TÆKIFÆRI

Share this page

Í þessu riti birtast mörg sýnishorn af tækifæriskveðskap mínum frá ýmsum tímum. Þetta er birt hér til gamans og til að fullnægja þörf höfundar til að upphefja sjálfan sig eins og kostur er, ef mig skyldi kalla, eins og skáldið sagði.


ATHUGIÐ - Aðeins fyrir skyldfólk, vini og þáttakendur í hinu og þessu í lífi mínu. En fyrirgefið uppsetninguna. Þetta yrði miklu betra í lítilli bók eða hefti.

Tækifæri


MAMMA, PABBI OG VIÐ BÖRNIN


Minningmömmu

Guðrún Árný Guðmunds­dóttir -

  1. 27/2 1920. — D. 23/11 1965

Ó móðir mín kæra, ég kveðju mína ber,

með kærleiksfullum huga ég þakkir sendi þér.

Þú hefur æ mig elskað og unnað alla tíð,

unga drenginn styrkti móðurhöndin blíð.

Og núna ertu horfin en hlustar samt á mig

er hryggur nú ég reyni að yrkja Ijóð um þig.

 

Þú fæddir litlu börnin, sem drottinn til sín tók,

samt traust þitt ekki minnkaði á herrans miklu

bók,

því hugdirfð þín og kraftur ætíð kom sér vel,

og kjarkur þinn til lífsins efldi hugarþel.

Og syni þína hina, þá ólstu upp með dug,

og elsku þeim þú kenndir með þínum hlýja hug.

 

Og trúin þín á drottinn var dæmalaus og sterk,

þótt dagsins kvalir píndu með særindum og verk.

Þú elskaðir allt sem lifir, og lífið móti skein,

þótt linuðust þínir fætur og veiktust öll þin bein,

því sálin þín var heiðrík og hugur þinn var knár,

og hjarta þitt var blíðlynt, þótt ýfðust gömul sár.

 

Við vitum öll, að launin, sem Ijúfa hjartað fær,

er líðan betri og meiri er börnum sín er nær,

og þú ert alltaf nálæg og hjálpar okkar hug

að hefja okkar sálu og öðlast mikinn dug.

Nú stríði þínu er lokið og kinnin þín er köld.

Ég kveð þig svo mín móðir, við komum seinna í

kvöld.

Sonur þinn. (1965)


Guð tókmömmu

Mamma þín gerði þér grikk á þessum árum

Hún dó frá þér

og ykkur bræðrunum og pabba þínum

Af hverju gerir fólk svona?

En æ, hún gat ekkert að þessu gert

krabbaskrattinn át hana upp

og raunar alla fjölskylduna

eftir áratuga heilsuleysi

og sorg yfir þremur dánum börnum

Þér þótti missirinn sár

en lést þó lítið á því bera

tárin voru löngu þornuð

Sorgin fékk þó útrás í ljóði

sem grátandi Guðsmaður las við útförina. (2024)


Til hamingju, pabbi!

Kæri faðir, öldin hálf er orðin,

ægisboðar lífsins minnka fljótt.

Því virðuleikans bjarta sterka storðin

stendur, þó að vindar blási ótt

Og skynseminnar rödd og reynsluforðinn

ráða, þó að herji víl og sótt.

 

Kæri faðir, þú sem okkur elur,

eilíf sæla fylgi þér um veg.

Drottinn Guð, sem okkur alla telur

einkasyni og dætur, blessi þig.

Til hamingju með daginn þann er dvelur

dægrið það, er gleður þig og mig. (1965)

 

BessiBjarnason heldur ræðu

Flutt í sjötugsafmæli Sæmundar Bergmanns Elimundarsonar, 6. október 1985.

 

Komdu blessaður og sæll, Sæmi minn, og til hamingju með afmælið, gamli nágranni. Ha ha ha, svo að þú ert orðinn sjötugur, karlinn. Það kom að því. Það er svo skrítið, það er sama hvað maður stimpist á móti, maður eldist með hverju árinu. En hvað er að sýta það? Hann langafi minn sem var mikill gæfumaður og vísdómsugla sagði alltaf að mannskepnan væri eins og osturinn, - hann yrði betri með aldrinum. Honum þótti svo góður gamall ostur. Hugsiði ykkur, gamall grænn og myglaður ostur! Ég kunni aldrei að meta hann. Ég meina gamla ostinn. Langafi var ágætur. Og ég er það líka. Finnst ykkur það ekki? Ég erfði margt frá gamla manninum. Góða skapið, viskuna og - löngunina til að vera alltaf í sviðsljósinu.

            En heyrðu Sæmi, það sér ekki á þér að þú sért orðinn sjötugur. Hvernig ferðu að þessu? Er það satt að þú sitjir við snyrtiborðið tvo tíma á hverjum morgni? Nei þú þarft ekkert að skammast þín fyrir það, - þetta geri ég alltaf áður en ég fer á sviðið.

            Jæja við skulum hætta að tala um aldurinn og allt það. Unga fólkið hérna hefur ekkert gaman að því. Það er svo skrítið með þetta unga fólk að það er svo hrætt við eldast. Við stöndum okkur betur þessi gömlu, - ekki værum við hrædd við að yngjast. Mig langar til að minnast svolítið á gamla tímann. Það gerðist nú margt sniðugt í Klepps­holtinu í gamla daga, Sæmi, þegar við vorum nágrannar. Nei þú vilt nú kannski ekkert vera að rifja það upp. Nei nei. Það var nú ekkert svo glæsilegt þegar þú varst að skrönglast niður í Skipasund til Snorra og Dísu á laugardagskvöld­um. Það var stundum skrautlegt. En þó ekkert á við það, þegar þú fórst aftur heim. Ég man hvað mér fannst gaman að fylgjast með þér út um litlu gluggaboruna mína. Þá var ég bara unglingur, að minnsta kosti í andanum, og allt svoleiðis var alveg hrikalega spennandi. Nei nei, við skulum ekkert vera að rifja það upp.

Annars var gaman að búa þarna í Kleppsholtinu. Þarna voru alveg yndislegar persónur, betri en nokkrar skáldsagnapersónur hjá Kiljani eða Hagalín. Manstu eftir blessuðum karlinum honum Jóa rakara sem angaði langar leiðir af alls konar fínum vökvum? Eða Halli tannlækni sem dró tennurnar úr einum syni þínum 5 ára, bara af því að stráksa datt í hug að vera í framan eins og tannlausa frúin frá Kleppi? Og sagðist hafa gleymt miðanum frá mömmu heima, en það væri alveg satt, það ætti að draga úr honum allar tennurnar! Og svo var það hann Guji sem synti í sjónum á hverjum degi og dró strákana þína með sér í ein tvö ár, í öllum veðrum. Og alltaf var indælt að versla hjá þeim Jasoni og Kjartani í versluninni Jason & Co., sem seinna hét Kjartansbúð, en er núna bara útibú frá Rangá. Þeir voru nú ekkert að emja, þótt gatið á vasanum væri svo stórt að maður gæti ekki borgað vörurnar sem maður sótti hjá þeim. Og alltaf man ég eftir honum Kristjáni leigubílstjóra í Efstasundi 32, þessum rólynda svipfasta manni með pípuna. Aldrei sá ég hann öðruvísi en með pípustertinn uppi í sér. Honum hefði nú ekki líkað nýju reykingalögin, honum Kristjáni. Og manstu eftir honum Bjössa Halldórs sem reið keikur í hnakki um Efstasundið með strákunum sínum með 3 og 4 til reiðar og notaði bílskúrinn sinn sem hesthús? O - ef heimurinn væri nú eins umburðarlyndur nú til dags! Þá væri ég með hross í kjallarageymslunni minni.


Já maður gleymir ekki öllum þessum nágrönnum og ýmsum öðrum. Þeir voru trúræknir bræðurnir Reidar og Birgir uppi á Langholtsvegi. Og ekki síður norska mamman þeirra. Og svo átti hverfið alveg óborganlegan braskara og auðmann upp á ameríska móðinn, - hann Kidda í Efstasundi 23, Kidda í Björgun sem síðar varð.

Og svo sá ég alls konar fólk koma í heimsókn til þín, Sæmi, En ég er ekkert að segja neinar sögur af því fólki. Mér sýnist sumir þeirra vera hérna í salnum. Hmm. En undarlegast þótti mér eftir afmælisveislur og svoleiðis hjá þér, þegar ég sá þrjá Sæmunda koma gangandi út úr húsinu, og þann fjórða standa í dyrunum og kveðja þá. Seinna - miklu seinna - áttaði ég mig á því að þetta voru bræður þínir, þeir Mundi, Óli og Halli. Og sama gerðist þegar hún Gunna konan þín fékk systur sínar í heimsókn. Þær voru allar eins! Nákvæmlega eins. Ég hef aldrei getað skilið hvernig fólk getur verið svona óskaplega líkt hvert öðru. Ekki er ég svona líkur mínum systkinum. En ég er nú líka alveg einstakur.


Veistu það Sæmi að ég er ennþá að segja ungum vinum mínum frá strákunum, hvernig þeir gátu stundum látið. Ég hef alltaf gaman af sögunni um það þegar einn þeirra lagðist út, eftir að vera búinn að fylla garðinn hjá Páli banka­manni af grjóti og glerbrotum og hann  hringdi í lögguna. Lögreglan leitaði um allt Kleppstún og niður í Kleppsvík og Keili án þess að finna tangur né tetur af pjakknum. Og svo var það snáði sem stoppaði löggubíl 7 tímum seinna inn við Elliðaár og bað um far heim, sagðist vera orðinn svangur og þreyttur á að vera útilegumaður.

 Eða hvernig þeir gátu hamast á garðskúrnum hjá henni Dísu í Skipasundi 28! Annars hefðu þeir nú aldrei haft úthald í það nema af því að Dísa var svo fljót að reiðast þeim. Það hvein stundum í hverfinu þá, maður minn. En þá varst þú nú bara í vinnunni og vissir ekkert hvað var að gerast.


Svo var það hann sonur þinn sem alltaf var að stinga af, ekki nema 4-5 ára. Einhvern tíma rakstu staur í mitt túnið hjá þér og settir gæjann í tjóður. En það endaði nú ekki betur en svo að honum tókst að klöngrast upp á girðinguna og hékk svo fastur þar og komst hvorki niður aftur né yfir hana. Ég var að læra rulluna mína í Kardimommubænum inni í herberginu mínu í 100 metra fjarlægð bak við lokaðan glugga, en ég man hvað mér brá gríðarlega, þegar hann rak upp stríðsöskrið! Ég steingleymdi öllu sem ég var búinn að læra og varð að byrja upp á nýtt.

Einum syni þínum man ég varla eftir öðru vísi en að hann væri haltur á öðrum fæti eða báðum. Yrði einhverjum í hverfinu á að skilja eftir naglaspýtu úti við, var gefið mál að hann var búinn að stinga sig á naglanum daginn eftir. Og þó ekki væri í spýturæksninu nema einn nagla­tittur, tókst honum oftast að stinga sig í báðar lappirnar á honum.

Heyrðu, en manstu, Sæmi, söguna um snúrustaurinn? Hún var alveg dæmigerð fyrir strákana þína. Snúrustaurinn bak við hús hjá þér var orðinn eitthvað lasinn og þú varst búinn að hafa orð á því í nokkrar vikur að þú þyrftir að fara að setja upp nýjan. Og strákarnir þínir voru alltaf að heimta að þú settir upp járnstaur svona eins og öfugt „U“ í laginu, svo að hægt væri að setja rólu á hann. Og þú varst að vinna í Stálsmiðjunni þá, svo að þér fannst ekkert stórmál að útvega svona staur. En af einhverjum ástæðum þorðirðu ekki að betla þér járn í Stálsmiðjunni og eitt kvöldið settirðu upp trjástaur, svona eins og „T“ í laginu. Og auðvitað vonlausan til að setja rólu í. Þegar drengirnir vöknuðu daginn eftir og sáu þetta svikaafstyrmi bak við hús, urðu þeir alveg fjúkandi reiðir. Og áður en þú komst heim í hádegismat voru þeir búnir að snúa öllu við til að finna gamla öxi sem þú áttir og höggva niður staurinn. Nema hvað þér varð litið út um eldhús­gluggann með munninn fullan af kjötbollum og káli og sást ummerkin. Þessi fíni staur sem þú hafðir eytt öllu kvöldinu áður í að saga, hefla, pússa og mála - hann var orðinn að spæni og tættu spýtnarusli úti á lóð. Það þyrfti að kalla á hann Egga í næsta húsi til að berja þig í bakið svo að þú kafnaðir ekki.

Jæja, Sæmi minn, nú eru guttarnir þínir orðnir stórir og sumir frægir að góðu eða endem­um. Það fer eftir því hvernig á málin er litið. Einn var að hrella landsins mætustu verka­lýðsforingja um árið, en er nú hættur við að frelsa heiminn og farinn að aka um á Volvo-drossíu. Annar ætlar að feta í fótspor föður síns og verða frægasti fornsali í Reykjavík, þegar hann verður stór. Sá þriðji ekur um með innbú ríkustu manna þjóðarinnar í sendi­ferðabílnum sínum. Hann verður eflaust einhver Steindór á endanum. Og sá fjórði er nú þegar orðinn nafntogaðasti gagnrýn­andi bókmennta norðan Alpafjalla. Það svíður undan höggunum hans, segja smáskáldin á Mokka. Og þú, Sæmund­ur - já þér hef ég fylgst með alveg síðan við vor­um nágrannar. Þú ert í essinu þínu sem kaupmað­ur í notalegri búðarholu á Frakkastígnum, og svo hefurðu kynnst alveg stórkostlegri konu sem þú býrð með. Ég hef stundum séð ykkur í sunnu­dags­göngutúrnum ykkar, - ég hef þá verið í sunnu­dags­­bíl­túrnum mínum. Þið eruð ljómandi fallegt kærustupar. Ekki þar fyrir að þú anar yfirleitt á undan henni, en hvað með það. Þú ert framsæk­inn eins og viljugur foli, og þér finnst ekki gaman að skoða neina búðarglugga nema hjá sjálfum þér. En það er einhver skemmtilegur kærustu­para­svipur yfir ykkur.

Nú ætla ég að afhjúpa dálítið leyndarmál. Þó að ég sé nú glúrinn og afburða minnisgóður, hefði ég ekki getað vitað af þessari veislu af sjálfdáðum. Sérstaklega af því að hún er ekki haldin á sjálfan afmælisdaginn. Þú ert alltaf að dandalast þetta í útlöndum með henni Helgu þinni. Sumir segja af illkvittni sinni að það sé til að geta drukkið áfengan útlendan bjór, eins og nýi lögreglustjórinn, en verið jafn staðfastur bind­indis­maður eftir sem áður - á Íslandi. En það er bara plat og blöff, það vitum við báðir. Þú ert bara að þessu í heilsubótarskyni. En það var þetta með veisluna. Einn sonur þinn kom til mín og sagði mér frá henni og bauð mér að koma. Það var fallegt af honum, og allt í lagi með það. En ég vissi að ef ég kæmi í þessa veislu, yrði ég að vera svolítið skemmtilegur, svo að minn frægi orðstír biði ekki skaða af. Ég vissi bara ekki með hverju ég ætti að skemmta fólkinu þínu. Þegar ég spurði kauða, dró hann íbygginn upp blað og sagði að hér væri komið besta afmæliskvæði sem ort hefði verið á íslenska tungu. Það héti Pabbi labbi og ég mætti lesa það í veislunni, ef ég lofaði að segja engum hver hefði ort það.


