf ég þér

því elska ég gull sem glóir

Þú ert gull

gull hið ytra

þú gullbrydd ert að innan

gyllt er brá

og gullinn svipur

ég gullna brosið elska

Þú ert gull

gullinn rómur

orðin gjörð af gulli

hjartað gull

og gull í tá

úr gulli allt þitt eðli

Þú ert gull

gullið fagra

lífsgull dags og drauma

Lokkar gull

seiðir gull

af gulli lífið ljómar. (2017)

 

Gömul sál

Frá fyrstu mánuðum

var miðguttinn mikill pabbastrákur

Hann fæddist gömul sál

alvörugefinn og íhugull

Minnti stundum á lítinn spörfugl

grannur og með stór vökul augu

Undir niðri næmur og fljótur að hugsa

fús til að hjálpa öðrum

og taka á sig ábyrgð

Með mikla skipulagshæfileika

sterka stjórnunarhæfni

og afskaplega réttsýnn gagnvart öðru fólki

Nær árangri í öllu

sem hann tekur sér fyrir hendur

Ástríkur faðir barnanna sinna

 

og þér er sagt að hann sé ljómandi tengdasonur

og þú veist hann er frábær sonur. (2024)


Hlutverk í lífinu

1.

Lítil stúlka vaknar að morgni

mætir degi

skoðar út um gluggann

Það er góður dagur í dag

spennandi verkefni í vændum

 

Með kornflexinu og súrmjólkinni

lítur hún yfir daginn

í huga sér

Hún ætlar að hitta Sigga sjóara

bróður hans pabba

og vera með honum í vinnunni

 

Siggi frændi er trillukarl

rær eftir fiski á hverjum degi

þegar gefur

 

Um huga stúlkunnar fara ótal spurningar

Skyldi hún muna eftir þeim öllum í dag?

Skyldi hún vita allt um sjómennsku í kvöld

þegar þau leggja aftur að

með fullan bát af fiski?

Stúlkan er fróðleiksfús

allt vill hún vita

2.

Siggi er kominn!

Stúlkan sest upp í bílinn hans

Þau rabba saman á leiðinni

Siggi segir henni frá starfi sínu

veiðarfærunum

bátnum

kvótanum

miðunum

aflanum

reglunum

Þetta er spennandi!

 

Þau fara í skúrinn

sækja línubalana og setja þá um borð

setja í gang

leysa landfestar

og sigla af stað

 

Stúlkan er spennt

en gengur vasklega að verki

Sigga líst vel á hana

og stúlkan lítur upp til Sigga

og treystir honum vel

Þau eru góð saman

 

3.

Á leiðinni út

sýnir Siggi stúlkunni aflaskýrslur

veiðiáætlanir

skipsdagbókina

kvótareglurnar

Hún sökkvir sér ofan í lesturinn

 

Á meðan Siggi fær sér kaffisopa

fær stúlkan að stýra litla stund

 

Siggi sýnir henni veiðarfærin

útskýrir hvert smáatriði

balinn

- hvernig hann er í laginu og hvar hann á að vera

línan

- hvernig hún er hringuð í balann og hvers vegna

beitan

- hvernig hún er sett á krókana og til hvers

belgurinn

- hvernig hann er festur við línuna og gerir sitt gagn

 

Siggi segir frá

stúlkan hlustar með galopnum eyrum og augum

 

reynir að upplifa í huganum það sem frásögnin

snýst um

horfir á svipbrigðin í andliti Sigga

allt stimplast inn í huga hennar

Þetta ætlar hún allt að muna - orð fyrir orð

andartak fyrir andartak!

Þetta er upplifun eins og hún best getur orðið!

 

4

Þau eru komnir á miðin

Siggi hefst handa við að leggja línurnar

stúlkan hjálpar örlítið til

en mestur tíminn fer þó í að horfa

fylgjast með

tengja saman það sem Siggi var búinn að segja

henni

og það sem hann er að gera

Hún fylgist með vinnubrögðunum

horfir á hvert handtak

 

Inn á milli tekur Siggi sér hlé

brosir til stúlkunnar

spjallar við hana um skólann

fjölskylduna

vinina

segir henni frá hinum trillukörlunum

sérvisku þeirra

hvað þeir gera öðruvísi en hann

og hvað hann gerir öðruvísi en þeir

 

Og svo heldur vinnan áfram

 

Innan stundar eru allar línurnar komnar út

nú er bara að bíða þess að aflist

 

5.

Þau sigla á milli belgjanna

skoða og athuga

fá sér nestið sitt

undirbúa sig fyrir næstu törn

 

Það er sól og hiti

en samt hæfilegur svali frá sjónum

 

Þau skoða kortin

og Siggi segir stúlkunni frá miðunum

hafsbotninum

öldunum

straumunum

Allt vill hún vita

og ef hún skilur ekki allt

er hún óhrædd að spyrja


6.

Það er liðið á dag

og kominn tími til að draga línurnar inn

Þau sigla á milli línanna

og Siggi dregur þær inn hverja af annarri

Stúlkan fylgist með

þegar spriklandi fiskurinn er tekinn um borð

Þetta er toppurinn!

Hún horfir svo ákaft á það sem fyrir augu ber

að tíminn hverfur

Hvílík ósköp hefur hún lært á þessum eina degi!

 

Veiðin er góð

Siggi er ánægður með túrinn

segir stúlkuna hafa góð áhrif á veiðina

segist vilja fá hana aftur með sér

segist hafa skemmt sér vel þennan dag

í návist hennar

 

Stundum sé dálítið einmanalegt á sjónum

 

Þau ganga frá aflanum og sigla heim á leið

Stúlkan er hljóð og hugsar um allt

sem fyrir hana hefur borið

þennan dag

 

Þetta er mikið að muna

margt sem hún hefur lært

 

7.

Þau leggja að bryggju

landa aflanum í ker

sem fer beint inn á markað

 

Nokkra fiska fær stúlkan með sér heim

og nokkra tekur Siggi með sér í soðið

Þau setjast upp í bílinn og Siggi ekur henni heim

 

Heima bíða mamma og pabbi

bæði nýkomin úr vinnunni

 

Stúkan hefur frá mörgu að segja

Þetta kvöld er lítið horft á sjónvarp

Þetta kvöld fá tölvuleikirnir frí,

allt kvöldið fer í frásögn stúlkunnar

 

Daginn eftir

ætlar hún að segja frá ferðinni í skólanum

Það verður af nógu að taka

Hún verður að stytta mál sitt

draga saman aðalatriðin

 

flokka alla upplifunina

og búa til úr henni samfellda sögu

 

Skyldu einhverjir skólafélaga hennar

fá áhuga á að gera svipað og hún?

Skyldu einhverjir af krökkunum

geta fræðst af henni?

Skyldu bekkjarsystkinin smitast af áhuga hennar

öllu sem hún veit?

Skyldu þau spyrja hana út í eitthvað?

Skyldi kennarinn líka fá áhuga?

Hver veit? (1999)

 

Horfnir ættingjar

Ég á fimm frábær systkini

sem eru horfin af jörðinni

yfir í Sumarlandið góða

Ég á yndislega foreldra

sem eru horfin af jörðinni

Ég á fjölmarga ættingja og vini

sem eru komin yfir í Sumarlandið

Ég hlakka innilega til að hitta þau

og eiga með þeim góðar stundir

En um leið þætti mér sorglegt

ef ég þyrfti að yfirgefa nánustu vini mína

á jörðunni

konuna mína og börnin

og eina bróðurinn sem ég á eftir

 

Þá sendi ég kveðjur í báðar áttir. (2025)

 

Hraði

Bílar aka alltof hratt sína leið

og margir lenda í áföllum

af einhverju tagi

rétt eins og fólk sem lifir alltof hratt (2025)

 

Hugmyndin

Er Guð hugmynd mannanna

eða maðurinn hugmynd Guðs?