Ég lofaði því, og hérna kemur þá kvæðið hans Guðmundar, nei ég meina Hreiðars, nei hérna hans Sigga, nei sko hans Matta, eða var það...? Nei alveg rétt, ég mátti ekki segja hver hefði ort það. En kvæðið er svona:

 

PABBI LABBI

Pabbi krabbi kóngastabbi

Kaupmaður á Frakkastíg.

Frakki takki franskur rakki

felur sig, í loft ég flýg.

Ég flýg, ég lýg, ég smýg, ég sýg,

Ég syng um pínu og fótaríg.

 

Plötur götur gaddaskötur

glampar vín á sólarströnd.

Stranda branda gráti granda

gamalt par í suðræn lönd.

Landa banda blanda og standa

ber á kropp í glösin anda.

 

Sandur gandur golustandur

gróin ætt úr vesturátt.

Átta þrátta og þjóta að hátta

þýska dömu leika grátt.

Grátt er blátt og brátt er fátt,

bráðum knýtt er friðarsátt.

Romsa pomsa pabba bomsa,

prýðir Sæma kónganef.

Nefið kvefið sest í sefið,

sjötíu ár í minni hef.

Hafa lafa skafa og skrafa

skulda engum dropa á safa.

 

Stráka páka fjóra láka

fékk hann Sæmi í pokann sinn.

Sinni Binni Pési og Pinni

pára krot á vegginn þinn.

Þinn er minn og minn er skinn,

má ég þoka höfði að kinn.

 

Jæja Sæmi minn, ég ætla þá ekki að hafa þetta neitt lengra. Ég vona bara að þú hafir það gott næstu 70 árin og eigir eftir að lenda í mörgum spennandi ævintýrum. Ef þú lendir í einhverju alveg sérlega góðu, máttu gjarnan hringja í mig. Ég lendi aldrei í neinu svoleiðis nú orðið. Ætlarðu að muna það?!! Bæbæææææææbææææææ. (1985)


Kveðja frá sonumtil pabba

Sæmundur Bergmann Elimundarson

  1. 6. október 1915 – d. 17. desember 2002

 

Lítillátur, vænn og viðmótsgóður

með vinarhug hann okkur gaf sín ráð.

Réttsýnn, sannur, friðsamur og fróður,

fyrirmyndin hvar sem að var gáð.

Þú komst og fórst en vísaðir til vega

með vinsemd þinni, þakkir eilíflega.

 

Að vinna heill og vera stéttarprýði

er vegsemd manns ein mesta á jörðu hér.

Þótt heimför pabba í hjarta voru svíði

og hryggir söknum þess sem horfinn er

frá sjúkdómskvölum fékk hann líkn að launum.

Lífið hans var blanda af gleði og raunum.

 

Hans andlát hægt á hlýjum vetrardegi

er hljóðlátt tákn frá Drottins háa sal:

Vor góði faðir gengur nýja vegi

í gróðursælum, himinbjörtum dal.

Í sál okkar er hryggð og hnípinn tregi

en – hittumst aftur, pabbi, á efsta degi! (2002)

 

Skakkur samanburður

Þú varst elsta barnið

en samt fjórða barn foreldranna

Það var svolítið snúið

Ef þú gerðir eitthvað öðruvísi en til var ætlast

fékkstu einatt að heyra

hve börnin sem dóu hefðu verið þæg

og yndisleg

Þetta var afskaplega erfiður samanburður

en smám saman

lokaðirðu eyrunum. (2024)

 

Horfnir ættingjar

Ég á fimm frábær systkini

sem eru horfin af jörðinni

farin yfir í Sumarlandið góða

Ég á yndislega foreldra

sem eru horfnir af jörðinni

Ég á fjölmarga ættingja og vini

sem eru komnir yfir í Sumarlandið

Ég hlakka innilega til að hitta þau

og eiga með þeim góðar stundir

En um leið er ég sorgmæddur

ef ég þarf að yfirgefa nánustu vini mína

á jörðunni

konuna mína og börnin

og eina bróðurinn sem ég á eftir

 

Ég sendi þá kveðjur í báðar áttir. (2025)

 

Andlát Sigga litla

Bróðir þinn lést fyrir stuttu

langt suður í löndum

þar sem hann hafði búið í mörg ár

með konu, syni og stjúpdóttur

Þú trúir því raunar varla að hann sé dáinn

 

Hann var fimm árum yngri en þú

listrænn og atorkusamur

Smiðsaugað í fjölskyldunni

Ljúfur og barngóður

tryggur og trúfastur

 

Þú gættir hans oft í æsku

og áttir hann að vini á fullorðinsárum

Nú saknarðu hans sárt

 

Það deyja ansi margir

jafngamlir þér og jafnvel yngri

svo ekki sé nú talað um þá sem eru örlítið eldri

Þú ert kominn á þann aldur

að fylgjast vel með dánartilkynningum

Skrítið samt

því að þér finnst þú alltaf vera 26 ára. (2024)


Ég finn til í hjartanu

Sigurður Rúnar Sæmundsson 10. nóvember 1951 – 24. ágúst 2017

 

Bróðir, ekki átti ég von á þessu

ekki þú heldur, trúi ég

en hér stend ég og minnist þín

sakna vinar í stað

sakna bróður í stað

 

Manstu þegar við vorum litlir

og þú enn yngri og vitlausari

en við eldri bræðurnir

Þú varst einstaklega kátur

einstaklega athafnasamur

og gjörsamlega óútreiknanlegur

 

Unglingsár full af sársauka og missi

sársauki fullur af gervistjörnum

og gleði sem brennur upp

Þú tókst á við lífið

á þinn afdráttarlausa hátt

einn og oftast óstuddur

 

Allt lífið var þaulerfið barátta

sólir sortnuðu í heiði

En elja og djúp hjartans

héldust allsendis óflekkuð

Þú eignaðist sigurknáa syni

og himnesk barnabörn

 

Svo fannstu þitt draumaland

langt fjarri heimahögum

Með austrænan fögnuð í hjarta

og suðrænan frið í sálunni

eignaðist þú gullbjartan son

og kvæntist einstakri konu

 

En nú ertu farinn héðan, Siggi

Héðan í frá sinnirðu

nýjum erindum fjölþættrar tilveru

Eftir sitjum við sem þekktum þig

elskuðum þig til tunglsins og til baka

Við finnum öll til í hjartanu. (2017)


Áföll

Dvöl úti á landi verndar ekki

fyrir sorg og missi

Pabbi þinn dó aldraður

og saddur lífdaga

Þið voruð nánir síðustu árin

þú heimsóttir hann í hverri Reykjavíkurferð

Hann var þér mikil fyrirmynd

þótt þú vildir sjaldnast viðurkenna það

 

Næsta ár misstirðu yngsta bróður þinn

sem ólst upp annars staðar

það var líka erfitt

Þið voruð líkir um margt

Hann var rétt um fimmtugt þegar hann dó

alltof snemma

þið sem voruð rétt að kynnast á ný

og orðnir vinir

 

Þriðja andlátið sem skók tilveru þína

var andlát föðurbróður þíns

Þið voruð miklir vinir

hann var á leið í heimsókn til þín

með öðrum frænda

Auðvitað heimsótti hann þig

en öðruvísi en til stóð. (2024)

 

Yndiskúturinn ég

Þú varst peð

þegar þú fæddist

en braggaðist fljótt

og gerðist kraftmikill kiðlingur

 

Þú gerðir þínar afdráttarlausu kröfur

Mjólk, mjólk, mjólk

Þakklæti þitt var óendanlegt

Þú brostir og hjalaðir

framan í mömmu þína og pabba

Varst svo innilega viss í þinni sök

 

Kerlingar og karlar

í báðum ættum

dásömuðu þennan unga dreng

signdu sig og báðu Jesús, Maríu og dýrlingana

að blessa þig

Svo gerðu þau krossmark yfir þér. (2024)

 

VIÐ INGIBJÖRG OG STELPURNAR


Ég þakka þér, forsjón

Ort í tilefni 15 ára brúðkaupsafmælis okkar Ingibjargar

Ég þakka þér, forsjón, þú færðir mér ást

og fegurð af himnum ofan

Indæla konu með yndislegt skap

og ástleitið bros á munni

Ég hreifst af þeim augum og orðanna hljóm

ástfanginn miðaldra strákur

 

Ég þakka þér forsjón, þú færðir mér ást

og fullgilda lífsgjöf með gleði

Við eignuðumst börn sem við dýrkum svo djúpt

dásemdar stúlkur að elska

Guðbjörg og Sóley, tvær systur í raun

sem færa okkur hamingju og gleði

 

Ég þakka þér forsjón, þú færðir mér ást

Ég fæddist að nýju til lífsins

Hætti við ruslfæði og reykingakóf

Það raknaði allt til grunna

Nú líkar mér sannlega sjálfan mig við

sem smáði ég áður og níddi

 

Ég þakka þér forsjón, þú færðir mér ást

Við fundum í hvort öðru samhljóm

Styðjum hvort annað í starfi og önn

og stöndum gegn áfallahrinum

Þessi dísin hún tugtaði og töfraði mig

og tók mig til jarðar að nýju

 

Ég þakka þér forsjón, þú færðir mér ást. (2022)

Í trúlofunarstandi

Það var stór ákvörðun fyrir ykkur bæði

og stór stund

þegar þið hétuð hvort öðru trú

og síðar hjónabandi

Hringarnir voru fallegustu hringar í heimi

veislan full af gleði og ást

og þú ortir henni þitt besta ljóð

Í sjöunda himni býr sólin

og veit ekki að ég er til

Hvílík ást

Hvílík hrifning

Þetta kom þér fullkomlega á óvart

skemmtilega

yndislega á óvart. (2022)


Ljóðið sem ekki varð til

Í tilefni brúðkaups okkar hjóna

 

Eins og allir vita sem hér eru inni - eða a.m.k. flestir – hef  ég alla ævi gengið með skáldadrauma í maganum. Ég ætlaði því að yrkja ljóð um yndislegu konuna mína, þar sem ég faðmaði hana með fallegum orðum, dásamaði hana fyrir allt sem hún er og sýndi henni hvað mér væri annt um hana. Því það er mér svo sannarlega. En þá bregður svo við að mig brestur orð. Sjálfur tjáningarkennarinn kemur ekki orðum að hugsun sinni. Sjálfu ljóðskáldinu tekst ekki að tjá sig. Sem betur fer held ég að þetta komi allt síðar og þá mun ég yrkja svo mörg ljóð til hennar að henni verður nóg um. Þessi kona á ekki bara skilið eitt ljóð eða tvö, heldur öll þau ljóð sem ég næ að semja. Ég er þegar farinn að hugsa um ljóðabókina sem ég fylli af ljóðum til hennar. Eða ljóðum sem ég get tileinkað henni á einhvern hátt. En í dag - því miður - varð ekkert ljóð til. Nema ein stutt setning sem fær vængi og flýgur út úr hjarta mínu. Ein setning sem mér tekst með erfiðismunum að stynja upp:

Ástin mín, ég þakka þér fyrir að vera komin inn í líf mitt! (2007)

Sambúðin

Að sumu leyti eruð þið lík

en ólíkara fólk en ykkur tvö er þó vart að finna

Kannski er það þess vegna

sem sambúðin er svo hnökralítil

Þú með alla þína galla

og nokkra kosti

hún með alla sína kosti

Ískaldan húmor og sjóðheitt bros

Augu sem sjá í gegnum veggi og múra

Eyru sem heyra þögnina

Hug sem skilur hið óskiljanlega

og greinir þrívídd í tvívíðum texta

Hendur sem leika við matseld og bakstur

Þú ert lánsmaður

 

Saman ætlið þið að eldast

sigrast á mótbárum lífsins

og berast áfram í meðbyr áranna

Þið elskið hvort annað

Á betra verður ekki kosið. (2024)

 

Sonnetta um konu 

Í tilefni af 42 ára afmæli eiginkonu minnar

 

Þá fæddist snót á Snæfellsnesi vestur

snjöll og fögur hnáta í Bjarnarhöfn

Ársins fyrsti og fallegasti gestur

hvar fýkur alda og bylgjast sjávardröfn

 

En heim til Hóla fluttist mögnuð mærin

til mennta sótti í Akureyrarbæ

Jafnt hún mundar sleifarsköft sem skærin

skörp og fær við blóma- og grasafræ

 

Svo bókafróð fór blómarós að kenna

blíð í huga, ákveðin og sterk

Um ungdóm náði umhyggju að spenna

Ingibjörg nú kannar fræðin merk

 

Ég var meira en heppinn hrund að finna

hún er yndi vonardrauma minna. (2014)

 

Í sæluvímu syng ég– Ingibjörg fimmtug

Sæla vefur hug minn, horska kona

Nú hálf er öldin, ástmey minna vona

Já gott er elsku að unna

þú ástar minna sunna

Því er bæði ljúft og létt að yrkja svona

 

Við eigum saman tátur sem dá þig

og tigna þig að verðleikum: „Ég á þig!“

Hún Guðbjörg geislafríða

Og hún góða Sóley blíða

Og vísan til þín semur hérna sjálf sig

 

Til hamingju með daginn, ást mín eina

Eigðu fagurt líf um stokka og steina

Þú bætir allt sem anntu

og alla hluti kanntu

Jafnvel mér þér tókst á rétta braut að beina (2022)

 

Sólargeislinn Guðbjörg fær nafn23.9. 2017

Þessi stúlka ljúf og falleg fæddist

fann sér stað á björtum júlídegi

Inn í heim á litlum fótum læddist

Ljósrautt hárið glóði á nýjum vegi

Með netta fingur, fagurt nef og enni

Er furða þótt ég heillaðist af henni?

 

Mömmu yndi og eftirlæti pabba

örugg vex í heimsins ást og friði

Á sinn hátt hún reynir drjúgt að rabba

rausnarleg á bros í dagsins kliði

Henni fylgi Guð og gæfa í lífi

góðir englar kringum hana svífi

 

Snótin mín fær nafn af tignu tagi

frá tveimur ömmum, sólríkum í hjarta

Nöfn Gunnu Sæm og Ingu í einu lagi

að auki hef ég viðbót sigurbjarta:

Frú Guðbjörg Kolka konum bar af flestum

Nú kynni ég aðra fyrir skírnargestum!

 

Guðbjörg Kolka, sólargeislinn, sindrar

sumarsnarpur skörungur í huga

Kolkuskap í ástaraugum tindrar

indæl stúlka, megi Guð þér duga

Með ljúfu brosi heillar allan heiminn

hugþekk meyja, geislandi og dreymin. (2017)


Sólargeislinn ykkar- Guðbjörg

Kraftaverkið í lífi þínu er litla lífsblómið ykkar

Hún kom til ykkar síðsumars á sólríkum degi

og síðan er alltaf sólskin í lífi ykkar

líka í dimmviðri og hreti

Hún á yndislegt bros eins og móðir hennar

Hefur hátt og er stjórnsöm

eins og aðrar konur í báðum ættum

Hefur fallegt, rauðglóandi hár

og stór einlæg möndluaugu í óræðum lit

djúp eins og hafið

full af trúnaðartrausti

og sjá lengra en litla nefið nær

 

Þú sem ekkert getur sungið nema jólalög

og hefur aldrei getað lært á hljóðfæri

syngur fyrir hana barnalög alla daga

og ferð með henni á tónlistarnámskeið

 

Þú þykir of aldurhniginn til að fá fæðingarorlof

og færð ekki leikskólagjöld niðurgreidd

eins og aðrir sem „ekki eru aðilar vinnumarkaðarins“

Er ekki heimska kerfisins fyndin?

Nú fyrst er lífið að byrja!

 

Sumar nætur eru kannski svefnlitlar

og sumir dagar annasamir

Þér verður ekki mikið úr verki.

 

En þú ýtir öllum öðrum verkefnum til hliðar

til að geta sinnt þessu mikla hlutverki.

Þetta er yndislegt líf! (2024)

 

Æðislegt ljóð um æðislegt fljóð

Þú lýstir upp kóvíd, þú lífsglaða fljóð

svo ljúfleg og blíðlynd úr himnanna sjóð

Mig langar að yrkja um þig æðislegt ljóð

yndisleg dóttir, svo fjörug og góð.

 

Þú Sóley ert lík þeirri sólu sem skín

á sólríkum himni, svo leikandi fín

átt systur svo góða, þú ert mömmu og mín

Þú magnaða Kolka, þín elska ei dvín.

 

Víst sigra mun heiminn þitt hugljúfa bros

Á hamingju þinni ei verður neitt los     

Í huga þér ríkir ei harmur né tros

Hjartað er hreint eins og lifandi gos. (2020)


Sólargjöfin besta

Í tilefni skírnar Sóleyjar Kolka Guðmundsdóttur

Til hamingju með nafnið, litla ljúfan,

lífið þitt er magnað kraftaverk

Brosið þitt er brosum öllum stærra,

brosa augu sálar glöð og sterk

Fæðing þín var frábær gleði og sæla,

þín framtíð verður vísast löng og merk

Þig allan daginn klæða gjörvöll klæði

Kát þig elska mamma og pabbi bæði

 

Íhugul og kná sem aðrar Kolkur

Með krafti mætir hverri raun og þraut

Kóvidbarn á köldum vetrardegi

kysstir beð sem blóm í grænni laut

Sólin há þér lýsi á lífsins stigum

Loggul blómin varði þína braut

Sóley mín, þitt hár er bjart sem blómin

Og blíðan djúp þótt hækkir stundum róminn.

 

Svo yndisleg og snjöll í öllum leikjum,

nefið sætt og augun skær og blíð

Í rólunni til himins vill hún hendast,

hvort sem úti er sólskin eða hríð

Prakkarastelpa platar mann og annan

Með mjúkum svip og röddin undur þýð

Elskar allan heiminn hrundið bjarta,

í huga glóir sálin undurbjarta. (2020)


 

AÐRIR AFKOMENDUR HÖFUNDARNEMA GUNNU FÓLK


Guð gaf …Óla

Þú eignaðist fyrsta barnið þitt

rauðhærðan hnokka

 

en uppeldi hans fór mestmegnis fram norður í

landi

Þið mamman skildust að

Þú dýrkaðir þennan indæla dreng

heimsóttir hann

og fékkst hann í heimsókn til þín

Síðar var hann einn vetur hjá þér

Það var dýrmætur vetur

sem aldrei gleymist

Svo ljóslifandi í minningunni

meira en hálfri öld síðar

 

Hann er fastur fyrir

og smitar út frá sér ljúfmennskunni

Auk þess er hann dverghagur í höndunum. (2024)

 

Sonur fæddur á fertugsaldri

Sé einhver afkomenda þinna líkur þér

er það sá sem fáir vissu af

í þrjátíu og fimm ár

ekki einu sinni hann sjálfur

Góður drengur Frikki og vandaður

ótrúlega vel upp alinn

þótt þú kæmir þar hvergi nærri

Róttækur hugsjónamaður

og alvörugefinn galgopi

Allt í einu stækkaði fjölskylda þín um sex manns

sem gaman er að kynnast

Æðislegt! (2024)

 

Hæfileikamaðurinn Atli

Elsti sonur mömmu sinnar tók snemma ástfóstri við körfubolta

og skildi boltann sinn nánast aldrei við sig

Varð mikill snillingur með hann

en líkaði ekki keppnisstússið

Blíður og afar náinn þér

Þið vissuð nánast alltaf hvað hinn var að hugsa

Allt sem hann gerir skal vera fullkomið

Syngur eins og djúpraddaður engill

Gítarinn leikur í höndum hans

og lögin sem hann semur

eru viðkvæm og ljúf

Menntaði sig í hljóðblöndun

tölvufræðum og hugbúnaði

Nú er hann yndislegur pabbi

og borðar ekki dýr

Hann er fjölskyldumaður í sérflokki. (2024)

 

Yngismærin Áróra

Við norðurljósa laglegasta blik

lagði fljóð af stað í þennan heim

Lukkuleg á svip og laus við hik

á langafadegi hóf sitt ævigeim

Hún þroskast fljótt við foreldranna skjól

falleg bros hún sendir þeim að gjöf

Og afar bæði og ömmur halda jól

öflug hljóðin berast vítt um höf

 

Megi stúlkan lifa í lukku glöð

lánast allt sem reynir sér til góðs

Þess óskar stoltur afi á þessi blöð

yndislegri snót án galla og hnjóðs

Elsku besta Áróra Sirrí mín

öllu betri verði lukkan þín. (2016)

 

NafnaþulaKára

Kári Jökull  fær nafn

Þessi nýfæddi vekur nýja von

Hinn nýfæddi gaur er Atlason

sefur lon og don

Líkist Áróru stóru systur sín

jafnt í sinni sem ásýnd, gleðin skín

Þau eru fín

Kyssir mömmu og karlinn í sátt

krúttaralegur á allan hátt

Brosir kátt

Nafnið hans hæfir hetju vel

Hraustlega vaxinn ég hann tel

og syndan sem sel

Drengurinn Kári Jökull er kúl

Að klæða hann er mikið strit og púl

            eins og hjá Erkki Nool. (2016)

 

Gömul sálHeimir

Frá fyrstu mánuðum

var miðguttinn mikill pabbastrákur

Hann fæddist gömul sál

alvörugefinn og íhugull

Minnti stundum á lítinn spörfugl

grannur og með stór vökul augu

Undir niðri næmur og fljótur að hugsa

viljugur til að hjálpa öðrum

og taka á sig ábyrgð

Með mikla skipulagshæfileika

sterka stjórnunarhæfni

og afskaplega réttsýnn gagnvart öðru fólki

Nær árangri í öllu

sem hann tekur sér fyrir hendur

Ástríkur faðir barnanna sinna

 

Og þér er sagt að hann sé ljómandi tengdasonur

og þú veist hann er frábær sonur. (2024)


Giftingardagurinn 22. júní 2012

Þegar frétt nokkur flýgur um bæinn

og feykist jafnt út yfir sæinn

hún berst oss í blíðu

og brakandi stríðu

og býður til hammó með daginn.

 

Þetta er glóandi giftingarvísa

frá góðlandi elda og ísa.

Lifið alsæl í krukku

við kæti og lukku.

Koma svo, Heimir og Lísa!

 

Til Parísar parið nú heldur.

Í París veit enginn hvað veldur.

Þar er ljómandi flott

og lífið svo gott.

Þar er logandi ástareldur.

 

Í lífinu er margt í mörgu

og mikið af þúfunum körgu.

Farið varlega um palla

og prýðið þá alla!

Frá pabba og Ingibjörgu. (2012)


 

Nú er hamingja í bæhjá Heimi og Lísu

Brúðkaupsafmæli og tvö fertugsafmæli Lísu Bjargar Lárusdóttur og Heimis Dúns Guðmundssonar

Kæru hjón!

Elsku kæru hjón.

Nú eru tíu ár að baki

Tíu frábær ár

enda frábær sjálf

Megi næstu áratugir

verða ykkur jafn góðir og sá fyrsti

 

Kæru hjón!

Elsku kæru hjón

Þið hafið eignast undursamlegar dætur

Búið í fallegri íbúð

Eigið góðan bíl

Og annan lélegan

 

Til hamingju með hvort annað

Til hamingju með fertugsafmælin ykkar

Til hamingju með 10 ára brúðkaupsafmælið (2022)


Sonnetta um kraftaverkið Evu Lovísu

Eva Lovísa fær nafn

Það kraftaverk er vaknar blóm í haga

og vonir frómar rætast hjónum ungum

Þakkir kvikna á þeirra fúsu tungum

þjóta um loftin straumar gleðidaga.

Já, hafin er nú hamingjunnar saga

hrundið unga töfrar pabba og mömmu

Hjalar sætt við afa sinn og ömmu

yndisleg snót með hláturkitl í maga.

 

Ungmeyju fagra prýðir sannleikssál

nú sæla býr í Lísu og Heimis ranni

Í húsinu ríkir gleði í ljúfu lyndi.

Lovísa fögur hjalar manna mál

mögnuð Eva hnellin er með sanni

Hamingjan fegri fljóðsins ljós og yndi. (2014)


Litla aðventubarn– Lilja Sól

Kveðja frá afa 17. desember 2017

Nú brestur á gleði og gaman

og gleðst nú öll fjölskyldan saman

Ein blómarós bættist í flokkinn

hún brosir við kolsvartan lokkinn

Alla glitrandi gimsteina dylja

þau gleymérei, nellika og lilja.

 

Hún er stjarnan á himninum heiða

sem Heimi og Lísu nú seiða

Þá hnátuna elskar hún Eva

allt vill hún smásystur gefa.

Verði lukkan ein lífs hennar brekka

nú Lilju Sól fýsir að drekka. (2017)


Húmoristinn Kristófer

Sá yngsti hefur sérstaka hæfileika

til að gera alla hluti á eigin hátt

öðruvísi en allir aðrir

Rólegur á yfirborðinu

en undir niðri ólga flúðir

Hugsar viðfangsefnin frá allt öðru sjónarhorni

en flestir aðrir

Þér fannst  yndislegt að ala hann upp

kynnast sérstakri kímnigáfu hans

og einstakri skaphöfn

Svo var hann frábær í hástökki

og ýmsum öðrum íþróttum

Ljúflingur og góður drengur

sáttur við sjálfan sig og tilveruna

Nýtur lífsins hvar sem hann dvelst

Það er ekkert slæmt til í honum

Hann verður alltaf litli strákurinn þinn! (2024)


GUNNA, JÓSI OG ÞEIRRA FÓLK 

 

Lífið er von

í minningu Guðnýjar Jósepsdóttur

(f. 12. júní 1929 - d. 9. júní 1999)

            Ljós kviknar

            líf bliknar

            lund viknar

            og lífið er von.

 

Að kynnast og lifa í samlyndi og sátt

sæluna teyga um daga og nátt

er unaður mesti

Afkvæmi eignast sem dafna af dug

drífandi stráka sem lyftast á flug

og eltast við þresti.

 

Þeir fullorðnir verða og fegra sitt líf

finna sér vinnu, eignast sín víf

og börnin sín góðu.

Þá lifnar í húsi og heimilið grær

hlátraskšll dynja og gleðin er nær

í hamingjumóðu

 

Ljós kviknar

            líf bliknar

            lund viknar

            og lífið er von.

 

Svo húmar að kveldi og kyrrðin sest að

kallið að handan frá himnanna stað

Hann kallar til náða

Við harmþrungin stöndum, því söknuður sár

sorginni fylgir, depurð og tár

sem letja til dáða

 

En minningin lifir og með henni þrá

sem myrkrinu eyðir og kyrrir hvern sjá

sem englarnir blíðir

Í frelsarans jarðlífi er vonin svo væn

vegsömum Drottinn í þakklátri bæn

Við hittumst um síðir. (1999)


 

Söngfuglinn hljóðnaði

Ort í minningu Sigurðar Sigurjónssonar,

  1. 8. sept. 1913 d. 3. júní 2005

Söngfuglinn hljóðnar í húmi um kvöld

nú heilsar oss nóttin, svo döpur og köld

Tónarnir víkja og tíminn er kyrr

það tindrar á hvarma sem aldreigi fyrr

Það er nótt, það er nótt meðal manna.

 

Þrösturinn ljúfi með síglaðan söng

hann syngur ei meira um vordægrin löng

Gladdi okkar hjarta, hann gaf okkur dug

í glóð þeirra söngva við lyftumst á flug

Hann söng ljóð, hann söng ljóð handa öllum.

 

Rifjast upp kynni svo kær og svo djúp

svo kankvís og glaðleg í listrænum hjúp

Söngskáldið ljúfa sem sem gaf okkur gjöf

sem geymist í hjörtum við aldanna höf

Samdi lög, samdi lög fyrir lífið.

 

Minningin lifir um líf sem var bjart

í listrænum huga bjó eilífðarskart

Ég þakka þau kynni, þau lýsa mér leið

í lifandi tónum um ævinnar skeið

Kæra þökk, kæra þökk fyrir kynnin. (2005)

Gunna litla Guðsgjöf

Þér fæddist dóttir

nafna mömmu þinnar

eftirmynd hennar segja margir

en samt svo mikið hún sjálf

Hún vafði þér um fingur sér þessi litla dís

og hélt því lengi áfram

svo að sumum þótti nóg um

Þú kvæntist mömmu hennar

og það samband entist í heilan áratug

 

Þessi dóttir þín

er elskuleg dóttir

yndisleg móðir

og frábær ómissandi amma

Þriggja ára fór hún með koppinn sinn út á stétt

og sat þar á honum til að sjá fólkið

Hugsa sér, þessi litla hnáta orðin amma! (2024)


Eitt ár í tímans skaut - Gunna

Þú varst svo lítil, ljúfa mær

þú lékst við fingur, hrein og tær

þú saugst af brjósti, baðst um meira

þér birtist margt að sjá og heyra

 

Þú varst svo ung og agnarsmá

svo ótalmargt að skoða og sjá

þú vildir skíða, hoppa og hendast

hlaupa af stað, um gólfið sendast

 

Þú gast ei heldur gengið neitt

þá gréstu mikið, sárt og heitt

en tíminn leið við leik og hlátur

við ljúfust bros, - og “soldill” grátur

 

Og núna ertu stór og stælt

með styrkri rödd á mömmu er skælt

þú getur hlaupið, reitt og rifið

- og reyndar upp í stóla klifið -

 

Já, þú ert dugleg, daman mín

dýrleg eru augun þín

falleg ertu, fagra meyja

svo fín, - ég veit ei hvað skal segja

 

Æ þér fylgi von og vit

vegleg sæla, ástarglit

Megirðu dafna í Drottins landi

djöflar heimsins ei þér grandi (1967)


Parið Jósi og Gunna

Í kvöld við eigum hér ánægju saman

og syngjum öll þennan fagnaðarbrag

Því hér er aldeilis glaumur og gaman

já, þetta er gleði- og hamingjulag

 

Karlinn elskar konu snjalla

og konan elskar góðan mann

Barnahópinn heim þau kalla

sem hoppar um með sóma og sann

 

Já, nú er aldeilis glaumur og gaman

gleðin magnar þann hamingjutón

 

Þau tvö sem presturinn pússaði saman

parið Jósi og Gunna´ eru hjón. (1996)


Það bar við um þessa mund

Skírnarvísur til fyrsta barnabarnsins 21. janúar 1990

(Lag: Sigurður Sigurjónsson)

Það bar við um þessa mund

að þöllin fæddi sveininn

sem lýsti af um græna grund

og græddi hugarmeinin.

 

Hún fæddi dreng í Davíðs borg

hvar dafna menn og konur;

úr öllum hugum horfin sorg,

hann var Jóseps sonur.

 

Óskir fylgja, ungi sveinn,

Arons nafni og Bjarka.

Nú víst þín bíður vegur beinn

er viltu sjálfur arka.

Gangi þér allt í góðan hag,

gleði völdin hafi.