Hvers vegna er svo erfitt

að festa hendur á tilvist Guðs?

 

Er það vegna þess að hann er í öllu

lifandi og dauðu

stóru sem smáu?

 

Er hann þá ekki líka hluti eða inntak

hugmyndarinnar um Guð

og allra hugmynda?

 

Hvort er hann höfundurinn

eða söguhetjan? (2024)


Hugsanir í tilefni ljóðs

Að þú gætir verið þú

var ekki erfitt að skilja

en að ég væri ég

stóð ekki heima

Maður með hugsjónir

og ég

sem undanfarin ár

hef hvorki vitað upp né niður

í mínum eigin skoðunum

marxisti án þess að hafa lesið Marx

lenínisti án þess að þekkja merkingu orðsins

maóisti án þess að hafa hugmynd um neitt

kínverskt

nema ljóð Maós

stalínisti án þess að vita nokkuð um sögu

Rússlands

kommúnisti án kommúnískra vísinda

sósíalisti án sósíalískra lifnaðarhátta

Líkamlegur þróttur

og ég

sem fyrir einu ári

missti allt sem ég átti þá

og meira til

vegna skorts á líkamlegum þrótti

vegna skorts á líkamlegri innlifun

vegna skorts á líkamlegri fullnægju

hlutaðeigandi –

 

Vina

samt veit ég

að þú meinar allt sem þú sagðir

þetta kvöld

að þú meinar allt sem þú ortir

í ljóðinu þínu

þess vegna

leið mér svo vel hjá þér

þess vegna

leið okkur svo vel saman

þess vegna kom ég ekki aftur til þín

Þessa nótt

var ég ríkari

en nokkurn tíma fyrr

þessa nótt

veittir þú mér

af auðæfum líkama þíns

og sálar þinnar

þessa nótt

hefði heimurinn getað farist

án þess að mér kæmi það nokkuð við

 

Vina

ég er hræddur

ég er hræddur við ástina

ég er hræddur við yndislega nótt

sem heldur áfram –

ljúf minning er dýrmæt

en ást sem dvínar

er svo hræðilega sársaukafull

Ef til vill

verð ég ekki alltaf hræddur

en ugglaust

frelsast hugur minn of seint

fyrir okkur –

Vina –

með þökk

fyrir yndislegt ljóð (1996)


Húmoristi

Yngsti sonur minn hefur sérstaka hæfileika

til að gera alla hluti á eigin hátt

öðruvísi en allir aðrir

Rólegur á yfirborðinu

en undir niðri ólga flúðir

Hugsar viðfangsefnin frá öðru sjónarhorni

en flestir aðrir

Þér fannst  yndislegt að ala hann upp

kynnast sérstakri kímnigáfu hans

og einstakri skaphöfn

Svo var hann frábær í hástökki

og ýmsum öðrum íþróttum

Ljúflingur og góður drengur

sáttur við sjálfan sig og tilveruna

Nýtur lífsins með kærustu sinni og hundi

í erlendri borg

Það er ekkert slæmt til í honum

Hann verður alltaf litli strákurinn þinn! (2024)

 

að gefur lífið?

Ég stóð úti á götu

og beið

beið eftir strætisvagni

Þá sá ég lífið

koma labbandi

með hjólbörur í annarri hendi

en bíl í hinni

og hest í rassvasanum

 

Ég spurði hvað gengi á

lífið svaraði:

 

Ef þú vilt eiga hjólbörurnar

skal ég gefa þér bílinn

ef þú vilt ekki eiga hjólbörurnar

skal ég ekki gefa þér bílinn

ef þú vilt eiga hestinn

skal ég gefa þér bílinn

ef þú vilt hann ekki

skal ég gefa þér hest

 

Ef þú vilt eiga bæði bílinn hestinn og hjólbörurnar

gef ég þér ekki neitt

- Hverju ætli ég hafi svarað? (1974)

Hví er ég ekki?

Hvers vegna er ég ekki maðurinn

sem brosir við lífinu?

Vegna hvers er ég ekki maðurinn

sem kinkar kolli til guðs

í einlægri sátt?

Hví er ég ekki maðurinn

sem skopast að skráargati jarðarinnar

gröfinni?

Hvers vegna er ég ekki maðurinn

með rós gleðinnar

í barminum?

 

Hví er ég ekki maðurinn sem hlær? (1975)

 

Hæfileikamaður

Sonur minn tók snemma ástfóstri við körfubolta

og skildi boltann sinn nánast aldrei við sig

Varð mikill snillingur með hann

en líkaði ekki keppnisstússið

Blíður og afar náinn þér

Þið vissuð nánast alltaf hvað hinn var að hugsa

Allt sem hann gerir skal vera fullkomið

Syngur eins og djúpraddaður engill

Gítarinn leikur í höndum hans

og lögin sem hann semur

eru viðkvæm og ljúf

Menntaði sig í hljóðblöndun

tölvufræðum og hugbúnaði

Gefur út tónlist

og kallar sig Sæfara

Nú er hann yndislegur pabbi

og borðar ekki dýr

Hann er hæfileikabúnt í sérflokki. (2024)

 

Illa fer ef ekki fer vel

Góðan daginn gott fólk sagði ræðumaðurinn snjalli er hann tók í sama streng og fyrirrennari sinn og klippti gat á glímubúninginn sinn varð þá uppi fótur og fit í herbergi ljónsmakka því ekki vildi grínagtugi herrann lúta í lægra haldi fyrir einberum ósannindum gengu þá menn á milli og brátt varð friður á þingi hinna lágvöxnu en skömmu síðar kallaði forseti ísí til alla karlana sína og bauð þeim til stofu og sagði litla skáld á grænni grein hví ertu svo bleikur maður ungmennafélag laugdæla er hundrað ára og konan hans sigga er ekki nema tvítug þá er best að signa sig eftir efninu mælti prestur en rautt nefið sagði ekki orð meira þótt unglinga­landsmótið væri nærri búið þótt enn væri rúmur mánuður í það en svona eru þeir í þorlákshöfn lárus minn svona eru þeir hann sagði það hann magnús ég man ekki hvort hann á einn áttatíu og fimm eða einn og níutíu manst þú það lagsmaður hviss nei það fer illa ef ekki fer vel þess vegna skulum við snúa því við og láta það ekki fara illa þá fer það vel. (2008)


Í landi hins fullkomna ljóðs

Í landi hins fullkomna ljóðs

er haldin hátíð í dag

 

Vinur

hví tekurðu ekki þátt

í hátíðahöldunum?

Hví samgleðstu ekki þjóð þinni

vegna afmælis

Íslandsbyggðar?

 

Finnst þér þjóðin

sem fagnar gjöfinni

hafa glatað henni?

Finnst þér bláminn í augunum

ekki jafn sannur og þá?

finnst þér ást varanna

ekki jafn heit og þá?

finnst þér orð leiðtoganna

ekki jafn hrein og þá?

 

Hefurðu lagt í vana þinn

að horfa um of aftur

af vörubílspalli lífsins?

Hefurðu fengið of stóran skammt

af elixír pólitíkusanna?

hefurðu fengið of lítinn mat

fyrir aurana þína?

 

Vinur

hví tekurðu ekki þátt

í hátíðahöldunum?

 

Í landi hins fullkomna ljóðs

er haldin hátíð í dag

 

Ertu of lítill til að gleðjast

vegna hins smáa

sem er horfið?

ertu of stór til að gleðjast

vegna hins smáa

sem þú hefur?

 

Vinur

hví tekurðu ekki þátt

í hátíðahöldunum?