Þér ómi lífsins ástarlag,

þess óskar þér þinn afi. (1990)


Dagnýr drengur – Elfar Bjarki skírður

Hér er drengur svo naskur og nýtur

sem nú nafn sitt frá foreldrum hlýtur

Allar heillir hann fær

þegar hjalar svo tær,

inn í heiðríkju heimsins hann þýtur

 

Til hamingju, dagnýi drengur

okkur dúddunum gleði og fengur

Með þín aronsku tár

og þitt loggyllta hár

á augljósum guðsvegi gengur. (2013)

 

Nýtt nafn í fjölskylduna

Kveðja til Baldurs Leós frá langafa í tilefni skírnar 10. október 2015

Hann er frábær og fallegur drengur

Hann er flottari en gerist og gengur

Hann er næmur og skýr

Hann er naskur og hlýr

og nafnlaus hann verður ei lengur.

 

Hann á föður og fjörlega móður

Hann á flippaðan töffarabróður

Hann er fjölskyldustór

Hann er frískur og rór

Hann er fallegur, indæll og góður. (2015)


 Langafastelpan mín – Eva Marí

Langafastelpan mín ljúf er og hress

Leikur við hvern sinn fingur

Í huga mér á hún heilagan sess

Hraustlega trallar og syngur

 

Hún Eva Marí er mögnuð og góð

Mömmu og pabba hún hvetur

Megi hún ausa úr auðæfa sjóð

yndi jafnt sumar sem vetur. (2019)


Elín kemur til skjalanna

Eldar loga, kviknar bál í brjósti,

bruna um æðar, líkt og þrumur ljósti,

kveðja mig til leiks með þungum þjósti,

þrýsta á huga, líkt og standi í gjósti.

Því segi ég glaður, gott er þig að finna

glæðast trú og vonir drauma minna.

 

Kæra vina, eigðu lif í yndi

allt þér gangi í hag í logni og vindi

Dagar mæti snót í ljúfu lyndi

lukkan með þér gegnum ævi syndi.

Þú ert fögur, fljóðið unga og bjarta,

fegurð þín, hún magnar sál og hjarta.

 

Elín litla, eftirlæti pabba

ömmubarn um gólfin brátt mun labba.

Við mömmu sína meira en fús að rabba

og málgan afa sinn með brosi gabba

með ljúfu skapi heillar allan heiminn

hugþekk stúlka, geislandi og dreymin. (1994)


Kröftugt er nafniðMarteins Jósa

Til baráttu drifinn er drengurinn sá

sem duga mun hugsjónum sönnum

Um höfuð hans dansar heiðríkjan blá

og hugmyndir fæðast í önnum

 

Foreldrar gaursins sem gáfu honum nöfn

Þau gáfu honum óskir sem rætast

Frá Andreu Mörtu er Marteinn í höfn

mögnuð mun amman nú kætast

 

Frá afa sem siglir um sæhvítan mar

mun sálarró Jósa víst bætast

Nöfn þeirra beggja því finna honum far

að frábærum kostum sem mætast.

 

Víst er að heimurinn síðar mun sjá

hann syngja gegn kúgun og stríði

þá heyrast skal lofsöngur langöfum frá

en lygarar kafna í níði. (2022)

 

Bjartur er Árni

Bjartur Árni Illuga Elínarson fær nafn 6. júlí 2015

Sumar er nú komið

sólin á oss skín

Sólskinsdrengur fæddur

Gleður sinn pabba

glaðan og stoltan

og góða mömmu

góðu mömmuna sín

 

Birta og gleði

Brosandi ský

Bjartur hann heitir

Svo bjartur í fasi

og innra býr

blíður og indæll

svo blíður og indæll herra

 

Einkenni sterk

ber ungmennið knáa

í ömmu og afa fangi

Skapfesta og örlyndi

skín úr klókum augum

Skemmtinn þá hlær

skemmtinn og hlæjandi hlær

 

Árnaðaróskir sendi

og árna lukku

Árni skal hann heita

Eitt sinn átti ég Árna að vini

amma hans hét Árný

amma Bjarts er Árný

amma hans er Árný að sönnu

 

Áran hans björt

ber oss sólskin og daga

blíðu og gæði frá hjarta

Heppin og fagnandi

eru foreldrar gaursins

og forfeður allir

forfeður og stóri brósi

 

Og áratugir

öll yndislegu árin

í ævi hins bjartleita gutta

Líf hans er gleði

gáski og fjör

Við unnum þér, Bjartur

Við unnum þér Bjartur Árni.


Ein lítil gjöftil Gunna

Ljós sem kviknar

líf sem kviknar

Fæddur er fallegur karl

Hefst ný saga

hefst drengs saga

Ljúflings er hafið líf

ljúflings er byrjað líf.

 

Móður sem elskar

móður sem dáir

á þessi indæli sveinn

Faðmur sem huggar

faðmurinn huggar

verndar frá hættu og vá

verndar frá ógnum og vá.

 

Faðir hann styrkir

faðir hann eflir

með ljúfri og leiðandi hönd

Hvetur til dáða

Hvetur sinn snáða

Fyrirmynd fjörugum gaur

fyrirmynd frísklegum gaur. (2015)

 

Bardagadrengur

Bardagamaður

beittur og baráttufús

Nefnist því Gunnar

nafn hans er Gunnar

Sigrandi fer hann um fold

sigrandi ferðast um fold.

 

Konungum líkur

konungur sjálfur

Foringja fræknleika ber

Sjálfum sér stýrir

sér sjálfum hann stýrir

Ingi er hans annað nafn

Ingi er hans síðara nafn.

 

Bróður átt góðan

bróður átt, Aron

Hann kennir þér leiki og list

Og systir þín, Elín

systirin Elín

verður þér vinur í raun

verður hún vinur í raun.

 

Frændur þér heilsa

frændur þig kveðja

Víst er um frægð þína og fjör

Atli og Dúni

þeir Atli og Dúni

og Kristófer senda þér koss

Kristófer sendir þér koss

 

Ég bið að þú dafnir

bið að þú þroskist

Þú eiga skalt hamingjubros

Guð faðir geymi

Guð minn þig geymi

Þú átt skilið það besta sem býðst

átt skilið það besta sem býðst. (1995)

 


ÆTTINGJAR INGIBJARGAR


Ríma af Jóni Bjarnasyni sjötugum

Mansöngur eða upphaf rímu

Sælir, vinir, svona byrjar sjötug ríma

            Verður flutt þeim mæta manni

            sem mærður skal í þessum ranni

 

Sjötíu hefur seggur árin sældar lifað

            Fæddur norður á nyrstu Ströndum

            hvar næðir vindur út með löndum

 

Í Bjarnarhöfn hann búskap átti bóndi

góður

            Ól upp börn og bylti  túnum

            blessun las úr tímans rúnum

 

Félagsmál og fólksins líf hann færði

saman

            Skilgreindi og lagði leiðir

            leiðtogi og málagreiðir

 

Réðst svo norður, reif upp riftan

Hólaskóla

            Kunnur varð af kraftaverkum

            kennari af ættum merkum

 

Bændaskólans blómatíma bar til sólar

            Busar námu búandfræði

            sem búskap skyldi aukast gæði

at á þingi, sanngjarn var og sáttaleitinn

            Fólksins hag hann bar í brjósti

            barðist fremst í miklum gjósti

 

Ráðherra með réttu varð og reisti varnir

            ESB hann eyddi úr landi

            aldrei tóri slíkur fjandi

 

Úr sínum flokki suddalegir svikahrappar

            hann í bakið hnífum stungu,

            huglaust lið af ættum gungu

 

Sögu hans ég segja vil í sjötugu ljóði

            Heyrið mína hugar glímu

            hlustið vel á þessa rímu

 

Ríma af Asparvík á Ströndum

Norður á Ströndum er nóttin dimm

            og nálægir tindar gnæfa

            Bylja á húsunum hretin grimm

            og höglin börnin svæfa

 

Svo kemur vorið veitult og frjótt

            og vindarnir breytast í gjólu

            Í hita er andlit af hlýju svo rjótt

            og hlaupið með mjólk í skjólu

 

Asparvíkin er voldugt skjól

            sem vegsama freyja og spúsi

            Átti þar fjölskyldan fagurt ból

            í fjölsetnu litlu húsi

 

Iðkaði Bjarni bóndans gang

            byggði úr traustum viði

            Sótti þar hákarl og sjávarfang

            og sonunum kenndi í friði

 

Laufey svo ræðin, röggsöm og glöð

            réði víst húsum inni

            Ól hún þar börnin sem birtust í röð

            brosandi og glaðleg í sinni

 

Heiða sem peysurnar prjónar um ár

            purpura Hiddi safnar

            Reynir í fræðunum flinkur og klár

            í fjölskyldu Ásta dafnar

 

Lella í hjálpsemi ljúfust og best

            og laukurinn Jón sat á þingi

            Kalli með skinnin sín mætust og mest

            nú mál er að Rúna syngi

 

Signý í golfinu geysist í mark

            glóir hann Valgeir af hlýju

            Þrautgóð er ættin og þétt er hvert spark

            þetta eru systkinin tíu

 

Á þessum meiði er magnað svið

            makar og frændur og lýðir

            sem geta af sér enn meira einvalalið

            sem ættina kjörkuðu prýðir

 

Því leggurinn í þeim er lurkurinn sá

            sem leynist í Strandablóði

            Heiðarlegt fólk skapar heiðin blá

            haf gefur kjark í sjóði

 

Ríma af Bjarnarhöfn í Helgafellssveit

Um Bjarnarhöfn við Breiðafjörð

            bárur skorða megingjörð

            Þar berserkir forðum lögðu leið

            að launum þeir fengu pín og deyð

 

Dorma þar selir við sjávarnið

            syndandi fuglar við strandar hlið

            Um staðinn fjallið stendur vörð

            stiklar um grundir kindahjörð

 

Kirkjan er staðarins djásn og dýrð

            drottni helguð, af Guði skírð

            Óx þar Jón við ótal verk

            elfdist að krafti búgleðin sterk          

           

Menntun þá sótti sveinninn sæll

            syðra og ytra, tá og hæll

            Reisti svo hús og ræktaði tún

            reri til fugla frá eyjabrún

 

Neistinn til kennslu kallaði á hann

            í kennarastarfinu gleði fann

            Í kennslunni þótti hann skarpur og skýr

            skilning hann glæddi sem áður var rýr

 

Sveitungar fundu hans fljúgandi vit

            í félög hann settu í hagsmunastrit

            Á bændaþing sendu með búandans arf

            borinn var seggur í oddvitastarf

 

Samvinnuhugsjón í huga hans stóð

            hagsmunir fólksins í viðskiptaglóð

Við formennsku kaupfélags traustlega

tók,

            nú tiltekt var hafin í efnahagsbók

 

Í hreppsnefnd leiddi hann margvísleg mál

            mælskan þar dugði og tendraði bál

            leiddi fólk saman um samfélagsbót

            sáttmála vonar var komið á fót

 

Gífurleg afköst með atorku og dug

            og allt gert af krafti og vönduðum hug

            til hliðar við stritið og bjástur við bú

            börnin sín mörgu og öfluga frú

 

Bjarnarhöfn kallast sú kostanna jörð

            kann þó að vera mjúk eða hörð

            matarvæn kista í mannanna róm

            megi þar spretta og uppvaxa blóm


Ríma af Hólum í Hjaltadal

Svo fluttist að Hólum í Hjaltadal

            sem hvílir í svipmiklum fjallasal

            þar oft heyrist veglegra vætta tal

            sem víst náði að bergmála í vísum hal

 

Hólabyrða í hvítum kjól

            helgan vegsamar biskupsstól

            Í Gvendarskál kviknuðu himinhjól

            og hugurinn mikla drauma ól

 

Þar bjargaði skóla frá bráðri neyð

            byggði upp að nýju af gömlum meið

            þróaði námið, sú braut var breið

            bændaskólanum vann hann eið

 

Efldi staðinn með styrkri hönd

            stórvirki framdi sem barst út um lönd

            sveitunga virkjaði iðjusöm önd

            atorku Jóns héldu vart nein bönd

 

Nemendur menntaði ár eftir ár

            uppfyllti námsþyrstra vonir og þrár

            Skólinn í virðingu veiti þeim fjár,

            velgengnin brúaði skurði og gjár

 

Að ríða með Jóni að Hólum heim

            hrifningu vakti með öllum þeim

            sem menningu höndum taka tveim

            og treysta á bóndans máttarseim

 

Skagfirskur kraftur varð kunnur á ný

            og kirkjan á Hólum bar turn við ský

            Skólinn er búskapnum birtan hlý

            nú bændur víst engir neita því

 

Í starfinu fullan tók fjölskyldan þátt

            frúin og börnin sem léku sér dátt

            unnu þau störf sem bárust að brátt

            beindu um gestum sem vissu svo fátt

 

Þannig leið tíminn í sólríkri sveit

            samhent þau undu á fallegum reit

            lífsaflið viljuga og hugsunin heit

            að happasæld meiri var sannlega leit

 

Skagfirskur höfðingi, í huganum glóð

            halda nú vildi upp á sigra og ljóð

            þá kappann til verka kallaði þjóð

            kaus hann til þingstarfa vitur og fróð


Ríma af eiginkonu og börnum

Munið öll að manns og konu mesta

gaman

            er þá með börnum sitja saman

           

Ungur kynntist kærri og ljúfri konu sinni

            löng þau urðu og lánsöm kynni

 

Ingibjörg er auðnudrengsins

æskudraumur

            hjá henni birtist gleði og glaumur

 

Konan sú frá Kolkufólki kraftinn léði

            vel það skildi seggurinn séði

 

Saman standa í einu og öllu, alla daga

            yndi er þeirra ástarsaga

 

Listræn kona, ljúfum myndum liti gefur

            leik að pensli í höndum hefur

 

Hjónin eldast harla vel í hjónasælu

            hvort annað prýða náðarnælu

 

Bjarni í sveitarstjórnarstússi af styrkri

festu

            Ásgeir hagfræði miðlar mestu

 

Ingibjörg er Íslandsfróð, ég um það ræði

            Laufey rómar rússnesk fræði

 

Katrín hjúkrun nam af sínum hlýja huga

            Páll mun jarðar dáðum duga

           

Ríma af þingmennsku

Að göslast er gaman í pólitík

            og ganga til verka gegn fláræðisminni

            barátta fólksins er fáu lík

            og freistar þess góða í dánumannssinni

 

Í þjóðmálum einatt má gera gagn

            ef góðir menn um framkvæmd véla

            en þegar draga vargar vagn

            víst má falla á glugga héla

 

  1. Jóns var öndin heið og há

            er hugsjón rak til góðra verka

            hafði það sem þurfa má

            þjóðarkennd og stoltið sterka

 

Sat á þingi og verk sín vann

            því viska bjó í þessum huga

            Virðing óx því fólkið fann

            að fús hann mundi lýðnum duga

 

Fylgið óx og flokkurinn þá

            fékk að stýra þjóðarfleyi

            Réðst þá að settist rekkur sá

            í ráðherrastól er birti af degi

 

Þjónaði ötull þjóðarhag

            þæfðist móti evruhelsi

            strandveiðum veitti lausnarlag

            lagðist gegn braski og auðmagnsfrelsi

 

Færði bændum betri kjör

            í bálviðri innfluttra vara

            sannlega réði sanngirni för

            á svig við loforðin neitaði að fara

 

En svikarar leyndust liðinu í

            sem leituðu færis að svíkja og týnast

            hans eigin foringjar blakkir sem blý

            bognuðu og féllu, sem aumingjar sýnast

 

Þeir stungu í bakið dugandi dreng

            drápu sín tengsl við fólkið og landið

            þeir atkvæðum týndu og töpuðu feng

            trúnaður horfinn, þar slitnaði bandið

 

Nú hann stendur eftir með hreinan skjöld

            hokinn af reynslu, virtur og dáður

            hans verk munu lifa um ævi og öld

            hans atgeir er gljáandi og beittur, en

máður

 

Lokalag

Hér er fjölmenni saman safnað

            sem í sjötugsveislu hefur hafnað

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            Hvílíkt sem hann hefur dafnað!

 

Á góðgæti gæðum við okkur

            gleðst þá hver vala og stokkur

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            Þetta er hreint enginn stjórnmálaflokkur


ið drekkum hér dásemdar veigar

            hver drengur og stúlka teygar

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            Hans hugsjónir víst eru seigar

 

Við hlustum á lofræður langar

            lof þetta athygli fangar

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            Nú hvítna og svitna vangar

 

Við spjöllum við konur og karla [kalla]

            kyssum á vanga og skalla

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            Hann hendist um ganga og palla

 

Hér upphefjast ættmennavinir

            hér eru ærlegir tengdasynir

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            Við hyllum þig Jón sem vinir

 

Lifðu nú vel bæði og lengi

            í lukkunnar blússandi gengi

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            á hamingjuóskanna engi

 

Árin sem öðlingsins bíða

            í ánægju megi þau líða

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            sem í hug okkar ferðast víða

 

  1. Lifðu sem lífsblóm í eggi

            leiktu við sprundir og seggi

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            Gakktu ei á hurðir né veggi

 

Nú áfram sá unaður stendur

            af Óðni ég hingað var sendur

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugrakkan mann

            Hlustið nú, ég heiti Gvendur. (2023)


 

Ingibjörg SólveigBergsteinsdóttir Kolka

78 ára 15. október 2025

Ég heilsa þér, kunnáttukona

þú kannt það sem fæsta má prýða

með listamannshendur þú leikur

og léreftin kanntu að sníða

Þú málar svo fallegar myndir

að meistarar hrífast víða

Já, málaðu miklu fleira

þín mögnuðu listverk bíða

 

Með listamannsaugum lítur

það ljúfa í heimi merkum

Sú kona sem fegrar fjöllin

má fylla allt af nýjum verkum

Heill þér, kunnáttukona

komin af ættlegg sterkum

Þér er skapað að skreyta heiminn

sem skrautlegum listaverkum. (2025)

 

Jón Kolka

Það er gaman að kúldrast og að

ef Kolkurnar eru í vafa

Með öflugri raust

er orðið ei laust

þegar anginn fær nafnið frá afa.

 

Nú nafnlaus er labbinn ei lengur,

lukkunnar fallegi strengur

Kröftugur sveinn

keikur og beinn

Jón Kolka, til hamingju, drengur! (2017)


Til hamingju, Hákon!

Hjá regnboga í rökkri eða skini

má rósir og blóm eiga að vini

Við norðurljós náttúran ljómar,

nýr dagur og söngurinn ómar

Úr rússneskum eldi og íslenskum þrótt

er auðvelt að sameina dagsbrún og nótt.

 

Kjörnafni klerksins er skrýddur,

með konunganafni er prýddur

Hákon hann heitir sá ljúfi,

heilsum þeim glaðsinna stúfi

Eldhugans kjarkur um æðar hans fer,

ástríkur söngur til hæða hann ber.

 

Við sólris er kappinn sig klæðir,

og Kolkumýrarnar þræðir

Læknir með logsverð í stafni

hér leysti og gerði að nafni.

Því nefnist hann Kolka svo heppinn og hreinn.

Til hamingju drengur, til hamingju sveinn! (2012)

 

Ásbjörn er fallegt nafn

Ásbjörn Kolka skírður

Kolkudrengur Kolkuskýr

Kolka Ásbjörn alltaf nýr

Kolkuskap í kappa býr

Kolkueldur skær og hlýr

 

Kapparnir æsir víst forðum

fæstir þeir börðust með orðum

Með verkunum vildu þeir tala

Vörðust með höndum og hala

 

Björn var hinn blíðasti prestur

og barnanna aufúsugestur

Hann líknaði lösnum og vænum

Með ljúfhöndum, Guðstrú og bænum

 

Kolkudrengur Kolkuskýr

Kolka Ásbjörn alltaf nýr

Kolkuskap í kappa býr

Kolkueldur skær og hlýr

 

Ásbjörn Timofeev Kolka

Timofeev Ásbjörn Kolka (2018)


Þakkarkveðjatil Katrínar

Katrín Kolka Jónsdóttir f. 29. september 1982 - d. 27. febrúar 2011

Kæra góða vina, við kveðju sendum þér,

úr kærleiksfullum hjörtum sú þökk um loftin fer.

Núna ertu horfin en hlustar þó svo vel

er hrygg við sitjum eftir við leik að völu og skel.

Víst ertu áfram nálæg og hressir okkar hug,

huggar daprar sálir og lyftir þeim á flug.

 

Þú nældir þér í öðling sem umvafði þig ást

þinn yndislega maka sem aldrei vonum brást.

Og elsku litla soninn þinn ólstu upp með dug,

allt þú honum kenndir með þínum blíða hug.

Þann gimstein hefur annast með ást frá fyrstu

tíð,

unga drenginn styrkti móðurhöndin blíð.

 

Umhyggjan frá foreldrum var dæmalaus og sterk

og fjölskyldan þig studdi gegn særindum og verk.

Þú elskaðir allt sem lifir og lífið móti skein

þótt linuðust þínir fætur og efldust illvíg mein

því sálin þín var heiðrík og hugur þinn var knár

og hjarta þitt var blíðlynt þótt geigur ýfði sár.

 

Dirfska þín og kraftur kæfði alla þraut

og kjarkur þinn til lífsins píslir sigra hlaut.

Við vitum öll að launin sem ljúfa hjartað fær

er líðan betri er englum og guði sín´ er nær.

Nú stríði þínu er lokið og kinnin þín er köld.

Við kveðjum þig með þökkum, við hittumst seinna í kvöld. (2011


Valdimarprins

Þú ert skafhreifinn skírnardrengur

og skrautlegur eins og gengur

Megi hamingja þín

verða hugljúf og fín

Þú ert hreint ekkert smábarn lengur.

 

Þú ert glaður á góðviðrisdegi

er þú geysist um mannlífsins vegi

Þú ert gimsteinninn skær

þegar skrafar við tær

Þú ert skjaldsveinn og stóreflis peyi. (2006)

 

BrúðkaupsvísurPalla og Söndru

Nú til brúðkaups er boðað „í skyndi“

með brosi og göfgi í lyndi

í hjónabandsból í brakandi sól

þau berast með sælunnar vindi

 

Hann er fjörmikill dáðadrengur

hún á drauma um lífið sem gengur

Nú gerist það kátt: þau gifta sig brátt

því þau geta ekki beðið lengur

 

Nú er boðið til brúðhlaups með tertu

brauðhleif og fiskmeti hertu

Ég á líf, ég á líf, það er ljúft  og ég svíf

lofa brúðhjónin hnakkakerrtu

 

Nú merlar um stokka og steina

og stirnir á ufsir og hleina,

tungl skín á tindana hreina

og trúnaðarsáttmáli  gjör.

 

Hér glóir á brautina beina

því brúðkaup í vændum má greina,

þann dag má ei lukkunni leyna:

Lífið er yndisleg för. (2010)

 

Kominn er dagur daga– Katrín Kolka

Nálgast vor og sól á himni hækkar

hressist jörð er líf og gróður stækkar

lengist dagur, vetrarfrostum fækkar

funinn vex og sjávaraldan lækkar

Lítil stúlka brosir blíðum augum

blikar djúpt í skærum hvarma laugum.

Kominn er dagur daga

fyrir dagsins ungu snót

 

Ömmubarn og eftirlæti pabba

undurfríð um gólfin brátt mun labba.

Við mömmu sína meira en fús að rabba

og málgan afa sinn með brosi gabba

Gleður Katrín Kolka allan heiminn

með kátu skapi, brúnaþung og dreymin.

Kominn er dagur daga

fyrir dagsins ungu snót

 

Kæra vina, eigðu lif í yndi

allt þér gangi í hag í logni og vindi

Hamingjan þér mæti í ljúfu lyndi

lukkan með þér gegnum ævi syndi.

Þú ert frábær, fljóðið unga og bjarta,

fús að brosa, magnar sál og hjarta. (2012)

 

Skírður Einar Kolka

Hann er drengur svo naskur og nýtur

þegar nafnið í guðsgjöf hann hlýtur

Sína hamingju fær

þegar hjalar svo tær,

inn í heiðríkju heimsins hann þýtur

 

Þú ert lánsamur, dugmikill drengur

þú ert drífandi happafengur

Þú ert Einar svo smár

þú ert ungur og knár

þú á augljósum guðsvegi gengur.

Frá frænku og frænda (2014)


VINIR OG KUNNINGJAR

 

Árnaríma

Sjötug ríma um Árna Mogens Björnsson sjötugan

 

Mansöngur eða upphaf rímu

Sælir, vinir, svona byrjar sjötug ríma

            Verður flutt þeim mæta manni

            sem mærður skal í þessum ranni

 

Sjötíu hefur seggur árin sældar lifað

            Æskusól við Sundin bláu

            hvar syngja vindar lögin fláu

 

Í Efstasundi ólst hann upp, var drengur góður

            Lék við hvern sinn litlafingur

            laus við prjál og spé og glingur

 

Í Langholtsskóla garpur gekk og glæddi andann

            Lærði hug og hönd að stæla

            horfa, reikna, skrifa, mæla.

 

Æskan leið við leik og fjör með ljúfum vinum

            Á Kleppstúni í kapphlaup æddi

            í kúluvarpi aflið glæddi

 

Prentlist lærði peyinn snari, prúður þótti

            Setning prents varð sérgrein klóka

            smekkvís mjög í hönnun bóka

 

Oddfellowi ærukær og engum líkur

            Félagshag hann bar fyr brjósti

            búinn jafnt í logni og gjósti

 

Tótu fann og bjó með henni börn og buru

            Í fimmtíu ára fríðu standi

            fylginn, traustur, laus frá grandi

 

Afkomendur fengið hefur flotta fimmtán

            Eðalfólk af styrkum stofni

            Steypt í landsins besta ofni

 

Sögu hans ég segja vil í sjötugsljóði

            Heyrið mína hugar glímu

            hlustið vel á Árnarímu

 

Ríma af Efstasundi 41

Niðri við Sundin er nóttin víst dimm

            og nálægir hólarnir gnæfa

            Bylja á húsunum hretin svo grimm

            og höglin þar krakkana svæfa

 

Kemur þá vorið svo veitult og frjótt

            og vindarnir breytast í gjólu

            Í hita og hlýju er andlit svo rjótt

            og hlaupið með moldina í skjólu

 

Efstasund víst er það voldugast skjól

            sem vegsama halur og spúsa

            Átti þar fjölskyldan fagnaðarból

            í fjölmenni lítilla húsa

 

Iðkaði Björn pabbi aksturinn þar

            í umferðar brunandi kliði

            Traustur í sínu sá seggurinn var

            Í sendibíls rósemd og friði

 

Anna svo röggsöm og ráðsnjöll og glöð

            réði hún í húsunum inni

            Ól hún þar börnin sem birtust í röð

            brosandi og glaðleg í sinni:

 

Hrefna hún efldi vel systranna sið

            sannkölluð viskunnar sjóður,

            erfiðar reyndist að ráða vel við

            róstur í óþekkum bróður

 

Sirrý í hjálpsemi sætust og best

            sífellt á iði og hlaupum

            Og alltaf þá brosti hún Birna þó mest

            í búðar- og sjoppunnar kaupum

 

Í íþróttum geystist hann Árni í mark

            sem æskunnar herma þær sögur

            Þrautgóð er ættin og þétt er hvert spark

            þetta eru systkinin fjögur

 

Á þessum meiði er merkilegt snið

            makar og frændur og mágar

            sem geta af sér enn meira einvalalið

            sem ættina mögnuðu fágar

 

Því leggurinn í þeim er ljúfstyrkur sá

            sem leynist í Andersens blóði

            Heiðarlegt fólkið með hughreina brá

            hetjulund geymir í sjóði

 

Ríma af prentstörfum og Prenthúsi

Menntun þá sótti sveinninn sér

            sæll fór í prentið drengur hér

            Prentsmiðjan Hilmir hreif hans sál

            hreykinn hann lærði blýsins mál

 

  1. Hjá Hafsteini í Hólum listir nam

            halurinn knái í bókum svam

            Efldist þar seggur við ýmis störf

            óx hann að krafti í glaðri þörf

 

Prenthúsið stofnuðu steggir tveir

            stórhuga prentuðu gaurar þeir

            Reynir var líka ungur og ör

            æ var á Barónsstíg geggjað fjör

 

Margt var þar unnið, smátt og smart

            smellið, litfagurt, lint og hart

            Aldreigi sást þar neitt fát né fum

            en frúvurnar ýmislegt sáu um

 

Skutluðust prinsar í Skeifugeim

            skyldi nú sigrast á öllum heim

            Dvöldust þar síðan í allmörg ár

            enn fleiri starfsmenn og mikið fár

 

Aftur nú vatt hann voð við hún

            vistaðist smiðjan í Skúlatún

            Dró saman seglin en sótti fram

            seiglan og harkan í þessum gram!

 

Gífurleg afköst með atorkudug

            og allt gert af krafti og vöskum hug

            til hliðar við stritið og barnabú

            bjástur við húsið með sinni frú

 

Á Hverfisgötu næst byggði ból

            bísnessinn góður í rökkursól

            Góð voru afköst með afli og dug

            og allt gert af krafti og vöskum hug

 

Aftur í Skeifuna skaut sér inn

            skínandi glaður við prentstokk sinn

            Og enn tekur strákurinn steininn úr

            Nú starfrækir Prenthúsið heima í skúr

 

En ætt´ekki hnakkinn að hætta´essu senn?

            Að hvílast, það hreint ekki býðst þér enn!