 

Í landi hins fullkomna ljóðs

er haldin hátíð í dag. (1974)

 

Í orðastað sr. Friðriks

Hér áður var knattspyrnan göfug og glæst

og garpar á velli sem skoruðu hæst

Þeir voru hreinir í huga

vildu heiminum duga

Þeir voru hetjurnar sólunni næst

Þessir drengir svo fimlega léku sinn leik

af leikni og drengskap með höfuðin keik

 

Þeir sóluðu saman

og í sigri var gaman

sína samherja enginn þá sveik

En hvað er á seyði, hví brestur svo brátt?

Hví bilast og skekkist á ferlegan hátt

Er þetta íþróttin okkar?

Er það auðsvon sem lokkar?

 

Hví eyðist sú drengskapar sátt?

Nú eru veðmál og mútur og spilling og spé

sprettharðir vaða þeir leðju í hné

Flest í gróðavon glatast

og með græðginni fatast

í gulldansi um bónusa og fé

 

En víst eru flestir sem finnst þetta illt

þótt fátt geti aðhafst og engu um bylt

Því að forystan fína

með alla fjármuni sína

svo forrík kýs vera og spillt

 

En látum ei hugfallast hetjur og lið

hefjum upp fánann gegn útlenskum sið!

Ef stöndum við styrkir

bæði sterkir og virkir

Þá við stefnum á framtíðarmið. (2023)

 

Í trúlofunarstandi

Það var stór ákvörðun fyrir ykkur bæði

og stór stund

þegar þið hétuð hvort öðru trú

og síðar hjónabandi

Hringarnir voru fallegustu hringar í heimi

veislan full af gleði og ást

og þú ortir henni þitt besta ljóð

Í sjöunda himni býr sólin

og veit ekki að ég er til

Hvílík ást

Hvílík hrifning

Þetta kom þér fullkomlega á óvart

skemmtilega

yndislega á óvart. (2022)

 

Í útlendra skjóli

Glaðbeittur fórstu til útlanda í háskóla

Mestur tími fór þó í landhelgisbaráttu

Þú varðst róttækari með hverjum deginum

Þú lærðir ekki mikið þá

 

Allt í einu varstu kominn í útlenda kommúnistasellu

og reistir níðstöng gegn íslenskum ráðherra

vegna lélegra námslána

 

Eftir fjögur ár lá leiðin heim

þú varst orðinn róttækari en sjálfur Stalín

fráskilinn maóisti

búinn að þýða ljóð asískra kommúnista

norsk ljóð og sögur

og sjálfan Morgan Kane. (2024)

 

Íþróttamaður

Þú varst af þekktri íþróttaætt

og áttir því draum um að verða afreksmaður

það tókst til að byrja með

þú stofnaðir félög með yngri bræðrum

og vinum í götunni

þú varst bestur í flestum íþróttum

og fæddur leiðtogi

það hjálpaði upp á sjálfsálitið

og gerði þig dálítið góðan með þig

Auk þess varstu stærstur

og lappalengstur á þeim árum. (2024)

 

Kirkjan blessar vopnin

Ég þykist vita

að rússnesk réttrúnaðarkirkja

hafi blessað vopnin sem Rússar

ruddust með inn í Úkraínu

 

En skyldi útibú réttrúnaðarkirkjunnar í Úkraínu

hafa blessað vopnin

sem notuð voru

til að drepa Rússa?

 

Hvers vegna telja kirkjunnar menn

að réttlætanlegra sé

að margblessuð vopnin

drepi hermenn

en almenna borgara?

Eða skiptir það engu máli?


Kommi

Þótt þú værir orðinn harður kommúnisti

og félagi í ningarsamtökum

marx-lenínista

varstu aldrei alveg sannfærður

Réttlæti og jöfnuður - já

Góður boðskapur -  já

en framkvæmdin oft klaufaleg

og aðdáun á fræðikenningunni heldur mikil

Þú áttir líka erfitt með að taka þátt í persónudýrkun

á foringjum byltingarinnar

nema þá helst Maó gamla

 

Þú fluttir þó norður til að leiða byltinguna þar. (2024)


Kynferðisofbeldi

Nauðgun er nauðgun

hvort sem hún er framkvæmd af Jóni

eða séra Jóni

Þetta segir páfinn okkur

biskuparnir og dýrlingarnir

Hvers vegna bætist þá alltaf við

þessa biblíu svörtustu syndarinnar?

Auðvitað eru prestar og prelátar mannlegir

en hafa þeir leyfi til að vera ómannlegir

og varpa af sér mennsku sinni?

Ættu þeir ekki að vera fyrirmyndir

frekar en að apa eftir því myrkasta og ljótasta

í þessum heimi?

 

Jafnvel Guð hefur ekki leyfi til

að beita eða líða ofbeldi

Þeir sem það gera eru á annarra vegum. (2025)


Líf á líf ofan

Sumt sem þú upplifir

hefur þú upplifað áður

þótt þú upplifir það í fyrsta sinn

Áttu þér fyrri líf?

Fyrri tilveruskeið?

Spennandi tilhugsun

sem vekur enn fleiri spurningar

 

Hver valdi þér þetta líf?

Þú sjálfur?

Hvers vegna einmitt þetta líf?

Þú brýtur heilann um

hver þú varst í fyrra lífi

og hver þú verður í því næsta

Þú vilt samt ekki vita það. (2024)

 

Lífið að loknu þessu

Andlát mitt er ekki dauði

heldur flutningur andans á nýjan stað

Þessi nýi staður

er stundum kallaður Sumarlandið

því að þar líður okkur vel

Og ég verð laus við alla

líkamlega kvilla

 

Að vísu –

Ef ég hefði verið

eindreginn bókstafstrúarmaður

eins og þau sem kenna sig við hvítasunnu

þá yrðu næstu þúsund árin leiðinleg

á meðan ég bíð dómsdags

í kistu minni (2022)


Ljóðið sem ekki varð til

Eins og allir vita sem hér eru inni - eða a.m.k. flestir – hef  ég alla ævi gengið með skáldadrauma í maganum. Ég ætlaði því að yrkja ljóð um yndislegu konuna mína, þar sem ég faðmaði hana með fallegum orðum, dásamaði hana fyrir allt sem hún er og sýndi henni hvað mér væri annt um hana. Því það er mér svo sannarlega. En þá bregður svo við að mig brestur orð. Sjálfur tjáningarkennarinn kemur ekki orðum að hugsun sinni. Sjálfu ljóðskáldinu tekst ekki að tjá sig. Sem betur fer held ég að þetta komi allt síðar og þá mun ég yrkja svo mörg ljóð til hennar að henni verður nóg um. Þessi kona á ekki bara skilið eitt ljóð eða tvö, heldur öll þau ljóð sem ég næ að semja. Ég er þegar farinn að hugsa um ljóðabókina sem ég fylli af ljóðum til hennar. Eða ljóðum sem ég get tileinkað henni á einhvern hátt. En í dag - því miður - varð ekkert ljóð til. Nema ein stutt setning sem fær vængi og flýgur út úr hjarta mínu. Ein setning sem mér tekst með erfiðismunum að stynja upp:

Ástin mín, ég þakka þér fyrir að vera komin inn í líf mitt! (2007)

 

Loforð

Í sjöunda himni býr sólin

og sendir geisla sína á mig

Ég er mannfólkið og minnist þess

hve margt býr í þoku hins ókomna

Vorum eins og tvær töfrum slegnar sálir

tvíburar á jörð ókunnugleikans

Enginn veit hvaða hjörtu hittir fyrir

hárfín sending bogastrengsins

Lengi blésu stormar á ströndinni vænu

stöðug hljóð gnauðuðu um vanga

Lengi rann svalt vatnið um vegleysur fjallanna

og vonin þóttist brenna upp eins og kerti

 

Þegar frækornin fjúka úr öllum áttum

og flýta sér öll á sama áfangastað

lítur Guð upp frá guðlegri sýslan sinni

og gefur upp á nýtt í póker mannlífsins

Í sjöunda himni býr sólin

og sendir geisla sína á mig

Ég er mannfólkið og minnist þess

hve margt býr í þoku hins ókomna

Framundan er fullur haldapoki af glóð

framrás orkunnar sem býr í lífsblóminu

Gagnagrunnur vissunnar gengur í endurnýjun

og grátklökk söngröddin þenur brjóst sitt

 

Allt vort líf er dásamlegt dirrindí

dísir kyrja söngva sína um nætur

Ljóð flæða lausbeisluð um tungur okkar

og lokkar eru greiddir fyrir norðan

Í sjöunda himni býr sólin

og sendir geisla sína á mig

Ég er mannfólkið og minnist þess

hve margt býr í þoku hins ókomna

Hvers vegna að þegja yfir því sem ég sé? (2005)

 

Lyftuhurðin

Hurð opnast á leiðinni niður

Hurð lokast á leiðinni upp

 

Misjafnt er mannanna bölið

Sumir eru heppnir

og smeygja sér framhjá sérhverri þraut

Aðrir eru óheppnir

og leita uppi öll vandræði

sem á vegi þeirra verða

 

Tilgangur lyftukvenraddarinnar er þó

góður

með tilkynningum sínum

Hún á við að hvorugt gerist:

            Hurðin opnist EKKI á leiðinni niður

            því þá gætir þú fallið út úr henni

            og meitt þig

            Hurðin lokist EKKI á leiðinni upp

            því þá gætir þú klemmt fótinn á milli

            og misst hann

 

Svo ekki sé talað um að það eru dyrnar

sem opnast og lokast

ekki hurðin. (2025)

                       

Lækningar að handan

Læknar deyja eins og annað fólk

Látið fólk getur jafnvel lært til læknis

Sumir þeirra sinna nýlátnu fólki

sem þarfnast hjálpar

Aðrir fara þangað sem sjúkdómarnir herja

Og líkna fólki á jörðinni

Í táradalnum sem kallaður er

 

Við þekkjum sögur af mönnum

eins og Einari frá Einarsstöðum

Og trúið mér

Þessar sögur eru sannar

Það segja okkur gögnin og reynsla

fjölmargra sem læknuðust (2025)

 

Maður bað um krabbamein

I.

Krabbamein krabbamein –

 

hvarvetna deyr fólk

úr krabbameini

hvarvetna svífur krabbamein

eins og þungbúið óveðursský

yfir mannfólkinu

enginn óskar eftir krabbameini

enginn biður um krabbamein

 

II.

Hryllingur

þegar læknirinn tilkynnir sjúklingi sínum:

– þér eruð með illkynja æxli!

 

örvilnan

svo stutt eftir

svo lítið búið

svo margt eftir að gera

 

engin von um bata?

engin von um að lifa?

aðeins dauðinn framundan?

 

III.

Það gerist svo oft

svo oft

svo alltof oft

að fólk deyr úr krabbameini

enginn óskar eftir krabbameini

enginn biður um krabbamein

 

IV.

Þó var það fyrir nokkrum vikum

að ungur maður

– sumir segja hann gamlan –

gekk á milli manna

og bað um krabbamein

Þessi ungi maður

BAÐ um krabbamein

BAÐ UM DAUÐANN

BAÐ UM DJÖFULINN

 

Hvers vegna bað hann um dauðann?

 

Það hefur ekki frést

ekki ennþá

hvort þessum unga manni

hafi tekist

að ná sér í krabbamein

en við höfum heyrt

að sumir vilji allt fyrir hann gera

 

hvers vegna vilja þeir hann feigan?

 

V.

Ef til vill

er þetta allt í gríni

ef til vill

fær hann ekkert krabbamein

 

en Guð minn góður

takist honum að kría sér út krabbamein

þar sem hann gengur á milli manna!

 

hvern sjálfan andskotann á þá að gera? (1975)

 

er að linni

Þú hefur lært margt

sem þú getur nýtt þér strax

og sál þín getur nýtt sér síðar

Þetta jarðlíf er fyrirtaks háskóli

og lærdómurinn margs konar

boðorðin þín eru miklu fleiri en tíu

 

Allt er þér mögulegt ef viljinn er fyrir hendi

óháð uppruna þínum, stétt og aldri

Þú þarft ekki að láta neitt stöðva þig

 

Ást þín er sterkasta og hreinasta aflið

sem þú ræður yfir

aðeins ástin getur bjargað mannkyninu

ekki fræðikenningar

 

Guð er þér nauðsynlegur til að vera til

því er engin ástæða fyrir þig til að hafna honum

þótt þjónar hans séu kannski misvitrir

 

Maki þinn, börn og afkomendur

skipta þig þó mestu

meira máli en starfsframi

fjármunir

eða skoðanir annarra á þér. (2024)

Meira en allt

Ég á yndislega konu

sem er mér allt

Stundum er ekkert meira um það að segja (2017)

 


Misnotkun

Trúarbrögð snúast um trú

einkasamband einstaklinganna

við þann guðdóm sem þeir hafa kosið sér

eða sem hefur kosið þá

Trúarbrögð eru skyldari tilfinningum

skyldari innsta eðli mannsins

heldur en skoðunum hans eða rökvísi

 

Þess vegna hefur enginn leyfi til

að troða sinni trú upp á aðra

Ekkert leyfi til að nota trú sína

sjálfum sér til framdráttar

Alls ekkert leyfi til að nota kirkju trúar sinnar

til hagsbóta eða fyrirgefningar

svartsynda og ofbeldis

eða til að hvítþvo spilltar stjórnmálastefnur

 

Því miður hefur kirkju Guðs

mistekist að boða hreina trú

Trú siðferðis og verndar manninum

Það sýnir okkur vel

hve erfitt getur verið að gera kröfur til

mannanna

prestanna (2006)

 

 

Ný fjölskylda

Kona í samtökum kommúnista

varð eiginkona þín til tíu ára

og móðir þriggja sona

Þú fékkst að reyna það um sinn

að vera heimavinnandi foreldri

Dásamleg reynsla

Þú gerðist einnig íþróttapabbi

þeyttist um landið allt og fórst  til Færeyja

í fótboltaferð

Strákarnir urðu miklir afreksmenn

í boltagreinum og hástökki

Gamli þrístökkvarinn hvatti þá óspart

Allir eru þeir á einhvern hátt líkir þér

en samt sérstakir og ólíkir innbyrðis. (2024)

 

Ofsatrú

Pabbi minn blessaður

gerðist félagi í Hvítasunnusöfnuðinum

Þeir tóku honum vel

og skírðu hann á samkomu

Honum líkaði vel

og fannst hann vera á Guðs eigin vegum

innan um gott fólk og heilt

Dag einn

heimsóttu hann í búðina hans

tveir af foringjum safnaðarins

Þeir grandskoðuðu vörurnar sem hann seldi

og tilkynntu síðan:

 

Elsku vinur

Þú ert besti vinur okkar

og eftirlæti Guðs almáttugs

Hann vill þér ekkert nema gott

Við erum boðberar hans

og færum þér orð hans

 

Þú ert góður félagi

Þú ert skírður og heilagur

Hér eru mörg hundruð plötur

Með myndum af hálfberu kvenfólki

sem dýrkar djöfulinn með söng sínum

Hér eru tímarit full af sóðaskap og myndum

af hálfberu eða allsberu kvenfólki.