            Nú vinnur í Litrófi laukur snar

            ljómandi glaður við prentvél þar


Ríma af Reykholti og útgáfustarfi

Ein hugsjón varð fljótlega í huga skýr

            hjá höldinum trausta sem aldrei flýr

            Að moka út bókum svo máttarhlýr

            varð meistarans knáasta ær og kýr

 

Með félögum góðum var gleðin ein

            með Gvendi og Reyni á Prenthússgrein

            Hó Chi Minh, Maó og Morgan Kane

            magnaðir prentgripir, sælan hrein

 

Þá stofnaði rekkurinn Reykholts bú

            með Reyni og Þóru og Tótu frú

            Ólafur bróðir varð allra hjú

            og róttæki Gvendur með sína trú

 

Út kom þá Ísfólk í stríðum straum

            sturlaðist þjóðin í fornum draum

            Bólgnaði pyngjan í gleðiglaum

            þá gáfu út Dæturnar lífs í flaum

 

Garpskáldið Indriða gáfu út

            gaman var kappans að leysa hnút

            Sögur og viðtöl og sjónleiksbút

            sendu til þjóðar laus við sút

 

Jón Páll og Cayce og Cohen og Peale

            klerkurinn Ári í mærðar víl

            Leiðir í göngu og bindi um bíl

            og bókin um Sigfúsar söngvastíl

           

Gáfu út Lífið er lukkuspil

            leystu svo framlífsins huldu skil

            Lofandi Skuggann þeir lögðu til

            og léttlyndu Regínu í lífsins byl

 

Í fjörinu tóku svo frúrnar þátt

            fjölskyldur, börnin sem léku dátt

            unnu þau störfin sem bárust brátt

            byggðu upp starfið og sungu hátt

 

Árni úr Kleppsholt´er kóngur því

            að kraftur hans sviptir burt vindaský

            Ævistarf Árna er birtan hlý

            enginn í faginu neitar því

 

Reykvískur höfðingi, í huganum glóð

            heldur nú fær upp á sigra og ljóð

            nú kappann til verka kallar hans þjóð

            kallar á öðlingsins minningasjóð

 

Ríma af eiginkonu og börnum

Munið vel að manns og snótar mesta gaman

            er með börnum sitja saman

           

Ungur kynntist kærri og ljúfri konu sinni

            löng og lánsöm urðu kynni

 

Tóta hún er Árnans innsti æskudraumur

            henni fylgir gleð´og glaumur

 

Úr Ljósafossi kona þessi kraftinn léði

            ljóst það skildi seggur séði

 

Saman standa í einu og öllu, alla daga

            yndi er þeirra ástarsaga

 

Nú kæru hjónin hjúfrast hafa hálföld glaða

            hjörtun slá á sama hraða

 

Hjónin kæmust illa af ef ekki ættu

            sjálf sig að í heimsins hættu

 

Bjössi stundar líkamsrækt af styrkri festu

            Guðni kokkar krásir mestu

 

Árni Þór kann ýmsar listir öðrum sýna

            Þyrí dýrkar danslist fína

           

Barnabörnin Tótu og Árna teljast tíu

            Auk þess eitt af kynslóð nýju

 

Ríma af félags- og trúnaðarstörfum

Árna er öndin svo heiðrík og há

er hugsjónin rekur til fjölmargra verka

            hefur hann þetta sem þurfa hann má

            þroskaða samvisku sterka

 

Sem kornungur drengurinn félög svo flott

            í fjölmörgum íþróttum stofnaði og keppti

            Í hástökki og sundi hann gerði það gott

            í glímunni verðlaunin hreppti

 

Vaskir þeir drengir í víglegum hug

            vörðuðu Kleppstúnið gryfjum og brautum

            hlupu og köstuðu af dáðríkum dug

            og dönsuðu kátir á skautum

 

En sálin fékk líka þá sælu í önd

            hvern sunnudagsmorgun hjá Reidari og bróður

            að kanna í bænhita lendur og lönd

            með litmynd af Jesú og móður

Í skátunum lærði að hnýta sér hnút

            og hnippa í góðverka mannúðartaugar

            Í stuttbuxum glæstum með grænleitan klút

            gengin öll fjöll rétt sem haugar

 

En íþróttaandinn, ég greint frá því get

            þá glóandi fossaði um æðar hans kappið

            Á sautjánda júni hann setti engin met

            þá sjatnandi þótti honum happið

 

Í félögum einatt má gera sitt gagn

            ef góðmenni um störfin og framkvæmdir véla

            Oddfellows draga þeir vöskustu vagn

            þá víst ei á glugga féll héla

 

Þar hefur hann fagnað í fjörutíu ár

            svo fús æ til hugheilla mannúðarverka

            frábær og traustur sá félagi klár

            sem flutt getur boðskapinn merka

 

Um árabil dæmdi sá öðlingur próf

            er iðnssveina setning´ af glöggskyggni mat hann

            í vígreifa sveinana vandvirkni gróf

            og veitti þeim framfara hvatann


Nú hann stendur eftir með hreinfáðan skjöld

            svo hokinn af reynslu og virtur og dáður

            hans verk munu lifa um ævi og öld

            hans atgeir er beittur sem áður

 

Hylling eða lokalag

Hér er fjölmenni saman safnað

            sem í sjötugri veislu´ hefur hafnað

                        Við hyllum einn mann

                        einn hlýlegan mann

            Mjög hefur drengurinn dafnað!

 

Við drekkum hér dásemdar veigar

            hver drengur um sjötugt teygar

                        Við hyllum einn mann

                        einn hressandi mann

            Hans veisluhald víst ekki geigar

 Nú vinir hans safnast hér saman

           sólgnir í hátíðargaman

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugdjarfan mann

            svo baráttufúsan í framan

 

Við dáum hans prentgripi og prísum

            í prúðustu kvæðum og vísum

                        Við hyllum einn mann

                        einn heiðríkan mann

            Í hástemmdri hrifningu lýsum

 

Hann Árni er vandaður vinur

            sem víkur ei hvað sem á dynur

                        Við hyllum einn mann

                        einn hljóðlátan mann

            hann er traustur sem beinvaxinn hlynur

 

Með gleði að störfunum gengur

            hans góðvild er umhverfis fengur

                        Við hyllum einn mann

                        einn hrífandi mann

            hann er brosmildur boldungsdrengur

 

Nú hokinn af reynslu er halur

            bæði heitur, volgur og svalur

                        Við hyllum einn mann

                        einn hugsandi mann

            hans er veglegur viskumalur

 

Með bros eins og blíðasti prestur

            svo bráðnar hver afmælisgestur

                        Við hyllum einn mann

                        einn hlýlegan mann

             Í hlátri er mildingur mestur

 

Árin sem öðlingsins bíða

            í ánægju megi þau líða

                        Við hyllum einn mann

                        einn hreinlyndan mann

            við fylgjum hans fordæmi víða

 

Áfram með afmælisstuðið

            afsakið töfina og puðið

                        Við hyllum einn mann

                        einn hlustandi mann

            Lokast nú ljóðræna tuðið. (30. ágúst 2016)


Í sjötugsveislu skálds - Óttar

Hann Óttar er yrkjari slyngur,

um afaskap hástöfum syngur.

Ljóðmælin stinn

hann letrar á skinn

og leikur við hvurn sinn fingur.

 

Drífur um draumsjónir brátt fár,

í dag þú sjötíu átt ár

en huggun þér er

að hvirfill er ber

því á höfðinu er ekkert grátt hár. (2010)


Sumarskírn

Jódís Magga Blómkvist – Skírnarljóð 18. júní 2022 frá Guðmundi og Ingibjörgu

Valkyrja sem ríður fáki fráum

fram á veg hún berst í kvenna röð

Í minningu um Magga nafnið dáum

þá minningu ber lítil stúlka glöð

Blóma kvistum áköf blíðan safnar

Í Borgarfirði vex hún upp og dafnar

 

Falleg hnáta, skörp og skýr í huga

skínandi hún hlær við mömmu sín

Hugsun ör sem lítil fjörug fluga

flögrar um svo geislandi og fín

Í janúar á jörðu fæðast ljósin

Jódís Magga Blómkvist heitir rósin. (2022)

 

Hafþór B. Guðmundsson sextugur

  1. febrúar 2014

Það má alls ekki meistarann mæra

þótt mögnuð sé öðlingsins æra

Hann syndir í skjól

inn í sextugra ból

þar sem öndina aldraðir næra.

 

Hann Haffi oft til Flórída flýgur

svo feginn um golfvelli smýgur

Hann er glaður á brá

og svo brosandi af þrá

þegar góðvín úr glösunum sýgur

 

Til hamingju hugljúfi drengur

þinnar hugrökku konu ert fengur

En nú segi ég stopp

og ég stöðva allt flopp

því þér leiðist ef mala ég lengur. (2014)

BARÁTTU- OG HÁTÍÐARLJÓÐ

 

Lausnin

Á aldarafmæli Ungmennafélags Laugdæla

Ég yrkja vildi ljóðakorn um léttan fuglasöng

í Laugardal hvar börnin tefla og glíma

en orðin vildu ei koma, mín kvíðastund varð löng,

ég kunni ei lengur vísukorn að ríma.

Samt er hér þessi hetja sem ungir vilja líkjast,

enginn hér í sveitinni undan því má víkjast

 

Sú hetja leiðir æskuna í átt til draumalands

eggjar hana að sigra hindrun hverja

Enginn geti þrifist án hins trausta tryggðarbands

tún sitt beri fljóði og hal að verja

En ljóðið vill ei fæðast, þótt logi í mínu sinni,

lokuð er og falin sú þraut í hugsun minni

 

Með lífsþrótti og fjöri nú ég frelsa vil mitt ljóð

og finna þessum orðum leið úr huga

Því leita ég í sveitar minnar mætan hetjusjóð

og mæli fram þau orð sem vel mér duga:

Þótt enn um stundir gráni og glytti í himin

svartan

þá glóir skært á lausnina, við eigum okkar

Kjartan. (2008)

Garður á Laugarvatni

Hér býr minning um sigur og sóma

um samstöðu er vaknaði úr dróma

hér er gæfunnar rós

hér býr gleði og ljós

nú er Garðurinn komin í blóma

 

Þó að veðráttan virðist oft galin

þið svo velkomin eruð í dalinn

Þegar Garðbúar kærir

fluttu kátir og færir

þá fór kliður um háfjallasalinn

 

Hér er framtíðarhugsjón í huga

sú hugsjón mun sveitinni duga

Hér er heimili nýtt

hér er  fallegt og hlýtt

hér sé hamingja - og ein og ein fluga. (2005)

 

1101 árs afmælI

Ort veturinn 1975-1976 í Björgvin undir dulnefninu Stefán úr Vík en á bak við það leyndust ég, Trausti Jónsson og mikið ef ekki Helgi Þorláksson líka en heiðurinn af nafngiftinni á foringi okkar allra, Stefán Stefánsson.

Indæla íslenska Frón, ástkæra fornaldar móðir,

þínum að fótum ég fell, því fölskvað er land vort

og þjóð.

Frá Björgvinjar skúrsælu borg mitt bragarfull

dýrkvætt ég færi

því heimþrá og hretviðrabálin huga minn bera til

þín.

Ó, þín tindóttu tún og taumlausu jöklar og

klungur,

blómlegu eldfjöllin bláu og brimsorfnar strandir

og sker.

 

Hraunin þótt harðlynd brenni og húsin þau leggi í

rústir,

þá fegurð vér festum á mynd, hún færir oss

glaðninginn heim.

Og undan söndunum sælu er seglið að húni

dregið,

því Ingólfur Arnarbur albúinn stefnir til lands.

 

Þeir Íslands farsælu fiskmenn færa oss þorska og

ýsur

og Bretana burtu þeir reka til Ballarhafs vestan

um sæ.

 

Ó, þú feðranna fold,

sem fóstraðir skáldin:

Steingrím, Jónas og Stein,

Styrmi, Hjálmar og Jón.

 

Úr Norðvegi námu þeir landið, Naddoður, Garðar

og hinir,

þær lyddur frá landvættum Íslands lögðu á flótta

í nauð.

En austur á Öræfasöndum, hvar Ingólfshöfði nú

gnæfir,

fóstbræður flutu að landi, frelsisunnandi menn.

Með hugprúðu hetjulyndi þeir hrjóstrin sigruðu –

og græddu.

 

Þótt morðingjar Hjörleif myrtu, þess minnumst

vér frjálsræðisdrótt

– að Ingólfur bar þá birtu sem blessar hans

niðjagnótt.

Svo komu kapparnir fræknu, sem körpuðu af

Lögbergi tíðum,

þeir huguðu að hinu og þessu og hjuggu hver

annan í spað.

Útlendu kónganna klækir með kaupmennsku

réðust á landið,

bévítans baunverska drjóla vér bölsyngjum enn í

dag.

Loks birti í lofti og laufgaðist vonanna smári,

því skáldin þær hugsjónir hófu, sem heilsuðu

vaknandi þjóð.

 

Og mæringur arnfirskur mælti: „Vér mótmælum

allir þeim kóngi,

sem grætti vorn gamla Árna“, í grösugum

Kópavogsreit.

Og svo var það síðla að hausti, fyr sjö og fimmtíu

árum,

að íslenski fullveldisfáninn í frosti var dreginn að

hún.

 

Ó, þú feðranna fold,

sem fóstraðir hetjur:

Heljarskinn, Hannes og Jón,

Hannibal og Bjarni frá Vogi.

 

Þú konunga kynborna þjóð, sem kaghýddist langt

fram í ættir,

hvar er þín fornaldar frægð, frelsið og

manndáðin best?

þér gaulið úr glymskröttum elskið og gruggugan

landa drekkið,

og lyngið á Lögbergi helga er leiksoppur skelja

hvert ár.

Og Geysir er hættur að gjósa, og Gullfoss skal

virkja á morgun,

og traktorar blómin troða og töðunni spýta í hús.

 

Að Mývatni verður hver maður af mýbiti bólginn

og sollinn,

og bændurnir bækur kaupa um byltingar, morð

og víf.

Við Öxará einmana stendur alþingismaður og

dætur,

þær drukkna ekki í drekkingarhyl, þótt dátum

þær ylji um nótt.

 

Ó, þú feðranna fold,

sem fóstrar nú gungur:

Einar, Gunnar og Geir,

Gretti, Vilhjálm og Trausta,

Jóhann, Ómar og Albert,

Eggert, Pétur og Pál,

Ellert og Andrés Gæs,

Ingólf, Lúðvík og Geir.

 

Hvar er nú feðranna frægð?

Er hún fallin í gleymsku og dá?

 

Nei, því árroðans eldur, æskunnar svífandi

þróttur,

í niðjum þess nagla býr, sem níðstöngu reisti við

vog.

 

Rís upp, þú ótamdi kraftur, vér eggjum til dáða

og víga,

kennið framsóknarkallið, kastið burt duglausum

lýð.

Þá munu eldar og ísar aftur um fjarðvoga glitra,

uns Geysir fer aftur að gjósa, og Gullfoss hrekkur

í lag.

Þá mun frelsisins fáni yfir fólkvangi blakta

og landvættir loksins skilja að lokið er hungri og

kvöl.

 

Ó, þú feðranna fold,

sem fóstra MUN hetjur,

sem fóstra mun HETJUR!

Stefán úr Vík. (1976)


Landhelgisaksjónistarnir

Íslenskir námsmenn í Ósló unnu ötullega að hagsmun­um Íslands í landhelgisdeilunni 1972-73, héldu ræður, skrifuðu dreifibréf, ferðuðust um Noreg og hittu sjó­menn, stjórnmálamenn og fleiri. Um þá varð ég að yrkja brag vorið 1973.

Það gerast stundum ævintýri enn að gömlum sið

Hérna sitja kommar og kratar hlið við hlið.

Þeir telja það sitt takmark að frelsa allan heim

Það þætti kannski hæfa að flytja kynningu á

þeim.

En tími minn er skammur og skáldastélið stutt

svo lýsingu á öllum get ég ómögulega flutt.

Ég ætla því að dvelja við það dularfulla lið

sem í allan vetur hefur verndað íslensk mið.

Með óskaplegum krafti og æðislegum dug

þeir anda sínum lyftu á 50 mílna flug.

Og núna er það útséð hvað af ofsa þessum hlýst

því Lúðvík ekkert ráðskast nema ræða við þá

fyrst.

Fræga fyrst má telja þá Albert Stalínsson

og Ara Trausta Lenín Engels Guðmundsson

Þeirra stærsta afrek – og það var svo sem nóg

var að fá hann Maó til að styðja Óla Jó.

Næstur kemur Kristján Grundafjarðarsveinn

með fingurna í skegginu, fattur, smár og beinn.

Hans verkefni var vægast sagt voðalega smátt

Það var að hringja í Norðmenn og hlæja létt og

kátt.