 

Þessu verður að linna

Strax í dag

 

Pabbi svaraði

Þetta er mín búð

og þessu ræð ég

 

Daginn eftir gekk hann úr Hvítasunnusöfnuðinum. (2023)

 

uð tók

Mamma þín gerði þér grikk á þessum árum

Hún dó frá þér

og ykkur bræðrunum og pabba þínum

Af hverju gerir fólk svona?

En æ, hún gat ekkert að þessu gert

krabbaskrattinn át hana upp

og raunar alla fjölskylduna

eftir áratuga heilsuleysi

og sorg yfir dánum börnum

Þér þótti missirinn sár

en lést þó lítið á því bera

tárin voru löngu þornuð

Sorgin fékk þó útrás í ljóði

sem grátandi Guðsmaður las við útförina. (2024)

 

Opnað fyrir ástina

Til að verða ástfanginn

þarf að opna fyrir ástina í hjarta sínu

Það gerðir þú

Hjarta þitt var opið um stund

og þráði að lifa

Þá hittirðu hana

og hjarta þitt fylltist af ást

 

Heppinn varstu að henni virtist eins farið

þú fékkst að njóta tilfinninga

sem þú hélst að væru þér ekki lengur til

Sömu tilfinningar, áhugamál og skoðanir á svo

mörgu

Þið voruð eins og sköpuð hvort fyrir annað

 

Þú varst og ert enn gagntekinn af ást og hrifningu

Hún er í þínum augum fegursta kona á Íslandi

og þótt víðar væri leitað

Augu hennar sem tindrandi stjörnur

röddin sem blíðasta hljóðfæri

Svo veit hún allt

og kann allt

sem þú kannt ekki sjálfur

en vildir kunna. (2024)

Óður til græðginnar

Græðgi

er öllum löstum verri

í samfélagi manna

Umhyggja fyrir heilsu og líðan Siggu litlu og Ólafs

gamla

hefur vikið fyrir fjárhagslegum hagsmunum

Heilbrigðiskerfinu blæðir fólki til ólífis

Barnavernd víkur fyrir hagsmunavernd ríksbubba

Umönnun aldraðra er sett á sveittan klaka

Peningarnir þurfa að fara í annað

Sigurveig kennari er illa launuð

nær ekki endum saman

skólinn hennar berst í bökkum

menntun barnanna er komin í baksætið

ef ekki aftur í skott á samfélagsbílnum

fjárhagslegir hagsmunir segja ráðamenn

Unga parið Alla og Dóra fær ekki þak yfir höfuðið

né peninga til að safna sér fyrir útborgun

Leigumarkaðurinn heimtar hálf mánaðarlaun

vinnandi fólks

Bankarnir lána aðeins gegn okurvöxtum

Samfélagið skellir við skollaeyrum

Fjárhagslegur hagsmunir?


Græðgi

er öllum löstum verri

í samfélagi manna

Fátækt grasserar á Íslandi

Atvinnulaust fólk, öryrkjar, aldraðir, námsfólk

Láglaunafólk á varla fyrir mat og alls ekki fyrir

húsnæði

né bíl til að komast leiðar sinnar

Samt þykir samfélaginu mikilvægara

að bankaguttarnir fái sína bónusa

og græði – jafnvel á meðan þeir sitja af sér dóma

fyrir glæpi

Ferðamenn kvarta undan okri og græðgi

Venjulegt fólk hefur ekki efni á að heimsækja

Ísland

En það er víst allt í lagi

 

Við viljum aðeins ferðamenn sem eiga nóg af

peningum

og eru nógu heimskir til að afhenda okkur þá

Gestrisni er ekki lengur til

Borga, borga, borga ...


Á meðan fólk á flótta kvelst um allan heim

hefur misst heimili sín og viðurværi

sitjum við hér á skerinu

og tökum við örfáum þeirra til gnægtalandsins

okkar

Vasar okurlánaranna leyfa ekki meira

Þeir eiga svo bágt

Græðgi

er öllum löstum verri

í samfélagi manna

Hvenær auglýsir Þjóðkirkjan eftir biskupi

með menntun í markaðsfræðum

svo hægt verði að verðleggja huggunina sem

nákvæmast?

Hvenær mætir Sigurjón læknir í vinnunna með

vasareikni

til að reikna út lífslíkur og fjárhagslegan ávinning af sjúklingum sínum

áður en hann reynir að lækna þá?

Erum við ekki lengur manneskjur?

Hvenær urðum við að kassavélum? (2019)

 

Ópíum

Marx og félagar voru með þetta á hreinu

trúin er ópíum fyrir fólkið

Þér fannst kirkjan auk þess jafn meingölluð

eins og ASÍ og ríkisstjórnin

Alla ævina hefurðu því sjaldan sótt kirkjur ótilneyddur

 

Þér finnst þó einhvern veginn ómögulegt

að hugsa þér heiminn án máttar Guðs

og það góða í öllum mönnum

hlýtur að vera frá Guði

Þess vegna trúir þú á Guð

og vilt ekki fara á mis við hann

 

Samt er það svo

að þú þagnar einatt í miðri trúarjátningu

þegar kemur að setningunni

„Ég trúi á ... heilaga, almenna kirkju ...“

Kirkjan er ekki Guð. (2019)

 

Rangeygur

Fimm ára dastu á hausinn

ofan af borði

og varðst rangeygur

Það var frekar vont fyrir sjálfsmyndina

Félagarnir gerðu gys að þér

fyrir að einblína svona á eigið nef

Sumarið eftir sjö ára bekk

hafðirðu fengið nóg af stríðninni

þá breyttust augun

og þú varðst í staðinn tileygur

Eftir það vissi enginn

á hvern þú varst að horfa

 

Það kom sér oft vel

þegar þú fórst að kenna. (2024)

 

Rörtöngin

Ég er rörtöng, kæru vinir, og rörtöng alltaf verð

þótt ryðguð sé og orðin smá til verka.

En ég hef alltaf verið svolítið undarlega gerð

og aldrei viljað kalla mig neitt sterka.

En í samstarfi með öðrum geri ég  mitt gagn,

geri ég mitt allra besta gagn.

 

Ég hef skrúfað sundur katla og kannað heiminn

fús,

krana fest á eldhúsbekki  og tanka.

Ég hef komið inn í villur og  vegleg frystihús,

í verkamannaháhýsi og banka.

En þó er ein mín iðja sem allra hæst ég met,

iðja sem ég framar öllu met.

 

Þér finnst hún kannski skrítin, sú skoðun sem ég

hef,

og skammarleg af rörtöng, það má vera.

En fyrir þetta álit mitt ég æru mína gef

og einskis met, hvað  aðrir segja og gera.

Í mótlætinu styrkist og eflist álit mitt,

eflist þetta  skrítna álit mitt.

 

Í hendi verkamannsins sem vopn gegn illri nauð,

sem varnartæki fátæks manns gegn kúgun,

sem lítilmagnans brandur gegn lygavaldsins auð,

gegn lævíslegum  áróðri og þrúgun.

Í baráttu hins smáa  um brauðið tek ég þátt,

í baráttunni tek ég fullan  þátt.

 

Og því, mín kæra systir, vil ég segja við þig eitt,

að síðustu er eitt, sem þú skalt muna:

Sú hönd, sem um  þig heldur, til höggs þig getur

reitt,

og högg það verður stærra en þig mun gruna.

Því í  sameiningu getum við sigrað hvað sem er,

sigrað allt sem  rangt og logið er.

Því í  sameiningu getum við sigrað hvað sem er,

sigrað allt sem  rangt og logið er. (1974)


Sagan um Jesú

Jesús fæddist

Það er nokkuð ljóst

En vitum við hvenær?

Hann reyndist góður maður

Margt sem hann sagði

hefur fagran boðskap

Eiginlega allt

Það sem hann gerði

hefur líka fagran boðskap

enda var hann sósíalisti inn við beinið

 

En segið mér:

Dó hann?

Lifir hann ekki enn

meðal okkar?

Innra með okkur?

 

Ó, Jesú bróðir besti!

Var það ekki tilgangurinn? (2024)

 

Sambúðin

Að sumu leyti eruð þið lík

en ólíkara fólk en ykkur tvö er þó vart að finna

Kannski er það þess vegna

sem sambúðin er svo hnökralítil

Þú með alla þína galla

og nokkra kosti

hún með alla sína kosti

Ískaldan húmor og sjóðheitt bros

Augu sem sjá í gegnum veggi og múra

Eyru sem heyra þögnina

Hug sem skilur hið óskiljanlega

og greinir þrívídd í tvívíðum texta

Hendur sem leika við matseld og bakstur

Þú ert lánsmaður

 

Saman ætlið þið að eldast

sigrast á mótbárum lífsins

og berast áfram í meðbyr áranna

Þið elskið hvort annað

Á betra verður ekki kosið. (2024)

 

Sannur bróðir

Þú átt einn bróður eftir

upphaflega voruð þið sjö

En þessi eini bróðir er á við átta

Ungur drengur var hann afburða myndlistarmaður

síðar sanngjarnasti fornkaupmaður landsins

en lét þó enga stráka komast upp með neitt

múður

og leiddi þá út á eyrunum

Hjálpsamari maður er ekki til

greiðviknari né skapbetri

Ljúfur bróðir sem þér þykir vænt um

Þið eruð ekki alltaf sammála

en getið rætt endalaust saman

um landsins gagn og nauðsynjar

eða landsins skrum og skaðsemi

Hugsaði vel um föður ykkar

meðan hann lifði

Hann er ljúfur faðir sonar síns

og vinur vina sinna. (2024)

 

Sjötíu ára ástarsaga

Sjötíu ára ástarsaga

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

enda er ég bara gamall guðmundur

úr kleppsholtinu

getinn af Sæmundi pabba sínum

sem elskaði konuna sína

fæddur af Guðrúnu mömmu sinni

sem þótti undurvænt um Sæma sinn

ólst upp á dögum Bjarna Ben eldri sem

borgarstjóra

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

enda gekk strákstaulinn í Langholtsskóla

 

og kastaði óvart snjókúlu í Gísla skólastjóra og

faldi sig

lærði að lesa og reikna hjá Elínu kennara

en enginn gat kennt honum fallega rithönd

fór svo í Vogaskóla

þar sem hann varð frægur fyrir að þykja íslenska

skemmtilegasta námsgreinin

sérstaklega málfræðin

fyrir að dá Ívar íslenskukennara

og vera ljómandi góður í stærðfræðinni

hjá Lýði Björnssyni sagnfræðingi

Feiminn og hjárænulegur

en varð þó skotinn í stelpu

og fór með henni í langar gönguferðir um

Vogahverfið

 

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

enda innritaðist slöttólfurinn í Menntaskólann í

Reykjavík

fékk mínus 9 í stafsetningu

í fyrstu stafsetningarprófunum

hjá Jóni Gúmm

varð leikinn í að svara Bodil Sahn

án þess að þéra

Hætti eftir fyrsta árið og fór í járnabindingar

Lítill tími í stelpustand en heilmikill töffaraskapur

á eigin bíl og hvaðeina

 

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

enda var töffarinn sendur austur fyrir fjall

í Menntaskólann að Laugarvatni

Hitti þar ofjarla sína í áfengisneyslu

reykti eins og strompur og varð antisportisti

Diskúteraði endalaust við Óla Briem um Völuspá

og við Jóhann skólameistara um heimspeki

við Þóri Ólafsson um gagnsleysi efnavísinda

Eignaðist kærustu og rauðhærðan son

alveg yndislegan

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

enda fór gáfnaljósið nú í háskóla

gerðist virkur í stjórnmálum

varð Hannibalisti

en þóttist alltaf vera á móti Hannibal

vann og drakk og duflaði

og lærði lítið

en lauk þó því skólanámi sem ljúka þurfti

eignaðist dóttur og kvæntist

 

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

enda lá leiðin næst til Noregs

með konu og dóttur

þar sem safnað var hári og barist gegn Bretum

Pólitík tók meiri tíma en námið

sem sat á hakanum

Flúði til Bergen fráskilinn

í hið ljúfa rigningarlíf

eignaðist son

 

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

enda fer ekki fleiri sögum af gaurnum

hann þvældist til Reykjavíkur

Akureyrar

Grafarvogs

Hann eignaðist þrjá fagra syni í viðbót

kvæntist öðru sinni

og skildi – öðru sinni

 

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

gerðist útlagi skuldum vafinn

í Skógum undir Eyjafjöllum

 

varpaði af sér byrðinni

á Laugarvatni

 

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

enda varð karlinn ástfanginn á ný

kominn hátt á sextugsaldurinn

kvæntist í þriðja sinn

lífið er yndislegt

 

Það er ekki eins og ég viti neitt

um ástina

en ósköp hefur þó ástarsaga mín verið

skemmtileg

Ég á átta börn

níu barnabörn og meira að segja  fimm barnabarnabörn ...

og ég elska konuna mína af öllu hjarta. (2016)

 

Skakkur samanburður

Þú varst elsta barnið

en samt fjórða barn foreldranna

Það var svolítið snúið

Ef þú gerðir eitthvað öðruvísi en til var ætlast

fékkstu einatt að heyra

hve börnin sem dóu hefðu verið þæg

og yndisleg

Þetta var afskaplega erfiður samanburður

en smám saman

lokaðirðu eyrunum. (2024)

  

Skáld draumanna

Þrátt fyrir andstreymi og áföll

hættirðu aldrei að trúa því

að þú yrðir einhvern tíma skáld

Samt gerðirðu frekar lítið í málinu

 

Þú þýddir ljóð eftir útlenda poppara

og norsk nútímaljóð

ortir tækifærisljóð við tækifæri

skrifaðir erfiljóð, afmælisbragi og skírnarkvæði

kennslubækur og áróðursgreinar

fórst svo út í fræðileg skrif

En ekkert af þessu gerði þig að skáldi

Hundrað árum síðar gafstu út eigin ljóð

Þá varstu loks orðinn skáld. (2024)

 


Skáld fyrstu ástar

Árangurslaust

leita ég skáldlegra harma minna

 

árangurslaust

leita ég skáldlegra orða minna

 

árangurslaust

reyni ég að beisla skáldfák minn

 

árangursríkt

finn ég ást mína

 

árangursríkt

finn ég orð til að tjá ást mína

 

árangursríkt

sleppi ég beislinu fram af ást minni

 

í gærkvöldi

hvíslaði ástin mín: gvuð!!!

 

og nú þarf ég ekki lengur að vera skáld. (2008)

 

Skrítið

Það er undarlegt

eftir 50 ára strit

og fátækt

eftir 50 ára gleði

og ánægju

eftir 50 ára ferð

um lífið

– að komast að því

að fjöllin

hafa sáralítið breyst. (1970)

 

Sonur á fertugsaldri

Sé einhver afkomenda þinna líkur þér

er það sá sem fáir vissu af

í þrjátíu og fimm ár

ekki einu sinni hann sjálfur

Góður drengur og vandaður

ótrúlega vel upp alinn

þótt þú kæmir þar hvergi nærri

Róttækur hugsjónamaður

og alvörugefinn galgopi

Allt í einu stækkaði fjölskylda þín um sex manns

sem gaman er að kynnast

Æðislegt! (2024)

 

Stjórnmál

Stjórnmál þjóðinni steypa

svo stingst á bólakaf

af græðgi í veg og völd.

Svikin sálirnar gleypa,

sælu breyta í draf.

Því tárast kinnin köld.

Hégómleiki, fals og heimskuþankar.