En þetta var til góða fyrir þjóðar vorrar hag:

hann hló sig inn á „Klassekamp“ einn góðan

vetrardag.

Til að passa Didda og til að brosa með

var sendur Snævar Guðjónsson með sitt ljúfa

geð.

En í viðtölum við Nygaard stundum við það bar

að Snæi gleymdi að brosa og gleymdi hvar hann

var.

Og með einu handarviki og hraðar en fuglinn fer

gat Nygaard snúið Snævari og Didda um fingur

sér.

Svo gerðist það um daginn að depurð sótti heim

og brosin ljúfu önduðust á andlitinu á þeim.

Því dýrlingurinn Nygaard dreif sig út í lönd

þá brustu þessi sælublöndnu sterku sálarbönd.

Og núna Diddi og Snævar, þessir snjöllu, litlu

menn

bíða eftir Nygaard og vona að hann komi senn.

Ein nefndin hér er taunefnd og naumast er það

tjón

þótt ekki náist pláss í henni nema fyrir Jón.

Þar vikustarfið felst í að vakna klukkan tvö

og muldra inn í símtól: „Merkjaþúsund sjö.“

En Jón er ekki bara í einum svona hóp

því stress- og pressunefndina með prakt og veldi

hann skóp.

Þeir settust niður saman Jón og Gvendur Sæm

og þýddu ræðuþvælu eftir Lúðvík „á nó tæm“.

Og þegar það var búið voru brúkuð skæri smá

og þvælan klippt í þvælubúta tvö hundruð og

þrjá.

Og svo var þessum ræðubútum raðað hér og þar

á óteljandi vegu eins og vera bar.

Og upp úr þessu fengu þeir feiknarlanga röð

af Faktaefni og pressuskrifi í flestöll Noregs blöð.

Nú ganga þeir um strætin grobbnir upp í hár

og segjast hafa samið þetta mikla greinafár.

Svo skrifar Gvendur pistla um

pressunefndarstand

og sendir þennan samsetning í Moggann og Nýtt

land.

Fjármálunum stjórna Trausti og Tóta fús

þeirra takmark er að safna í sextán hæða hús.

Þau selja merki og sníkja úr Íslands ríkissjóð

og safna og safna peningum í öflugt auraflóð.

Og þegar einhver kemur til að biðja þau um fé

fær hann ekki eyri nema krjúpa bljúgt á kné.

Með íhaldshugarfari með gróðann númer eitt

skima þau í allar áttir, komast vilja í feitt.

Og ef svo heldur áfram sem undangengið er

þá er alveg auðséð hvernig þetta fer:

Þá fara allir Norðmenn á bæinn smátt og smátt

en Trausti og Tóta hringla í krónum sælt og kátt.

í bílanefnd hjá aksjóninni Hafþór skipar sess

inn og út úr bílnum má hlaupa og segja: „Bless!“

Því Hafþór er á flugi og ferð um allan bæ

með blöð og merki og áróður um Íslands kalda

sæ.

Og allir segja: „Auminginn er eins og útspýtt

skinn“ –

en það er létt að leiðrétta þann ranga skilning

þinn.

Því Hafþór selur sápu eins og sölumanni ber

svo hann þarf út um bæinn að atast hvort sem

er.

En Sirrí líka í reddið sinn lætur vélargand

en hún gerir það um leið og hún ekur Jóni á

stand.

Og öll þau feikn af stoffi sem pressunefnd hefur

gjört

fékk Sirrí strax að vélrita á stenslablöðin svört.

Og að kenna í brjósti um Sirrí fyrir þetta svitaverk

er svo sem indæl hugsun og ákaflega merk.

En það er alveg óþarft, ég get borið vitni um það

því það er hennar eftirlæti að pikka orð á blað.

Því þegar hún er að vélrita vex upp hennar þrá

hún fer í kapp við sjálfa sig með sælusvip á brá.

Og gæti hún ekki djöflast svona dag og nótt og

kvöld

væri hún hrygg og geðvond og glær og fúl og

köld.

En yfir öllu trónir formaður í FÍSN

en honum þykja ósköp þessi alltof mikil býsn.

En félagshagur ræður og framavonin sterk

þau lifa í Íslandssögunni þessi landans verk.

Og það sem aldrei gleymist og sagan geymir

traust

er hver hafi verið formaður þetta frægðarhaust.

Og þess má gjarnan vænta að eftir tvö-þrjú ár

þeir berjist um sæti á framboðslista Logi og Diddi

smár.

Já þannig endar sagan eða svona hér um bil

en að þið skulið dá þetta ég ómögulega skil.

En þótt þeir séu lélegir og landhelgin sé kröpp

legg ég til við færum þeim fáein lítil klöpp. (1973)

 

Landhelgissöngur

Lag: Öxar við ána

Bretarnir berjast

bölva og lemja

bítast við íslenska landhelgismenn

Víkingar verjast

en vargarnir emja

veiða ekki bröndu þeir örvitamenn

Áfram 50 mílur

áfram verjumst fantahríð

Rekum burtu Breta

á Ballarhafi geta

þjófar háð sitt þorskastríð. (1972)


Til Ermíasar í Eritreu

Gegn erlendu valdi og ofbeldisræði

af alhug þið berjist, gegn morðum og æði

Af fjandmönnum vinnið þið svæði eftir svæði

sækið á brattann, gegn hatri og bræði.

Þú þjóð þína elskar og eggjar til dáða

æskuna brýnir og hughreystir smáða.

Með frelsið sem markmið og friðinn í huga

þín fegursta óskin er þjóð þinni að duga.

 

Viðlag: Félagi Ermías, félagi sæll

ég færi þér kveðjur að norðan.

Félagi Ermías, félagi sæll

ég færi þér hugheilar kveðjur að norðan.

 

Já, fagurt er verk þitt, þú félagi og vinur

og fjandinn er sterkur sem yfir þig dynur.

En eþíópískt einræði undan þér stynur

og innrás frá Kúbu um sjálfa sig hrynur.

Sú smáþjóð sem berst fyrir lífi og landi

launsátrum öllum hún verður að grandi.

Þú sigra munt sovéska heimsvaldaseggi

þótt sjúkir af gróðafýsn sjálfa sig eggi.

 

Viðlag: Félagi Ermías, félagi sæll...

 

Á Íslandi þekkjum við óvini þína:

auðherra, kúgara, borgara "fína".

Útlenskur her treður móðurjörð mína

og Moskvuliðs ógnir um höfuð mér hvína.

Berðu því bróðir til félaga þinna

baráttu- og kveðjuorð landsmanna minna.

Við hlið þína stöndum og stuðning þér sýnum -

og staðfestu lærum af afrekum þínum. (1998)

 

Til þín, Kampútsja!

Þú lagtæka smáþjóð sem leikin ert grátt

af lævísum féndum sem rjúfa alla sátt.

Í nábleikum heilunum hugsað er flátt

og herjum er skipað að myrða.

            Kampútsja – Kampútsja

Nú land þitt er lamið af Víetnams stríði

en leið þeirra er vörðuð af sovésku níði.

            Kampútsja – Kampútsja

            þig kúga nú erlendar sveitir

            Kampútsja – Kampútsja

            þú kúguðum fordæmi veitir.

 

Fyrir örfáum árum þú heimtir þín lönd:

og ógnun sem frelsi þitt hneppti í bönd

þú lagðir að velli, þá létt var þín önd

og lokið var hörmungarstríði.

            Kampútsja – Kampútsja

Svo sannlega áttirðu harma að hefna,

hrundi því bandarísk ofbeldisstefna.

Kampútsja – Kampútsja

            þig kúga nú erlendar sveitir

            Kampútsja – Kampútsja

            þú kúguðum fordæmi veitir.

 

Þú byggðir upp afl þitt og alþýðuvöld,

þú auðgaðir líf þitt og fáðir þinn skjöld.

En utan að barst til þín andrænan köld:

áróður lyga og svika.

            Kampútsja – Kampútsja

Afturhald heimsins í Austri og vestri

yfir þig jós sínum rægjandi lestri.

Kampútsja – Kampútsja

            þig kúga nú erlendar sveitir

            Kampútsja – Kampútsja

            þú kúguðum fordæmi veitir.

 

En lambið var étið og úlfurinn naut

afls síns og stærðar og  hvarf svo á braut.

En hér verður hins vegar þyngri sú þraut

þjóðinni smáu að eyða.

            Kampútsja – Kampútsja

Þú stefnir á frelsi, á frið um þitt land,

því fær enginn kúgari unnið þér grand.

Kampútsja – Kampútsja

            þig kúga nú erlendar sveitir

            Kampútsja – Kampútsja

            þú kúguðum fordæmi veitir. (1997)


SÖNGLJÓÐ OG BRAGIR

 

Sú var tíðin ...ML

Í tilefni 50 ára afmælis Menntaskólans að Laugarvatni árið 2003 ortum við Óttar Einarsson vinur minn og samkennari afmælisbrag. Hann var fluttur á afmælinu við leikræna tilburði nemenda sem klæddu sig upp á og höguðu sér eins og vísurnar sögðu.

Nú er hátíð og hugirnir mætast

og í höllinni gleðjast og kætast.

Eftir fimmtíu ár

lifa óskir og þrár

og þeir draumar sem dafna og rætast.

 

1953

Þegar skólinn var settur í salnum

og sólskinið ljómaði í dalnum

þau dönsuðu tjútt

það var dæmalaust fútt

þó að væri ekki mikið í malnum.

 

1963

Það var djammað og farið í Festi

og menn fengu sér jakka og vesti

Það var rokkað af list

og svo reyndu menn „twist“

meðah Ómar söng: „Hott, hott á hesti!“

 

1973

Þau börðust gegn böli og dauða

undir blaktandi fánanum rauða

og menn fóru út í geim

en þau frelsuðu heim

og var fagnað af fjöldanum snauða.

 

1983

Þau bjórlíki kneyfuðu úr krúsum

á knæpum og veitingahúsum.

Fyrst var það „shake“

en síðan kom „break“

og svo löptu menn landa úr brúsum.

 

1993

Þetta er kynslóð sem kaupir af sjóðum

og hún kann ekki  mikið í ljóðum

En þau rækta sinn skrokk

og þau skemmta sér nokk

við að sippa og lyfta upp lóðum.

 

2003

Þau lauga sitt lífsblóm af kappi

og lenda við Pálma í stappi.

En á tölvunnar skjá

reynist tilveran blá

og þau létta sér lífið með rappi. (2003)

Lokasöngur í KabarettLeikfélags Akureyrar

(Við ýmis lög)

(Nína og Geiri)

Við eigum okkur leikfélag lítið eitt

sem leikur núna alls ekki neitt

því blankheit herja á hópinn þann

sem hlægir, æsir og syrgir mann.

 

(Siggi var úti)

Í fyrstu þau leituðu á leiðtoga vitin

með ljúfsárar óskir, þau leikaragrey.

En ríkið það neitaði, nú sáust svikin

og nánasir bæjarins – svei, svei og svei.

Nei, sko mennina flotta og fína.

Nei, sko mennina flotta og fína.

Úr formföstum augunum óskirnar skína

en aumingja leikarar fá ekki neitt.

 

(Stolt siglir fleyið)

Það er því alveg víst, elskurinn minn

að atvinnuleikhúsið hverfur nú um sinn.

En ætlið þið þrjótum að þola það raus –

að við verðum leikfélagslaus?

LA – gamla LA

leikfélagið mitt

í stormi og hríð þú stendur þitt stríð

stöðvar allt níð, því lund þín er blíð

LA – gamla LA

leikfélagið mitt

Við elskum þinn hag hvern einasta dag

við syngjum þér brag og búumst í slag.

Það er því ekki víst, elskurinn minn

að atvinnuleikhúsið hverfi burt um sinn

því við ætlum ekki að þola það raus

að við séum leikfélagslaus.

 

(Ólafur reið með)

Láum því ljóma kröfuna

Leikfélag! Leikfélag!

Burt með nauma nískuna

við norðlenskt leikfélag.

Berum oss að berjast fyrir björginni

berum oss að berjast fyrir björginni strax. (1980)

 

Þorrablót UMFL 2005

Ég var í skemmtinefnd vegna þorrablóts Ungmennafélags Laugdæla árið 2005. Ég orti textana sem sungnir voru í dagskránni og fara þeir hér á eftir.

 

Póstur og bankastjóri (Lag: Pósturinn Páll)

Flytjandi: Johnny High – Jón Þór Ragnarsson

Pósturinn Jón

pósturinn Jón

pósturinn Jón er ekkert flón

í búðinni opnar banki

brosir þá Nonni blanki

Blíðlegur er bankastjórinn Jón.

 

Kann ég vel að syngja um seðlabúnt

sofa með þau undir kodda mínum

Já, ég elska peninga

Pósturinn Jón, Jón, Jón er ekkert flón ...

 

Pósturinn Jón

pósturinn Jón

pósturinn Jón er ekkert flón

í búðinni opnar banki

brosir þá Nonni blanki

Blíðlegur er bankastjórinn Jón.


Í sveitinni (lag: Halló, þarna bíllinn ekki bíður)

Flytjandi: Gugga gospel – Guðbjörg Jónsdóttir

Í sveitinni er furðufólk að finna

fýsir mig þá sveitalubba að kynna

Í kulda og trekki kúra í sínum bólum

kerlingar og karlar sem elska beljur, kindur, hunda og ketti, en hafa ...

ímugust á skólum

 

Í Efra-Apó og Hvammó búa kappar

en Kjartan og Snæbjörn eru Austureyjar-tappar 

Í Útey búa Gulla og gæinn þéttur

og grúví lögmaðurinn í Tungu rekur féð í annarra manna garða og ...

setur svo upp fléttur

 

Á Snorrastöðum Simbi á Guggu gólar

og gaurafjöld á Hjálmstöðunum spólar

Á Ketilvöllum Gróa og Guðný búa

í Miðdal búa þau Bjarni Líndal og Mía konan hans, en í Miðdalskoti vill ...

Magga að Kalla hlúa

 

Í Hólum eru Heiða og Jói Gunni

hrópast á með einum og sama munni

Elínborg og Friðgeir á þau hlýða í kulda

en á Böðmóðsstöðum eru blómabörnin Auðunn og María, einnig Hörður, Mæja, Árni, Erla og nautahjónin

sælu ...

Jón Þormar og Hulda

 

Í Leyni elska Guðmundur Óli glaður

og gjafmild meyja, Rósíta, ó já maður.

Í Efstadal eru Björg og Bjössi kraftur

en blessuð gleymum ekki Siffa og Möggu, Kristrúnu, Ragnheiði og Tedda sem ...

brýtur og lagar aftur

 

Ég er drottning (Lag: Elsku vinurinn góði). Flytjandi: Helena fagra frá Kanarí – Helena Traustadóttir

Ég er drottning tennismanna

ég er drottningin ein og sanna

ef ég þyrfti kúlur að kanna

myndi ég láta þær allar inn

elsku besti vinurinn.

:,: Umbarassa, umbarassa, umbarassassa :,:

 

Þarna sé ég strákastóð

ei er því að leyna

Vaknar í mér gömul glóð

brátt ég fer að veina

Skilurðu hvað ég meina?

:,: Umbarassa, umbarassa, umbarassassa :,:

 

Strákar komið, kyrjum lag

hleypur nú á snærið.

Dönsum fram á næsta dag

Sjáið þið á mér lærið.

Nú er tækifærið.