Höndin blauð í eigin pyngju sankar.

Þjóðin seint af þrautasvefni rankar.

Hún þykist sæl ef áfram hagnast bankar.

 

Lýðræði kerfið sitt kalla

sem kunna að svíkja grið

með lygum og laumuspil.

Veikustu vígin þá falla:

Von um sátt og frið

nú fokin er fjandans til.

Flokksvél hafa fólin leitt til valda,

fégirnd dýrka, smjaðri og bugti tjalda.

Alþjóð fær með skorti og skömm að gjalda.

Skrumskælt frelsi,  grimmdin harða og kalda. (2019)

 

Styrkar stoðir

Námsárin þín

átti að heita að þú lifðir á námslánum

en það var samfélagslega ósatt

Það sem hélt í þér lífi

og litlu fjölskyldunni þinni

var vinna í fríum og með skóla

heima og erlendis

Þú þýddir bækur og last í útvarp

skrifaðir útvarpsþátt um kirkjuklukkur í Noregi

og annan um Einar Ben

uppdigtað viðtal við löngu látinn mann

En allt hefði komið fyrir ekki

ef pabbi þinn hefði ekki stutt þig

með ráðum og dáð

hann var dáðadrengur

og mamma þín skrifaði bréf til stráksins síns

og bað Guð að blessa hann. (2024)

 

Taktu stökk, öldungur!

Hver er hinn ungi öldungur

sem yngist með ári hverju?

 

Taktu undir þig stökk!

 

Úr hnefa eilífðarbandsins

sprettur goðmagn þess hugarafls

sem býr í líkama vorum

albúið til átaka

albúið til afreka

albúið til þátttöku

 

Sigur er vís

Taktu undir þig stökk!

Þeir sem vilja ná markmiði sínu

renna skeiðið á enda

Þeir sem vilja sigra lögmál kyrrstöðunnar

láta atrennuna bera stökk sitt himinhátt

Þeir sem vilja sigra

sætta sig ekki við að tapa fyrir sjálfum sér

 

Þú ert síungur öldungur

Taktu undir þig stökk!

 

Sigurinn í dag gerir þig ungan

Sigur morgundagsins færir þig nær sólunni

 

Taktu undir þig stökk! (2013)


Táningsástir

Þú varst afskaplega feiminn við stelpur

alveg frá unga aldri

Merkilegt

eins og þú varst nú sætur drengur

 

En þú varst samt oft skotinn

og fannst fiðring í maganum

 

Um fermingu áttirðu kærustu

þið leiddust um hverfið

þegar enginn sá til. (2024)

 

Töffari með bjútílokk

Á svipstundu breyttist allt

um fjórtán-fimmtán ára aldurinn

Eins og snortinn

af sprota töfradísar

Fórst á sjóinn og varðst töffari

þóttir að vísu ekki fiskinn

varst yngstur um borð

og lagður í einelti

Svaraðir fyrir þig með níðvísum

kepptir í limbórokki austur á fjörðum

snoppufríður unglingur með Presley-lokk

eignaðist kærustur

Fórst í kappdrykkju

og manst ekki meira eftir því kvöldi

Vannst þér inn fullt af peningum

en eyddir því öllu í skemmtanir

Samt leiddist þér á þessum árum

inni í þér var eitthvert tóm. (2024)


Úti að leika

Daglegt áhyggjuleysi æsku þinnar

fólst í franskbrauði og sultu

sem mamma þín rétti þér

út um eldhúsgluggann

Auðvitað fengu vinir þínir og bræður

að njóta þessara Guðsgjafa

 

Þið bræðurnir voruð annálaðir í hverfinu

fyrir athafnasemi

Alltaf úti, alltaf eitthvað að bardúsa

Stundum komst þú í hann krappann

eins og þegar þú fleyttir þér á fleka út á sjó

og þurftir að láta bjarga þér

eða þegar vettlingurinn fraus við stuðarann. (2024)

 

Útlegð úti á landi

Þú sendir sjálfan þig í útlegð úti á landi

kenndir þar í ein tíu ár

Síðasta árið varstu skólameistari

og látinn leggja skólann þinn niður

Þarna fékkstu skjól fyrir rukkurum

Þú forðaðist annað fólk lengi vel

Umgekkst fyrst og fremst samkennara

og nemendur

og svo auðvitað börn þín og bræður

Samt kenndirðu áfanga í skólanum sem hét

Samskipti og tjáning – SAM 106

Þú eignaðist þó smám saman góða vini í sveitinni

og nemendur drógu þig með í íþróttir

Þú sast í umdeildri þorrablótsnefnd

og varðst frægur í sveitinni

ýmist að endemum eða góðu

eftir því við hvern var talað. (2024)

 

Verkamaður í víngarðinum

Eftir heimkomu tók lífsbaráttan við

og baráttan fyrir bættum kjörum alþýðunnar

sem þú þekktir svo sem nógu vel úr æsku

Mestur tími fór þó í sellufundi

lestur byltingarbókmennta

fjölritun bæklinga og sölu málgagnsins

Þú hættir að kenna í háskólanum

til að fara í byggingavinnu

og starfa með alþýðunni

eins og það hét. (2024)


Víst er þér margt til lista lagt

Allt kanntu

Þú ert meistari í matargerð

Þú ert meistari í bakstri

Þú ert meistari í ræktun

Allt kanntu

Þú ert meistari í föndri

Þú ert meistari í hannyrðum

Þú ert meistari í ritun

Allt kanntu

Þú ert meistari í bókmenntum

Þú ert meistari í kennslu

Þú ert meistari í skapandi skrifum

Allt kanntu

Þú ert meistari í mannþekkingu

Þú ert meistari í að umgangast börn

Þú ert meistari í að vera með öðruvísi fólki

Allt kanntu

Þú ert meistari í að elska

Þú ert meistari í að vera elskuð

Í hverju ætlarðu að taka doktorspróf?

– Þú ert mikill lánsmaður, Guðmundur ... (2017)


Vísindaleg leit

Ég sit um kvöld

í geislaryki atómþokunnar

fremst á eldflaug

sem á að flytja mig til Guðs

– og hugsa

 

um huga minn berast glóandi gimsteinar

misjafnlega stórir

misjafnlega heitir

en allir sendir frá Guði

 

hugur minn snýst um mikilvægi

sem mælist í megatonnum

og hraða

sem mælist í ljósárum

 

skyndilega umlykst hugur minn af geimstormi

sem feykir hugsununum um hið stórkostlega á

brott

– og ég verð allt í einu svo hryggur

hvað er ég að þvælast til hins ókunna Guðs

sitjandi framan á eldflaug

þegar ég á konu með fallegt bros

og barn með þýðan róm

niðri á jörðunni? (1970)

Von

Með árunum hefurðu aftur orðið róttækur

bjartsýnn og vongóður

Þér virðist spillingin á undanhaldi

erfiðara að kaupa sér fylgi

á öllum sviðum

Þú varðst ótrúlegar glaður

þegar bæði sósíalistar og Flokkur fólksins

náðu manni í borgarstjórn

Nú hafa stærstu verkalýðsfélögin

kosið sér róttæklinga til forystu

og lýsa vantrausti á forystu ASÍ

Öðru vísi mér áður brá. (2019)

 


Það er sama hvað ég reyni

Þegar landið var svart

spenntu klakar lófum sínum

um ungt hjarta mitt

samt kom yfir mig undarleg værð

líkt og ilmandi rósasveigur

væri færður á höfuð mitt

það var þá

 

Ofan af jöklinum

renndi ég mér á hrossaleggjum

beitti fyrir mig reglustikum

og þaut um loftin

líkt og fuglinn fljúgandi

án viðkomu

án snertingar

fann ég

og finn enn

hraðann ólga í blóði mínu

hraðann lemja kinnar mínar

hraðann sprengja loft mitt

ég flýg –

 