:,: Umbarassa, umbarassa, umbarassassa :,:


Unglingaskólarnir á Laugarvatni (Lag: Í skólanum) Flytjandi: Dísa – Þórdís Pálmadóttir

Í skólunum, í skólunum þau skemmta sér og

djamma

þau rífa kjaft við kennara

og kasta skít í meistara

Í skólunum, í skólunum þau skemmta sér og

djamma

 

Hann Kári Jóns, hann Kári Jóns, hann krakkastóðið siðar

Hann bannar sex og sull í bjór

og sukk í laug og helgarþjór

Hann Kári Jóns, hann Kári Jóns, hann

krakkastóðið siðar

 

Í Menntó er, í Menntó er svo mikið lært um lífið

Þau skipta um maka mjúklega

og meika daginn sjúklega

Í Menntó er, í Menntó er svo mikið lært um lífið


Tommi Tommi Tré (Lag: Bolli-bolli-bu og Ó, þá náð). Flytjendur: Dísa og Gugga gospel

Tommi-Tommi-Tré-Tommi-Tré-Tré-Tré

Tommi-Tommi-Tré-Tommi-Tré-Tré-Tré

Tommi-Tommi-Tré-Tré-Tommi-Tommi-Tré

Tommi-Tommi-Tré-Tommi-Tré-Tré-Tré

 

Ó, þá náð að eiga hamar

einkanlega í smíðinni

ó þá heill að hætta mega

að halda áfram í keppninni

 

Jói-Jói-Tré-Jói-Tré-Tré-Tré

Jói-Jói-Tré-Jói-Tré-Tré-Tré

Jói-Jói -Tré-Tré- Jói-Jói -Tré

Jói-Jói -Tré- Jói-Jói -Tré-Tré-Tré

 

Allt sem ég get

(Lag: Kanntu brauð að baka?)

Flytjandi: Johnny High

Kanntu brauð að baka? Já, það kann ég

Svo úr því verði kaka? Já það kann ég

Ertu alveg viss um? Já það er ég

Eða ertu kannski bara að gabba mig?

 

Kanntu að sjóða pulsu? Já það kann ég

Svo úr því verði Guðni? Já það kann ég

Ertu alveg viss um? Já það er ég

Eða ertu kannski bara að gabba mig?

 

Kanntu að frussa úr dælu? Já það kann ég

Svo bensín flæði um planið? Já það kann ég

Ertu alveg viss um? Já það er ég

Eða ertu kannski bara að gabba mig?

 

Kanntu að leika löggu? Já það kann ég

og stinga fólki í steininn? Já það kann ég

Ertu alveg ....

 

Ekta Laugvetningar (Lag: Bimbambimbam)

Flytjandi: Helena fagra frá Kanarí

Bimbam bimbam, bimbirimbirimbam

Hver er að berja? Bimbirimbirimbam

Það eru ekta Laugvetningar. Bimbirimbirimbam

Og hvern vilja þeir finna? Bimbirimbirimbam

Skipulagsfulltrúann. Bimbirimbirimbam

Hvað vilja þeir honum? Bimbirimbirimbam

Vernda auðar lóðir. Bimbirimbirimbam

En hvers vegna vernda? Bimbirimbirimbam

Svo þeir geti tjaldað þar. Bimbirimbirimbam

Hver eru svo rökin? Bimbirimbirimbam

Sjónmengun og hávaði. Bimbirimbirimbam

Og hvað vilja þeir meira? Bimbirimbirimbam

Vernda gömlu gufuna. Bimbirimbirimbam

Og hvernig á að gera það? Bimbirimbirimbam

Banna allar breytingar. Bimbirimbirimbam

Og hvað fáum við að launum? Bimbirimbirimbam

Að sjá þá og virða. Bimbirimbirimbam

Hvernig koma þeir hingað? Bimbirimbirimbam

Á fornbílum og þyrlum. Bimbirimbirimbam

Bimbam bimbam, bimbirimbirimbam

 

Traustur vinur (Lag: Traustur vinur)

Flytjandi: Helena fagra frá Kanarí

Óli minn, þú ert konum kær

þú huggar og verndar þær

Óli minn, svo fagur og stæltur staur

þú ert strákanna besti gaur

 

Já, sagt er að þegar þú faðmir stúlkugrey

verði hún aftur mey

Því segi ég það, þá á hún vin í raun

fyrir hennar hönd, guði sé laun.

 

Því stundum verður konum á

styrka hönd þær þurfa þá

þegar rúmið allt í einu sýnist einskisvert

 

Gott er að geta talað við

einhvern sem að skilur þig

traustur vinur getur gert kraftaverk

 

Gullna rörtöngin (Lag: Upp með hendur)

Flytjandi: Johnny High

Drullusokkur hentist inn í H-Sel

og hélt á rörtöng, hvílíkt tröll

Heimtaði með þjósti peningana

annars mundi hann rota þau öll

Upp með hendur, niður með brækur,

peningana aftur, eða ég slæ þig í rot.

Haltu kjafti, snúðu skafti,

aurinn eins og skot!

 

Drullusokkur druslaðist í burtu

reyndi að fela sporin sín

Við eltum hann á tveimur glæsikerrum

ég og litla Sigga mín

Upp með hendur, niður með brækur,

peningana aftur, eða ég slæ þig í rot.

Haltu kjafti, snúðu skafti,

aurinn eins og skot!

 

:,:Hesma, þúsma, mesma, vosma, kasma, isma,

hesma, þúsma, mesma, hosma? - Já!:,:

 

Við náðum honum hímandi við Þingvöll

og hengdum hann upp í næsta tré

Réttlætið það sigraði að lokum,

og H-Sel endurheimti féð.

Upp með hendur, niður með brækur,

peningana aftur, eða ég slæ þig í rot.

Haltu kjafti, snúðu skafti,

aurinn eins og skot! (2005)

 

Þorrablót UMFL árið 2011

Fyrir Þorrablót UMFL árið 2011 var ég fenginn til að semja söngtexta um skóla- og fræðslumál Laugarvatns. Ég greip þetta tækifæri fegins hendi og fer afraksturinn hér á eftir.

 

FIMM SKÓLA VANDAMÁL OG NEFNDIN MEÐ

 

FRÆÐSLUNEFND:

(Gekk ég upp á gnípu)

Bugtaði sig og beygði

og brosti "oll ðe tæm"

Í hræðslunefnd sig hneigði

hinn hræddi  Gummi Sæm

Í hræðslunefnd sig hneigði

hinn hræddi  Gummi Sæm

 

(Hvar er úlpan mín?)

Hvar er hvar er hvar er hvar er nefndin mín

hvar er nefndin mín

hvar er nefndin mín

Hvar er hvar er hvar er hvar er nefndin mín

hvar er nefndin mín?

 

LEIKSKÓLINN:

 (Í skólanum, í skólanum)

Í leikskóla, í leikskóla                                    

er ljúft að skeina börnum

Með Sigurveigu syngja tólf

um saggalykt og fúin gólf

Í leikskóla, í leikskóla

er ljúft að skeina börnum.

 

(Hvar er úlpan mín?)

Hvert er stokkinn ljúflingurinn Lambi minn

hvar er Lambi minn

hvar er Lambi minn

Hvert er stokkinn ljúflingurinn Lambi minn

hvar er Lambi minn?

 

GRUNNSKÓLINN:

(Fram fram fylking)

Fram fram Arndís

frúin stikar regluglöð

með Sigmar að baki og sameinuð blöð

Elskar vor börn breytingagjörn

Skóflar þeim í skólabíl

skrautlegur er flokkur

þegar rjómann ræðir við „í Reykholti hjá okkur“.

 

Fram fram, Bjarni

funinn nálgast hættustig

því sveitungastjórn er að svíkja þig

Leyf þeim að sjá hver Laugardal á

Tökum alla Tungnamenn

og troðum undir feldi

Leyfum öllum liðleskjum

að loga í heiftareldi.

 

(Hvar er úlpan mín?)

Hvar er gamli, góði, litli skólinn minn

hvar er skólinn minn

hvar er skólinn minn

Hvar er gamli, góði, litli skólinn minn

hvar er skólinn minn?

 

TÓNLISTARSKÓLINN

(Í kjallaranum)

Í kjallaranum Ölli  Í kjallaranum Ölli

má nú kúldrast við að kenna tónaflóð

Í kjallaranum Ölli

Í kjallaranum Ölli

því drottningin í grunnskólanum þoldi ei

gítarhljóð

 

(Hvar er úlpan mín?)

Af hverju hrakti hún mig úr húsinu

skólahúsinu

skólahúsinu

Af hverju hrakti hún mig úr húsinu

skólahúsinu?

 

MENNTASKÓLINN

(Afi minn fór á honum Rauð)

Skokka þrjár í eina átt                                  

og allar á sama tíma.

Gaman saman, kyrja kátt

Kristrún, Jóna og Gríma

 

(Hvar er úlpan mín?)

Strákar, strákar, sjáið sætu bossana

sætu bossana

sætu bossana

Strákar, strákar, sjáið sætu bossana

sætu bossana!

 

KENNARAHÁSKÓLINN

(Frjálst er í fjallasal)

Í Þróttó varð þrítugur                                   

þvengmjór og skítugur

þjóðvegahlauparinn Bjössi

Kjartan þá kíkti út

kátan sá hlaupahrút

pakkaði í pappír í "rössi"

 

(Hvar er úlpan mín?)

Hefur einhver tekið flotta hrútinn minn

hvar er hrúturinn

hvar er hrúturinn

Hefur einhver tekið flotta hrútinn minn

hvar er hrúturinn? (2011)

 

Þorrablót UMFL eitthvert ár

Ég var beðinn um söngtexta á Þorrablót Umf. Laugdæla, ég man ekki hvaða ár. En hér kemur textinn.

 

Hér er allt svo yndislegt

(Lag: Söngur villiandarinnar)

Í Laugardals sælu með sólskin í hjarta

hún seiðir oss dýrðin í þorpinu bjarta

 

Viðlag: Ó sveitin mín góð, ég vil syngja þér ljóð

Ó sveitin mín góð, ég vil syngja þér ljóð

 

Þeir gáfu okkur hraðbraut um heiðina prúðir

nú hendumst við suður í klippingu og búðir

 

Við þjótum nú öll yfir þjóðgarð og fjöll 

Við þjótum nú öll yfir þjóðgarð og fjöll 

 

Við búum í gleði við bakkana lágu

og bjástrum í húsunum, fallegu smáu

 

Í friði og ást sem að aldreigi brást.

Í friði og ást sem að aldreigi brást.

  

Við eigum nú staði með útlenskum heitum

íslenska er sveitó, því henni við neitum

 

Þeir leika sér dátt, og því dafna þeir brátt

Þeir leika sér dátt, og því dafna þeir brátt

 

Á barnum hans Ella er bjórinn í tunnum

sú blessun er dýrmæt hjá Siggum og Gunnum

 

Þá hrópa þau skál, lyftist hugur og sál.

Þá hrópa þau skál, lyftist hugur og sál.

 

Í blómgörðum unir sér búsmalinn þægur

og blessaður Hérinn er skreyttur og frægur.

 

Já, fortíðin dó, hér er friður og ró.

Já, fortíðin dó, hér er friður og ró.

 

Við íslensku vötnin er fegurð og friður

og fagnandi ríkir þar vornæturkliður.

 

Ef gefið þið grið, öllum fuglunum frið.

Ef gefið þið grið, öllum fuglunum frið. (20??)

 

Lionsklúbbur Laugardals

            Í örlitlu ljóði ætla ég mér

            að yrkja um félaga mína

                        - svo fína.

            Ég raða þeim upp eins og reglan er,

            rétt skal sú nafnbótalína

                        oss brýna.      

           

Stjórn:

            Við forystu tekur foringi einn

            til formennsku borinn í heiminn,

                        ógleyminn.

            Keikur í fasi, brosandi og beinn

            blíður og dregur seiminn

                        - svo dreyminn.

 

            Ritari virtur í veglegum hóp

            vel mun hann starfi sinna

                        og vinna.

            Víst er hann laus við hávaða og hróp

            hópinn mun glaður kynna,

                        ei linna.

 

Gjaldkeri starfar í gleði og dug

            grínast mun daga langa

                        og stranga.

            Á ánægjustundum fer öndin á flug

            ólmast og heimtar að ganga

                        og stanga.

 

Varastjórn:

            Formaður kemur og formaður fer

            foringi bíður í leynum

                        óseinum.

            Trésmiður hagur tekur við her

            og treystir með fögrum greinum,

                        svo beinum.

 

            Útgerðarbóndinn mun sitja við borð undir

súð,

            sjóari mjög svo fríður,

                        hann bíður.

            og rita um fundi í Brydebúð

            blekið mun vella um síður,

                        það líður.

 

Kennarinn ætlar að kynna sér vel

            hvernig um fjármál skal halda

                        og valda.

            Kætast mun vísnarans kólguþel

            þegar kvittunum fer að tjalda.

                        Og þeir gjalda.

 

Skelmir:

            Sektin mun fjúka um sali hátt

            ef seint kemur félagi að heiman

                        Guð geym´ann!

            Hjá skelminum verður því sjaldan sátt,

            því svartklæddar nornir teym´ann

                        og dreym´ann!

 

Fyrrverandi formaður:

            Hvíla mun ljúfur á lárviðargrein

            laus út úr streði og stússi

                        í blússi

            Þar mun hann hvíla sín brákuðu bein

            blíður í pípurússi

                        eða fússi.

 

Fjáröflunar- og líknarnefnd:

            Stýrimannsvipur er stjóranum á,

            sterkur er fjárins að afla

                        og babbla.

            Og enn betur ganga mun gaurinum þá

            að gjöreyða peningastafla

                        í næsta kafla.

 

            Með honum verður mælskunnar prins

            sem mjólkinni ekur í vestur

                        - hann er bestur.

            Ef langt er á milli skúra og skins

            hann skælbrosir eins og prestur,

                        okkar mestur.

 

            Þriðji í hópnum er þrekmenni ljúft

            þrautgóður brúarsmiður,

                        nú er friður.

            Sem brúarstólpi hann dvelur djúpt

            af dáðríki málin styður

                        hans siður.

 

Fjórði í nefndinni er feikna knár

            það finnst á hans holdasvínum

                        svo fínum.

Í búvísi er ei bóndinn blár

brosir við spurnum mínum

                        og þínum.

 

Skemmtinefnd:

Víst kann að skemmta skúmur sá

skrafhreifinn bóndi frá Heiði

                        á skeiði

Alltaf á móti, aldrei má

egna oss hina til reiði

                        með veiði.

 

Eflir þulurinn fræða flokk 
friður er engum búinn, 

sé hann lúinn 

Rífur upp þróttinn, þeytir á brokk 

þreknar félagagrúinn 

ei snúinn.


Sá þriðji í þessari nösku nefnd

er næmur doktor hljóður,

                        svo fróður.

Sé planta lítil skökk eða skemmd

hann skýlir henni góður,

                        fjársjóður.

 

Landgræðslustjóri:

Landið græðir Einar einn

áburð kaupir mikinn

                        ósvikinn

 

Kraftamaður, í hjarta hreinn

hress sem æðarblikinn

                        elskar fnykinn.

 

Endurskoðendur:

Skoðar tölur, traustur er,

tekjur endurskoðar

                        og boðar

að gjaldkeri sé góður hér

gegn því ekkert stoðar

                        né moðar.

 

Hinn sem skoðar, Skógar burr,

skrifar, hleypur, syngur

                        ei ringur.

Safnar, ólmast, aldrei kjurr

einn með næma fingur

                        svo slyngur. (2014)