Um götuna geng ég

gamall maður með skegg

finn sprengjuna byltast í enni mér

líkt og hún vilji segja mér eitthvað

ég vík fyrir gangandi ljósaskiltum

klóra mér á bakinu

fer heim og legg mig

 

Er furða þótt ég blási

og hvási

og spýti rauðu á hélaða götuna?

hún sem þoldi ekki blöðin mín

og gerði úr mér mann

 

Eitt augnabliks andartak

sá ég sjálfan mig

og greip mig

ég vildi ekki láta mig hverfa

út í ókunnugleikann

og andapollinn

ég ætlaði að reyna að varðveita mig

og setja á mig lykla

 

Góða kona

þú hefur bjargað mér

sál mín er hólpin

því að þú komst í veg fyrir

að ég gerði út af við sjálfan mig

með lyklum

sem ég var of veikburða til að bera

þú fannst aftur blöðin mín

Ekki veit ég hvernig

og ekki veit ég hvers vegna

því síður hvar

en það er einhvern veginn svona

sem mig langaði að segja við þig

nú

en það er eins og blaðið sé of hvítt

Ég hef drukkið of mikið af víni

annarra manna

til að geta gefið öðrum að drekka

þess vegna er sopinn aðeins ljúfur

ef þú andar vel að þér

tekur fyrir nefið

og svelgur hann

– ef til vill væri best að búa til úr honum pillu. (1986)

 

Það vildi ég

Ég vildi að ég væri hinn fullkomni eiginmaður

þá væri ég verðugur fullkominnar eiginkonu

Ég vildi að ég hefði kynnst þér fyrr

þá ætti ég enn fleiri minningar með þér

hefði hvíslað að þér fleiri ástarorðum

og haldist oftar í hendur við þig

Ég vildi að ég væri opnari en ég er

þá hefði ég örugglega sagt þér oftar

hve vænt mér þykir um þig

hversu mikils virði þú ert mér

hve heitt ég elska þig

Ég vildi ég væri örlítið fjáðari en ég er

þá gæti ég fært þér fleiri gjafir

farið með þér í fleiri ferðalög

búið með þér í rúmbetri íbúð

og ekið um í traustari bíl með þér - því að:

Frúin hlær í betri bíl – frá bílasölu Guðfinns!

Ég vildi að ég væri yngri en ég er

þá ætti ég sjálfsagt eftir að eiga lengri framtíð

með þér

En ...

af eintómri löngun til að upplifa sem mest af þér

og missa ekki af neinu

verð ég kannski allra karla elstur. (2025)

Þínir menn

Á hverju lífsskeiði

hefurðu gagnrýnt næsta skeið á undan

Þú skil r ekkert í hvað þú gast verið vitlaus!

eða montað þig af enn fyrri skeiðum

Ansi taldirðu þig glúrinn!

 

En er það  til nokkurs?

Varla ertu margir menn

sem lifðu hver á eftir öðrum í líkama þínum

Er til einhvers að spyrja svona?

Allir lifa þeir áfram

í minningum þínum og annarra

og eiga sinn stað í þessum heimi

meðal manna

 

Við nánari umhugsun

þykir þér dálítið vænt um þá alla

Þetta eru þínir menn! (2024)

 

Þrír kaflar úr raunasögu vinstri flokka á Íslandi

I.

Bakvið ferkantaðan kassa

er poki

Í pokanum er maður

sem kallar sig prest

og hann er atvinnuprestur

2 tíma í viku

- 8 tíma á mánuði

96 tíma á ári –

kallar hann eldingar og þrumur

yfir söfnuð sinn

ef...

en hina tíma vikunnar

og mánaðarins

og ársins

er hann að framkvæma sjálfur

þetta ef...

og söfnuðurinn trúir honum

og tignar hann

á sunnudögum

en heldur samt áfram

hina daga vikunnar

að gera þetta ef...

 

II

Árið 17 hundruð og súrkál

sendi fátækur myllumaður

í landinu Mið-austur-Grútan

litla hvíta bréfdúfu

til veikrar dóttur sinnar

en

litla hvíta bréfdúfan

flaug inn um opinn hallarskjá

og þáði víst

hjá aðalsmanni AUÐ

og enn bíður fátæki myllumaðurinn

og veika dóttir hans er löngu dáin

 

Munið þið eftir SÍBS–kubbunum gömlu?

ég átti svoleiðis kubba

þegar ég var lítill

- ég man það svo vel –

en svo varð óhappið:

ég missti UHU-lím í pakkann

með SÍBS-kubbunum mínum

og þeir límdust allir saman

í píramídanum mínum

sem ég hafði búið til daginn áður

og ég bað mömmu

að gefa mér nýja kubba í afmælisgjöf

 

III.

Ekki fæðist eitt barn

með gull í munni en annað ekki

ekki er sú rósin best

sem flesta hefur broddana

 

Ekki er verra að kynda húsið

með skrautlausri eik

en prjáluðu jólatré

ekki er sá fuglinn hamingjusamastur

sem hæst tístir í búri

 

Ekki er það skáldið sælla

sem lokar augunum

heldur en það sem sér þjáningu heimsins

og hjálpar

 

Ekki er geirfuglinn happí

að vera útdauður

ekki fagnar krummi

við jarðarför lambsins

Ekki fær Jón bóndi kvef

af treflinum sínum um hálsinn

ekki drepur hásetinn vélstjórann

til að auka hlutinn sinn

Þungur á bárunni

Útlegðarárin eftir gjaldþrotið voru erfið

þunglyndi skók hug þinn

og þú nagaðir sjálfan þig að innan

með sjálfsásökunum og níði

Þér fannst allt líf þitt hafa verið mistök

á mistök ofan

svik og svindl

og hálfur hugur í öllu

Þú faldir þetta þó nokkuð vel

fyrir flestum

með vandaðri kennslu

þátttöku í félagsmálum

ástríki við strákana þína

Svo eignaðistu vini í sveitinni

hjón sem voru fátæk að veraldarefnum

en auðug af vinarhug

Þú hresstist

en nú – 25 árum síðar

ertu kominn á hressandi úrbót

Þetta er í ættinni. (2024)

 

Ævintýraárin ykkar

Árin ykkar hafa verið stanslaust ævintýri

aldrei nein lognmolla

en heldur ekkert fárviðri

Saman kennduð þið í menntaskóla

meira að segja sömu námsgreinina

Saman keyptuð þið ykkur fallegt hús

Saman hafið þið búið í útlöndum og tekist á við peningaleysi og endalausa flutninga

Saman hafið þið tekist á við erfiðleika og áföll

sem verða að engu í hamingju ástarinnar

 

Saman fluttuð þið suður

Nú búið þið í ævintýraíbúð í Reykjavík

njótið sólar á sólpalli

og sólar í sinni

Vonandi mun nýja hreiðrið ykkar

verða ykkur til gleði og hamingju

Nema þið leitið ykkur að nýju hreiðurstæði ... (2017)

 

Öskukarlinn

Sem menntaðasti öskukarl landsins

varstu sendur á hin og þessi þing

Foringjarnir buðu þér í nefið

en hleyptu þér ekki lengra

Þú bauðst þig fram til forseta ASÍ

fékkst mörg þúsund atkvæði

Varðst trúnaðarmaður öskukarla á Akureyri

 

Þrátt fyrir allar þessar vegtyllur

tapaðir þú samt kosningu

móti formanni verkalýðsfélagsins

sem þar hafði ríkt í 100 ár

Ó, það er dýrlegt að drottna!

 

Skrifaðir óteljandi áróðursgreinar í Dagblaðið

en byltingin lét á sér standa. (2024)